Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 26

Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 26
Ságan Snjókorn í glerkúlu ÞENNAN daginn kom Janicke á brautar- stö&ina tiu minútum áður en lestin átti að fara. Eins og venjulega úði þar og grúði af fólki, sem var að flýta sér heim, með ýmsum lestum. Það varð að olnboga sig áfram til að fá sæti og Janicke var orðin hreinasti sérfræbingur i þvi eftir nokk- urra ára þjálfun. Skyndilega stóð hún augliti til auglitis við gamla skólasystur sina, sem ók barnavagni og stærra barn hékk i kápunni hennar. Það var langt siðan þær höfðu sézt og þær spjölluðu saman, þar til Jan- icke mundi eftir klukkunni. Hálf minúta eftir, hún varð að flýta sér, kvaddi og hljóp eftir pallinum. Hún miðaði á næstu dyr á lestinni, en um leið og hún steig upp á þrepið, var hún gripin sterkum höndum aftanfrá og sett niður á brautarpallinn aftur. — Hvað á þetta að þýða? hrópaði hún æst. — Hvernig vogið þér yður....? — Verið róleg, svaraði djúp rödd. — Lestin var komin á hreyfingu. Þaðer eng- in ástæða til að fremja sjálfsmorð á svona fögrum degi. — Della, hélt Janicke áfram. — Þetta var lestin min. — Hún er það ekki lengur. Lestin var nú komin á hraða ferð. — Fjandinn sjálfur, tautaði Janicke og sneri sér að „bjargvætti” sinum. En hún hélt að hún mundi hálsbrotna við að lita framan i hann. — Liklega ætti ég að þakka yður, sagði hún treglega. — Ekkert að þakka svaraði sá hávaxni og brosti niður til hennar. — En fólk hefur týnt lifinu við að fara svona óvarlega að. Kannski ætti ég að biðjast afsökunar á hvað ég var harðhentur. Það er vist ekk- ert annað að gera en biða eftir næstu lest. Janicke virti hann fyrir sér i laumi. Þetta var myndarlegur ungur maður og virtist hreinn og beinn. Það var heimsku- legt að reiðast við hann, en henni lá á að komast heim til sin sem fyrst. Hún var i námi og varð að lesa eins og hún mögu- lega gat. — Komdu og fáðu þér kaffibolla með mér, sagði hann allt i einu. — Við förum með sömu lest og það er ennþá hálftimi eftir. Sjáðu til, ég hef tekið eftir þér áður. Hún leit rannsakandi á hann. Það gat ekki verið neitt athugavert við að drekka með honum kaffi. — Takk, ég þigg það gjarnan, svaraði hún. — Það var ekkert gaman að bíða hér. Þau gengu inn i kaffi- teriuna og á meðan hugsaði hún um, hvað Róbert mundi segja við þessu. Henni gramdist það. — Ég heiti Pétur Brandt, sagði ungi maðurinn um leið og hann kom með bakka með kaffi og kleinuhringjum að borðinu. — Allt sem ég veit um þig er að þú tekur strætisvagn áfram upp að Bakkahólum, þegar þú ferð úr lestinni, en ég tek vagn niður i Bakkabæ i gagnstæða átt. Hún hló. — Það er fallegt þar, svo frið- sælt og rólegt. Annars heiti ég Janicke Stray og hef alltaf átt heima uppi á Bakkahólum. — Og ég alltaf i Bakkabæ með foreldr- um minum, i gömlu, skrýtnu húsi. Siðan ég varð fullorðinn hef ég farið til borgar- innar daglega og það eru orðnir nokkuð margir timar samanlagt. Ég vona, að þú farir ekki að hlæja, þegar ég segi þér, að ég er yfirmaður i stórri leikfangadeild. Mér likar það nefnilega vel. Mér þykir vænt um börn og að sjá þau i búðinni minni. Ég reyni eftir beztu getu að hjálpa frænkum og frændum að velja skynsam- leg leikföng og það er gaman að krökkun- um, þegar þau koma með aurana úr sparibaukunum sinum. Einhvern tima vonast ég til að geta opnað mina eigin verzlun, þá þarf ég ekki að spyrja um leyfi til að selja hlutina nokkrum krónum ódýrari, ef einhver á ekki alveg nóg fyrir þeim. En þú, Janicke, hvað gerir þú? — Ég, sagði hún og saup á kaffinu. — Ég sit á skrifstofu i stóru tryggingafélagi og pikka á ritvél allan daginn. Það er ekki beint draumastarf, og ég er ekki sérlega dugleg, en þaðkemur kannski með timan- um. En Róbert segir, að þetta sé gott starf. Hún þagnaði og roðnaði, engin á- stæða til að sitja hér og segja- allt um sjálfa sig. — Róbert. Pétur leit á hönd hennar. Þar var enginn hringur. — Ertu trúlofuð? — Nei, en það haida allir það. Við Róbert höfum þekkzt svo lengi og foreldr- Allir voru svo vissir um að hún og Róbert myndu gifta sig einhvern daginn, að þeim datt ekki í hug að spyrja að því. En hún var alls ekkert viss um að hana langaði yfirleitt nokkuð til að giftast — að minnst kosti ekki Róbert. 26

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.