Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1964, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1964, Blaðsíða 4
Ekki vorum við fyrr komnir að T>apey en þokan skall yfir. Það hafði verið hægviðri, sem útvarpið kallaði áttleysu, þegar við fórum frá Horna- rrði um morguninn, og rigningar- uddi eða súld. Skyggni var heldur lakmarkað, en þó nóg til þess, að eyjan sást úr nokkurri fjarlægð, og þegar Árvakur varpaði akkerum við hana, blöstu við hvít og iðandi í iglabjörg. Þegar akkerum var létt veimur tímum síðar, sást ekkert af öllu þessu lífi, grá og loðin þokuvoð byrgði þá alla útsýn fáeina faðma frá skipinu. Og þokan varð okkur förunautur allan daginn allt norður á Eskifjörð, og næsta morgun fylgd- ist hún með okkur út í Seley. En úr því gafst hún upp og lét ekki á sér kræla nema lítið næstu daga. Mér líkaði þessi fylgispekt þok- unnar heldur illa, því að ég hafði ætlað að virða fyrir mér landið og hafa víða útsýn, bæði af skipsfjöl og á þeim stöðum, er ég stigi á fast land. Einkum hafði mér leikið hug- ur að sjá Papey og rómaða nátt- lirufegurð hennar í sólarljósi eða að minnsta kosti dagsbirtu. En reyndin varð sú, að ég hafði þar ekki að marki veður af öðru landi en þeim stígum, sem Gústaf vitavörður Gísla- son leiddi mig eftir þvert yfir eyna. • Papey mun vera einhver elzta byggð á íslandi, því að trúlega hafa menn dvalizt þar þegar fyrir land- námsöld. Hún er meðal þeirra staða á Suðausturlandi, sem kenndir eru við írska einsetumenn, papana, sem Ari fróði segir, að' verið hafi fyrir í landinu, er norrænir menn tóku að koma þangað. Ekki virðist ástæða ti! að efa, að þeir staðir á þessum slóðum, sem kenndir eru við papa beri rétt nöfn og þar hafi hafzt við heilagir menn írskir og tilbeðið guð sinn og heilagan Kólumkilla í Aust- fjarðaþoku þeirra tíma. Og allt síðan papar námu land í Papey hefur verið þar byggð. Um skeið var að vísu svo komið, að að- eins var verið þar að sumrinu, en eyjan mannlaus á vetrum, en nú síðustu árin liefur Gústaf Gíslason vitavörður verið þar búsettur allt ár- ið um kring. Hann er uppalinn í Papey og kann hvergi betur við sig en þar. Hann sagðí mér, að hann hefði átt heima á Hornafirði í 26 ár, en aldrei fest þar yndi, og þegar kona hans hafi dáið, hafi hann flutt þaðan burt, fyrst til Djúpavogs, en siðan alfari til bernskustöðvanna í Papey. Árvakur er með tvenns konar flutning til Papeyjar, gas fyrir vit- ann og kol og aðrar nauðsynjar fyrir Gústaf. Þetta er tekið í land á tveim- ur stöðum, því að nokkur spölur er milli vitans og bæjarins, en víða góðir lendingarvogar við eyna. Fyrst er farið með hylkin, og ég nota þá ferð til landgöngu. Þokan er að di’ag- ast að og þéttast, en þó sést enn til lands frá skipinu. Bátnum er haldið inn í þrönga vík og lagt þar upp að klöpp neðan við vitann, sem stendur á allháum hól um miðja eyna vestan- verða. Við ldaupum á land, og skips- mennirnir fara að draga hylkin upp úr bátnum upp á jafnsléttu. Þar eru þau skilin eftir, því að Gústaf sér sjálfur um að taka þau upp að vi anum og tengja þau við ljóskerið. Gústaf er fyrir á klöppinni, þegar við komum að landi. Hann leiðir litla stúlku við hönd sér, en í eynni eru þau aðeins þrjú, Gústaf, systir hans og þessi litla telpa. Kristján stýrimaður tekur hann fyrstur tali og skýrir honum frá þvi, hvað skipin hafi meðferðis til hans. Gústaf segist ekki vera búinn að koma tómu hylkj- unum niður að lendingunni úr vit- anum, en svona sé þetta, þegar ekki sé haft fyrir því að auglýsa ferðina. Hann hafi ekki vitað fyrr en sam- dægurs, hvenær von væri á skipinu og því ekki haft aðstöðu til að koma hylkjunum lengra en niður fyrir vita- hólinn. Við erum sammála um, að ekkert vit sé í öðru en að auglýsa ferðina í útvarpi, svo að vitaverð- irnir geti verið tilbúnir í tíma, og svo fer báturinn aftur út að Árvakri til að sækja kolin og matvöruna, en í landi verða eftir auk mín nokkrir skipverja til að draga hylkin niður að víkinni. Ég tek Gústaf tali, og við förum að ræða um Papey og gæði hennar. Gústaf segir, að Papey sé gott land og þar væri hægt að hafa mikið undir, ef mannafli væri fyrir hendi, þótt sjálfur sé hann svo til einn og megi sín ekki mikils við það. En hér er ekki moldrykið, segir hann, hvergi gróðurlaus blettur nema klett- arnir, og hér væri hægt að hafa mik- inn heyfeng, ef eyjan væri ræktuð. Hún er grösug, en það er heldur lé- legt gras, sem fæst af henni. Og Pap- ey fylgja úteyjar, sem hægt væri að nytja, ef mannafli væri til. Við göngum upp á eyna, fram hjá Árvekringum, sem sveitast við hylkja dráttinn. Þokan er orðin ærið þétt, og ég sé aðeins grasmiklar flat- ir og mýrar og móta fyrir klettum og hólum eins og i órafjarska. Við höldum niður að lendingunni við Fýlavog, en þangað er farið með kol- in. Það er þegar búið að fara eina ferð, og kolapokarnir standa í dálitl- um hrúk á kambinum, og áður en varir kemur báturinn aftur með meiri kol. Það er ekki slórað um borð í Árvakri og aldrei verið lengur að afgr'eiða nokkurn stað en nauðsyn krefur, enda staðirnir margir, sem koma skal á. — Það er munur að fá vöruna flutta svona heim, segir Gústaf. — Mér var að detta í hug, þegar þeir voru að stofna þetta vitavarðafélag sitt4 til að bæta kjörin, hvort þeir gera sér grein fyrir því, hvað þetta eru mikil fríðindi að fá alla kaup- staðarvöru heim á hlað. — Ég fer að tala um þann eina Papeying, sem ég man eftir, Mensaldur gamla ríka, en hann var sagður hafa átt skolla- buxur, sem líka voru kallaðar Pap- eyjarbuxur. Ég spyr Gústaf, hvort nokkrar skollabuxur hafi verið til í eynni í seinni tíð. Hann segir, að Mensaldur hafi ekki verið svo slæm- ur: hann hafi meðal annars átt Mel- rakkanes, en líkað svo vel við ábú- andann, að hann hafi gefið honum jörðina. Ekki hafi það lýst slæmu innræti. En karlinn hefur sjálfsagt verið efnaður og því átt öfundar- menn, segir hann, eins og oft vill verða, þegar svo stendur á. Nú ber bátinn að aftur, og kol og hvítasykur eru borin á bakinu í pok- um upp fjöruna. Nú er Gústaf bú- inn að fá sitt og ekkert eftir nema taka hylkin hins vegar á eynni, og ég fer um borð í bátinn. Eflaust 580 T I M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.