Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.2005, Blaðsíða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 12. mars 2005
Keanu Reeves hefur fallist á aðleika aðalhlutverkið í æv-
intýramyndinni The 8th Voyage of
Sinbad sem Rob
Cohen, leikstjóri
xXx og Fast and
the Furious ætl-
ar að leikstýra.
Reeves mun að
sjálfsögðu leika
sjálfan Sinbad
sæfara sem sigldi
um höfin sjö á
áttundu öld. Í
þessu nýjasta
ævintýri er sæfarinn hugdjarfi í
Kína í leit að hinum leyndardóms-
fulla lampa Alad-
íns. Á vegi hans
verða fögur keis-
araynja og
grimmur kínverskur hershöfðingi
sem beitir yfirnáttúrulegum kröftum
sínum til að komast yfir kínverska
keisaradæmið.
Hér er sannarlega ekki um fyrstu
kvikmyndina um Sinbad sæfara að
ræða því fjöldi mynda var gerður hér
á árum áður um ævintýri hans, sem
skörtuðu stjörnum á borð við Dougl-
as Fairbanks yngri, Sebastian Cab-
ot, Gene Kelly, Shemp Howard og
Lou Ferrigno í hlutverki Sinbads.
Einna vinsælastar eru myndirnar
The Seventh Voyage of Sinbad frá
1958 og Sinbad the Sailor með Fair-
banks frá 1947 en báðar voru sýndar
hér á landi við fádæma vinsældir svo
árum skipti á 3-bíósýningum. Síðasta
útgáfa er svo teiknimynd sem
DreamWorks gerði árið 2003.
Leikstjórinn Cohen hefur nýlokið
við að gera spennumyndina Stealth
með Jamie Foxx.
Sænski leikstjórinn Lasse Hall-ström hefur verið ráðinn til að
leikstýra Daughter of the Queen of
Sheba, kvikmynd sem byggð verður
á metsöluend-
urminningum
Jacki Lyden. Í
bókinni þykir Lyd-
en lýsa á ein-
staklega sannfær-
andi og skýran
máta móður sinni
sem glíma þurfti
við alvarlegan geð-
hvarfasjúkdóm er
hún ól upp stóra
fjölskyldu í smábæ í Wisconsin. Ekki
hefur enn verið ráðið í hlutverk
þeirra mæðgna en rætt hefur verið
um Meryl Streep og Gwyneth Palt-
row í því sambandi. Þá hefur Hall-
ström nýlokið við gerð myndarinnar
An Unfinished Life sem er drama
með Jennifer Lopez í hlutverki ein-
stæðrar móður sem flytur inn til
tengdaföður síns, sem leikinn er af
Robert Redford. Óskarsverðlauna-
hafinn nýbakaði Morgan Freeman
leikur einnig í myndinni. Ekki nóg
með það heldur vinnur Hallström
einnig að gerð kvikmyndar um Cas-
anova með ástralska leikaranum
Heath Ledge í hlutverki hins eina
sanna elskhuga.
Leikstjórinn og leikarinn ærsla-fulli Kevin Smith hefur staðfest
að hann vinni nú að handritinu fyrir
Clerks 2, framhald
fyrstu myndar
hans, sem sló ræki-
lega í gegn er hún
var frumsýnd árið
1994. Smith sagði á
fyrirlestri í Lund-
únum í vikunni að
framhaldið verði
stílhreinna og bet-
ur gert, jafnvel í lit.
Ástæðan væri ein-
föld, kvikmyndatökumaður hans
David Klein fengi enga aðra vinnu ef
hann læti hann alltaf skjóta myndir
sem litu hræðilega út. Það verða
engar stórstjörnur í aukahlut-
verkum líkt og í Jay and Silent Bob
Strike Back heldur sömu gömlu per-
sónurnar; „eldri en ekki vitund vitr-
ari,“ undirstrikaði Smith sem einnig
mun fara með hlutverk í næstu mynd
Richards Kellys, þess er gerði Donn-
ie Darko. Myndin sú heitir South-
land Tales og þar mun Smith leika
fótalausan vefstjóra, á móti Söruh
Michelle Geller og Seann William
Scott.
