Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Síða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.2005, Síða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 31. desember 2005 Hugtakið „helgarinntaka“ (e. „weekendbox office“) er áberandi í kvikmynda-umræðu samtímans, einkum vest-anhafs, en hér er átt við vinsældir ákveðinna kvikmynda eins og þær birtast í miða- sölutekjum fyrstu dagana eftir að sýningar hefjast. Vafalaust skiptir inntökutölfræðin kvik- myndagerðarmenn um allan heim miklu máli, þó ekki sé nema í þeim skilningi að formið sem þeir kjósa sér er alltof um- fangsmikið og dýrt í rekstri til að hægt sé að horfa fram hjá bókhaldslegum áhættuþáttum líkt og dreifingu og aðsókn. En þótt fjárhagslegur veruleiki alþjóðlegrar kvikmyndaframleiðslu sé alltaf að umtalsverðu leyti markaðsbundinn hefur fáum þjóðum tekist að breyta áðurnefndri rökvísi í íþróttaleik líkt og Bandaríkjamenn hafa gert. Um hverja helgi keppa þar í landi ákveðið marg- ar myndir um athygli síminnkandi neytendahóps. Frumsýnt er á föstudegi og á sunnudagskvöldi er búið að raða úrslitum helgarinnar í töflu þar sem sigurvegarinn trónir á toppnum og útlitið verður sífellt vandræðalegra eftir því sem neðar dregur á listanum. Úrslitin breiðast síðan eins og eldur í sinu um heimsbyggðina og það er ekki ýkja langt síðan að Morgunblaðið tók að birta vikulegar fréttir af gengi bandarískra kvikmynda á heima- velli, en má þó efast um að helgarinntakan í Hollywood komi íslenskum dagblaðslesendum nokkurn skapaðan hlut við. Og þó, jú, hún kemur okkur við á sama hátt og úrslit í íþróttaleikjum hinum megin á hnettinum koma okkur við – for- tvitnilegt er að vita hver sigrar og hver tapar og sumir halda jafnvel með ákveðnum myndum, leik- urum eða leikstjórum og finnst þess vegna gaman að sjá þá skjóta samkeppninni ref fyrir rass. Því hefur stundum verið haldið fram að kvik- myndir í Bandaríkjunum standi og falli með helg- arinntökunni. Þetta mætti kannski umorða og segja að ef ákveðin kvikmynd verður undir í sam- keppninni fyrstu dagana sé í kjölfarið ekki búist við miklum afrekum þar á bæ þar sem vafalaust er hægt að setja helgarinntökuna inn í einhvers konar reiknilíkan sem segir til um hvernig afdrif myndarinnar munu vera til lengri tíma litið. Þá hef ég séð það skrifað einhvers staðar að helg- arinntakan, eins og henni er framfleytt í reikni- líkaninu, hafi umtalsverð áhrif á það á hversu marga alþjóðlega markaði myndin verður seld og á hvaða verði hún sé keypt af t.d. sjónvarps- stöðvum, hótelum og flugfélögum, auk dreifing- araðila víðs vegar um heiminn. Þá hefur helgarinntakan áhrif á það hversu langur tími líður þar til myndin kemur út á vídeó og DVD. En það er ekki einu sinni víst að heila helgi þurfi til. Þegar kvikmyndaframleiðandi á vesturströndinni getur hringt til New York síð- degis á föstudegi, daginn sem mynd kemur í kvik- myndahús, og sökum tímamismunar ráðið örlög- um myndarinnar þar og þá (gekk myndin vel á fysta degi …?) er óhætt að segja að hlutirnir séu farnir að hreyfast ansi hratt. Þessi dómshraði – markaðsörlög ákveðinna verka eru þekkt strax á fyrsta degi eða, í síðasta