Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 5
skjól að norðaustan verðu og svo talca Skjólbrekkurnar við. í suð- vestri eru svo aðrar hæðir og ás- ar, sem isfeýla á þann veginn. Húsa vífe hefur þannig alla beztu eigin- íeika til þess að vera höfuðbyggð Suður-Þingeyjarsýslu. Á fyirstu tugum aldarinnar ólst upp á Húsavík vaxtarbroddur þing eyskrar æsfeu. Húsavík var vaxandi bær, sem þá vantaði flest það, er hverjum bæ nú á döguim telst nauðsynlegt, umfram barnaskóla, kirkju, lækni og verzlunarþjón- ustu. Á þessum tíma var kaupfé- lagið búið að slíta barnsskónum og fella barnatennurnar, en þungi átaka um breytta verzlunarhætti og aufeið frjálsræði lá í loft.inu. Fólkið var snautt af veraldlegum gæðum. en varð stórt af sjálfu sér. Helztu valdamenn á Húsavífe á þessum árum voru sýslumaðurinn, Steingrímur Jónsson frá Gautlönd um, og formaður feaupfélagsins, Pétur Jónsson bróðir Steingríms sýslumanns, og sköpuðu mótvægi g'&ga verzlunarstjóra hinnar er- lendu verzlunar Örums & Wulfs, sem fyrst var Þórður Guðjohnsen, sá sem kaupfélagið háði harðasta glímu við, og eftir hann Stefán, sonur hans, Guðjohnsen. Til hliðar við framantalda menn komu svo sófcnarpresturinn, séra Jón Arason, bróðursonur Matthías ar Jochumsonar, héraðslæfenirinn Gísli Pétursson og feaupfélagsstjór inn, sem þó ekki hlaut hefðbundna fótfestu fyrr en Sigurður Bjark- iind réðst til þess starfa. Á fyrsta áratug aldarinnar stofn settu tveir mývetnskir bræður, Að , alsteinn og Páll Kristjánssynir, isjálfstæða verzlun sem fljótlega óx til verulegrar stærðar, og síðan fetaði Barni Benediktsson prests- sonur frá Grenjaðarstað, í fótspor þeirra, og óx hans verzlun, ásamt með útgerð, líka til u-mtalsverðrar stærðar. Náfevæmni í meðferð fjár muna á þessum árum var slík, að sölustjóri kaupfélagsins féfefe andvirði tómra pofea undan þeirri vöru, sem seld var, sundurvigtuð, og feassa utan af varningi til þess að st-anda straum af vörurýrnun, og hliðstæð kjör mun Klemenz, faðir Sigtryggs Klemenzsonar 'liafa haft hjá hinni erlendu verzl- u-n, og þurfti mikla aðgætni til þess, að þessir menn yrðu ekki fyrlr fjártjóni í sambandi við störf sín. Svona var þá fast á fjármál- um haldið og önnur umhirða og nýitni eftir bvi F,n fólkið stóð sam an og því kið vel, miðað við þeirra tima hætti, og -svalt ekfei, en sult- urinn var oft í næstu nálægð, en það var ótrúlegt, hvilík kraftaveife konurnar unni, að metta börn sín og fjölskyldur. En þegar litið er til baka þá má það til -eindæma telja, hve st-ór hóp ur þeirra un-gmenna, sem ólust -upp á Húsavík á þessum tíma kom ust til manns, og er Sigtryggur K-lemenzson dæmigerður um það, hve hátt þessi ungmenni komus-t. í eldri hópi ungmenna á Húsavík á þessum tíma, en þetta fólk var fætt beggja me-gin við aldamótin og t.d. Sigtryggur Kle-menzson ekki fyrr en 1911, þá má nefna bræð- urna Óla og Guðmund Vilhjálms- syni, syni Vilhjálms Guðmunds- sonar trésmiðs og Maríu, systur þeirra. Þeir Óli og Guðmundur, báðir fríðir -menn og vel vaxnir, hófu verzlunarstörf á Húsavík. Óli hjá Aðalsteini og Páli en Guð- mundur hjá kaupfélaginu. Síðar réðust þeir báðir til Sambandsins og starfaði Óli þar ævilangt við sí- vaxandi byr, en Guðmundur gerð- ist síðar forstóri Eimskipafélags tslands, og varð ágætur af því starfi, eins og öðrum