Erlendar
kvikmyndir
Keanu Reeves
Kevin Smith
Lasse Hallström
Þá hefur bandaríska kvikmyndaakademían,AMPAS©, talið upp úr kjörkössum í 77.skiptið. Lengst af komu niðurstöðurnarlítið á óvart, Aviator mjólkaði helftina af
minni flokkunum uns kom að besta frumsamda
handritinu. Þar stóð Charlie Kaufman (Eternal
Sunshine of the Spotless Mind) uppi sem sigurveg-
ari og var vel að því kominn
en sigurinn leiðir aftur á
móti hugann að því hvers
vegna í óköpunum mynd
sem státar af grundvellinum sjálfum, besta handriti
ársins, er ekki á meðal fimm bestu. Það dró fyrst til
tíðinda þegar kom að aðalverðlaunaflokkunum og
Clint Eastwood kom sá og sigraði. Mörgum á óvart.
Enn og aftur var gengið framhjá Scorsese, sem var
með mun betri mynd en Rocky með líknardrápsí-
vafi, hins vegar er ósigur hans viðunandi þar sem
AMPAS hefur þegar hunsað hans helstu verk til
þessa, líkt og margoft hefur verið rætt og ritað.
ASCAP kom því, sem oftar, flatt upp á kvik-
myndaáhugafólk en ekki á þann hátt sem margir
hefðu óskað. Maður vonaði að meðlimirnir væru ör-
lítið teknir að yngjast, bæði í beinni og óbeinni
merkingu því fyrir löngu er tímabært að akademían
fari að gefa gaum þeim ungu og bráðefnilegu lista-
mönnum sem farnir eru að kveðja sér hljóðs í kvik-
myndaborginni og ættu að vera búnir að sanna sig
fyllilega. En Alexander Payne og Sideways fengu
lítið fyrir sinn snúð, Óskar fyrir besta handritið
byggt á áður birtu efni, besta myndin og leikstjórn-
arverðlaunin lentu sem jafnan fyrr í gömlu, ráð-
settu, steinrunnu Hollywood.
Nú er sá sem þessar línur skrifar einlægur
aðdáandi Eastwoods og óskar honum innilega til
1967: Í hita næturinnar – In the Heat of the
Night vann Bonnie og Clyde og The Graduate.
1981: Eldvagninn – Chariots of Fire vann
Leitina að týndu örkinni – Raiders of the Lost
Ark.
1989: Ekið með frú Daisy – Driving Miss Daisy
vann bæði Vinstri fóturinn – My Left Foot og
Bekkjarfélagið – Dead Poets Society.
1990: Dansar við úlfa – Dances With Wolves
vann GoodFellas.
1994: Forrest Gump vann Pulp Fiction og The
Shawshank Redemption.
1996: The English Patient vann Fargo og Sann-
leik og lygar – Secrets and Lies.
1996: Ástfanginn Shakespeare – Shakespeare
in Love vann Elizabeth.
1997: Titanic vann L.A. Confidential og Með
fullri reisn – The Full Monty.
2001: A Beautiful Mind vann Hringadrótt-
inssögu: Föruneyti hringsins – Lord of the Rings:
Fellowship of the Rings.
Hverjar af ofantöldum myndum flokkið þið sem
klassík, lesendur góðir?
En ein fúlustu mistök akademíunnar eru þegar
hún tók hina mjög svo venjulegu Venjulegt fólk –
Ordinary People, fram yfir meistaraverk Scors-
eses, Raging Bull, árið 1980.
hamingju, en Million Dollar Baby, þessi vel gerða
áhrifamikla en afar drungalega ástar- og slags-
málamynd, er því miður auðgleymd líkt og marg-
ar aðrar „Bestu myndir ársins“. Ég þori að full-
yrða að ef einhver mynd á eftir að öðlast eilíft líf af
’04 árganginum þá er það tragikómedían góða,
Sideways. Eiginmenn gerast ekki fórnfúsari né
hugulsamari en ég, sem hélt í vikunni,
í annað skipti og nú með konunni (að hennar
ósk) á þetta litla snilldarverk og naut þess jafnvel
betur í síðara skiptið. Slíkt er aðalsmerki úrvals-
mynda eingöngu.
