Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 41
stjórnarkosningum, árin 1990, 1994, 1998 og 2002. Á þeim tíma lágu leiðir okkar Sig- urðar saman bæði á sviði sveitar- stjórnarmála árin 1990–1998 og síð- ar á kjördæmavísu. Á því tímabili sem Sigurður leiddi framsóknar- menn í Kópavogi tókst flokknum að vinna mikið fylgi með framsækinni stefnu sinni og þrefalda fulltrúatölu sína í bæjarstjórninni. Slíkur árang- ur er mikið stjórnmálalegt afrek. Í krafti þessara verka var Sigurði falið starf bæjarstjóra Kópavogs um ára- bil. Í störfum sínum að félagsmálum stóð Sigurður aldrei einn. Kona hans, Ólafía Ragnarsdóttir, studdi hann og hvatti í þeim annasömu störfum sem fylgja bæjarstjórastarfi í fjölmennum bæ. Sigurður var ekki einungis kraftmikill í sveitastjórnar- málum, hann var einnig öflugur bar- áttumaður fyrir hönd framsóknar- manna í kjördæminu, fyrst Reykjaneskjördæmi en síðar Suð- vesturkjördæmi. Í Kópavogi tókst Sigurði að byggja upp öflugt flokks- starf meðal framsóknarmanna, í samstarfi við framsóknarfélögin þrjú sem þar starfa. Reglulegir kaffifundir á laugardagsmorgnum í félagsaðstöðunni á Digranesvegi hafa verið mikilvægur þáttur í því starfi. Á þeim fundum var hægt að ganga að Sigurði vísum þar sem hann var mættur með vínarbrauð fyrir alla og tilbúinn til að greiða úr málum, stórum sem smáum. Alltaf var gaman að taka þátt í, fylgjast með og læra af Sigurði í kosninga- baráttunni hvort sem um var að ræða í Kópavogi eða í kjördæminu. Gaf hann mér mörg góð ráð í gegn- um tíðina sem nýst hafa vel og ég mun geyma alla tíð. Í síðustu alþing- iskosningum, vorið 2003, var Sigurð- ur í heiðurssæti framboðslista okkar framsóknarmanna í Suðvesturkjör- dæmi. Að morgni kjördags fór hann snemma að kjósa ásamt konu sinni Ólafíu, en á leiðinni hitta þau Sigl- firðing búsettan í Kópavogi sem spyr þau að því hvort það sé gott lið á framboðslistanum með Sigurði. Svarar þá Sigurður að bragði í vísu- formi: Lið sem eflir landsins hróður, lið sem ryður braut og skorar. Og líkt og annar eðalgróður, eflist Framsókn þegar vorar. Sigurður var mikill liðsmaður eins og vísan ber með sér. Hann lét aldrei deigan síga, enda keppnismaður sem hafði sterka skoðun á því hvernig Kópavogur og kjördæmið ætti að blómstra og byggjast upp. Undir stjórn Sigurðar tók Kópavogur stakkaskiptum. Bærinn stækkaði ört og uppbyggingin var slíka að mörg önnur sveitarfélög fylgdust af áhuga með hvernig til tókst og hvernig staðið var að hlutunum. Ásýnd Kópavogs í dag ber á margan hátt vott um stórhug Sigurðar. Sigurður vildi byggja upp og það hratt. Til að undirstrika það var sýnd sjónvarpsauglýsing af Sigurði fyrir einar sveitastjórnarkosningarnar þar sem fjölmargir kranar sáust í baksýn. Sú auglýsing var lýsandi fyrir foringjann, hann var maður framkvæmda og framfara. Þrátt fyr- ir áherslurnar á verklegar fram- kvæmdir lagði hann ekki síður áherslu á hin mýkri mál og lagði mik- ið upp úr því að bærinn stæði m.a. vel að rekstri skólanna, sinnti íþróttafélögum og starfi eldri borg- ara og veitti góða félagsleg aðstoð. Þótt uppbyggingin undir stjórn Sig- urðar væri hröð lagði hann mikla áherslu á að reka bæjarfélagið með hagkvæmum hætti. Sigurður var af- ar ljúfur í allri umgengni og sá já- kvæðu hliðarnar á verkefnunum frekar en þær neikvæðu. Auðvelt var að vinna með honum bæði fyrir sam- herja sem aðra. Samstarf