störfum sin- urn. Ilelgi Pétursson, sern síðar varð einn af forstjórum Sambands- i-ns, og Stefán, bróðir hans, sem síðar eftir langan námsframa og bre-ytileg störf, varð þjóðskjala- vörður, ólust upp á Hús-avík á þess- um árum. Börn Steingríms sýslumanns, þei-r' bræðurnir Jón og Kristján urð-u báðir sýslumenn sunnan lands en Þóra, systir þeirra, gift- ist Páli Einarssyni skrifstof-umanni á Akureyri, bróður Matthíasar læknis Einarssonar. Hjá Steingrími sýslumanni og Guðnýju kon-u hans, ólst upp Þór- leif, dóttir Péturs frá Gautlöndum, bróður Steingríms. Hún giftist Jóni Norland lækni og starfaði lengi hjá ríkisútvarpinu, eftir að hún varð ekkja og kom upp mann- vænlegum sonu-m þeirra. Þórleif var á sínum tíma tali-n ein fegursta kona á landi hér. María Guðm-unds dóttir'í Vallholti ól upp og kom til þroska börnum sín-um og -manns síns. Bj-arna Bjarnasonar söl-ustj., sem dó ungur. Sonurinn Grímur Bjarnason var lengi tollvörður i Reykjavík, Birna, mikil vænleiks- kona, -giftist Pétri Sigfússyni frá HalldórsstöðU'm, föður Sigurðar Bjarklinds, og stóðst með ágætu-m allar skúrir og skin -tilver-unnar. 'Óg svo ól María upp frændkonu SÍna, Marsilínu Pálsdóttur frá Brettingsstöðum, móður Stefáns Jónssonar íréttamanns, en Marsi- lína var mikil fríðieikskona með hrafnsvart hár, þykkt, sem stirndi á, og a-ugnayndi ungra manna, sem alla brast þó kjark til frekari aðgerða en augnaskota, og gekk hún Húsvíkingum úr greip- um og giftist austur á land. Börn Stefáns Guðjohnsens og Kristínar Jakobsdóttur, konu hans, fluttust burt. Einar, elztur barn- anna, varð mikill og vel-met- inn starfskraftur hjá Eimskipafé- laginu meðan hans naut við, Jakob rafveitustjóri hjá rafveitu Reykja- vífeur, Þórður velmetinn kaupsýslu maður, en Halldór fluttist til Dan- merkur. Halldóra giftist Gunn- lau-gi Briem póst- og símamálastj., en Elísabet gerðist hjúkrunarkona. Sóknarpresturinn, Jón Arason, var mætur maður, en frekar hlé- drægur. Börn hans og Guðríðar Ólafsdóttur konu hans frá Mýrar- húsum komust vel til manns, Ólafur og Ari urðu velmetnir lækn ar, Kristinn og Rútur kaupsýslu- rnenn og dæturnar f-rúr. Séra Jón k-enndi tungumál á Húsavík, og Ari f-aðir hans, stofnaði og starfrækti -svonefndan Aurasjóð, þar sem börn og unglingar fengu aura sína geymda, Aurasjóðurinn veitti lán, venjulega fimm krónur, en bó munu tíu króna lán hafa þekkzt. Slífe var reglan. Þá fluttist séra Benedikt Kristjánsson, prófastur á Grenjaðarstað, til Húsavíkur r hann lét af prestskap með börn sí-n af síðara hjónabandi og bjó hjá Bjarna, syni sínum, en þeir feðgarnir by-ggðu saman hús og Bjarni hóf verzlun á svipuðum tima. Séra Benedikt og Ása, kona hans, voru höfðingshjón, og v.tr það mikill fengur fyrir Húsavík að fá þau, þótt börn þeirra ílentust þar efeki. Þó bjó Regína, dóttir Bene- difets, sem giftist Guðmundi Thor- oddsen lækni. i nokkur ár á Ilúsa- vík meðan maður hennar var bar læknir. Um lífet. leyti kvæntist Bjarni Benediktsson Þórdisi Ás- geirsdóttur frá Knarrarnesi. og varð þessi fólksflutningur, sem var bók-staflega stórkostlegur á þeirra tíma mælikvarða. tiT þess að lífga andrúmsloftið á Húsavík, se-m var þó ávallt gott og friskt. Jón, sonur séra Benedife-ts frá Grenjaðarstað, ÍSLENDINGAÞÆTTIR 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.