Eastwood átti afbragðsmyndina Dulá (Mystic
River) í keppninni á síðasta ári en mátti þá lúta
fyrir lokakafla Hringadróttinssögu (sem sam-
kvæmt formúlunni varð að vinna – þar sem fyrsta
mynd þrennunnar var hunsuð).
Úrslitin í ár eru því gömul saga og ný og það
verður örugglega talsverð bið á að litlar og óháðar
myndir á borð við Sideways uppskeri æðsta hnoss
kvikmyndaiðnaðarins, þó perlur séu.
Ég rifjaði upp til gamans 10 hliðstæð „slys“ úr
sögu Óskarsverðlaunanna, af nógu var að taka.
Oft virðast þau stafa af undarlegum rembingi:
1964: Mín liljan fríð – My Fair Lady vann Dr.
Strangelove or: How I Learned to Stop Worrying
and Love the Bomb.
Undarlegar leiðir akademíunnar
’En ein fúlustu mistök akademíunnar eru þegar hún tókhina mjög svo venjulegu Venjulegt fólk – Ordinary People,
fram yfir meistaraverk Scorseses, Raging Bull, árið 1980. ‘
Sjónarhorn
Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
K
vikmyndagerð í Hollywood er at-
vinnugrein. Þeir sem framleiða
myndir verða að fá peninginn til
baka og til langs tíma verður fjár-
festing í kvikmyndum að skila
sömu ávöxtun og aðrar fjárfestingar á markaði.
Þess vegna er í eðli sínu ákveðin tregða í geir-
anum til að taka áhættu; leyfa þeim sem sker
sig úr hópnum að leika lausum hala og gera
mynd sem ef til vill er ólík öllum kvikmyndum
sem hlotið hafa náð fyrir augum bíógesta fram
að því.
Þess vegna kann það að
koma ýmsum á óvart að
Wes Anderson, sem gerir furðulegar myndir,
skuli hafa fengið 50 milljónir dollara frá Walt
Disney-fyrirtækinu til að gera myndina The
Life Aquatic With Steve Zissou. Að vísu hafði
síðasta mynd Andersons, The Royal Tenen-
baums, aflað 52 milljóna dollara í aðgangseyri,
en myndir þurfa að ná meiri hylli en það til að
borga sig ef kostnaðurinn er 50 milljónir. Því
þarf Life Aquatic að höfða til breiðari áhorf-
endahóps en fyrri myndir Andersons. Þegar
þetta er skrifað hefur myndin aflað 24 milljóna
dollara vestanhafs, en þá eru ótaldar tekjur
annars staðar í heiminum, þannig að ekki er öll
nótt úti enn.
Ævintýri sjókönnuðar
The Life Aquatic With Steve Zissou ber helstu
höfundareinkenni Andersons; sérstæðan húmor,
áherslu á smáatriði og nostalgíu 35 ára manns
sem ólst upp á áttunda áratugnum. Myndin
fjallar um goðsagnakenndan sjókönnuð, Steve
Zissou, sem Bill Murray leikur, og tilraunir
hans til að ná sáttum við fjölskyldu sína. Ýmsir
hafa þóst sjá hinn víðfræga vísindamann Jacq-
ues Cousteau í persónu Zissous, en Anderson
vill ekki viðurkenna það, a.m.k. ekki op-
inberlega. Víst er að átök voru töluverð innan
fjölskyldu hins látna sjókönnuðar, eins og innan
fjölskyldu Zissous í myndinni.
Myndin hefst á því að Zissou frumsýnir nýj-
ustu heimildarmynd sína, um hlébarðahákarl,
sem át vin hans, Esteban, á meðan á tökum
myndarinnar stóð. Á kynningarfundi segir hann
að í næstu mynd ætli hann að elta hákarlinn
uppi og drepa hann. „Hver yrði vísindalegur til-
gangur með því að drepa hann?“ spyr þá kona í
áhorfendahópnum. „Hefnd,“ svarar Zissou.
