Tíminn Sunnudagsblað - 27.08.1967, Blaðsíða 4
'
Bær f Borgarfirði. Þar var nú í sumar vígð ný kirkja, sem kennd er vlð Hróðólf biskup.
1- lͥ
~ jl ýf~ .
Hróðólfur er nefndur farand-
biskup, sem tfar hér á landi á
árunum 1030-1049. Hann var eng-
ilsaxneskur að ætt, skyldur Eng-
landskonungum, merkur maður
og gegn. Hróðólfur, öðru nafni
Rudolf, kom með Ólafi helga
Noregskonungi frá Englandi til
Noregs og dvaldi með honum þar.
Um 1029 fór Hróðólfur biskup til
Brima á fund Liavizos erkibiskups >
og er talið, að erkibiskup hafi tal-
ið hann á að fara til íslands að
skyrkja þar kristnihald. En Norð-
urlönd lutu þá erkistólum i
Brimum.
Hróðóliur dvaldi hérlendis 1
19 ár, á Lundi í Lundarreykjadal
og í Bæ í Bæjarsveit, en þar mun
hann hafa haldið skóla og kennt
prestlingum og sett þar eitt fyrsta
munklífi (klaustur) á Norðurlönd-
um. Sagt er í Landnámu, að þrír
munkar hafi orðið eftir á Bæ, er
Hróðólfur fór þaðan. Er eins
þeirra getið í sambandi við draum,
sem hanp dreymdi, um helgi Ás-
ólfs einsetumanns Konálssonar, er
hér kom út á landnámsöld og bjó
á kirkjubólstað á Hólmi á Akra-
nesi og var kristinn og írskrar
ættar. Virðast munkarnir í Bæ
hafa stuðlað að helgi Ásólfs, sem
var hinn helgasti maður kallaður,
og voru bein hans skrínlögð 1
kirkju heilags Kolumkilla á Innra-
Hólmi. Hefur sá atburður verið
til styrktar kirkju og kristni í
landinu og tengt hinn nýja sið i
landinu hinum fyrstu kristnu
mönnum hér og hinum gömlu.
pöpum, sem hér hafa án efa átt
einhvers konar klaustursamfélög,
Munklífið í Bæ hefur eflaust
verið af Benediktsreglu, því að
Hróðólfur varð ábóti í hinu fræga
Abingdonkiaustri á Englandi eftlr
komu sína þangað að veitingu Ját-
varðs konungs, frænda síns, en
þar var Benediktsregla haldin og
klaustur reist þar fyrst á 7. öld.
Hefur Hróðólfur án efa verið þar,
TÍM'NN - SUNNUDAGSBLAÐ
KLAUSTRAÞÆTTIR VI
724