Morgunblaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 37 ✝ Friðjón Árnasonfæddist á Stálpa- stöðum í Skorradal 3. mars 1934. Hann lést á heimili sínu 15. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Árni Krist- jánsson, f. 18.12. 1894, d. 10.2. 1966 og Elín Kristjánsdóttir, f. 18.8. 1907, d. 9.5. 1997. Friðjón var þriðja af níu börnum þeirra, er öll komust upp og lifa hin bróð- ur sinn. Þau eru: Kristján, bóndi að Kistufelli, síðar smiður og skáld að Skálá í Sléttu- hlíð, Sigrún, verkakona í Borg- arnesi, Steingrímur Kristinn, prentari og bifreiðastjóri í Hafn- arfirði, Elín, verkakona á Sel- fossi, Þóroddur Már, vélsmiður á Norðfirði, Helga, sjúkraliði í Hafnarfirði, Tómas, bóndi og vinnuvélastjóri á Kistufelli og Jón, verktaki í Hafnarfirði. Árið 1946 flutti Friðjón með foreldrum sínum að Langholti í Bæjarsveit, þar bjuggu þau í eitt ár. 1947 fluttu þau að Kistufelli í Lundarreykjadal. Friðjón vann á yngri árum við stjórn vinnuvéla, síðan lengst af bifreiðakstur. Um 1970 stofnaði hann iðnaðarbýli er hann nefndi Melgerði og bjó þar síðan. Friðjón kvæntist 26.5. 1968 eft- irlifandi eiginkonu sinni Kol- brúnu Elínu Anderson, f. 21.5. 1944 og gekk tveimur sonum hennar í föðurstað. Friðjón og Kolbrún eignuðust tvö börn, þau eru: 1) Sigurjón Árni, f. 17.3. 1971, búsettur í Reykja- vík, maki Berglind Long, f. 17.6. 1974. Börn þeirra eru Elma Sól, f. 7.6. 1995 og Dagur Snær, f. 29.10. 1998. Dóttir Sigurjóns er Linda Ósk, f. 21.8. 1990. Sonur Berg- lindar er Ágúst Örn Long, f. 27.12. 1990. 2) Fanney Erla, f. 18.6. 1974, bú- sett í Reykjavík. Dætur hennar eru: Kolbrún Sara Jónsdóttir, f. 31.1. 2002 og Alexía Rán Eiríks- dóttir, f. 11.6. 2004. Synir Kol- brúnar eru a) Stefán Rafn Vil- hjálmsson, f. 3.6. 1962, búsettur í Borgarnesi, maki Hafdís Hún- fjörð, f. 27.1. 1962. Dætur þeirra eru Bergrún Sara, f. 30.6. 1992 og Heiðrún Björk, f. 9.12. 1993. Sonur Stefáns er Þráinn, f. 13.10. 1986. Dætur Hafdísar eru Guðrún Lilja Húnfjörð, f. 25.3. 1979 og Kolbrún Heiða, f. 27.1. 1981. b) Steinar Heiðar Vilhjálmsson, f. 10.12. 1966, búsettur í Þýska- landi, maki Petra Prussermeier, f. 22.12. 1966. Börn þeirra eru Björg, f. 19.7. 1992 og Jón, f. 19.2. 1998. Sonur Steinars er Sigur- steinn Pétur, f. 4.4. 1987. Útför Friðjón fer fram frá Reykholtskirku í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Elsku pabbi minn. Ég á enn erfitt með að trúa því að kvöldið áður en þú kvaddir hafi ver- ið okkar síðasta samtal. Við vorum að ræða um að hittast daginn eftir á bakaleið minni, Berglindar og krakkanna frá Húsafelli, þar sem við vorum búin að vera í góða veðr- inu. Við ætluðum að hittast og þú ætl- aðir að sýna mér nýjan veiðistað sem ekki margir vissu um. Nokkrum dögum áður en þú fórst komuð þið mamma í heimsókn til okkar upp í Húsafell og við fórum tveir saman í smá bíltúr, niður að flugskýli að skoða vélarnar og svo að Húsafellshellunni sem þú vildir endilega að ég reyndi að lyfta. Ég geymi þessa heimsókn vel í minni mínu eins og faðmlagið okkar þegar þið mamma fóruð heim, þannig kvöddumst við alltaf. Við brölluðum mikið saman um ævina og ennþá meira síðustu ár. Allar veiðiferðirnar sem við fórum saman upp á fjall og töluðum um heima og geima. Þú sagðir mér margar sögur af öllu mögulegu, af því eins og margir vita bjóstu yfir alveg óendanlegum fróðleik um alla skapaða hluti, menn, dýr, vélar, plöntur ofl. Við höfðum ferðast mikið saman um landið og nutum við Berglind og krakkarnir góðs af því að vera með þér, þar sem þú sýndir okkur ótrú- legustu staði. Við vorum með besta leiðsögumann sem völ var á af því þú þekktir landið okkar nær utan- bókar. Elsku pabbi, þú varst ekki bara pabbi minn, heldur minn besti vinur líka. Það verður erfitt að geta ekki leitað að ráðleggingum hjá þér eða bara