Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 42
HUGVEKJA 42 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Samræmdu prófin hefjast á morgun. Um4.500 ungmenni í 10. bekk grunnskólalandsins munu þar glíma við íslensku (3.maí), ensku (4. maí), samfélagsgreinar (6.maí), dönsku (7. maí), náttúrufræði (10. maí) og stærðfræði (11. maí). Framundan er þeim erfiður tími, eitthvað sem þau hafa litið til og stefnt að í mörg ár, sum með gleði í huga, önnur með ótta- sting og kvíða í hjarta. Árið 2001 máttu 10. bekkingar í fyrsta sinn velja um hvort þeir tækju samræmdu prófin eða ekki; 92,7 til 96,3% kusu að gera það. Þessi próf eru ung- mennunum greinilega afar mikilvæg, enda nokkurs konar manndómsvígsla; hér er verið að meta af- rakstur liðinna ára, jafnframt því sem horft er fram á veginn, út í óvissuna. Vegna þessa get ég ekki annað en fyllst gremju út í þá aðila sem annast hafa samningu, framkvæmd og úrvinnslu umræddra prófa undanfarin ár og gera það enn; hér á ég við Námsmatsstofnun, sem fram til 14. desember 2000 hét Rannsóknastofnun uppeld- is- og menntamála. Í gegnum tíðina hefur loðað við þetta batterí, hið gamla sem nýja, óvandvirkni í vinnubrögðum. Og það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Í fyrra var ég trúnaðarmaður samræmdra prófa í heimabæ mínum, og þurfti að byrja hvern einasta prófdag á að koma á framfæri leiðréttingu á ein- hverri misfellu. Þetta gekk nokkurn veginn svona fyrir sig:  Íslenska: „Góðan dag, krakkar mínir. Áður en þið byrjið langar mig að biðja ykkur um að leiðrétta villu sem er í prófinu. En eins og þið vitið á að skrifa „Vestfirðingur“ með stóru „V“, ekki litlu …“  Náttúrufræði: „Góðan dag, krakkar. Áður en þið byrjið verð ég því miður að tilkynna ykkur, að þið getið ekki fært inn á svar- blaðið fyrr en einhvern tíma á eftir; það komu nefnilega sam- félagsfræðisvarblöð með náttúrufræðiprófinu …“  Enska: „Góðan dag, krakkar. Áður en þið byrjið verð ég að biðja ykkur um að leiðrétta tvær villur sem eru í prófinu. „Roger“ á ekki að vera þarna, enda fjallar sagan ekki um hann, heldur „Ro- bert“. Og „lillies“ á að skrifa „lilies“ … “ Og hjá þeim sem voru með frávik, og þar af leiðandi í annarri stofu: „Góðan dag, krakk- ar. Það var leiðinlegt að heyra, að 5 af 6 geisladiskum, sem ykk- ur var boðið að nota til aðstoðar, hafi verið ónýtir …“  Samfélagsfræði: „Góðan dag, krakkar. Áður en þið byrjið þarf ég að biðja ykkur um að leiðrétta villu sem er í prófinu …“  Danska: „Góðan dag, krakkar. Áður en þið byrjið verð ég að biðja ykkur um að leiðrétta tvær villur sem eru í prófinu …“  Stærðfræði: „Góðan dag, krakkar. Áður en þið byrjið ætla ég að biðja ykkur um að leiðrétta tvær villur sem eru í prófinu … En þið vitið auðvitað að maður segir ekki „dýrara verðið“ heldur „hærra verðið“ …“ Ekki þarf neinn vitring til að sjá að allt þetta hefði auðveldlega verið hægt að leiðrétta eða koma í veg fyrir ef almennilega hefði verið að málum staðið. Hvaða skilaboðum er verið að koma til þessa ald- urshóps, sem þarna er á tímamótum í lífi sínu, er að kveðja grunnskólann eftir áratugar vist þar og leggja af stað á annað námsstig, í annan heim, og í raun og veru út í alvöru lífsins í fyrsta sinn? Að það sé allt í lagi að vanda sig ekki? Annað var þeim kennt áður og allt fram til þessa. Og hitt er ekkert annað en óvirðing í þeirra garð. Nú er ég ekki að segja að mistök séu bönnuð, að prentvillur og annað þvíumlíkt geti ekki slæðst inn í texta. Langt því frá. Öll lendum við fyrr eða síðar í að misstíga okkur, bæði þannig og á annan hátt, og komum yfirleitt sterkari til leiks eftir en áður, með reynsluna í farteskinu. En mér finnst einfaldlega annað vera á borðinu hérna og núna, að það sé verið að kasta höndum til verka. Eða er einhver önnur skýring á hinu að því er virðist árlega klúðri? Náms- matsstofnun hlýtur að geta ráðið til sín prófarkales- ara í tonnavís, og annað aðstoðarfólk, ef því er að skipta, til að fyrirbyggja svona lagað. Hvers vegna er það ekki gert? Og annað. Það er ekki sama hver er. Í þessu til- viki, þar sem Námsmatsstofnun á í hlut, ætti allt að sjálfsögðu að vera óaðfinnanlegt, enda gefur hún sig út fyrir að vera merkilegt tæki, „vísindaleg stofnun á sviði uppeldis- og menntamála…“ með „sérþekk- ingu og sérhæfingu á sviði próffræði og námsmats, samanburðarannsóknum á menntakerfum og æsku- lýðsrannsóknum“, eins og segir á www.namsmat.is. Í