„Hann er líklega sonur minn“
Félagi Andersons, Owen Wilson, sem skrifaði
með honum handritið að Royal Tenenbaums,
leikur aðstoðarmann Zissous, Ned Plimpton,
sem hann segir að sé „líklega sonur minn“.
Anjelica Huston leikur Eleanor, eiginkonu
Zissous. Þegar hann segir henni frá því að
hugsanlegt sé að Plimpton sé sonur hans segist
ist í gegnum Life Aquatic eins og sumir fyrrum
hermenn tala um að hafa lifað hrylling styrj-
aldar af.
„Bill hefur mjólkað þetta á skoplegan hátt al-
veg síðan á Golden Globe-verðlaununum. Hann
lætur móðan mása um að þetta hafi verið sárs-
aukafyllsta og erfiðasta reynsla lífs hans. Ég sá
nú ekki betur en að hann borðaði mikið af góð-
um mat og ferðaðist töluvert um á skellinöðr-
unni sinni. Hann var auðvitað fjarri fjölskyld-
unni sinni. En, þú veist, þetta var í Róm. Ekki
svo slæmt.“
hann hafa mikla trú á
drengnum. „Af hverju?“ spyr
Eleanor. „Vegna þess að
hann lítur upp til mín.“
Fjöldi annarra þekktra
leikara kemur fram í mynd-
inni. Cate Blanchett leikur
Jane Winslett-Richardson,
einþykkan blaðamann sem er
falið það verkefni að skrifa
um Zissou og Jeff Goldblum
er Alistair Hennessey, höf-
uðóvinur söguhetjunnar. Þá
er sjálfur Willem Dafoe í
hlutverki Klaus Daimler, sem
er í áhöfn Zissous á könn-
unarskipinu Belafonte og er
gríðarlega öfundsjúkur út í
Ned Plimpton, vegna vináttu
„kannski-feðganna“.
Murray ósáttur
við Anderson?
Glenn Whipp tók viðtal við
Anderson fyrir Los Angeles
Daily News í desember, þeg-
ar myndin var frumsýnd í
Bandaríkjunum. Hér er hluti
þess.
Byrjum á tilvitnun í stjörnu
myndarinnar, Bill Murray.
„Skrambinn hafi það, það er
eins gott að þetta sé besta
mynd sem gerð hefur verið.
Ef hún er það ekki ætla ég
að DREPA Anderson. Hann
er dauður. Ef þetta verður
ekki besta mynd allra tíma,
eða meðal 10 bestu, er eins
gott fyrir hann að flytja til
Kína og breyta nafninu sínu í
Chin, og það er eins gott fyr-
ir hann að finna sér lítið her-
bergi í litlum bæ – og jafnvel
þótt hann geri það elti ég
hann uppi.“ Ertu að flytja til
Kína eða er Bill sáttur við
þig?
„Ég ætla ekki að flytja.“
Allt í lagi. En er hann sátt-
ur við þig?
„Ég ætla ekki að flytja.“
Hefur hann séð myndina?
„Hann hefur séð hana
tvisvar. Hann líkir henni við Apocolypse Now.“
Erum við að tala um kvikmyndagerðina eða
myndina sjálfa?
(Hlær.) „Myndina eins og hún er núna. Ég
held að það hafi verið yfirþyrmandi fyrir hann
að sjá myndina vegna þess að hann er á skján-
um hverja einustu sekúndu, kvelst allan tím-
ann, fylltur reiði og öðrum tilfinningum, og
hann er á þessari risastóru og súrrealísku
sviðsmynd. Ég held að þetta hafi haft áhrif á
hann.“
Svo virðist vera. Hann talar um að hafa kom-
Vísindalegur tilgangur: Hefnd
Leikstjórinn Wes Anderson fékk 50 milljónir
dollara frá Walt Disney-fyrirtækinu til að gera
myndina The Life Aquatic With Steve Zissou.
Myndin er sú langdýrasta sem þessi frumlegi
kvikmyndagerðarmaður hefur gert.
Bill Murray hefur líkt myndinni við Apocolypse Now.
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is