Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Blaðsíða 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 31. desember 2005 V itaskuld er það engin tilviljun að ógnarstórt portrett af Maó formanni prýðir nú hinn forna virkisvegg forboðnu borgarinnar. Og þá ekki heldur að portrettið gnæfir yfir þeirri brú inn í forboðnu borgina sem einungis keisarinn sjálfur mátti nota – allir aðrir fóru um hliðarbrýr. Maó horfir af veggnum yfir að grafhýsi sínu hinum megin við torg hins himneska friðar og rammar þetta stærsta borgartorg heims þannig inn með alltumlykjandi viðveru sinni. Kínverjar hafa aldrei fengið smjörþef af lýðræði og því kannski ekkert undarlegt að ekki beri mikið á tilburðum í þá átt þar í landi – enn sem komið er. Í gegnum aldirnar hefur þeim verið innprentuð lotning fyrir ólík- um en einráðum valdhöfum; útvöldum afkvæmum ættboga keis- ara, mönnum sem komust til valda eftir uppreisnir eða innrásir og tóku sér keisaratign, og síðast en ekki síst Maó formanni sem nýtti sér þennan hefðbundna jarðveg fyrir persónudýrkun til hins ýtrasta. Tók sér einskonar ígildi keisaratignar í nafni kommúnismans, svo þversagnarkennt sem það kann að virðast. Trúarbrögð í Kína voru ekki skilgreind með fastmótuðum hætti fyrr en eftir að kommúnistar tóku völdin árið 1949. Og frá þeim tíma hafa einungis fimm trúarbrögð verið lögleg í landinu; búddismi, kaþólsk trú, mótmælendatrú, taóismi og íslömsk trú. En þótt trúarbrögð hafi í samræmi við það ekki myndað kjarn- ann í þjóðarsál Kínverja frá örófi alda hafa siðferðislegar kenni- setningar þó vissulega ráðið miklu, ekki síst boðskapur kenndur við taó (til að mynda rit Laó Tse sem hefur verið nefnt Bókin um veginn í íslenskri þýðingu) og kenningar Konfúsíusar sem var uppi fyrir rúmum 2.500 árum. Þessi hugmyndaheimur myndar heildstæða mynd er lýtur ekki einungis að andlegri velferð, heldur einnig þjóðfélagslegri – og fjallar um siðferðislegar skyldur í víðum skilningi. Ákveðnir þættir hans, svo sem um styrkinn sem felst í veikleikanum og veikleikann sem felst í styrknum, tilgang þess að rækta sjálfið til að geta síðan skilað sínu til heildarinnar, hafa lifað af með ýmsum hætti í hversdags- lífinu – ekki síst í hinni sterku hefð ýmissa bardaga- eða hreyfilista er enn lifa í Kína svo sem tai-chi og jafnvel qi-gong. Þjónar þörfum hjartans en ekki höfuðsins Á þeim umrótstímum sem voru í aðsigi í Kína árið 1915 ritaði kínverski menntamaðurinn Ku Hung-Ming formála að bók sinni The Spirit of the Chinese People [Andi kínversku þjóðarinnar] – sem telst til klassískra bókmennta í Kína. Bókin fjallar öðrum þræði um ágæti stjórnarfyrirkomulags sem einna helst líkist menntuðu einræði – er höfundur telur geta leyst vanda heimsins – og á í raun sannri ýmislegt skylt við jákvæðustu hliðar kín- versks kommúnisma. Þar reynir Ku Hung-Ming að setja fram kenningu um þann greinarmun á siðferðislegum skyldum sem íbúum Bandaríkjanna og Evrópu (er þá voru í heljargreipum fyrri heimsstyrjaldarinnar) annars vegar og Kína hins vegar hafa verið innrættar. Í upphafi formálans segir hann ritinu ætl- að „að túlka og meta anda kínverskrar siðmenningar“ og þeirri ætlun sinni framfylgir hann m.a. með því að fjalla um „mennsku“ þá sem orðið hefur til í kínversku samfélagi í gegn- um aldanna rás. Tilurð mennskunnar, sem jákvæðasta afls kínversks sam- félags, rekur Ku Hung-Ming til þess að innra með Kínverjum séu engin átök á milli rökhyggju og andans þarfa – öfugt við Evrópubúa (og