NT - 10.04.1985, Blaðsíða 8

NT - 10.04.1985, Blaðsíða 8
ta Miðvikudagur 10. apríl 1985 8 Vettvangur Þorfinnur Björnsson bóndi Löngumýri: Grísir gjalda, gömul svín valda og búpening fækki komi betri að snúast til varnar að verja ekki, þó þeir vildu, sett sig í kjör. Forustusveit bænda horf- tíð með blóm í haga. Stað- hagsmuni okkar. f>að hefur sporfrumbýlingaogþeirrasem ir á þetta aðgerðalaus. Frá Búnaðarþingi: Bændaforystan hefur látið draga sig á asnaeyrunum. ■ Nú síðustu mánuði hefur vandi húsbyggjenda, sem reist hafa sér hurðarás um öxl, verið mjög til umræðu. Hafa þeir nú myndað samtök sem orðin eru að mjögöflugum grátkór. Hann gefur lands- frægum bændarbarlóm ekkert eftir. Þessi grátkór á samúð mína alla enda eru vandamálin svipuð og meginþorri bænda- stéttarinnar á við að glíma, þar sem vextir og verðbætur æða áfram óheft en launin eru skrúfuð niður. Þó finnst mér bændur standa þarna lakar að vígi. I fyrsta lagi þarf rúmur. helmingur bænda að fjár- magna með lánsfé allan sinn rekstur. I öðru lagi þurfa þeir líka að byggja og framkvæma. Og í þriðja lagi ef bændur fara á hausinn er ekki nóg með að þeir missa eigur sínar allar heldur standa þeir líka uppi atvinnulausir. Það er ástæðan fyrir því að fjöldi bænda er enn ekki hættur búskap, þó þeim virðist allar bjargir bannaðar. Velta á fjármagni er mjög hæg hjá sauðfjárbændum. Það getur tekið allt að tvö og hálft ár að fá fjármagnið til baka. Það er því engin tilviljun að þeir standa verst allra bænda. Það er lenska að kenna of- framleiðslu um allt sem miður fer. Menn trúa því að um leið reyndin er sú að upplausnar ástand hefur ríkt hjá stjórn- völdum þessa lands frá þing- kosningum 1978 og einmitt þá byrjar að halla undan fæti. Kólnandi veðurfar var aðeins til að auka vandann. Þá hefði forysta bændastéttarinnar átt henni algerlega mistekist. Fyr- ir því eru margar ástæður. Yfirbygging í landbúnaði er igeysilega mikil og stjórnun öll því mjögþunglamaleg. Þáþarf ekki að spyrja að því að hún | kostar hundruð milljóna bæði I fyrir bændur og ríkið. Þessi yfirbygging greinist eiginlega í tvennt. Annars veg- ar stéttarfélög bænda og Bún- aðarfélag íslands með allt sitt hafurtask. En hinsvegarsölufé- lag bænda þar sem SÍS trónir á toppinum. Það er athyglisvert að eftir því sem bændum fækk- ar eykst yfirbyggingin og afæt- um fjölgar. Forustan öll af sama sauðahúsi Ein ástæðan fyrir misjafnri afkomu bænda er að þeir sem kosnir eru til trúnaðarstarfa eru flestir af sama sauðahúsi. Það er sveitasiður að kjósa ekki nema efnaða bændur sem eru þá yfirleitt komnir af létt- asta skeiði. Virðist einu gilda þó þetta séu lággáfaðir menn, sem ekki hafa neitt nýtt til málanna að leggja. Það gefur auga leið að þessir menn geta staðið hafa í framkvæmdum síðustu árin. En þeir eiga hins vegar létt með að sjá að t.d. niðurfelling söluskatts á nýjum búvélum kemur þeim sjálfum að miklu gagni. Að fella niður söluskatt og jafnvel tolla af varahlutum hefði hins vegar komið öllum jafnvel og orðið til að nýta gamlar vélar mun betur. Enn ein ástæðan fyrir slæ- legri