Heimilistíminn - 03.09.1976, Side 7
fræg sem harmleikur um allt England,
eru tvö ungmenni af aöalsættum, lafði
Catherine Gray og greifinn af Hertford, i
fangelsi i Tower fyrir að hafa gifzt á laun
án 'þess að spyrja Elisabetu drottningu
fyrst. Lafði Catherine lézt siðar i fangels-
inu án þess að sjá mann sinn aftur.
Meðan frægð Rómeós og Júlíu fór aö
berast út yfir landamærin og gegn um
timana allt til okkar tima, hafa hinir
lærðu stööugt velt fyrir sér, hvort sagan
hafi við söguleg rök að styðjast. Hefur
einhverntima veriö til fólk, sem hét Júlía
Capuleti og Rómeó Montecci? Hafi svo
verið, giftu þau sig þá á laun og létu siðan
lif sitt sem fórnarlömb fjölskylduhaturs?
1 upprunalegri sögu Luigis Da Porto var
nákvæm tilvitnun i Bartolomeo della
Scala, höfðingja I Verona, þann hinn
sama og Dante nefnir i 17. söng Paradis-
ar, þannig aö hægt er aö festa söguna á
ákveðnum tima. 1 6. söng i Hreinsunar-
eldinum er að finna setningu, þar sem
minnzt er á tvær fjölskyldur, sem hötuð-
ust, Montecci og Cappelletti. En i ljós kom
fljótlega aö aldrei hefur verið fjölskylda i
Verona með nafninu Cappelletti eða
Capuleti. Hins vegar var þar fjölskylda
með nafninu Dal Cappello og grein af
henni bjó allt fram til enda 13. aldar i húsi
þvi, sem nú er kallað hús Júliu.
Þessi Dal Cappello-fjölskylda átti i
eilifum útistöðum við Monticoli-fjölskyld-
una i Verona, en sú fjölskylda kom frá
Monteccio Precalcino. Hún átti hús i Via
della Arche Scaligere, sem nú er kallað
hús Rómeós. Viö getum sem sé hugsaö
okkur, aö eftirnafnið Capuleti hafi veriö
Dal Cappello og Montecci hafi verið
Monticoli, en jafnvel þótt ekki sé til neinn
sögulegur grundvöllur fyrir sögunni af
Rómeó og Júliu, er hún enn lifandi i hug-
um ungra elskenda um allan heim. ótal
kvikmyndaleikstjórar hafa heillazt af
sögunni um elskendurna i Verona. Meðal
þekktustu kvikmyndanna um Rómeu og
Júliumá nefna Hollywoodmynd si'ðan 1936
þar sem Leslie Howard og Norma Shear-
er léku aðalhlutverkin.Þá léku Lawrence
Harwey og Susan Shantell Rómeó og Júliu
1954 undir stjórn Renato Castellani og
loks þau Leonard Whiting og Olivia
Hussey áriö 1968 undir leikstjórn Francos
Zeffirellis.
Leiksviösverkin eru óteljandi. Allt frá
Eleonoru Duse og Söru Bernhardt hafa
allar leikkonur viljað spreyta sig á hlut-
verki Júliu. Meöal þeirra frægu, sem leik-
ið hafa Rómeo má nefna Bretann
Lawrence Harwey og ballettdansarinn
Rudolf Nurejev hefur dansaö hann svo
seint gleymist.
En einn ljósasti vottur þess, hversu sag-
an um elskendurna i Verona er lifandi i
hugum fólks, er sú staöreynd, að ennþá,
fjögur hundruð árum siðar, eru Júliu aö
berast bréf viös vegar að úr heiminum.
Borgarstjórn Verona hefur þurft að ráða
sér einkaritara til að svara þeim öllum.
Flest byrja þau á þessa leið: — Elsku
Júlia, hjálpaðu mér ....
H$IÐ
— Vertu rólegur, við seljum þig ekki
eða höfum skipti á þér, viö gefum þig
einfaldlega ööru félagi.
— Sagöistu ekki ætla að hengja þig, ef
ég eyddi peningum i nýjan bil?
— Það væri bara aö fleygja peningum
að fara til tannlæknis, þegar við eigum
þennan fina bor...
Fyrsta skilyrði tU að geta dulið hugs-
anir sinar, er að húgsa.
★
Tölva er fljótlegasta leiðin tU að marg-
falda vitleysurnar.
Peningar tala af skynsemi á máli sem
allir skUja.
Bankastjóri getur leyft sér að skrifa
lélegt ljóð, en skáld getur ekki leyft sér
að skrifa lélega ávisun.
*
Maöur getur fengið veilt hjarta af of
mörgum hjartastyrkjandi.
★
er oft síöasti lykillinn á kippunni,
sem opnar dyrnar.
★
Slúður i lausu lofti er alltaf I erfið-
leikum með að finna lendingarstaö.
★
Ég Ht alltaf umburðarlyndum augum
á mistök, sérstakiega min eigin.
★
Maður á aldrei aðtroða sannleikanum
upp á fólk, sem ekki er reiðubúið að
taka honum.
7