Bandaríkjamenn þar sem menning þeirra er að stærstum hluta til runnin frá Evrópu). „Í Evrópu nútímans,“ segir hann, „á fólkið trúarbrögð sem fullnægja þörfum hjartans, en ekki höfuðsins, og heimspeki sem fullnægir þörfum höfuðsins en ekki hjartans. […] Sumir segja að Kínverjar eigi engin trúar- brögð. Það er vissulega satt að í Kína tekur jafnvel almenningur trúarbrögð ekki alvarlega. Þá á ég við trúarbrögð í evrópskum skilningi orðsins. Hof, siðvenjur og athafnir taóisma og búdd- isma í Kína eru fremur hlutgerving dægrastyttingar en siðbót- ar; þær snerta fagurfræðilegan streng, ef svo má að orði komast, í brjósti kínversku þjóðarinnar, frekar en þann siðferðislega eða trúarlega; höfða í raun og veru meira til ímyndunarafls hennar en hjartans eða sálarinnar.“ Hann heldur síðan áfram og segir: „En í stað þess að segja að Kínverjar eigi engin trúarbrögð er ef til vill réttara að segja að Kínverjar kæri sig ekki um – eða finni ekki þörfina fyrir – trúarbrögð.“ Rætur Falun Gong Sá þáttur úr andlegu lífi Kínverja sem verið hefur hvað mest áberandi í umræðu á Vesturlöndum síðustu ár tengist hreyfingu er kallar sig Falun Gong. Falun Gong má lýsa sem einskonar af- brigði af bardaga- eða hreyfilist og andlegri íhugun, sem hvort tveggja er vel þekkt í Kína. Það sem þó greinir hreyfinguna frá öðrum áþekkum en hefðbundnari mannræktaraðferðum er sá boðskapur og trúarhiti sem er einn grundvallarþáttur hennar, undir forystu stofnandans Li Hongzi. Rit hans eru mikilvægur þáttur í iðkun Falun Gong og þrátt fyrir að meginboðskapurinn byggist á þremur góðum lögmálum; sannleika, góðvild og um- burðarlyndi, má einnig finna í boðskap Li Hongzi þætti sem erf- itt er að kyngja, svo sem fordóma gagnvart samkynhneigðum, giftingum ólíkra kynþátta, óvísindalegar hugmyndir um líf á öðrum hnöttum og ýmislegt fleira úr nýaldarfræðum sem ekki á upp á pallborðið í upplýstum samfélögum nútímans. Annar grundvallarmunur – og ef til vill afdrifaríkari í Kína – er sá að stofnandinn leggur fylgjendum sínum þannig línurnar að það brýtur gegn boðum hreyfingarinnar að afneita henni eða heykj- ast á að viðurkenna hana opinberlega, rétt eins og um trúar- brögð sé að ræða. Þann tíma sem ég dvaldi í Kína notaði ég óspart þau tækifæri sem gáfust til að spyrja fólk um viðhorf þess til Falun Gong. Í hnotskurn voru svör fólks á þá leið að það skildi ekki af hverju iðkendur Falun Gong gætu ekki haldið ástundun sinni innan veggja heimilisins þar sem enginn skipti sér af henni, fyrst hún væri því svona mikils virði. Það skildi ekki af hverju iðkendum fyndist nauðsynlegt að gera úr sér píslarvotta á götum og torg- um úti – slíkt hefði ekkert með sjálfsrækt að gera. Það var erfitt að greina samúð í þessum viðhorfum, en þeim mun auðveldara að lesa í þeim óþolinmæði er jaðraði við vandlætingu. Þótt það sé komið til ára sinna má í riti Ku Hung-Ming finna hugsanlega skýringu á þessum viðhorfum. Hann segir m.a. að „[…] ástæðan fyrir því að kínverska þjóðin þarfnast ekki trúarbragða [sé] sú að hún hefur í kerfi Konfúsíusar á sviði heimspeki og siðfræði þann samruna mannlegs samfélags og siðmenningar sem kemur í stað trúarbragða“. Það má m.