lagi, eftir fyrstu helgina – tengist að sjálfsögðu dreifingarkefi bandarískra kvikmynda, kerfi sem stundum er kennt við mett- unardreifingu. Og svona er kvikmyndamarkaður- inn í Bandaríkjunum orðinn, örlög kvikmynda ráðast tiltölulega skjótt og ef mynd er sein á sér út um hliðið í upphafi er hún bara send hið snar- asta á myndbandaleigu, líkt og íþróttamaður sem ekki stendur sig er kallaður á bekkinn. Hvað nákvæmlega þýðir það að kvikmynd sé vinsæl? Hvernig skal farið að þegar vinsældir kvikmynda eru mældar? Vissulega er erfitt að skilja á milli listrænnar hliðar kvikmynda og þeirrar fjárhagslegu. Þetta er jú það listform sem hvorki býður einstaklingnum né fátæklingnum heim. En spurningin sem við verðum að spyrja lýtur að tíma. Er sólarhringur, eða ein helgi, eina viðmiðið sem við höfum um vinsældir? Er þá bara hægt að hlaða reiknimódelið? Hvað ef við setjum tíma í víðum skilningi inn í vinsældamengið …? Löggulíf eftir Þráin Bertelsson var vinsæl fyrir tuttugu árum. Mætti halda því fram að mynd þessi eigi heldur lítið erindi við áhorfendur nú til dags? Kannski. Sennilega, myndi ég segja. Nói albinói varð ekki vinsæl í kvikmyndahúsum á Ís- landi. Má gera ráð fyrir að eftir tuttugu ár verði ennþá horft á hana? Kannski. Sennilega, myndi ég segja. Hvor er þá vinsælli þegar upp er staðið og hvernig tengist vinsældahugtakið líftíma mynda á borð við þessar tvær þegar horft er handan afmarkaðs tímaramma aðsóknar og topp- tíulista? Mín skoðun er nokkuð augljós. Vinsældir eru að sjálfsögðu ekki samasemmerki við gæði. En vinsældir eru heldur ekki samasemmerki við „helgarinntökuna“. Peningar skipta alltaf máli þegar að kvikmyndum kemur en arður birtist á ólíkan hátt. Fíaskó eftir Ragnar Bragason, löngu eftir að sú mynd reyndist fjárhagslegt fíaskó, heldur áfram að borga áhorfendum arð. Nói alb- inói, líkt og Big Lebowski eftir Cohen-bræður, er kvikmynd í formi seinborgaðs skuldabréfs sem þrátt fyrir allt, þegar upp er staðið og tími er lið- inn, ber ríkulegan ávöxt. Að vera vinsælastur ’Peningar skipta alltaf máli þegar að kvikmyndum kemuren arður birtist á ólíkan hátt.‘ Sjónarhorn Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@ wisc.edu H ollywood-myndir hafa dálítið skrítin áhrif á tilfinninga- og vits- munalífið. Öðrum þræði eru þær gjarnan skemmtilegar og vel gerðar en oft læðist sú hugsun að manni að það væri kannski í lagi, svona endrum og sinnum, ef þessar myndir reyndu að brjótast út úr formúlunni og takast á við sam- tímann á alvörugefinn hátt. En þegar það er svo gert í myndum á borð við Syriana eftir Stephen Gaghan (en hann skrifaði handritið að óskars- verðlaunamyndinni Traffic sem Steven Soderbergh leik- stýrði) byrjar maður á ein- hvern einkennilegan hátt að sakna grunnhygginna afþreyingarminna. Vissulega lofar það góðu að spennumynd hefjist með staðsetningarskilaboðum á borð við: „Beirút, höfuðstöðvar Hezbollah“ og haldi síðan sínu striki og fjalli um það hversu and- styggilegt líf fátækra araba í Mið-Austurlöndum getur verið; sýni svo hvernig þeir sem ofan á hafa orðið í þessum samfélögum lifa í vellystingum í stórborgum Evrópu og geri auk þess valdabaráttu