Morgunblaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is 25 notendur | Fyrirtæki sem sér íbúum sem þess óska fyrir háhraðanettengingu hef- ur verið starfrækt á Kópaskeri um skeið. Guðmundur Magnússon er eigandi þess. Hann sagði í samtali við vefinn dettifoss.is að nú væru 25 notendur í áskrift hjá honum og að nokkrir biðu eftir tengingu. Framan af var þjónustan aðeins í boði á Kópaskeri um símalínur Landssímans. En nú er komið samband við nokkur hús í Núpa- sveit, þráðlaust um örbylgu, og í athugun er að koma upp sambandi niður í Öxarfjörð sem margir bæir þar gætu notað og jafnvel ein- hverjir bæir í Kelduhverfi. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Ókeypis nettenging | Fyrirtækið Emax hefur hafist handa við að koma á þráðlausu netsambandi á heimili í Skilmannahreppi. Fram kemur á vefnum hvalfjordur.is að all- ir íbúar hreppsins eiga kost á ókeypis teng- ingu og rekstri fyrsta árið, eigi þeir tölvu- búnaðinn sem til þarf. Gert er ráð fyrir að lokið verði við að tengja í endaðan apríl. Óvenjulegur viðskiptavinur | Haftyrðill kom inn í söluturn Skeljungs í Bolungarvík í fyrrakvöld. Hann fékk ekki afgreiðslu eins og aðrir viðskiptavinir heldur var honum stungið ofan í sælgætisdós og ekið niður að höfn. Á vef Náttúrustofu Vestfjarða kemur fram að hann hafi ekki viljað fara þá þannig að hann fékk gistingu um nóttina og átti að sleppa honum í gær. Haftyrðillinn er minnsti svartfugl Norð- ur-Atlantshafs en aftur á móti stærsti svartfuglastofn þess sama svæðis. Haftyrð- ill flækist hér til landsins yfir vetur og sést oft mikið af honum norðan- og austanlands. Hann villist oft inn til landsins undan vindi og er það því ekkert óvenjulegt að það sjá- ist fáeinir fuglar uppi í bæ í Bolungarvík. Gunnar Gunnarssonorganisti og Sig-urður Flosason saxófónleikari halda tón- leika í Stokkseyrarkirkju á morgun, fimmtudaginn 16. desember, og hefjast þeir klukkan 20.30. Gert verður hlé á tónleikunum og fer síðari hluti þeirra fram á Tónminjasafninu á Stokkseyri, en það er handan götunnar. Tónleikarnir eru haldn- ir í tilefni af útkomu geisladisksins Drauma- landsins, en hann kom út um miðjan nóvember. Á diskinum leika Sigurður Flosason og Gunnar Gunnar Gunnarsson þrettán íslensk ættjarð- arlög í eigin útsetningum, en þar gegnir spuni stóru hlutverki. Þess má geta að þetta verða síðustu tónleikar Sigurðar og Gunnars fyrir jól, en þeir hafa und- anfarið kynnt Drauma- landið á tónleikum víða um land. Draumalandið á Stokkseyri Fjórir söngelskirungir menn úrLaugarási í Bisk- upstungum syngja saman við ýmis tækifæri og nefna sig að sjálfsögðu Laugaráskvartettinn. Þeir sungu meðal annars fyrir gesti á jólahlaðborði á Hótel Heklu á Skeiðum við góðar undirtektir og þar var myndin tekin. Eg- ill Árni Pálsson er lengst til vinstri, þá Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Þröstur Freyr Gylfason og loks Þorvaldur Skúli Pálsson. Þeir félagarnir hafa sungið saman í mörg ár en undir þessu heiti frá árinu 1997. Þá þurftu þeir að finna sér nafn vegna auglýsingar á tón- leikum sem þeir héldu fyrir sjúklingana á Barnaspítala Hringsins í Reykjavík. Þeir hafa oft síðan sungið fyrir börnin þar og haft mikla ánægju af. