Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR A U G L † S IN G A S T O F A E .B A C K M A N KARL Sigurbjörnsson, biskup Íslands, snerist til varnar kristinfræði- kennslu í grunnskólum í páskapredikun sinni í Dómkirkjunni á páska- dag. Sagði hann grund- vallargildin mannrétt- indi og trúfrelsi vera farin að snúast í and- hverfu sína og um- ræðuna um kristin- fræðikennslu í skólum anga af þessum sama meiði. Biskup sagði í predikun sinni fámenn- an þrýstihóp vilja rýma fræðslu um þá mikil- vægu grunnstoð samfélagsins sem kristni er út úr skólanum, í nafni mannréttinda og fjölmenningar. Kvaðst biskup ennfremur treysta yfirvöldum menntamála til að halda vöku sinni í þessum efnum. „Skólinn á ekki að sinna trúboði. En hann má ekki láta sem trú skipti ekki máli. Hann á að stuðla að þekkingu og menntun, og hamla gegn fordóm- um og fáfræði, ekki síst um þá trú sem mótar menningu okkar og sið,“ sagði biskup m.a. og bætti við að aldrei hefði verið mikil- vægara en einmitt nú að kristindóms- og trúar- bragðafræðslu væri sinnt af kost- gæfni. „Yfirvöld menntamála þurfa að tryggja að markmiðum nám- skrár sé fylgt og að kennarar séu sem best búnir til þess að sinna kristinfræðikennslu af þekkingu og færni. Kristin fræði og trúar- bragðafræði ætti að verða skyldu- grein í Kennaraháskólanum.“ Þá sagði biskup brýnt að fræðsla um kristni og önnur trúar- brögð verði meðal kjarnagreina framhaldsskólanna. „Ég er sann- færður um að besta framlag okkar til frelsis og mannréttinda, virð- ingar og umburðarlyndis í heimi vaxandi fjölmenningar, sé að styrkja grundvöll eigin sjálfs- myndar, menningar og siðar. Óljós sjálfsmynd veldur öryggisleysi, og öryggisleysi og fáfræði er frjósam- asti jarðvegur fordóma.“ Tók biskup ennfremur undir áhyggjur Jóhannesar Páls II. páfa, af aðþrengingu kristinnar trúar og kirkju í Evrópu og útskúfunar kirkjunnar úr opinberu rými. Biskup ver kristinfræðikennslu í páskapredikun Öryggisleysi og fáfræði frjó- samasti jarðvegur fordóma Karl Sigurbjörnsson VEÐURBLÍÐAN í Þingeyjarsýslu um páskahelgina hefur sjaldan verið meiri og víða er orðið vorlegt. Hjá Vilhjálmi Grímssyni, bónda á Rauðá, hefur verið mikið um að vera í úti- húsunum undanfarið því þar hafa fæðst á annan tug kiðlinga. Þeir hoppa og leika sér undir berum himni þegar opnað er út, þess á milli sem þeir hitta mæður sínar inni í krónni til að fá sér sopa. Á Rauðá eru nú alls 25 geitur með ungviðinu og enn eiga nokkrar eftir að bera. Vilhjálmur segir þetta líf- legan og skemmtilegan búskap og hefur gaman af því að spjalla við þessi mannelsku húsdýr, sem hafa þörf fyrir mikla athygli. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Vor í geitahúsinu á Rauðá Laxamýri. Morgunblaðið. „VIÐ fengum náttúrlega algjört áfall. Því næst fylltumst við gríð- arlegu þakklæti og gleði yfir því að hún skyldi hafa náð að losa sig. Okk- ur finnst við vera svo heppin að hafa fengið hana heim yfir höfuð, því hún hefði þess vegna getað horfið þarna sporlaust og við ekki vitað nokkurn skapaðan hlut hvað orðið hefði um hana,“ segir Kristján V. Jóhannesson faðir Tinnu Aspar, ellefu ára stúlku, sem sl. laugardag var hætt komin er hún sökk ofan í pytt er líktist kvik- syndi í fjörunni við Vesturvör 14. Lögreglan í