Morgunblaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR TALIÐ er að um 800 til 1.000 sjúk- lingar muni á ári hverju nýta sér nýja þjónustu við Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri, en þar var í gær tekið í notkun nýtt og fullkomið segulómtæki. Þjóðhagslegur sparn- aður mun nema allt að 30 milljónum króna á ári. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra, sem tók tækið formlega í notkun, sagði það festa það hlutverk sjúkrahússins, að vera eina há- tæknisjúkrahúsið utan höfuðborgar- svæðisins, í sessi. „Við erum að stíga risaskref hvað varðar framtíð sjúkrahússins, en það mun hér eftir veita enn betri þjónustu en áður,“ sagði ráðherra og gat þess í ræðu sinni að staða sjúkrahússins væri einkar góð og því vel stjórnað. Halldór Jónsson forstjóri FSA sagði að um framfaraspor væri að ræða hvað varðar rannsóknir og þjónustu, en tækið gerði að verkum að nokkur hundruð sjúklingar sem áður þurftu að sækja suður þá þjón- ustu sem segulómtækið býður upp á gætu nú nýtt hana í heimabyggð. Segulómtækið er keypt á rekstr- arleigusamningi til 5 ára með mögu- leika á framlengingu í 2 ár og er ár- legur kostnaður um 30 milljónir króna fyrstu 5 árin en minni eftir það. Þorvaldur Ingvarsson lækninga- forstjóri FSA nefndi að á síðast- liðnum árum hefðu um 400 manns farið til Reykjavíkur til að komast í segulómtæki, en þörfin hefði aukist ár frá ári og nú væri áætlað að allt að 1.000 manns myndu nýta sér þjónustuna árlega. Um 6–8 vikna biðtími er syðra eftir að komast í tækið. Tryggingastofnun ríkisins hefur greitt um 35 millj- ónir króna á ári vegna ferða sjúk- linga af upp- tökusvæði FSA í tækið syðra og þá er ferða- kostnaður áætlaður um 32 milljónir, þannig að kostnaður nemur um 67 milljónum króna. „Þetta er einfald- lega besta lausnin, þetta er þjóð- hagslega hagkvæmt,“ sagði Þor- valdur, en með tilkomu tækisins mun ferðakostnaðurinn sparast sem og vinnutap manna og fleira. Bætt hefur verið við stöðugildum starfsfólks á myndgreiningardeild og fær það sérstaka þjálfun til að vinna með tækið. Halldór Bene- diktsson yfirlæknir myndgreining- ardeildar sagði tækið byggja á tveimur kröftum; segulsviði og útvarpsbylgjum, en það er frá Siemens. Möguleikar aukast mjög varðandi greiningar- og rannsóknir á taugakerfi, einkum heila og mænu, stoðkerfi, hrygg, liðum, vöðvum, sinum og ýmsum stoðvefj- um. Einnig breytir það miklu varð- andi æðarannsóknir og í vaxandi mæli önnur líffærakerfi auk þess sem það nýtist vel við krabbameins- eftirlit. Fullkomið segulómtæki í notkun á FSA Allt að 1.000 sjúk- lingar munu nýta sér tækið á ári Þjóðhagslegur sparnaður um 30 milljónir króna árlega ÞAÐ lá vel á börnunum í fyrsta bekk í Brekkuskóla, en þau voru á dögunum að búa til jólakort í skól- anum. Þá voru þau líka að föndra ýmislegt fyrir jólin, t.d. að líma saman sykurmola og búa þannig til einhvers konar snjóhús sem ætlað er undir sprittkerti. Morgunblaðið/Kristján Föndrað fyrir jólin MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 5171020 Opið: mán. - föstud.11-18 laugard.11-15 Spennandi gjafavörur og húsgögn Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.