Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Til viðbótar koma veltutengdir Vildarpunktar kortsins Tvöfaldir Vildarpunktar til 1. maí Veitingastaðir ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 24 12 5 0 4/ 20 04 Hótel Edda, veitingasala, Húnavöllum Hótel Edda, veitingasala, Laugarvatni Hótel Edda, veitingasala, Þelamörk Hótel Hérað, Miðvangi 5-7, Egilsstöðum Hótel Holt, veitingastaður, Bergstaðastræti 37, Rvk La Primavera Ristorante, Austurstræti 9, Rvk Maru Restaurant, Aðalstræti 12, Rvk Apótek, bar og grill, Austurstræti 16, Rvk Argentína steikhús, Barónstíg 11a, Rvk Fiðlarinn á þakinu, Skipagötu 14, Akureyri Salatbarinn, Faxafeni 9, Rvk Siggi Hall á Óðinsvéum, Óðinstorgi, Þrír Frakkar hjá Úlfari, Baldursg. 14, Rvk Vox, Restaurant, Nordica Hotel, Suðurlandsbr. 2, Rvk SUMARIÐ brosti sínu blíðasta á suðvesturhorninu þegar það heils- aði borgarbúum í gærmorgun. Þótt drægi dálítið fyrir sólu um þrjúleytið var áfram bjart veður og blíða. Íbúar höfuðborgarinnar gerðu sér margt til dundurs og skemmtunar og bauð Íþrótta- og tómstundaráð upp á ýmiss konar dægradvöl auk þess sem veð- urblíðan opnaði fyrir allnokkra möguleika sem hafa verið nokkuð utan garðs undanfarna mánuði. Þannig tyllti fólk sér á Austurvöll að fornum sið, stiklaði á steinum yfir tjarnir og tók sér margt það annað fyrir hendur sem fylgir hækkandi sól. Víða röltu borgarar um göturnar í takt við dynjandi tóna lúðrasveita og héldu hverf- ishátíðir um allan bæ. Skátarnir létu daginn heldur ekki fara til spillis, enda hefur sumardagurinn fyrsti lengi verið mikil hátíð meðal íslenskra skáta. Þrömmuðu þeir prúðklæddir um með fánaborgir og fögnuðu því að landið er óðum að verða tilbúið fyrir ærslafullar útilegur í guðs- grænni náttúrunni. Ef marka má veðurspá komandi daga sem einhvers konar vísi að gæsku sumarsins er ljóst að skátar hafa til fjölbreytts sumars að hlakka, enda spáir veðurstofan rigningu víða um land í dag og svipuðu útliti á laugardag. Í næstu viku verður svo nokkuð milt veður. Morgunblaðið/Sverrir Litadýrðin ræður ríkjum á sumardaginn fyrsta og eru litskrúðugar þyrlur í uppáhaldi hjá yngstu kynslóðinni. Morgunblaðið/Einar Falur Umferðarhnútur! Hver skyldi eiga réttinn? Það mynduðust iðulega umferðarhnútar á steinunum í tjörninni við Hólmasel í Seljahverfi, þegar fjölskylduhátíðin fór þar fram. Sumir voru á sílaveiðum en aðrir á leið út í hólmann. Morgunblaðið/Sverrir Fánar og veifur blakta víða, enda er fátt ríkara í íslenskri þjóðarsál og þjóðmenningu en að fagna komandi sumri með sælubros á vör. Tignarleg inn- reið sumarsins GAMLA ÍR-húsið settist á loka- áfangastað sinn við hlið Kleppshúss- ins í Árbæjarsafni um tvöleytið í fyrrinótt eftir vel heppnaða flutninga. Þorsteinn Bergsson hjá Minjavernd segir verkið hafa gengið afar vel og er hann ánægður með samstarfið við flutninginn. „Þar kom að vösk sveit lögreglumanna og borgarstarfs- manna auk þeirra sem stóðu að fram- kvæmdinni sjálfri,“ segir Þorsteinn. „Þarna voru góð tæki og góður mannskapur í hvívetna.