kjarabaráttu er hve bænd- ur eru pólitískir. Þeim gengur því ákaflega illa að sameina krafta sína til virkrar kjarabar- áttu. Ef menn eru kosnir póli- tískt aukast líkurnar á að þeir sýni ístöðuleysi og undirlægju- hátt gagnvart sínum flokk. Efnabændur græddu á verðbólgunni Álitið er að þriðjungur bænda hafi það mjög gott fjár- hagslega. Þegar kjör stéttar eru rannsökuð er alltaf gengið út frá meðaltalinu. Vitað er að laun bænda ná ekki nema 70% af launum viðmiðunarstétt- anna. Það er því augljóst að fjöldi bænda býr við kröpp Efnabændur á íslandi hafa langflestir framkvæmt áður en lán urðu verðtryggð. Hafa þess vegna ekki borgað nema smá- hluta af sínum fjárfestingum. Hitt hafa sparifjáreigendur fyrri ára greitt. Þegar þessir bændur byggðu upp, ríkti bjartsýni og þeim leyft að byggja stórt og framleiða mikið. Þessum mönnum hefur gengið allt í haginn. Arið 1980komunýskattalög sem víðtæk samstaða var um á Alþingi. Þessi lög eru svartur blettur á forystumönnum bænda og alþingismönnum. Þau sýna spillingu eða heimsku hjá þeim bændum sem kosnir voru til að gæta hagsmuna stéttarinnar. Þeir sýndu enga viðleitni til að lagfæra ósann- gjörn skattalög. Árni Jónas- son, kerfiskall hjá bændasam- tökunum, bendir á í Frey 1981 að skattalögin muni koma vel- stæðum bændum sífellt betur en þeim sem skulda verr og verr. Þarna hittir gamla brýnið naglann á höfuðið. Það er margt athyglisvert við þessi skattalög. T.d. ef skuldir eru hærri en veltufé (helming- ur af bústofni, bankainnistæður og sjóðseign) kemur visst hlut- fall af mismun sem tekj ufærsla. (nú 26,72% en var mun hærra.) En ef bóndi er vel efnum búinn og skuldir litlar eða engar kemur þetta sama hlutfall sem gjaldfærsla. Það getur orðið há upphæð. Landsfeðurnir ætluðu að ná þarna í margumtalaðan verð- bólgugróða í eitt skipti fyrir öll. Hugsuðu bara ekki útí að hann var ekki fyrir hendi lengur, eftir að lán urðu öll verðtryggð. Hins vegar sluppu flest allir sem græddu virkilega á verðbólgunni. Þetta eru menn um land allt, húsbyggj- endur og atvinnurekendur sem tóku óverðtryggð lán til fram- kvæmda. í þessa menn er helst hægt að ná með stóreignaskatti og hafa hann háan. Með þeim peningum er hægt að jafna lífskjörin, sem ég tel vera hlut- Þessi yf irbygging greinist eigin- lega í tvennt. Annars vegar stéttarfélög bænda og Búnað- arfélag íslands með allt sitt haf- urtask. Hins vegar sölufélög bænda þar sem SÍS trónir á toppinum. Það er athyglisvert að eftir því sem bændum fækk- ar eykst yfirbyggingin og afæt- um fjölgar. í þessa menn er helst hægt að ná með stóreignaskatti og hafa hann háan. Með þeim peningum er hægt að jafna lífskjörin, sem ég tel vera hlutverk ríkisvalds- ins, frekar en að mismuna þegnum þjóðfélagsins með heimskulegri stjórnun peninga- mála og vitlausum skattalögum. Niðurgreiddir Norðmenn, Japans- markaður og páskaleiðarar „stórblaðanna<( ■ í Fiskaren „en avis for kyst Norge“ lesum við að Norð- rnenn séu nú að gera stórátak í sölu fiskafurða í Japan. Þar er meðal annars sagt frá helj- armikilli sýningu í Japan sem