Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.04.2004, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 2004 49 Sími 533 1100 - broadway@broadway.is - www.broadway.is 1. maí Le'Sing 8. maí Robert Wells og Le'Sing 15. maí Le'Sing 19. maí Lokahóf HSÍ „Í svörtum fötum” 28. maí Listahátíð, Klezmer Nova 29. maí Ungfrú Ísland 30. maí Listahátíð, Susan Baca 31. maí Listahátíð, Susan Baca 5. júní Sjómannadagshóf Brimkló og Kalli Bjarni - framundan... Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa. SJÓMANNA- DAGSHÓF 5. júní Matseðill: Indversk sjávarréttarsúpa "BOMBAY" Balsamic lambafille og kalkúnabringa á karmelluepli með camembert grape sósu, ristuðu grænmeti og fondant kartöflum. Súkkulaðiturn með engifertónaðri kirsuberjasósu. Munið að bóka í tíma. St af ræ na hu gm yn da sm ið ja n eh f/ 44 96 Robert Wells Magnaðir rokktónleikar Heimsfrægur píanisti, skemmtikraftur, söngvari og lagahöfundur Laugardaginn 8. maí Aðeins þetta eina skipti ! Sæti á svæði A í mat kr. 6.900 Sæti á svæði B í mat kr. 6.100 Stæði á svölum á tónleika ................. kr. 3.500 Hægt að skoða og hlusta á tóndæmi á Netinu, wellsmusic.se Sjómenn, útgerðarmenn! Glæsilegt sjómannadagshóf á Broadway. Skemmtiatriði: Björgvin Halldórsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Kalli Bjarni IDOL stjarna. Dansleikur með Brimkló. Stórdansleikur hljómsveitin MIÐVIKUDAGINN 19. MAÍ ÍSVÖRTUMFÖTUM Guðmundur Hallvarðsson Le’Sing (Syngjandi þjónar) alla laugardaga. Sýning sem hefur slegið rækilega í gegn. Öll laugardagskvöld! GLÆNÝ hljómsveit, Íslenski fán- inn, spilar á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll í kvöld og verður væntanlega áberandi í spilamennskunni í sumar. Hljómsveitin er hugarfóstur Björns Jörundar Friðbjörnssonar, sem jafnframt syngur í sveitinni ásamt Bryndísi Ásmundsdóttur, leik- og söngkonu. Hann fékk fleira stuðfólk með sér, Bergur Geirsson spilar á bassa, Pétur Örn Guðmundsson á hljómborð og kassagítar og Einar Þór Jóhanns- son er á gítar en þeir þrír hafa all- ir komið við sögu Buffs eða Dúnd- urfrétta. Loks spilar Andri Geir Árnason, sem hefur verið kenndur við Geirfuglana, á trommur. Íslensk lög fyrir Íslendinga „Þetta er nýtt band sem Björn Jörundur var að setja saman,“ segir Bergur, sem verður fyrir svörum. „Við spilum bara íslensk lög. Ég held að fólki þyki skemmtilegast að syngja og tala íslensku á skemmtunum. Við spilum íslensk dægurlög frá sjöunda áratugnum og til dagsins í dag,“ segir Bergur og bætir við að áreiðanlega eigi eftir að heyrast einhver lög eftir Nýdönsk enda Björn Jörundur úr þeirri sveit. „Þetta er íslensk hljómsveit fyr- ir Íslendinga og við spilum bara íslensk lög. Og allir í stuði,“ lofar Bergur. Ný hljómsveit Björns Jörundar á Nasa Og allir í stuði Ljósmynd/Atli Már Það ríkir þjóðleg stemmning hjá félögunum í Íslenska fánanum. Íslenski fáninn spilar á Nasa í kvöld. Húsið verður opnað kl. 23 og fyrstu 200 gestirnir fá ókeyp- is inn. Sagan af Paikeu (Whale Rider) Stórkostlegt kvikmyndaverk.(H.L.) Háskólabíó. Kaldaljós Gullfalleg kvikmynd. (H.J.) ½ Háskólabíó. Leitin að Nemó (Finding Nemo) Bullandi sköpunargleði. (H.J.) ½ Sambíóin, Háskólabíó. Dögun hinna dauðu (Dawn of the Dead) Hröð og hugmyndarík, gáskafull og viðun- andi hlutfall ógeðs.(S.V.)  Sambíóin. Gefið eftir (Something’s Gotta Give) Keaton og Nicholson eiga frábæran samleik. (H.J.)  Sambíóin, Háskólabíó. Klofinn kviðdómur (Runaway Jury) Frábærlega leikið og óaðfinnanlega gert rétt- ar-spennudrama byggt á ótrúverðugri bók (S.V.)  Smárabíó, Regnboginn. Líftaka (Taking Lives) Raðmorðingjamynd sem nær góðu flugi. (S.V.)  Háskólabíó, Sambíóin. Pétur Pan Það er nýr og betri Pétur Pan sem birtist í þessari mynd. (H.J.)  Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri. Rokkskólinn (The School of Rock) Ótrúlega skemmtileg. (S.V.)  Laugarásbíó. Hidalgo Falleg ævintýramynd um hetjur og skúrka á þeysireið um eyðimerkur arabalanda.(S.V.)  ½ Háskólabíó, Sambíóin. Starsky og Hutch (Starsky & Hutch) Stiller og Wilson fara á kostum. (H.J.) ½ Háskólabíó, Sambíóin. BÆJARINS BESTU Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn „Frábærlega leikið og óaðfinnanlega gert réttar-spennudrama…,“ segir Sæ- björn Valdimarsson m.a. um Klofinn kviðdóm. Hér eru Dustin Hoffman og Rachel Weisz í hlutverkum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.