þeirra í Washington, sem þegar virðast ráða öllu, að umfjöllunarefni. Það er alveg ljóst að samspil ol- íufyrirtækja, lögfræðinga, auðjöfra og ríkisstjórna í sambandi vesturs og austurs er efni sem gagnlegt er að kafa ofan í og vel gæti reynst fróðlegt að sjá kvikmynd taka á þessu öllu saman á skynsamlegan hátt. Þetta lofar Syriana að gera og að sumu leyti uppfyllir hún væntingar, þetta er einlæg mynd sem vill vel og reynir að gera eitthvað sem sjaldgæft er að sjá Hollywood leggja til atlögu við: hún reynir að gera úttekt á þeim margflókna veruleika sem ligg- ur að baki hryðjuverkastríði Bush og mótar líf okk- ar allra að einhverju leyti. En þó verð ég að við- urkenna að eftir um það bil klukkustund af því að horfa á George Clooney, Matt Damon og Jeffrey Wright hálfpartinn hverfa inn í bakgrunninn, svo litlausar eru persónurnar sem þeir leika, var ég far- inn að sakna mynda á borð við Three Kings og The Bourne Identity. Kannski er þetta ósanngjarnt. Það er margt sem hægt er að dást að í mynd þessari. Hún kemur mik- ilvægum skilaboðum á framfæri og svo framvegis. Eiginlega ber manni skylda til að fagna svona metnaði. Þá er það myndinni til framdráttar að söguhetjurnar eru allar hálfgerðir millistjórn- endur; Clooney er njósnari sem kominn er af létt- asta skeiði, Damon leikur markaðsfræðing sem lendir eiginlega í því fyrir slysni að vinna fyrir olíu- prins í Persaflóanum og Wright er lögfræðingablók sem fær það verkefni að leita að einhverju misjöfnu í bókum stórfyrirtækja sem eru við það renna sam- an í eitt. Allt eru þetta einstaklingar sem hafa tak- markað vald og verða fyrir þrýstingi úr öllum átt- um. Þeir eru ómerkileg tannhjól í risavaxinni og afskaplega spilltri samfélagsvél sem rúllar áfram sama hvað þeir gera. Kannski er þetta raunsæi, kannski er þetta neikvæðni en áhrifin eru minni en þau ættu að vera vegna þess að Gaughin, sem hér er að leikstýra í fyrsta skipti, gengur illa að skapa samfellu og virðist alls ekki átta sig á því að ákveð- inn takt þarf í klippingar (ný atriði eru alltaf að brjótast inn í frásögnina áður en þau sem fyrir eru ná að klárast) og of oft reynist myndræna hliðin einvörðungu skreyting fyrir löng ræðuhöld á hljóð- rásinni. Á köflum jaðrar Syriana jafnvel við að vera hálfrasísk, má þar nefna eldræðu Matts Damons sum stjórnmálalíf Persaflóalandanna, og styttir sér jafnframt leið í gegnum flókna samfélagsgerð þess- ara landa með því að búa til karaktera sem eiga að gegna hálf-táknrænu hlutverki sem „dæmigerðir“ arabar. Þar er verkamaðurinn sem Mazhar Munir leikur ágætt dæmi, en leið hans liggur á nokkuð fyrirsjáanlegan hátt úr atvinnuleysi inn í hryðju- verkasamtök. Þetta er ferli sem í myndinni er framsett sem nánast sjálfsagt og óumflýjanlegt. En Syriana vill vel, hún hefur hjartað á réttum stað og ekki er laust við að maður fyllist ákveðnu sam- viskubiti yfir því að leyfa sér að efast um gæði hennar og mikilvægi. Svona myndir á að gera, svona myndir þarf að gera. Þegar maður situr fast- ur frammi fyrir enn einum bílaeltingaleiknum og óskar sér inn í einhvern allt annan kvikmyndasal vill maður einmitt flytjast yfir í salinn þar sem