Norðmenn tóku þátt í um miðjan mars þar sem þeir voru með 14 sýningarsvæði sem sýndu matvæli sjávarfangs. Það væri gaman að vita hvort við íslendingar höfum gert eitthvað til að selja fisk á Japansmarkaði, eða hvort það sé fyrirfram talið vonlaust vegna fjarlægðar. í Fiskaren kemur í ljós að ráðamenn í Japan vilja að fiskneysla aukist en fiskneysla í Japan hefur minnkað undanfarin ár frá því að vera 60% af fæðu almenn- ings niður í það að vera 40%. Þá kemur fram í Fiskaren að mikill áhugi sé hjá Norðmönn- um á útflutningi á nýjum norskum útflutningsvörum og er þar einkum um að ræða lax ogsíld. Er nefnt að Japanirséu gráðugir í hráan lax, segjast aldrei hafa fengið jafn góðan mat. Spurningin er, erum við að reyna að selja fisk í Japan eða gefumst við fyrirfram upp fyrir hinum niðurgreiddu Norð- mönnum. Söluverðmæti í USA Annað sem gaman væri að fá að vita þ.e. hve rnikið af söluverðmæti þess fisks sem íslensk fyrirtæki selja í Banda- ríkjunum skilar sér til landsins og hvað mikið hlutfall fcr í fjárfestingar og annað slíkt í Bandaríkjunum. Nú eru takmörk fyrir því hvað fyrirtækin geta flutt mikið fjármagn frá Bandaríkjunum því að þó að Bandaríkjamenn séu hlynntir frjálsu fjár- magnsstreymi þá gæta þeir vel að því að beina fjármagni til eigin lands. Vegna þessa er það takmarkað h vað við getum flutt til Islands afsöluverðmæt- um fisksins. Spurningin er sem sagt þessi. Hvað mikill hluti af afrakstri íslensks sjávarút- vegs, daglöngu striti karla og kvenna um allt land, verður eftir í Bandaríkjunum. Það hlýtur einhver skýr maður að geta svarað þessu á einfaldan hátt. 60.000 útvarps og sjónvarpsstöðvar Ragnheiður Valdimarsdótt- ir klippari hjá Sjónvarpinu rit- ar athyglisverða grein í Morg- unblaðið 28. mars um fjöl- miðlabyltinguna: Þar kemur m.a. fram að ítalireru lukkunn- ar pampfílar. Þar ríkir algjört frelsi í fjölmiðlun enda eru þar 60.000 útvarps- og sjónvarps- stöðvar, þar sem sýndar eru 2.000 bíómyndir á hverjum degi, og á Ítalíu Ioka að meðal- tali þrjú kvikmyndahús dag- lega. Ragnheiður nefnir það hins- . vegar að í Hollandi séu aðeins tvær sjónvarpsrásir og það án auglýsinga, þannig að misjafn er frelsisskilningur þessara tveggja þjóða sem að sjálf- sögðu ná báðar erlendum stöðvum að vild sinni. Við íslendingar ættum að hunskast til að rannsaka betur reynslu hinna ýmsu þjóða áður en við samþykkjum að gefa fjáraflamönnum loftið frjálst. Það ætti a.m.k. að vera öllum ljóst að það að græða á útvarpi og sjónvarpi á ekkert skylt við frelsi. Samkvæmt reynslu ítala, og raunar Bandaríkjamanna einnig, þá hrakar útsendu efni með hverri nýrri stöð sem bætist við þ.e. því fleiri stöðvar því lélegra efni. Og þó að stöðvar séu margar tryggir það almenningi engan aðgang að fjölmiðlinum. Það erekki einu sinni svo að algjört frelsi í þessum efnum tryggi listrænar auglýsingar, svo vitnað sé til röksemdafærslu frúar einnar reykvískrar í sjónvarpi fyrir nokkru. Páskaleiðarar stór- blaðanna Það er gaman að bera saman páskaleiðara íslensku „stór-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.