hans og samstarfsflokksins í meirihlutanum í Kópavogi, Sjálfstæðisflokksins, var til að mynda afar gott og árangurs- ríkt. Leiðir okkar Sigurðar lágu saman víða á vettvangi stjórnmál- anna. Eitt af mörgum minnisstæðum verkefnum sem við tókum þátt í var afhending Grænfánans í Salarskóla í vor. Þar hélt Sigurður eina af sínum smellnu ræðum sem allir skildu og meðtóku, bæði kennarar og nemend- ur. Eftirtektarvert var að allir krakkarnir þekktu bæjarstjórann sinn og hann náði til þeirra með því að talaði við þau á jafnréttisgrund- velli. Sigurður var mjög víðsýnn, enda hafði hann reynt margt. Hann þekkti vel til félagsstarfa bæði í gegnum íþróttastarf og störf í ung- mennafélagshreyfingunni, en sá grunnur nýttist honum afar vel á stjórnmálavettvangi. Störf í stjórn- málum eru oft erfið og geta reynt á þolrif manna. Aldrei fannst manni þó Sigurður þreytast í ábyrgðarmiklu og annasömu starfi sem bæjarstjóri í fjölmennum bæ. Hann var ætíð hress og kátur og uppfullur af góð- um hugmyndum til að bæta bæinn sinn, Kópavog. Ekki vantaði heldur upp á að hann sinnti félagslífinu í bænum. Við opnum myndlistarsýn- inga, tónleika og alls kyns skemmt- ana var hann yfirleitt fyrstur til að mæta á staðinn. Þannig fylgdi við- veru hans sérstakur bæjarbragur alls staðar þar sem hann var nærri. Sigurður naut mikillar virðingar bæði samflokksmanna sinna sem og fulltrúa annarra flokka. Það gat maður glöggt fundið í reglubundnum heimsóknum þingmanna allra flokka kjördæmisins til Kópavogsbæjar í gegnum tíðina. Þá leiddi Sigurður umræðurnar og stóð sig eins og hetja í hvert sinn. Við fráfall Sigurð- ar hefur Framsóknarflokkurinn misst einn af sínum sterkustu leið- togum. Við framsóknarmenn mun- um minnast hans með mikilli virð- ingu og þakklæti og það verður best gert með því að starfa áfram í hans anda. Fjölskyldunni, Ólafíu, börnum, barnabörnum og öðrum ástvinum Sigurðar votta ég mínar dýpstu sam- úð. Megi Guð blessa minningu hans. Siv Friðleifsdóttir. Hann var kvikur á fæti og léttur í spori þegar hann gekk til starfa á vettvangi bæjarins. Alltaf nóg að gera og í mörg horn að líta. Af hon- um skein áhugi á öðru fólki og því sem það var að fást við og alltaf stutt í brosið. Þannig kom hann bæjarbúum fyr- ir sjónir, held ég. Þessi smitandi áhugi nýttist honum vel í vandasömu starfi sínu sem bæjarstjóri og vann marga til fylgis við þau mál sem hann var í forsvari fyrir. Sem oddviti Samfylkingarinnar átti ég við hann mikil samskipti frá því ég tók sæti í bæjarstjórn árið 1998. Þrátt fyrir að hann væri for- ystumaður meirihlutans og ég minnihlutans áttum við gott sam- starf um marga hluti. Vitanlega tók- umst við oft á um pólitíska sýn og deildum nokkuð um einstök málefni, það er eðli bæjarmálaumræðu. Sig- urður lagði mikla áherslu á í sínu er- ilssama starfi að vera bæjarstjóri allra Kópavogsbúa, hvar í flokki sem þeir stóðu og hafa hag bæjarins allt- af í fyrsta sæti. Hann gat aðskilið starf sitt sem bæjarstjóri frá hlut- verki sínu sem oddviti Framsóknar- flokksins. Til hans var alltaf hægt að leita til að fá upplýsingar og leiðbein- ingar, þó þær ætti að nota til að berja á meirihlutanum. Það kom mörgum á óvart að við, elsti og yngsti bæj- arfulltrúinn, skyldum deila áhuga á fundarsköpum, félagsmálastarfi og fleiru af því tagi. Sigurður var fé- lagsmálamaður í besta skilningi, al- inn upp í