Heimilistíminn - 12.12.1974, Blaðsíða 34

Heimilistíminn - 12.12.1974, Blaðsíða 34
blómanna kitlaði hann i nefnið og sólar- geislarnir dönsuðu i grænu vatni árinnar. — Óskaplega er erfitt að hugsa svona mikið, hugsaði hann og geispaði enn einu sinni. Og áður en hann vissi af, steinsvaf hann i grasinu undir veröndinni á temusteri kinverska keisar- ans. Bastian vaknaði við undarlegt skrölt. Hann opnaði augun og leit ruglaður i kring um sig. Það var farið að dimma. Hvaðan kom þetta skrölt? Var þetta eitthvað hættulegt? Hann sá engan. Bastian leit upp. Uppi á veröndinni beint fyrir ofan höfuð hans lá Vísdómstigurinn og drakk te. Það var i tebollanum, sem skröltið — Ó, góða kvöldið, sagði Bastian. — Verði þér að góðu. — Góða kvöldið, svaraði Chih-hu — Hvernig gengur þér að hugsa? — A... jú takk, sæmilega, svaraði Bastian. Ég held ég sé að öðlast einhverja skynsemi — ég meina — ég er ekki alveg eins heimskur og ég lit flt fyrir að vera — eða hvað ég á að segja. Bastian var undarlega feiminn i návist þessa vitra kattar. — Ef maður veit ekki, hvað maður á að segja, þá á maður að þegja, þangað til maður veit það. — Já, sagði Bastian Þeir sátu þegjandi dágóða stund, meðan myrkrið umhverfis þá þéttist. Loks safnaði Bastian kjarki og sagði: — Heiðraði herra Chih-hhu. Ég er að leita að pabba minum, Baltasar. Hvernig á ég að finna hann? Visdómstigurinn svaraði: —Það kemur í Ijós fyrr en þú heldur. Baltasar mun bráðlega koma til eyjarinnar undarlegu. — Hvað þá? sagði Bastian glaður og hissa. — Já. en ég veit ekki hvað, svaraði Chih-hu og lauk við teið sitt — en þú munt sjá, að ég hef rétt að mæla. Svo stóð hann upp og gekk inn i dimmt musterið. — Baltasar pabbi minn kemur bráðum hingað! söng Bastian. hvað eftir annað Hann gat ekki verið kyrr af eintómri kæti og neyddist þess vegna til að hlaupa sex hringi i kring um stóran runna til að róa sig svolitið. Svo mundi hann allt i einu eftir afmæli frú Möttu og að hann hafði ekkert til að gefa henni i afmælis- gjöf Það fannst honum leiðinlegt, þvi honum iikaði svo vel við hana og vildi gjarnan koma henni þægilega á óvart. Þá mundi hann að við hinn endann á musterinu var smárabreiða. Hann skyldi gefa frú Möttu stóran vönd af smárablómum i afmælisgjöf. En einmitt þegar hann var að byrja að tina blómin, heyrði hann rödd frú Möttu frá hinum enda eyjarinnar undarlegu: — Bastian! Bastian, litli vinur, hvar ertu? — Bastian stakk öllum vendinum upp í sig og þaut gegn um runnana yfir á hinn endann. — Gjörðu svo vel og til hamingju, sagði Bastian, þegar hann hitti frú Möttu og rétti henni blómin. —Ó, svei mér þá sagðihún. — Ég fann þvi miður engan vasa, sagði Bastian. — Það gerir ekkert til, sagði frú Matta, og tók vænan munnbita af vendinum og tók að jórtra á honum. — Namm! sagði hún — Hvernig vissurðu að smárablóm eru uppáhaldsmatur- inn minn? —Ég vissiþað alls ekki, sagði Bastian, svolitið hissa, þvi ekki hafði honum dottið i hug, að frú Matta æti afmælisblómin sin. En svona voru vist kengúrur. — Ó, ég er svo glaður, frú Matta, sagði Bastian, sem gat hreint ekki staðið kyrr, þegar hann hugsaði um gleði sina. — Visdómstigur- inn var að segja mér að pabbi minn, hann Baltasar sé að koma til eyjarinnar undarlegu. — Já það gefur auga Ieið. Sagði ég þér það ekki? Auðvitað er Baltasar boðið i afmælið með öllum hinum. — öllum hinum? sagði Bastian hissa. — Já, öllum hinum sýningarköttunum. Svei mér þá, gleymdi ég lika að segja þér það? — Þú hefur svo mikið að gera frú Matta, sagði Bastian, þú getur ekki sagt öllum alt. — Jæja, það er satt. En allir sýningarkettirnir koma! Það verður óskaplega gaman. — Kemur kisustelpan Sheherasade lika? spurði Bastian varlega. Hann fann allt i einu, að hann saknaði hennar. 34 Framhald.

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.