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Söngelskir félagar úr Laugarási Skagfirska söng-sveitin fór utansumarið 1998 og söng m.a. í Prag í Tékk- landi. Íslensku ræðis- mannshjónin, Þórir Gunnarsson og Ingibjörg Jóhannsdóttir, buðu söngsveitinni heim til sín. Seinna sama ár lá leið tveggja kórfélaga aftur til Prag. Bað for- maður kórsins, Sölvi Arnarson frá Sauð- árkróki, Bjarna Stefán Konráðsson á Sauð- árkróki um að yrkja þakkarvísur til ræð- ismannshjónanna, sem kórfélagarnir afhentu þeim hjónum. Þær eru svohljóðandi: Hér í Prag um heiðan dag, heyrast faguryrði, er kyrjar lag með kátum brag, kór úr Skagafirði. Ykkur bresti aldrei lag, eða festi vina. Söngvaþrestir þennan dag þakka gestrisnina. Bjarni Stefán gaf um síðustu helgi út bókina „Þver(ar) sagnir“ með 69 ljóðum og vísnaflokkum, sem ortir eru við marg- vísleg tilefni. Söngvaþrestir pebl@mbl.is Borgarnes | Bekkjarfélagar Torfa Lárusar Karlssonar í Grunnskólanum í Borgarnesi hafa endurtekið leikinn frá því í fyrra og gefa út jólakort til styrktar honum. Torfi Lárus er hér í fremstu röð. Torfi Lárus er með sjaldgæf- an sjúkdóm sem veldur ofvexti í sogæðum og hefur hann mikið verið frá vegna veikinda. Á liðnu sumri fór hann í fjórar stórar aðgerðir í Boston í Bandaríkj- unum og fyrir liggur að hann fari í fleiri aðgerðir fljótlega. Þess vegna teiknuðu krakkarnir jólamyndir sem foreldrafull- trúarnir sáu um að láta prenta á kort og koma í sölu. Jólakortin eru vegleg og voru alls prentuð fjögur þúsund kort. Morgunblaðið/Guðrún Vala Jólakort til styrktar Torfa Lárusi Sauðárkrókur | Sveitarstjórn Skagafjarð- ar samþykkti á fundi sínum í fyrrakvöld að vísa erindi Vegagerðarinnar um breytingu á tengingu Þver- árfjallsvegar við gatnakerfi Sauð- árkróks til skipu- lags- og bygginga- nefndar bæjarfélagsins til umfjöllunar. For- maður nefndar- innar sat hjá við þessa afgreiðslu í sveitarstjórn og tók fram að ekkert hefði breyst sem gæfi tilefni til að taka málið upp að nýju. Ágreiningur hefur verið um tengingu Þverárfjallsvegar við gatnakerfi Sauðár- króks en til stendur að lagfæra hana vegna aukinnar umferðar um Þverárfjall. Fyrri sveitarstjórn samþykkti að tengingin yrði beint norður úr aðalgötu bæjarins yfir nýja brú á ósum Gönguskarðsár og er það köll- uð neðri leið. Meirihluti fulltrúa í núver- andi sveitarstjórn hefur tvisvar sinnum samþykkt að valin skyldi leið nálægt nú- verandi stað, svokölluð efri leið. Málið kom enn einu sinni inn á borð sveitarstjórnar eftir að byggðaráð hafði samþykkt að eðli- legt væri að verða við erindi Vegagerðar- innar að snúa aftur til neðri leiðarinnar vegna kostnaðar og með því móti myndu fást meiri lagfæringar á veginum. Fulltrúi Skagafjarðarlistans sem er í minnihluta í sveitarstjórn lagði til að mál- inu yrði vísað til skipulags- og bygginga- nefndar til umfjöllunar og henni falið að ræða við fulltrúa atvinnulífs, Vegagerðar og samgönguyfirvalda. Var tillagan sam- þykkt með atkvæðum sjö bæjarfulltrúa af níu. Bjarni Maronsson, einn fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins sem er í meirihluta, sat hjá við afgreiðsluna en hann er jafnframt for- maður skipulags- og bygginganefndar. Lét hann bóka að frá því 1. apríl 2003, er skipu- lags- og bygginganefnd hafi samþykkt samhljóða tengingu um efri leið, hafi ekk- ert komið fram sem gefi tilefni til breyt- inga á skipulaginu. Brýnt sé að hafnar verði framkvæmdir hið fyrsta. Tillögu um breytta veg- tengingu vís- að til nefndar          Skötuveisla í Vogum | Lionsklúbburinn Keilir í Vogum verður með sína árlegu skötuveislu næstkomandi laugardag. Veisl- an verður í húsnæði klúbbsins að Aragerði 2. Veislan stendur allan daginn, því hún hefst klukkan 12 á hádegi og lýkur kl. 22. Auk skötunnar verður boðið upp á saltfisk og siginn fisk ásamt meðlæti. Vinátta JÓLAGJÖF JEPPAMANNSINS HÁLENDISHANDBÓKIN 2004 GEISLADISKUR ME‹ MYNDSKEI‹UM AF ÁTTATÍU VÖ‹UM, KORTUM OG LJÓSMYNDUM ALLAR HELSTU LEI‹IR Á HÁLENDINU NÚ ER HÆGT A‹ UNDIRBÚA SUMARFER‹INA ME‹ fiVÍ A‹ SKO‹A GEISLADISKINN OG LESA BÓKINA MYNDIR EFTIR PÁL STEFÁNSSON LJÓSMYNDARA Borgartúni 23 ı 105 Reykjavík ı sími: 512 7575 ı www.heimur.is             
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.