ungmennafélagshreyfing- unni og bar henni gott vitni. Hann hafði mikinn áhuga á að leiðbeina og þjálfa menn til starfa á vettvangi fé- lagsmála. Töluðum við oft um það mikilvæga starf sem fram fer í marg- víslegum félögum hér í bænum og leiðir til að efla það. Hann sýndi okk- ur Samfylkingarfólki þá virðingu að vera við vígslu á nýju húsnæði okkar og færði okkur við það tækifæri gjaf- ir frá bænum. Þeim fylgdu af heilum hug hlýjar óskir um að okkar starf gengi vel – en um leið lét hann þess getið að vonandi fengjum við aldrei að ráða neinu um stjórn bæjarins! Sigurður var ágætur ræðumaður, rökfastur og fundvís á veilur í mál- flutningi andstæðingsins, en fús til að viðurkenna það þegar andstæð- ingar lögðu fram góðar hugmyndir. Aldrei persónulegur í málflutningi og kom með leiðbeiningar til mín í þá veru sem trúlega voru réttmætar og reynt að taka til greina. Oft létti hann andrúmsloftið á bæjarstjórnar- fundum með því að kasta fram vísu, enda ágætt skáld. Sú hefð komst á að ég héldi þessum kveðskap til haga og er það orðið ansi skemmtilegt safn. Í málflutningi hans var alltaf stutt í gamansemina og hana notaði hana iðulega til að afvopna andstæðinga sína. Í kosningunum 1998 var að- staða unglinga mikið til umræðu og talaði ég nokkuð um þau mál á fram- boðsfundum. Á fundinum í vestur- bænum sagði Sigurður kímileitur að það væri merkilegt að alls staðar þar sem hann kæmi með mér á fund væri farið að tala um „unglingavanda- mál“. Trúlega gera sér ekki margir grein fyrir hversu erilsamt starf bæjarstjóra var hjá Sigurði og í mörg horn að líta. Hann lagði sig sérstaklega eftir því sem ungt fólk var að gera og eitt af hans síðustu embættisverkum, laugardaginn 28. nóvember, var að afhenda verðlaun í Stíl, fatahönnunarkeppni ungs fólks. Var það síðasta verkefnið á erilsöm- um degi en það var regla frekar en undantekning að Sigurður væri við störf á laugardögum. Það kom okkur öllum í opna skjöldu að þessi spræki maður skyldi falla frá svo snögglega. Hinn 6. nóv- ember síðastliðinn var Sigurður í liði bæjarstjórnar sem keppti í fótbolta við gullaldarlið Breiðabliks og var að stríða okkur ,,unga fólkinu“ þegar hann sá hvað við vorum móð og sveitt, okkur fannst hann varla blása úr nös. Sigurður var hreinskiptinn maður, gerði ekki mannamun og lagði gott til annarra. Hann var drengur góður. Fyrir hönd okkar bæjarfulltrúa og félaga í Samfylkingunni þakka ég Sigurði Geirdal bæjarstjóra fyrir samfylgd og gott samstarf. Frá okk- ur öllum flyt ég Ólafíu og fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Flosi Eiríksson. Horfinn er af heimi Sigurður Geir- dal, bæjarstjóri í Kópavogi. Þar er genginn mikilhæfur og ágætur mað- ur, langt um aldur fram. Sigurður var í eðli sínu mikill félagsmálamað- ur og ber allur starfsferill hans því ljósast vitni. Eftir nám í Samvinnu- skólanum vann hann fyrst hjá Sam- vinnuhreyfingunni, síðan var hann framkvæmdastjóri UMFÍ um árabil og framkvæmdastjóri Framsóknar- flokksins var hann í fjögur ár. Á því tímabili tókust með okkur góð kynni. Sigurður var ágætur framkvæmda- stjóri, vakandi, glaðsinna, kappsam- ur og hafði mannheill, fólki líkaði vel við hann og treysti honum. Sigurður þekkti persónulega mikinn fjölda fólks hvarvetna um landið og átti alls staðar vinum að mæta. Ósérhlífni hans og greiðvikni var við brugðið. Hann var framsóknarmaður af hug- sjón og vildi