Heimilistíminn - 12.12.1974, Blaðsíða 27

Heimilistíminn - 12.12.1974, Blaðsíða 27
Einkastjörnuspáin 12. desember Þú hefur mikinn áhuga á stjórnmálum og þátttöku I opinberu starfi. Þú ert fróö- leiksþyrstur og leitar alltaf einhvers, sem fullnægt getur þörfum þinum I þvi sam- bandi. Þú getur látiö mikiö aö þér kveöa sem fyrirlesari eöa kennari, þar sem þú hefur hæfileikann til aö standa upp og tala sannfærandi um næstum hvaöa efni sem vera skal. Ahugi þinn á aö vita alla skapaöa hluti hefur aflaö þér vlðtækrar þekkingar á mörgum málefnum. Jafnóöum og þú þroskar þetta, veröuröu hæfari til aö ein- beita þér að einum ákveönum hlut. Þegar þú hefur sérhæft þig, kemstu lika að raun um, aö hægt er aö græöa peninga á þessu, en slikt er nauösynlegt, þar sem þú vilt gifta þig á unga aldri. Þú vilt lifa þægilegu lifi og gjarnan eiga fallegtheimili. Eigiröu þess kost aö sanka aö þér Iburöarmiklum hlutum, geriröu þaö. Konur, sem fæddar eru þennan dag, munu yfirleitt helga hjónabandinu og heimilinu starfskrafta sina. Þær geta orö- iö framúrskarandi eiginkonur fyrir metn- aðargjarna menn, sem vilja hafa heimilið og fjölskylduna þess virði aö lita á þaö. 13. desember Lif þitt mun ekki verða neitt venjulegt. Annaö hvort kemstu á tindinn vegna viijastyrks þins, eða þá þú sekkur alveg niöur i botn. Skaplyndið mun vera á si- felldu reiki frá þvi neösta til hins efsta. En getiröu haft hemil á þessum sveiflum, verðuröu alltaf I einhverri tilfinningalegri klemmu. Þú ert aldrei viss um hvar þú stendur eöa hvers vegna. Ef þú fylgir ekki réttri linu I lifinu, næröu ekki eins langt og þú gætir hæfileikanna vegna. Stjörnurnar hafa úthlutaö þér hæfileik- um, sem geta gert þig að framúrskarandi visindamanni. Þú vilt helzt vinna með staöreyndir og fellur vel aö leita nýrra uppl. um hvaö gerzt hefur I fortiðinni. Þú gærir oröið góöur sagnfræöingur, verj- andi eða stjórnandi hvers konar um- ræðna. Þú veizt hvernig leggja á fram staðreyndir, þannig að allt komi fram. Ef þú tekur þátt i umræöum, ertu laginn viö 'aö setja skoöanir þinar þannig fram, aö öllum finnist þú hafa á réttu aö standa. Þrátt fyrir heilbrigöa skynsemi þlna, áttu erfitt meö skapiö, sem blossar oft upp, þegar þú átt slzt von á. Reyndu aö stjórna tilfinningum þinum, svo allt fari á bezta veg. Þú hefur góða viöskiptahæfi- leika og veröur aö llkindum sæmilega stæöur. Þú átt auövelt meö aö öðlast vinsældir annarra, og margir koma til þin aö leita ráöa, þar sem þú hefur áhuga á vanda- málum fólks. 14. desember Þú ert mjög sjálfstæður aö eðlisfari og dá- lítiö frekur. Þú vilt helzt fara þinar eigin götur án ihlutunar annarra. Þegar þú ert spurður ráöa, ertu ekki sérlega fikinn I að gefa þau, þar sem þú telur, að allir eigi aö taka sinar eigin ákvaröanir. Þú hefur mörg áhugamál, og vilt allra helzt vita allt um allt. Þú vilt gjarnan gera margt i einu, frem- ur en sérhæfa þig á einu sviöi, og telur, aö víðtæk vitneskja geri þig aö fullkomnum herramanni. Aö likindum þénaröu ekki milljónir, en nóg til þess aö geta notið lifsins eins og þú vilt. Þú hefur háleitar hugsjónir og hugsar ekki svo mikið um aö mál séu tilgangs- laus. Þú gefur þig aö áhugamálunum af lifi og sál. Þegar þú vinnur aö einhverju, geturðu komizt aö kjarna málsins og yröir liklega góöur verjandi, blaöamaöur eða rannsakandi. Þú vilt gjarnan starfa fyrir gott málefni og ert reiöubúinn að berjast, ef svo ber undir. Ef þú vilt veröa ánægöur i hjóna- bandi, skaltu giftast maka, sem hefur svipaöur hugsjónir. Þú telur fegurö og sjarma litilvægara en aöra eiginleika manneskju, og ef þú eignast réttan maka, biöur þin mikil ham- ingja i hjónabandi. 27

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.