Tíminn Sunnudagsblað - 11.11.1962, Side 12
JG SEND! HENNIÞRJÁR
Erlingur grasalæknir er gam-
all maður. Hann fæddist 13.
desember 1873 í Kálfafellskoti
í Fljótshverfi í Vestur-Skafta-
fellssýslu. „Þa3 kom engin
björg í búið me'5 mér“, segir
hann, „því að nóttina, sem ég
fæddist, fennti fyrir sauðahell
inn hans pabba, og þar köfnuðu
fjörut.íu sauðir". — Erlingur
kvæntist Kristínu Jónsdóttur
frá Gilsárvöllum í Borgarfirði,
en hún lézt fyrir allmörgum ár-
um. Þau eignuðust tólf börn, og
eru níu þeirra á lífi.
SPJALLAÐ við erling grasa-
LÆKNI UMGRÖSOGLÆKNINGAR
Hann er furðulítíil maSur
i hvífum sloppi, og hefur
ekki fengizt viS anna^ en
grasalækníngar í þrjáfíu ár.
Amma hans og móSir voru
báóar grasalæknar og auk
þess læróar yfirsetukonur.
Hann nam fræfi sin um
grösin af þeim, en systir
hans varð yfirsetukona. —
Þrjá frændur átfi hann ausf-
ur á f jöröum, sem ailir voru
homópafar.
Hann er sjaldan kallaður annað
í umtali en Erlingur grasalæknir, en
er reyndar Filippusson og býr í litlu
timburhúsi á baklóð á Grettisgöt-
unni. í kjallara hússins geymir hann
grasalyf sín, og þegar fól-k kemur að
leita sér lækninga, trítlar hann nið-
ur tröppurnar, 89 ára, ótrúlega bein-
vaxinn og kvikur og lítur út fyrir
að vera hálfsjötugur.
— Það þýðir ekkert að tala við
mig, segir hann, — blessaður, ég er
orðinn kalkaður, bráðum níræður
karlinn.
— Þú, sem ert grasalæknir.
— Eigum vig nokkuð að fara út
í það?
— Ja, því ekki?
— Það er ekki víst, að það þýði
neitt. Sálin er kannske einhvers stað
að úti í geimnum.
— Þú manst nú samt eftir því,
hver kenndi þér ag búa til lyfin.
— Já, það var hún mamma. Hún
lærði það af ömmu. Þær hétu báðar
Þórunnir og voru báðar yfirsetukon-
ur og grasalæknar. Amma lærði af
Hjörleifi grasalækni og af bókum.
Hjörleifur fór um og læknaði fólk
meg grösum. Ég týndi stundum grös
með henni ömmu gömlu í gamla daga,
en það var bara að þykjast, því að
ég var ekki nema þriggja ára þá.
Það var í Kálfafellskoti. Þá var amma
orðin fullorðin og fólkig kom aðal-
lega til mömmu, en amma lagði oft
á ráðin. Mamma byrjaði ekki á þessu
að ráði fyrr en seinna.
— Þetta er ævaforn lækningaað-
ferð, er það ekki?
— Maður sér grösin, sem fylgja
bæjunum, þetta eru ekki úthaga-
jurtir. Þeir hafa-komið með grösin
með sér frá Noregi, landnámsmenn-
irnir, til að græða menn og lækna
innvortis, sjáðu til dæmis heimuluna
og vallhumalinn.
— Var mamma þín mikill grasa-
læknir?
— Hún læknaði marga. Þe.gar hún
852
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