efla flokkinn til góðra verka. Sigurður setti manngildið of- ar auðgildinu, trúði á samhjálp og samvinnu. Að sjálfsögðu tók félagsmálamað- urinn Sigurður mikinn þátt í starfi Framsóknarflokksins í Kópavogi og bar hag heimabæjarins mjög fyrir brjósti og því ekki að undra að í sveitarstjórnarkosningum 1990 var honum falið að leiða lista flokksins þar. Sigurður var kjörinn bæjar- fulltrúi, myndaði meirihluta með sjálfstæðismönnum og kom það í hans hlut að gegna starfi bæjar- stjóra en lét þá af framkvæmda- stjórastarfi hjá Framsóknarflokkn- um. Hann reyndist einstaklega farsæll bæjarstjóri og starfaði við vaxandi vinsældir. Sami meirihluti hefur farið með stjórn Kópavogs síð- an 1990 og Sigurður verið bæjar- stjóri óslitið allan þennan tíma, það segir sína sögu um Sigurð, lagni hans og samstarfshæfni. Á bæjar- stjóraárum Sigurðar hefur Kópa- vogur vaxið miklu meira en nokkurt annað sveitarfélag á landinu. Það út- heimtir styrka stjórn bæjarins ef vel á að fara og í Kópavogi hefur tekist vel til. Sigurður var mikils metinn í hópi sveitarstjórnarmanna og ann- arra sem létu sig sveitarstjórnarmál einhverju varða. Hann vildi leysa hvers manns vanda og samúð hans var með þeim sem minna máttu sín. Á yngri árum var hann óvenjulega fjölhæfur íþróttamaður og kappsem- in fylgdi honum alla tíð. Hann var MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 41 MINNINGAR Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, MARGRÉT ARNGRÍMSDÓTTIR, Skólagötu 2, Bakkafirði, sem lést mánudaginn 29. nóvember sl., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 9. desember kl. 13:30. Hermann Ægir Aðalsteinsson, Díana Bryndís Hermannsdóttir, Víðir Már Hermannsson, Brimar Örn Brynjólfsson, Máney Dís Brynjólfsdóttir. Lokað Skrifstofur og stofnanir Kópavogsbæjar verða lokaðar frá kl. 13.00—18.00 í dag, þriðjudaginn 7. desember, vegna jarðarfarar SIGURÐAR GEIRDAL, bæjarstjóra. Bæjarritari. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, MARELLA GEIRDAL SVERRISDÓTTIR, Sjávargötu 25, Álftanesi, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi laugardaginn 4. desember. Ari E. Jónsson, Sverrir Örn Ólafsson, Steinar Arason Ólafsson, Unnar Geirdal Valsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir mín, KRISTÍN HELGADÓTTIR frá Fróðhúsum, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borg- arnesi, þriðjudaginn 30. nóvember, verður jarðsungin frá Stafholtskirkju miðvikudaginn 8. desember kl. 14.00. Kristvin Guðmundsson, Ólöf Ágústsdóttir, Elsabet Jónsdóttir, Þórir Jónsson, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og Gunnar Helgason. Konan mín og móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Hrísum, Flókadal, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 28. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurbjörn Björnsson, Jóhanna Sigurbjörnsdóttir, Þórdís Sigurbjörnsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ODDUR SVEINBJÖRNSSON kennari, Sléttuvegi 3, Selfossi, lést á heimili sínu að morgni sunnudagsins 5. desember. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 9. desember kl. 13.30. Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Sigríður Kolbrún Oddsdóttir, Magnús Kjartansson, Sveinbjörn Oddsson, Ann-Helen Odberg, Gunnar Oddsson, Dorthe Oddsson, Einar Valur Oddsson, Steinunn Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.