eitt- hvað í líkingu við þetta er sýnt. En það þarf bara að vera betur gert. Pólitísk spennumynd Kvikmyndin Syriana eftir Stephen Gaghan kafar ofan í samspil olíufyrirtækja, lögfræðinga, auð- jöfra og ríkisstjórna í sambandi vesturs og aust- urs. Þetta er mikilvægt og þarft efni og tilbreyt- ing frá innihaldslausum hasarmyndum Hollywood en betur má ef duga skal. George Clooney „En þó verð ég að viðurkenna að eftir um það bil klukkustund af því að horfa á George Clooney, Matt Damon og Jeffrey Wright hálfpartinn hverfa inn í bakgrunninn, svo litlausar eru persón- urnar sem þeir leika, var ég farinn að sakna mynda á borð við Three Kings og The Bourne Identity.“ Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Íburðarliðnum er kvikmynd byggðá skáldsögu eftir Ethan Hawke. Sagan ber nafnið The Hottest State og mun Hawke sjálfur leikstýra myndinni. Gerist hún í listamanna- samfélagi New York-borgar og segir frá pari sem er á hraðri upp- leið í þeim heimi en á um leið erfitt með sitt innra sjálf og gengur trauðlega að leysa úr eigin tilfinn- ingaflækjum. Michelle Williams, sem hægt er að sjá í Brokeback Mountain (mynd Ang Lee um samkynhneigða kúreka sem skartar Jake Gyllenhaal og Heath Ledger í aðalhlutverkum), leikur í myndinni. Tökur hefjast í janúar.    Nýjasti Íslandsvinurinn, hinneinstaki leikstjóri Quentin Tarantino, lýsti því nýverið yfir að hann hyggist standa fyrir því að Kill Bill komi aftur í kvik- myndahús – en þá sem ein mynd. Þannig hafði Tar- antino hugsað sér myndirnar upp- haflega en mis- vitrir markaðs- spekúlantar komu því til leiðar að „epíkin“ var klippt í tvennt. „Mig langar til að tengja mynd- irnar saman í eitt tilkomumikið verk,“ segir Tarantino. „Myndin mun fara þannig aftur í kvikmyndahúsin. Ég hef verið að tefja þetta, einfaldlega af því að ég þurfti að taka mér hlé frá mynd- unum.“ Búast má við þessari ríflega fjög- urra stunda mynd á næsta ári.    Nýjasta mynd David Cronen-berg, A History of Violence, var valin besta kvikmynd ársins af kanadísku kvikmyndaaka- demíunni. Mynd- in var þó fjár- mögnuð af bandarísku fyr- irtæki (New Line) og gerist í Bandaríkjunum auk þess sem allir leikarar eru bandarískir. Hún var hins vegar tekin upp í Kanada. Margir hafa hnýtt í þessa ákvörð- un um að dæma myndina „kan- adíska“ og skemmst er að minnast þeirrar deilu sem upphófst í kring- um frönsku myndina A Very Long Engagement, en á tímabili átti hún ekki að teljast frönsk vegna þess að fjármagnsaðilar voru bandarískir. Cronenberg hefur hins vegar sagt að þar sem hann sé kanadískur hljóti þetta að vera kanadísk mynd. Hún sé kanadísk, listrænt séð, þó hún geti vel verið eitthvað annað á mæli- stiku fjármagnseigenda.    Ákveðið hefur verið að gera fram-hald af hassgrínmyndinni Har- old and Kumar Go To White Castle og á framhaldið að gerast í mekka þeirra sem hugnast skrýtnu sígar- etturnar, Amsterdam. Ef vel gengur með framhaldið er hugsanlegt að þriðja myndin verði gerð og mun hún hugsanlega gerast í Vegas. Erlendar kvikmyndir Quentin Tarantino Harold and Kumar Go To White Castle Ethan Hawke David Cronenberg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.