Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT PALESTÍNUMENN flykktust á kjörstaði í gær til að kjósa sér nýjan forseta í stað Yassers Arafats, sem lést 11. nóvember sl. Engan skugga hafði borið á kosningarnar síðdegis í gær, ef frá voru talin vandkvæði sem upp komu á kjörstöðum í Jerúsalem, en ákveðið var að framlengja tímann sem kjör- staðir voru opnir um tvær klukkustundir, eða til kl. 19 í gærkvöldi að íslenskum tíma. Fullyrt var að á bilinu 25 til 30% at- kvæðabærra manna hefðu verið búnir að kjósa um hádegisbil í gær að staðartíma. Fastlega hafði verið reiknað með því að Mahmoud Abbas, frambjóðandi Fatah- hreyfingarinnar, stærsta stjórnmálaaflsins innan Frelsishreyfingar Palestínu (PLO), myndi bera sigur úr býtum í kosningunum en alls voru sjö í framboði. Abbas greiddi sjálfur atkvæði í höf- uðstöðvum heimastjórnar Palestínu í Ram- allah, á þeim stað þar sem Arafat var lagður til hinstu hvílu. Sagði hann að Palest- ínumenn gætu verið stoltir af því, að þeir væru að velja sér nýjan leiðtoga á frið- samlegan máta. „Þetta er til marks um lýð- ræðisþrá palestínsku þjóðarinnar,“ sagði hann. „Myndi ekki gerast annars staðar í arabaheiminum“ Margir kjósendur virtust vera á sama máli. Mohammed Othman, 36 ára Palestínumaður sem einnig kaus í Ramallah, sagði að kosn- ingarnar myndu marka leiðina í átt að lýð- ræði í arabaheiminum. „Það sem er að ger- ast í Palestínu í dag myndi ekki gerast annars staðar í arabaheiminum,“ sagði hann. Í borginni Nablus á Vesturbakkanum biðu hundruð manna í biðröð eftir því að fá tæki- færi til að kjósa. „Við viljum að nýr forseti okkar setji á oddinn að binda enda á slæmt öryggisástand og frelsa Palestínumenn und- an þeim ótta sem þjakar þá; í kjölfar þess þarf að frelsa okkur undan hernámi [Ísr- aela],“ sagði Abu Sabri, einn íbúa Nablus sem beið þess að geta kosið í kosningunum. Norðar á Vesturbakkanum, í borginni Jenín, virtu liðsmenn Al-Aqsa-písl- arvottahreyfingarinnar að vettugi vegg- spjald sem á stóð „allar byssur bannaðar“ og báru þeir M-16-riffla sína um öxlina. „Dag- urinn í dag er mér afar mikilvægur, nú göngum við til kosninga og sýnum að Palest- ínumenn trúa á lýðræði og vilja frið og vilja fá tækifæri til að kjósa leiðtoga sína,“ sagði Zakaria Zubeidi, leiðtogi Al-Aqsa, sem er vopnaður armur Fatah-hreyfingarinnar. „Við vonumst til að þessar kosningar marki skref í þá átt að við öðlumst frelsi og í átt að myndun sjálfstæðs, palestínsks ríkis sem hefði Jerúsalem sem höfuðborg,“ sagði hann ennfremur. Ekki alveg allir Palestínumenn voru þó áhugasamir um að kjósa. „Hvers vegna ætti ég að vera að kjósa? Hvað hafa þessir fram- bjóðendur eiginlega gert fyrir mig?“ spurði Naameh Daabid, 63 ára palestínsk kona sem stóð fyrir utan kjörstað í hinum forna hluta Jerúsalem-borgar. Sagðist hún aðeins myndu kjósa ef einhver greiddi henni fé fyr- ir að gera það. Á þröskuldi nýrra tíma Kosningarnar í Palestínu voru forsíðuefni alls staðar í Mið-Austurlöndum í gær. Ísr- aelskir fjölmiðlar lýstu þeirri von að líklegur sigur Abbas myndi þýða að nýjar frið- arumleitanir gætu hafist í kjölfarið. Allur heimurinn fylgdist með. Arabískir fjölmiðlar töluðu á sömu nótum; „Palestínumenn á þröskuldi nýrra tíma,“ sagði í leiðara dagblaðsins Al Rai í Jórdaníu. Al-Madinah í Sádí-Arabíu sló á sömu strengi, sagði að nýtt tímabil í sögu palest- ínsku þjóðarinnar væri að renna upp, „nýtt skeið í réttlátri og lögmætri baráttu hennar gegn óréttlæti, hernámi og hernaði; nú glæðast vonir og draumar Palestínumanna um sjálfstætt ríki, með Jerúsalem sem höf- uðborg“. Kosningarnar sagðar til marks um lýðræðisþrá Ramallah. AFP. AP Mahmoud Abbas greiðir atkvæði í Ramallah. AP Palestínsk kona skráir nafn sitt á kjörstað í Jenín á Vesturbakkanum í því skyni að fá afhentan kjörseðil. Nokkrir liðsmenn Al-Aqsa-sveitanna fylgjast með og bíða þess, að röðin komi að þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.