að geta hringt í þig til að heyra í þér hljóðið eins og ég gerði svo oft. Elsku pabbi, mér þótti alveg óendanlega vænt um þig, ég var ófeiminn við að láta þig vita af því. Takk fyrir allar okkar stundir sam- an. Megi Guð gefa mömmu styrk til að halda áfram. Sofðu rótt, elsku pabbi minn. Þinn sonur, Sigurjón. Í dag er elsku pabbi minn kvadd- ur hinstu kveðju og langar mig til að minnast hans í nokkrum orðum. Ég var alltaf mikil pabbastelpa og hvað sem gekk á í mínu lífi þá vissi ég að ég gat alltaf leitað til pabba og fengið hjá honum góð ráð og stuðning. Eitt af því skemmtilegasta sem pabbi gerði var að fara að veiða og ég var ekki há í loftinu þegar ég fékk að fara með honum í fyrsta skipti upp að vatni til að veiða. Ég man glöggt eftir því þegar ég fékk í fyrsta skipti að halda á veiðistöng hjá pabba. Hann hafði tekið okkur Sigurjón bróður með sér að veiða og Sigurjón setti í fisk og pabbi rétti mér veiðistöngina og sagði mér að veiða á meðan hann hjálpaði Sigurjóni. Hann var varla byrjaður að hjálpa honum þegar ég varð var við að fiskur hafði bitið á hjá mér og næstu mínútur hjá honum fóru í að hlaupa á milli okkar systkinanna og hjálpa okkur að landa fiskunum. Annað skiptið var svo þegar við pabbi vorum að veiða í gegnum ís og ég ýtti á magann á einum fisk- inum og þá gaf hann frá sér eins og lítið öskur. Mér þótti þetta sniðugt og ýtti á magann á fiskunum og pabbi spurði mig hvað ég væri að gera og ég sagði að ég væri að láta fiskana öskra. Honum þótti þetta mjög fyndið og stríddi mér lengi vel á þessu. Pabba þótti mjög vænt um sveit- ina sína og Borgarfjörð og læt ég því fylgja ljóð eftir bróður hans sem mér finnst lýsa hug hans til hennar. Bjarma slær á Borgarfjörð, í blænum hrærast stráin. Í þinn væra vígða svörð vil ég færast dáinn Ból ég neitt ei betra finn beinin þreytt að geyma, ef það er veitt í þetta sinn þrauka ég eitthvað heima. (Kristján Árnason.) Elsku pabbi, það er skrýtið til þess að vita að ég eigi ekki oftar eft- ir að geta leitað til þín, faðmað þig, þegið hjá þér góð ráð eða leitað í viskubrunn þinn. Elsku mamma, guð styrki þig í sorginni minning um góðan eiginmann, föður og afa mun lifa á meðal okkar. Þín pabbastelpa Fanney Erla. Elsku Friðjón. Þú fékkst góðan dauðdaga. Leggst til svefns að kvöldi og sefur svefninum langa. Okkur hinum var brugðið, þinn tími var ekki kominn. Þú áttir eftir a okkar að gera svo margt. Ég veit að þú vakir yfir okkur, það er mín hugarró. Það var margt sem við vorum bú- in að gera saman, en líka margt sem við áttum ógert. Ég geymi allar okkar minningar, því þær ylja mér. Ég sakna mikið visku þinnar og fróðleiks, en ég sakna þín enn meira. Elsku Kolla mín, megi Guð og englarnir vaka yfir þér. Minningin lifir um góðan mann Hinsta kveðja. Þín tengdadóttir, Berglind. Elsku afi, nú ertu farinn til guðs og ég á eftir að sakna þín mikið. Ég er fegin að ég fékk að vera viku í sveitinni hjá ykkur ömmu rétt áður en þú kvaddir. Ég man hvað mér þótti gott að kúra hjá þér og hjúfr- aði mig svo þétt upp að þér að þú varst næstum dottinn út úr rúminu. Elsku afi, ég er svo lítil ennþá að ég skil ekki að þú sért ekki hérna og er ennþá að spyrja um þig í hvert skipti sem ég tala við ömmu. Þín Kolbrún Sara. Elsku afi, rosalega er þetta sárt, það er svo sárt að missa þig frá okk- ur. Þú varst góður afi, duglegur og sagðir skemmtilegar sögur, en varst pínu stríðinn. Kallaðir okkur Litlu Lind, Gústel, Spólustelpuna og Litla Mugg. Það var alltaf gaman að koma til ykkar ömmu í sveitina, skoða traktorana, leika sér í lækn- um eða bara að dunda eitthvað. Við lofum því að passa uppá ömmu fyrir þig. Bless, elsku besti afi. Hvíl í friði. Afabörnin, Linda Ósk, Ágúst Örn, Elma Sól og Dagur Snær. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Það var sól í heiði sunnudaginn 15. ágúst, Lundarreykjadalurinn skartaði sínu fegursta eftir óvenju sólríkt og gott sumar, símin hringir til mín þar sem ég er staddur á Heilsuhælinu í Hveragerði, það kólnar í kringum mig, ég hætti að taka eftir sólinni um stund, Ella var í símanum og fréttin var, hann Frið- jón bróðir dó í nótt. Friðjón mágur minn var að mörgu leyti sérstæður maður, hann safnaði ekki veraldarauði, hans auð- ur var Kolla, börnin, náttúran og dýrin, það var gaman að sjá þá tala saman, hann og hundinn hans, hann Glóa, þeir skildu hvor annan. Friðjón var ekki langskólageng- inn, en svo mikillar þekkingar hafði hann aflað sér á sviði bókmennta með lestri góðra bóka, að margir lærdómsmenn mættu vera stoltir af, hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og fór ekki dult með þær skoðanir. Friðjón átti létt með að setja saman vísur og kveðskap án þess að vera að flíka því. Nú seinni árin var eitt aðal áhugamál Friðjóns að safna göml- um dráttarvélum og sögu hverrar vélar frá því að hún var flutt inn til landsins. Að koma að Melgerði var ein- stakt, þar var gestrisni þeirra hjóna beggja viðbrugðið, hvenær sem mann bar að garði, þau höfðu lag á því að láta manni líða vel og láta mann finna sig velkominn, en svona er fallvaltleiki lífsins, hún verður aldrei farin, ferðin í Reiðarvatn sem þeir feðgar Sigurjón og Friðjón höfðu ráðgert daginn sem hann dó. Það er sárt að sjá á bak góðum vini og bróður en sárastur er harm- ur Kollu og barnanna sem sjá á bak ástríkum eiginmanni og föður, við vottum þeim okkar dýpstu samúð með orðum Kidda bróður Friðjóns. Góður maður er genginn, góður maður dáinn minnir hann oft á máttinn maðurinn slyngi með ljáinn. Allra okkar kynna, er ánægjulegt að minnast mér finnst slíkum mönnum mannbætandi að kynnast. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Elín og Sigurður. Kveðja frá Kleppjárnsreykjaskóla Í vor var haldin afmælisveisla í Brautartungu í Lundarreykjadal. Friðjón og Kolbrún í Melgerði fögn- uðu tímamótum. Hann stóð þá á sjötugu og hún yrði sextug skömmu síðar. Það var gaman að koma til þeirra þann dag, og mér er það minnistætt hvað mér þótti Friðjón fínn og strákslegur. Glaður, og í jakkafötum, líkari fermingardreng en sjötugum manni. Já í jakkaföt- um, en ekki í köflóttri skyrtu með uppbrettar ermar, eins og hann var oftast við akstur á skólabörnum, og því í bílstjórakróknum á morgnana. Ég minnist líka ákafa hans í rat- leik okkar starfsmanna skólans síð- asta skóladag fyrir páska. Gleðinni sem hann fyllist jafnan í samveru vina. Hann var enda glaðsinna í gerðinni og mannblendinn á sinn hátt. Vorið og sumarið virtist mér ætla að verða Friðjóni fremur ævisumar en haust. Það kom okkur samstarfs- mönnum því í opna skjöldu að spyrja lát þitt. Þú hafðir ekið skólabörnum í og úr Kleppjárnsreykjaskóla í hart nær tvo áratugi og notað til þess bæði fína bíla og skrjóða, en svo kalla þeir gjarnan þá bíla er ekki þekkja sálir þeirra, þegar vegferðin hefur mótað þá og markað. Ég veit að þú hafðir lengi haft mikinn áhuga á farartækjum, sérstaklega dráttarvélum og dregið að þér margt gamalt til að dunda við. Sveitungum þykir fáum fegurðar- auki að slíkum haugum, en þú hafð- ir reist þessum lúnu tækjum mön, eins og bændum er nú gert að hafa fyrir útigang sinn. Þar varstu fremri mörgum söfnurum. Hvað sem bílakosti þínum leið, veit ég að það var aðalsmerki þitt að aka varlega. Þeir eru og ófáir sem báru fyllsta traust til þín og til eru þeir sem hafa miðað aðra bíla sem þeir ferðast með við þína bíla. Þar skipar t.d. stóri Bensinn sinn sess. Fróðleikur þinn var annálaður og þeir er nutu sögustundanna gleyma seint frásagnarmátanum og ákafa öllum er fylgdi. Svo mikil var ein- lægni þín. Lífsbaráttan var þér ekki ætíð dans á rósum, en eðallinn í brjósti þér