Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 45
er að Helgi Ólafsson var ókrýndur konungur Helgarskákmóta Tíma- ritsins Skákar á sínum tíma og að mæta honum með svörtu í atskák er erfitt. Eins og stundum áður fékk undirritaður að kynnast því í næstu skák. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Helgi Áss Grétarsson 1. c4 e5 2. e3 Rf6 3. Rc3 Bb4 4. Rge2 0–0 5. a3 Be7 6. d4 exd4 7. exd4 d5 8. Rf4 dxc4 9. Bxc4 Rbd7?! 9. … Rc6 hefði verið mun betri leikur og meira í anda stöðunnar. Nú hefði hvítur hugsanlega getið leikið 10. Bxf7 Hxf7 11. Re6 De8 12. Rxc7 Dd8 13. Rxa8 og mjög flókin staða kemur upp. 10. 0–0 Rb6 11. Ba2 c6 12. He1 Bf5?! 13. Df3 Dd7?! 14. h3 Had8? 15. g4! Bg6 Eftir að hafa leikið mörgum óná- kvæmum leikjum lendir svartur í miklum vandræðum þegar næsti þrumuleikur hvíts leit dagsins ljós. Sjá Stöðumynd 3 16. Re6! h5 17. Rxf8 Hxf8 18. Bg5 hxg4 19. hxg4 Bd8 Svartur leggur ekki árar í bát þó að hvítur standi nú til vinnings og í kjölfar nokkra ónákvæmra leikja hjá hvítum fær hann ágætis spil. 20. Bxf6 Bxf6 21. Had1 Bg5 22. d5 c5 23. Re4 Bxe4 24. Hxe4 Dd6 25. b4 cxb4 26. axb4 g6 27. Dg3 Rc8 28. Kg2 Dxg3+ 29. Kxg3 Rd6 Svartur hefur fengið mestallt það sem hann gat fengið úr stöðunni eftir skiptamunstapið. Þó að taflið sé erf- itt hefur hann stöðulegar bætur fyrir liðsmuninn þar eð riddarinn á d6 er stórveldi. Hins vegar í svo stuttri skák skiptir tíminn miklu máli og hafði hvítur mikla yfirburði hvað það varðar. Sjá Stöðumynd 4 30. He2 Hc8 31. Hd3 Hc1 32. Bb3 Bd8 33. Hc2 Hg1+ 34. Kf4 Kf8 35. He2 Bf6?! 36. Hd1 Hg2? 37. Hh1 og svartur gafst upp þar eð hann hélt að hrókurinn á g2 væri að falla. Hann getur þó bjargað honum á kostnað þess að d-peð hvíts komist af stað með 37. … Rb5! 38. Kf3 Rd4+ 39. Kxg2 Rxe2 40. d6 og hvítur stendur til vinnings. Helgi hélt áfram á sigurbraut og lagði Jón Viktor Gunnarsson að velli í næstsíðustu umferð og var þá jafn þeim Birni Þorfinnssyni og Stefáni Kristjánssyni fyrir lokaumferðina. Þeir gerðu stutt jafntefli sín á milli en Helga tókst að leggja Hannes Hlífar að velli með svörtu og tryggði sér þar með sigurinn. Lokastaða efstu manna varð annars þessi: 1. Helgi Ólafsson 7 vinninga af 8 mögulegum 2.–3. Björn Þorfinnsson og Stefán Kristjánsson 6½ v. 4.–6. Henrik Danielsen, Jón V. Gunnarsson og Ingvar Þ. Jóhannes- son 6 v. 7.–10. Helgi Áss Grétarsson, Hannes H. Stefánsson, Sigurður Páll Steindórsson og Vignir Bjarna- son 5½ v. Ýmis flokkaverðlaun voru veitt og varð þannig Vignir Bjarnason hlut- skarpastur í flokki stigalausra, Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir í kvenna- flokki, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir í stúlknaflokki og Ingvar Ásbjörns- son í drengjaflokki. Jafnframt voru dregnir út ótal aukavinningar sem nokkrir af bakhjörlum mótsins höfðu gefið, s.s. Edda útgáfa hf., Hótel Búðir og Sonet. Stærstu styrktarað- ilarnir voru hins vegar Snæfellsbær, Deloitte, Olís og Fiskmarkaður Ís- lands. Þó má ekki gleyma þeim ljúf- fengu máltíðum sem í boði voru með- an á mótinu stóð og fyrir loka- athöfnina en um það sáu Ólína og Þórður í Söluskála ÓK. Á hinum tveimur mótunum sem haldin hafa verið hefur verið til siðs að nokkrir þátttakanda hafa sýnt hæfileika sína á söngsviðinu með aðstoð karaoke- tækis. Að þessu sinni varð ekkert af því en þess í stað sýndu nokkrar stúlkur danstilþrif undir stjórn Guð- fríðar Lilju. Aðkomumenn þökkuðu kærlega fyrir sig að því loknu og fyr- irheit voru gefin um að leikar yrðu endurteknir að ári. Rútuferðin suður var afar erfið enda flughált á leiðinni. Þessar fjórar og hálf klst. liðu þó til- tölulega fljótt enda sigurvegari mótsins kampakátur en hann sá um spurningakeppni milli farþeganna af mikilli röggsemi. Það voru því þreyttir en glaðir skákmenn sem komu á BSÍ upp úr miðnætti aðfara- nótt laugardagsins fjórða desember. Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is Stöðumynd 1 Stöðumynd 2 Stöðumynd 3 Stöðumynd 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 45 Atvinnuauglýsingar Smiðir eða smiðagengi Vantar strax smiði eða smiðagengi. Upplýsing- ar gefur Pétur Einarsson í síma 822 4437. Kennarar Vegna forfalla vantar kennara við Grunnskól- ann í Búðardal frá janúar til vors. Meðal kennslugeina er handavinna og stærð- fræði í 8. og 9. bekk. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 434 1466 og 862 8778. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Félagsstarf Fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna í Garðabæ Aðalfundur verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar á Garðatorgi 7, Garðabæ, í dag, þriðjudaginn 7. desember kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Staðan í síðari hálfleik — loforð og efndir. Frummælandi: Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri. 3. Önnur mál. Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Garðabæ. Nauðungarsala Uppboð Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Strandgötu 41, 460 Tálknafirði, fyrir utan starfsstöð Skanda ehf., þriðjudaginn 14. desember 2004 kl. 17:00: IJ-376 SI-068 Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 23. nóvember 2004. Björn Lárusson, ftr. Tilkynningar Verðlaunasjóður í læknisfræði Verðlaunasjóður í læknisfræði, stofnaður af læknunum Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni, óskar eftir tilnefningum um vísindamenn til að hljóta verðlaun úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að veita verðlaun og/eða styrki til rannsókna og framþróunar í læknisfræði og lífvísindum á Íslandi. Allir akademískir starfsmenn í læknisfræði og lífvísindum geta sent rökstuddar tilnefningar í pósti til undirritaðs eða á netfangið thordhar@landspitali.is fyrir 31.12. 2004. Til greina koma vísindamenn sem náð hafa framúrskarandi árangri í rannsóknum sínum, en einnig ungir vísindamenn sem sýnt hafa óvenjulega hæfni til rannsókna og náð frábærum upphafsárangri. Sérstaklega er leitað eftir tilnefningum úr hópi starfsmanna Landspítala-háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands. Forstjóri LSH mun afhenda verðlaunin á ársfundi Landspítala-háskólasjúkrahúss vorið 2005. Verðlaunafjárhæð er kr. 2 milljónir. F.h. stjóðsstjórnar, Þórður Harðarson, prófessor Landspítali-háskólasjúkrahús v/Hringbraut. Félagslíf I.O.O.F. Rb. 4  1531277 - Miðlun/heilun  Sjálfsupp- bygg- ing  Hugleiðsla  Fræðsla Halla Sigurgeirsdóttir, and- legur læknir. Upplýsingar í síma 553 8260 fyrir hádegi.  FJÖLNIR 6004120719 I Jf. EDDA 6004120719 III Jólafundur verður í kvöld þriðjud. 