einhverju prófa sem ég þreytti í guðfræðideild Háskóla Íslands á árum áður byrjaði eitt verkefnið á þessa leið: „Skúrið eftirfarandi…“ Ég bað um vatn og sápu, og annað tilheyrandi, kvaðst ekki geta leyst úr þessu að öðrum kosti. Kennara mínum var ekki skemmt. Ekki mér heldur; ég var sár og reiður, því slíkt gerðist oft hjá umræddum læriföður. Þarna átti að vera „Skýrið eftirfarandi…“ Þetta litla dæmi sýnir að óvandvirkni er víða að finna, jafnvel á háskólastigi. Því miður. Ein leið til að binda enda á slíkt er að kenna börnum okkar að leggja rækt við góða og vandaða hætti, gera þau sjálf dómbær á hvað er boðlegt og hvað ekki, búa þau undir að geta sjálf tekið á málum ef svo ber undir. Hvað ungur nemur, gamall temur. Vonandi heyrir fúskið sögunni til, er horfið að ei- lífu, og nýr og bjartari tími framundan. Ef ekki, verður það eflaust í fréttum næstu daga. Það væri sannarlega dapurlegt eftir allt sem á undan er geng- ið. „Skúrið eftirfarandi“ Börnin eru það dýrmætasta sem við eig- um og koma til með að erfa landið ein- hvern daginn í náinni framtíð. Sigurður Ægisson veltir fyrir sér hvar þau eigi að læra góða siði, virðingu og trúmennsku, ef ekki hjá sér eldra fólki og reyndara. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 Fæst í apótekum og lyfjaverslunum ER NEFIÐ STÍFLAÐ? STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. ATVINNA mbl.is …með allt á einum stað www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13-15 Skólavörðustígur 6b2. hæð - laus strax Sérlega falleg og mikið endurnýjuð, 3ja herb., tæplega, 80 fm íbúð á 2. hæð í húsi byggðu 1986. Íbúðin er björt og afar vel skipulögð. Íbúðinni fylgja stórar svalir í suður og vestur ca. 30-35 fm. Parket og flísar á gólfi. Falleg innrétting í eldhúsi. Flísalagt baðherbergi og tengi fyrir þvottavél. Staðsetningin er sérlega góð m.t.t. verslunar og þjónustu. Íbúðinni fylgir sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Verð 16,9 millj. Verið velkomin í dag á milli kl. 13-15 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 16 - 19 Skúlagata 10 - 1. hæð - Íbúðin er laus strax Glæsileg 4ra-5 herbergja 140 fm íbúð á fyrstu hæð í lyftuhúsnæði ásamt stæði í bílskýli. Húsið er byggt árið 1992. Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi og stórar rúm- góðar stofur. Útg. á suðurverönd úr stofu. Rúmgott flísalagt baðher- bergi. Gólfefni er parket á öllum gólfum nema flísar á baðherbergi. Sérlega rúmgóð og björt íbúð í hjarta Reykjavíkur. Húsvörður sér um allt almennt viðhald. Verð 24,8 millj. Auður tekur á móti ykkur í dag á milli kl. 16 og 19 Opið hús Skjólsalir 14, Kópavogi Raðhús með innb. bílskúr Til sýnis og sölu glæsilegt, bjart og vandað 152,9 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt 29,7 fm innbyggðum bílskúr. Heildarstærð hússins er samtals 182,6 fm. Leik- skóli, skóli, búð (Nettó) og apótek eru í göngufæri - engin gata til að fara yfir í skólann. Gott útsýni til suðurs. Ákveðin sala. Verð 28,7 millj. Áhv. 8,9 millj. Vilborg og Eyþór taka vel á móti þér og þínum í dag, sunnudag, milli kl. 14.00-17.00. Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, sími 511 1555. OPIÐ HÚS - Háalind 10, Kóp. Teitur Lárusson sölufulltrúi Sími 520 9559 Gsm 894 8090 teitur@remax.is RE/MAX Glæsilegt 6 herbergja parhús á tveimur hæð- um m. innbyggðum bílskúr sem er samtals 207,2 fm. Um er að ræða vel skipulagt hús sem skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gang, gestasalerni, eldhús og 2 stofur á efri hæð og á neðri hæð er sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, baðherbergi m. sturtuklefa og hornbaðkari, þvottahúsi, geymslu og ónýttu rými. Gólfefni vantar á stóran hluta hússins, einnig allar gluggaáfellur en allar hurðir og innréttingar fyrsta flokks. Sjón er sögu ríkari. Verð kr. 30.000.000.- Teitur sýnir eignina í dag sunnudag milli kl. 14:00 - 16:00 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Sími 588 4477 ESKIHLÍÐ 8 - 6 HERB. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14-17 Til sýnis og sölu í dag gullfalleg 125 fm 6 herb. íbúð á frábærum stað. Íbúðin er örlítið niðurgrafin og mikið endurnýjuð að innan, m.a. eldhús, baðherbergi, gólf- efni o.fl. Frábær nýting. Fjögur svefnherb. Tvær stofur, rúmgott eldhús og bað. Verð 15,8 millj. ALLIR VELKOMNIR Björn og Edda taka á móti áhugasömum milli kl. 14:00 og 17:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.