hefur gert þig að þeim manni sem gott var að eiga samskipti við og fyrir það þakka ég og samstarfs- menn þínir í Kleppjárnsreykjaskóla sem nú sakna þín. Sveitin hefur misst eina nótu úr slaghörpu sinni við fráfall þitt. Kolbrúnu og börnum ykkar bið ég Guðs blessunar. Með góðri kveðju frá Kleppjárnsreykjaskóla, Guðlaugur Óskarsson. Rúm tíu ár eru síðan ég kynntist Friðjóni Árnasyni. Það sem leiddi okkur saman var sameiginlegur áhugi á sögu landbúnaðartækni 20. aldar og þeim tækjum er bera vitni um hin stórfenglegu umskipti sem orðið hafa í atvinnuháttum á sviði landbúnaðar eins og hvarvetna ann- ars staðar í íslensku þjóðlífi. Því miður hefur Íslendingum verið raunalega ósýnt um að halda til haga minjum um þá byltingu í verk- menningu sem færði þjóðina á nokkrum áratugum nánast af þjóð- veldisöld til hátækniumhverfis nú- tímans og það starf sem sú kynslóð vann er lifði manndómsár sín á þessu tímaskeiði. Því hefur á síð- ustu árum verið kapphlaup þeirra, sem skynjað hafa mikilvægi sög- unnar, við graftól og brotajárns- pressur að bjarga því sem bjargað yrði á þessum vettvangi. Friðjón Árnason var í fremstu röð þeirra manna sem hafa látið sig þessi mál varða. Hann hafði skarp- an skilning og mikla þekkingu á við- fangsefninu og brennandi áhuga á því að bjarga því sem bjargað yrði á elleftu stundu. Athafnir fylgdu ráðagerðum og því náði hann mikl- um árangri. Þess vegna er mikil eft- irsjá að honum úr hópi vina ís- lenskrar menningar- og tæknisögu. Friðjón var góður félagi, glaðsinna og fræðandi, og vel minnist ég ferða með honum um sveitir Borgarfjarð- ar, þar sem hann átti hvarvetna vin- um að mæta. Ég minnist Friðjóns Árnasonar með þakklæti og virðingu og bið fjölskyldu hans blessunar. Helgi Magnússon. FRIÐJÓN ÁRNASON Það er að verða lið- inn aldarfjórðungur síðan ég kynntist Pétri fyrst. Það leið ekki langur tími frá okkar fyrsta fundi þar til bundist höfðu þétt og góð og sterk vináttubönd. Saman höfum við verið á ótal mörg- um stöðum við útivist og veiðar og margskonar skemmtan. Hver staður og hver ferð felur í sér ótal minn- ingar sem nú brjótast af meiri krafti fram í hugann við þessi tímamót. Pétur hefur aldrei verið neinn vælu- kjói og ég man að fyrst þegar ég hitti hann stóð mér næstum stuggur af þessum stóra manni sem gnæfði yfir mig í hæð og breidd. Á fyrstu dögum okkar saman fann ég þó að allt óör- yggi í nánd Péturs var fljótt að hverfa. Ég hef aldrei kynnst neinum með jafn einstaka hæfileika til að taka fólki eins og það er og sjá aðeins PÉTUR SVAVARSSON ✝ Pétur Svavars-son fæddist á Ás- vallagötu í Reykja- vík 15. febrúar 1948. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi 9. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 18. ágúst. það góða og jákvæða í fari fólks og draga það fram með sínum leiftr- andi húmor og for- dómalausa viðmóti. Það var heitt og stórt hjarta sem sló í brjósti þessa góða vinar. Pétur hefur verið segullinn og límið sem haldið hef- ur vinahópnum saman og ég á erfitt með að sjá fyrir mér daglega til- veru án þess að hitta og tala við þennan einlæga góða vin minn. Ég sakna þétts handtaks frá stórri og traustri hendi. Ég sakna þess að fá ekki hjálp við að sjá léttu og spaugilegu hliðarnar á til- verunni. Ég sakna þess að geta ekki sótt í ástríðuna og þekkinguna á sameiginlegum áhugamálum okkar. Ég sakna þín kæri Pétur og vona að þú skiljir tár mín þar sem þú ert núna staddur. Missirinn er mikill en þú góði drengur og okkar minningar munu lifa með mér, við munum báðir halda áfram að safna nýrri reynslu í sarpinn sem við getum deilt saman þegar fundum okkar ber saman á ný. Ég votta allri fjölskyldu Péturs og aðstandendum mína dýpstu samúð og bið þeim blessunar í þeirra sorg. Ólafur Gunnar Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.