7. des. kl. 20:30 í sal Siglingaklúbbsins Brokeyjar við Austurbugt 3 við gömlu Reykja- víkurhöfn við hlið Faxaskála og á móti smábáta- og varðskipa- bryggjunni. Hlökkum til að sjá sem flesta. Með jólakveðju. Stjórnin. Opið hús hjá Bridssambandinu Bridssamband Íslands býður alla bridsspilara, vana og óvana, vel- komna á opið hús í Síðumúla 37 mið- vikudaginn 8. des. kl. 19:30. Nemendur Bridsskólans og fram- haldsskólanemendur sem hafa eða hafa haft brids sem valgrein eru boðnir sérstaklega velkomnir. Þátt- taka er ókeypis og kaffi og smákökur í boði hússins. Bridsfélag Hafnarfjarðar Þá er nýlokið aðaltvímenning Bridsfélags Hafnarfjarðar, með góðum sigri Hafþórs Kristjánssonar og Stefáns Garðarsonar. Þeir leiddu öll þrjú kvöld keppn- innar fyrir utan næst síðustu setuna þegar þeir duttu niður í annað sætið, en endurheimtu fyrsta sætið með glæsibrag í síðustu setu. Lokastaðan varð annars þessi: Hafþór Kristjánsson – Stefán Garðarss. 112 Sigurður Sigurjónsson – Páll Hjaltason 92 Andrés Þórarinsson – Halldór Þórólfsson 85 Friðþjófur Einarss. – Guðbr. Sigurbergss. 53 Alda Guðnadóttir – Kristján Snorrason 43 Nú líður að jólum og næsta mánu- dag, 6. des., verður spiluð monrad- rúberta, og þá gildir að hafa heppn- ina með sér. Spilamennska byrjar klukkan 19:30. Bridsdeild FEBK Gjábakka Þriðjudaginn 30. nóv. var spilaður tvímenningur á sex borðum. Meðalskor var 100. Úrslit urðu þessi í N/S: Oddur Jónsson – Ólafur Lárusson 138 Ólafur Ingvarsson – Ragnar Björnsson 114 Jón Stefánsson – Þorsteinn Laufdal 104 A/V: Aðalheiður Torfad. – Ragnar Ásmundss. 118 Jón Jóhannss. – Sturlaugur Eyjólfsson 111 Guðjón Kristjánsson – Magnús Oddsson 102 Laugardaginn 27. nóv. fór fram hin árlega sveitakeppni um Íslands- bankabikarinn milli bridsdeilda FEBK í Gullsmára og Gjábakka. Hvor deild tefldi fram átta sveitum. Gjábakki fór með sigur af hólmi, 161:74, og sigraði á fimm borðum, Gullsmári á einu og á tveimur borð- um skildu liðin jöfn. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Glæsibæ mánud. 29. nóv. Spil- að var á tíu borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N–S: Magnús Oddsson – Ragnar Björnsson 253 Alda Hansen – Jón Lárusson 244 Gunnar Pétursson – Ólafur Ingvarsson 225 Árangur A–V: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 267 Viggó Nordquist – Sigurður Pálsson 261 Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímsson 252 Tvímenningskeppni spiluð fimmtud. 2. desember. Spilað var á tíu borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N–S: Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 262 Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 252 Olíver Kristófers. – Sæmundur Björnss. 245 Árangur A–V: Jón Karlsson – Sigurður Karlsson 260 Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímsson 255 Eggert Þórhallsson – Jón Árnason 235 Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spilaði tvímenning á 14 borðum fimmtudaginn 3. des. sl. Efst vóru í N/S: Filip Höskuldss. – Páll Guðmundss. 312 Björn Björnsson – Oddur Jónsson 304 Guðmundur Guðveigss. – Jón Jóhannss. 303 Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 296 A/V: Ólafur Oddsson – Jón Bjarnar 343 Elís Kristjánsson – Páll Ólason 339 Jón Stefánsson – Dóra Friðleifsdóttir 315 Auðunn Bergsveinss – Stefán Friðbjss. 313 Spilað alla mánu- og fimmtudaga. Síðasti spiladagur fyrir jól mánudag- ur 13. desember. Bridsfélag Kópavogs Fyrsta kvöldið af þremur í Berg- plasts-tvímenningnum var spilað sl. fimmtudag. Það er ljóst að Steini Berg í Bergplasti ætlar að fá hluta af verðlaunafénu sjálfur! Hæsta skor í N/S: Óskar Sigurðsson – Þorsteinn Berg 259 Ólafur Lárusson – Þorleifur Þórarinss. 246 Halldór Svanbergs. – Kristinn Kristinss. 238 Jens Jensson – Jón St. Ingólfsson 225 A/V: Hermann Friðrikss. – Herm. Láruss. 278 Hjálmar Pálsson – Sigurður Steingrss. 268 Ragnar Björnss. – Sig. Sigurjónss. 246 Georg Sverrisson – Ragnar Jónsson 214 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.