“ Fyrir utan stærð hússins var flutn- ingurinn vandasamur þar sem þyngdarpunkturinn er ofarlega í hús- inu og það má ekki við miklum halla í flutningi. Nú taka við viðgerðir og viðhald á húsinu, en það hefur verið viðhaldslítið mikið til frá því á fjórða áratugnum. „Það var í öllu falli kom- inn tími á endurbætur þess. Það var skipt um glugga þegar húsinu var breytt úr kirkju í íþróttahús og við- arklæðning lögð yfir panelklæðningu sem fyrir var,“ segir Þorsteinn. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að húsið yrði fært eða rifið. Að frum- kvæði Minjaverndar var leitað leiða í samstarfi við við Reykjavíkurborg um að finna húsinu framtíðarstað- setningu. „Minjavernd annaðist flutning á húsinu frá Túngötu niður á Ægisgarð fyrir tveimur árum, en til- lögur okkar hjá Minjavernd miðuðu að því að nýta húsið hér í miðbænum. Það fannst ekki flötur á því, svo það var ákveðið að húsið myndi nýtast vel sem viðbót við Árbæjarsafn,“ segir Þorsteinn. „Þar mun húsið þjóna hlutverki sem sýningarsalur fyrir safnið þar sem verður sýning um leiki og íþróttir borgarbarna auk geymslu í kjallara.“ ÍR-húsið sest á framtíðarstað Níu þúsund- um fleiri ferðamenn FYRSTU þrjá mánuði ársins fjölg- aði erlendum ferðamönnum hér á landi um rúm 13% miðað við sömu mánuði í fyrra, samkvæmt taln- ingu Ferðamálaráðs Íslands. Fjölgar fólki frá öllum markaðs- svæðum miðað við sama tímabil í fyrra. Samtals komu 50.083 ferðamenn í ár, samanborið við 44.182 í fyrra, eða tæplega níu þúsundum fleiri. Ferðamönnum frá Norðurlöndum fjölgar mjög. Í mars fjölgaði ferðamönnum um 1% á milli ára og voru þeir í heild ríflega 18.700. Sé litið á helstu markaðssvæði Íslands þá fækkar fólki sem kemur frá frá Bandaríkjunum og Bretlandi en fjölgar frá Norðurlöndunum og Þýskalandi. Bent er á að páskarnir voru í mars í fyrra en í apríl í ár. FARÞEGAR sem fóru um íslenska áætlunarflugvelli á fyrstu þremur mánuðum þessa árs eru 16,7% fleiri en þeir voru á fyrstu þremur mán- uðum síðasta árs, samkvæmt tilkynn- ingu frá Flugmálastjórn Íslands. Þeim hefur fjölgað mest um Egils- staðaflugvöll eða um 50,3% milli ára. Þá fjölgaði þeim um 25% um flug- völlinn á Bakka, um 16% um flugvöll- inn í Reykjavík og um 9% um flugvöll- inn á Akureyri, svo dæmi séu nefnd. Á fyrstu þremur mánuðum ársins fóru 167.890 farþegar um flugvellina. „Þetta eru töluvert fleiri farþegar en árið 1997 þegar sérleyfi í áætlunar- flugi voru gefin frjáls,“ segir í tilkynn- ingunni, „en næstu þrjú ár þar á eftir fjölgaði farþegum verulega með auk- inni samkeppni á milli flugfélaga og urðu flestir rúmlega 195 þúsund á fyrstu þremur mánuðum ársins 1999. Eftir að dró úr samkeppninni fækkaði farþegum aftur árin 2001 og 2002. Þeim tók síðan að fjölga á nýjan leik á síðasta ári og fjölgunin ætlar að verða enn meiri á þessu ári.“ Farþegum um íslenska flugvelli fjölgar enn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.