ö.o. líta svo á að Falun Gong sé í andstöðu við forna arfleifð hins almenna Kínverja, þar sem boð- skapur hreyfingarinnar miðast fyrst og fremst við það að vinna hreyfingunni sjálfri gagn fremur en að tryggja velferð ein- staklingsins er telur sig til hennar. Sannleikurinn er þó flóknari en svo, því þótt það geti verið vandkvæðum bundið að skilgreina trúarbrögð í Kína hefur per- sónudýrkun verið þar landlæg svo öldum skiptir, eins og Maó nýtti sér svo eftirminnilega og greint var frá hér að ofan. Hann gekk svo langt, til að mynda með útgáfu á hinu Rauða kveri sínu, einskonar „biblíu“ kínverskra kommúnista, að knýja það fram sem helst líktist átrúnaði á flokkinn – eitthvað sem var líkara heildstæðum trúarbrögðum en áður hafði þekkst meðal kín- versks almennings. Samfara þeim umbótum sem Deng Xiaoping stóð fyrir eftir daga Maós afnumdi hann alla tilburði til slíkrar persónudýrkunar, en afleiðing þess birtist að lokum sem eins- konar tóm í andlegu lífi þjóðarinnar. Ian Johnson, sem fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir umfjöllun sína um Falun Gong, stað- festir þetta í kafla um hreyfinguna í bók sinni Wild Grass [eða Villigras, sem einnig er heiti heimsfrægrar bókar kínverska höf- undarins Lu Xun]. Hann segir að; „þótt utanaðkomandi einblíni oft á þær efnanhagslegu umbætur er umbreyttu Kína úr komm- únistaríki í það sem nánast er alfarið kapítalískt ríki í dag, þá ýtti hrun kommúnismans sem trúarbrögð af stað djúpstæðri leit að inntaki sem augljóslega sér stað í listum, svo sem í skáldsög- um nóbelsverðlaunahöfundarins Gao Xingjian, og á meðal al- mennings, með tilurð tuga nýrra trúarhreyfinga og endurfæð- ingu annarra eldri og hefðbundnari“. Og Falun Gong sprettur einmitt upp úr því andrúmslofti er hann lýsir. Ekki hægt að hafa tvo keisara En það er ekki „vegna taugatitrings yfir innihaldi kenninga Fal- un Gong sem kínversk stjórnvöld hafa brugðist svo harkalega við“, fullyrti einn viðmælenda minna, „heldur vegna þess hvern- ig iðkendur stunda eiginlegt trúboð – ekkert ólíkt því sem tíðk- ast í kristnum bókstafstrúarhópum á Vesturlöndum. Yfirvöld í Kína hafa aldrei sætt sig við að hafa tvo keisara“, bætti hann svo við og hló. Vísaði með þeim orðum til þess fjöldafylgis og þeirrar persónudýrkunar er Li Hongzi naut í Kína áður en hreyfingin var sett á svartan lista stjórnvalda, eftir að hafa breiðst út eins og eldur í sinu. Ótti stjórnvalda stafar sem sagt af því að Falun Gong stýrir huga fólks með líkum hætti og Maó gerði sjálfur; Li Hongxi hefur nefnilega stjórn á áhangendum sínum og vald hans felst í því að knýja fram „viljann til að láta lífið í sölurnar fyrir málstaðinn“, eins og Maó orðaði það í sínu áróðursstríði. Öll þessi saga breytir þó að sjálfsögðu ekki þeirri staðreynd að mannréttindi þeirra sem opinberlega aðhyllast Falun Gong eru fótum troðin í Kína. Þótt erfitt sé að fá slíkar tölur staðfestar er ljóst að ótrúlegur fjöldi þeirra hefur verið ofsóttur af stjórn- völdum og margir hafa látið lífið fyrir það eitt að neita að láta af ástundun sinni. Fyrir það reynir enginn viðmælenda minna að þræta, þótt sumir finni umsvifalaust þversögn í því hversu harð- lega kínversk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd á Vesturlöndum fyrir þessi brot. Fyrst og fremst í ljósi frétta (er einnig skila sér til Kína) um að jafnvel í löndum þar sem frelsi til tjáningar og at- hafna er í hávegum haft hafi verið brotið á rétti Falun Gong- meðlima til að tjá sig og koma sínu andófi gegn kínverskum stjórnvöldum á framfæri á friðsamlegan hátt. Og vegna þess hvernig tekið var á komu Falun Gong-meðlima hingað til lands um árið varð mér að sjálfsögðu orða vant við slíka rökvísi. Blóm eru menningarleg Í landi þar sem blóm voru fyrir skemmstu bönnuð og enginn mátti dansa svo árum skipti upplifir