Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 33

Heimilistíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 33
r r Gunhild 1 f1 t I Hesting: / K 'o' ítur i n n o L B osti ck n bara grænni pylsu. Bastian gleymdi alveg að hann sat á hættulegum stað og lest gat komið á hverri stundu. í hvert sinn, sem dýrið tók skref, taldi það — 54-57- púff -63 sagði það — Góðan daginn, stoppaðu aðeins, sagði Bastian, þvi nú var dýrið beint framan við nefið á honum. — Uss, sagði það — 66-69-72. — Hvert ert þú? spurði Bastian. — Mælilirfa númer 1746 B, deild 16 i F-hópi, sagði lirfan. Svo hélt hún beint áfram eftir tein- inum -75-78-81- púff -84-87, taldi hún. — Það hljómar skemmtilega, sagði Bastian. — Það er það ekki, svaraði lifran -90-93-96 púff -99- — 100, hrópaði Bastian glaður, þvi hann kunni ekki þrisvar sinnum töfluna, — Nei, nei, hættu Stoppaðu! Ekki! hrópaði lifran i örvæntingu. Hún stóð upp á afturfætur- na og barði út i loftið með öllum fram- hlutanum. — Þú truflaðir mig! Hræðilegt! kveinaði hún — Hvað á ég að gera? Ég man ekki hvert ég var kominn. Hvar var ég, þegar ég sagði hvað og hvað sagði ég, þegar ég var hvar og hvað á ég að segja hér — Reyndu að segja 100, sagði Bastian vin- gjarnlega. — Þú varst nefnilega aö enda viö að segja 99. — Ertu viss um að það hafi verið 99, sem ég sagði? spurði lirfan niðurdregin og tortryggin. — Já, alveg viss, svaraði Bastian. — Gott, sagði lirfan og hélt áfram, — 102 — 105 — 108 — púff! En i sama bili heyrði Bastian hljóðið langt i burtu: Brrr.....lrrrr...brrrr.... Eldsnöggt sló hann til lirfunnar, svo hún flaug niður af teininum. Og það var á siðustu stundu. Bastian rétt náði að rúlla sér niður brattann og þá kom lestin. — tJff en sá hávaði. Svo var lestin horfin. Bastian reis ruglaður á fætur og leitaði að lirfunni. Hún hafði lent alveg neðst i brekkunni. Bastian stökk þangað. — Þarna varstu heppinn, ég bjargaði þér frá að verða undir lest! hrópaði hann. En mælilirfan reis upp á afturlappirnar og hrópaði á móti: — Bófi,glæpon! Hvað á svona flakkari að koma og eyðileggja fyrir mér vinn- una? Ég sem var einmitt kominn að 108 og nú er allt ónýtt.Oj bara, segi ég. Oj bara! — Ég er enginn flakkari, sagði Bastian. — Ég er Sebastian Mendelsohn Tjaikowsky og svo bjargaði ég lifi þinu. — Ég veit ekkert um það, sagði lirfan. — Ég er mælilirfa 1746 B, deild 16 i F-hópi og ég er i vinnu. Nú verð ég að byrja upp á nýtt. Svo skreið hún að simastaur i grendinni og byrjaði að mæla hann neðanfrá: — 3 — 6 — 9 — 12 — púff—15 —18 — 21 — sagði hún. bastian hristi höfuðið og fór leiðar sinnar. — Það var það sama með froskinn, hugsaði hann. Hann var lika vanþakklátur. Skyldu öll dýr vera svona? Hann var að hugsa um það, meðan han gekk meðfram járnbrautinni til að finna stað, þar sem hann kæmist yfir. Loks kom hann að mýri. Úti i mýrinni stóðu nokkrir storkar. Bastian varð hissa. Hann hafði aldrei séð raunverulegan stork áður. Þeir 33

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.