Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 23

Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. APRÍL 1992 23 Evpópuskórinn lögbundinn Herskarar evrópskra skriffinna og embættismanna hamast öllum stundum v’ið að reyna að koma sér saman um staðla á öllum mögulegum (og ómögu- legum) sviðum mannlegrar tilveru. í fyrra vakti það til dæmis nokkra kátínu þegar fréttist af Evrópustöðlum í smokkagerð og var sérstaklega til þess tekið að ítalskir embættismenn hefðu lotið í lægra haldi og þurft að sætta sig við stærri smokka en þeir töldu nauð- synlegt og rétt. Nú er nýr staðlapakki tilbúinn og að þessu sinni er það skófatnaður íbúa Evrópubandalagsins, sem hefur verið staðlaður. Frá og með 1. júlí 1993 mega allar 340 milljónimar ekki kaupa aðra skó en þá, sem bera innsigli EB. Til þess að hljóta innsiglið þurfa skómir að uppfylla nákvæma lýsingu á því hvað eru skór og hvað ekki, en kvartanir em þegar famar að berast EB vegna þessarar skilgreiningar. í sjálfa skóna má til dæmis ekki lengur nota pappír eða plast, þótt ýmis plastefni séu leyfileg f sólanum. Hafa sumir ítalskir skóframleiðendur brugðist ókvæða við og bent á að þó að fyrir skriffinnum í Brussel kunni skór bara að vera eitt- hvað. sem gengið er í, séu aðrir til, sem líti á skósmiði sem iistgrein. Fyrir sitt leyti hafa þeir tilkynnt að þeir muni áfram nota þau efni. sem þeim sýnist í skóna. ,.Við losuðum okkur ekki við fasistana og sigruðum kommúnismann til þess eins að ganga undir ok ein- hverra ósmekklegra hálfvita í Brussel," sagði skóframleiðandi nokkur í Mfianó. I Brussel segja menn Italina hafa misskilið reglugerðina. listinn yfir hin ieyfilegu efni til skógerðar taki ekki til skreytinga á skónum, svo framarlega sem undir glysinu séu þvottekta skór. Þrælaafurðir undir smásjónni Fkjölfar lýðræðisbylgjunnar hafa margir kapítalistar á Vesturlöndum þurft að hugsa sitt ráð. Fjölmargar út- flutningsvörur austantjaldsríkjanna reyndust hafa verið framleiddar í þrælkunarbúðum. Mannréttindasamtök vöktu reyndar oftlega máls á þessu, en umboðsmennimir í vestri vildu ekki heyra. Nú geta menn hins vegar ekki lengur þagað þetta í hel. Sjónir manna beinast nú mest að Kína, en upplýst hefur verið að fjöldi fyrirtækja á borð við Sears, Nike. Reebok og Levi's hafi keypt alls kyns hráefni og vörur frá Kína. sem framleiddar eru í þrælkunar- búðum (eða endurmenntunarbúðum eins og þær nefnast þar í landi). Sér- staklega munu það vera leikföng, skart- gripir. verkfæri, vefnaðarvara. loftviftur og kassettur, sem fangamir eru látnir framleiða. Líf Kastrós fpamlengt? Opinbera fréttastofan á Kúbu segir nýja olíufundi á Kúbu geta annað 10% af olíuþörf landsins og þannig aflétt landlægum orkuskorti. Fréttastofan Prensa Latina greindi frá þessum tíð- indum um síðustu helgi, en tók fram að nokkur tími gæti liðið þar til olíulind- imar yrðu nýttar að fullu. Efnahagsástandið á Kúbu hefur sjaldan verið jafnslæmt og nú, enda einangrun Kúbu meiri en nokkru sinni. Viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu hefur aldrei létt róðurinn, en vatnaskilin urðu þegar Sovétríkin liðuðust í sundur. Þau héldu Kúbu nánast uppi efnahags- lega: keyptu þaðan sykurreyr á upp- Sportskór með riflás st. 35-46 Sportskór reimaðir st. 35-46 Sirii Hr á Jw . /MIKUG4RÐUR V VIÐ SUND Wæknbfæœm sprengdu verði og seldu þangað niður- greidda olíu. Vestrænir olíusérfræðingar eru ekki jafnbjartsýnir og Kúbumenn. Þeir benda á að þeir hafi nær enga reynslu í olíuiðnaði, tækjabúnaður sé ekki fyrir hendi frekar en mannskapur og þeir geti ekki vænst aðstoðar erlendis frá, þar sem þau olíuríki, sem enn eru vin- veitt Kastró, reiði sig flest á vestræna verkþekkingu í þessum efnum. Stjóm- málaskýrendur telja að með tilkynning- unni sé Kastró, einræðisherra Kúbu, að reyna að kaupa sér tíma, þar sem sívax- andi óánægju gætir vegna langvarandi skorts og ntenn séu famir að hafa efa- semdir um þá fullyrðingu Kastrós að örbirgðin og erfiðleikamir séu samsæri alþjóðakapítalismans einu um að kenna. L'ORÉAL

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.