fólk þær tilslakanir sem Deng Xiaoping hleypti af stað sem umtalsvert frelsi. Og það er fljótt að tileinka sér allt það sem nýtt er og leyfilegt. Fallegasta táknmynd þeirrar sterku viðleitni er ef til vill það mikla blóma- skrúð sem allstaðar blasir við; á götum og torgum, umferð- areyjum, húsagörðum og gluggum fjölbýlishúsa. Aldrei hef ég séð jafn mikið af pottablómum né heldur jafn mikla virðingu borna fyrir þeim og í Kína. Er ég spurði granna minn hverju þessi áhugi á blómskrúði sætti sagði hann mér frá fyrrnefndu blómabanni og breytingunni sem hefði orðið á ásýnd borga og bæja er því var aflétt með frægri grein flokksforystunnar á for- síðu flokksblaðsins China Daily, á þeim forsendum að blóm væru ekki tákn borgaralegrar siðspillingar; „þau væru menn- ingarleg“. Með aukinni velmegun og tæknivæðingu minnka líkurnar á því að kínversk stjórnvöld geti stýrt lífi fólks með slíkum hætti eins og áður reyndist tiltölulega auðvelt. Netið og sá heimur upplýsinga sem þar hefur opnast á sl. tíu árum eða svo er til að mynda án efa afar mikilvægur þáttur lýðræðisþróunar í Kína. Þótt margt á netinu sé enn ekki aðgengilegt þar er samt sem áð- ur ljóst að upplýsingamagnið er slíkt að ómögulegt er að hafa fullkomna stjórn á því hvað almenningur les. Það er einna helst að skortur á tungumálakunnáttu sé þröskuldur í upplýs- ingaöflun, en sú mikla áhersla sem nú er lögð á enskunám í Kína mun auðvitað ekki einungis nýtast í viðskiptum, hún mun senn einnig gjörbylta aðgengi almennings að hinum alþjóðlega upp- lýsingaheimi sem hægt er að nálgast í gegnum tölvur. Margar af frægustu upplýsingaveitum hins vestræna heims eru Kínverjum lokaðar; svo sem vefur BBC og fleiri áþekkra miðla, en samt berast Kínverjum nú jafnvel fréttir af þeirra inn- anlandsmálefnum í gegnum netið. Slíkt skapar þrýsting á flokksstýrðar fréttaveitur, sem eru þekktar fyrir að bregðast seint við og sníða fréttaflutning að eigin þörfum er alvarlegir hlutir gerast. Upplýsingarnar skapa einnig vitundarvakningu meðal almennings um margt það sem betur má fara í þeirra eig- in samfélagi og ýtir undir umbætur. Erfiðleikar á félagslega sviðinu Og umbóta er svo sannarlega þörf ef Kínverjar ætla sér að bera sig saman við voldugustu þjóðir heims í náinni framtíð. Keisarans hallir skína Ljósmyndir/Úlfur Hansson Geistleg samkoma Trúarleg líkneski sem fólk hefur komið fyrir í fjallshlíð í suðurhluta Kína. Framandleikinn er oftast það afl sem hrindir manni af stað til að hleypa heimdraganum. Samt er oft erfitt að ákvarða í hverju framandleikinn er fólginn. Í fyrstu mætir hann manni helst í yfirborði samfélagsins – arkitektúr, útliti fólks, mat- aræði og þess háttar. Eftir því sem dvölin að heiman lengist af- hjúpast djúpstæðari framandleiki; sá er tilheyrir hugs- unarhætti, vitsmunalegri arfleifð, trúarbrögðum og tilfinningalífi. Í þessari síðustu grein af þremur um Kína er m.a. fjallað um geistlega arfleifð þeirra, en kristinn hug- myndaheimur og siðferði, sem auk lýðræðishefðarinnar er helsta bakbein vestrænnar menningar, er fjarri Kínverjum. Í raun eru hugmyndir þeirra um hlutverk og tilgang trúarlífs gjörólíkar því sem vestrænt fólk á að venjast sem endurspegl- ast í viðhorfum þeirra til framtíðarinnar. Fortíð og framtíð Maó formaður Risastór mynd af honum er yfir innganginum inn í forboðnu borgina, rétt eins og hann sé kominn í tölu keisara. Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur fbi@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.