Kópavogi vill að þessu gefna tilefni koma því á framfæri við foreldra að þeir gæti að því að börn séu ekki að leik við Vesturvör 14 í nýja Bryggjuhverfinu. Þar er nú unnið að uppfyllingu og mikið um blautan sand sem getur verið vara- samur fyrir börn. Lögreglan í Kópavogi sagði í gær, að Björgun, sem þarna vinnur að uppfyllingu, hygðist gera ráðstafanir í dag til að koma í veg fyrir að atvik sem þetta endurtæki sig. Vakt var höfð við svæðið í gær á fjöru því minni hætta er á flóði. „Ég er skelfingu lostin yfir því að svona skyldi geta gerst og þakka guði fyrir að ekki fór verr. En það er nánast kraftaverk að barnið skyldi bjargast við þessar aðstæður,“ sagði Hansína Ásta Björgvinsdóttir, bæj- arstjóri í Kópavogi, þegar Morgun- blaðið leitaði viðbragða hjá henni. Sagðist hún ekki vita betur en Björg- un myndi fylla upp í svæðið með möl og grjóti nú í nótt. Tók greinilega mjög á hana að koma sér upp úr sandinum „Hún var ein í fjörunni að safna skeljum,“ segir Kristján og tekur fram að Tinna Ösp sé afar fjöruvön og viti því vel að hún eigi að gæta sín á sjónum. „Eftir því sem Tinna Ösp segir var hún komin með nokkrar skeljar í pokar. Þarna í fjörunni hafði myndast lítið lón og hugðist hún fara að því í þeim tilgangi að skola skelj- arnar sínar. Svo þegar hún kemur að þessu þá pompar hún í gegnum yf- irborðið og sekkur ofan í sandinn,“ segir Kristján og tekur fram að mið- að við förin á fötum Tinnu Aspar þá hafi stúlkan greinilega sokkið næst- um upp að bringu. Að sögn Kristjáns segist Tinna Ösp hafa bjargað sér upp aftur með því að halla sér ýmist fram og aftur samtímis því sem hún togaði sig upp og sparkaði kröftuglega með fót- unum. „Hún var hágrátandi þegar hún kom hlaupandi hingað heim eftir atvikið. Hún var mjög skelkuð og hrærð. Það var greinilegt að það hafði tekið mjög á hana að koma sér upp úr sandinum.“ Kristján segist daginn fyrir atvik- ið, þ.e. sl. föstudag, hafa farið í gönguferð um fjöruna ásamt Tinnu Ösp til þess að kanna aðstæður og skoða hina nýja sandfjöru. „Það hef- ur náttúrlega aldrei verið nein ekta sandfjara í Fossvoginum, utan þess sem er innst inni í botni. Þessi tilbúna fjara þarna við Vesturvör er því afar lokkandi og kallaði á að þarna væri leikið sér og ég sá raunar ekkert at- hugavert við það, því þegar ég kann- aði svæðið þarna á föstudaginn þá fannst mér svæðið ekki vera þesslegt að þar væru einhverjir pyttir,“ segir Kristján sem sjálfur þekkir svona pyttamyndun frá því þegar hann bjó upp á Skaga, en þar var skeljasandi dælt upp rétt fyrir ofan sjóinn og því gátu myndast pyttir á borð við þann sem myndaðist í fjörunni við Vest- urvör 14. Annað sinn á fimm mánuðum Aðspurður segist Kristján ekki munu leyfa dætrum sínum að fara einar niður í fjöruna við Vesturvör aftur. „Ég er alveg tilbúinn að fara með þeim ef þær vilja leika sér inni í botninum, en þarna við Vesturvör 14 fara þær ekki aftur, það er alveg á hreinu,“ segir Kristján og hvetur bæjaryfirvöld til þess að láta girða svæðið af milli göngustígsins og fjör- unnar, enda er þetta í annað sinn á fimm mánuðum sem barn sekkur niður í pytt á þessu svæði. „Mér finnst að það eigi ekki að þurfa dauðsfall til til þess að fólk átti sig á því að nauðsynlegt er að girða þarna af. Enda er ekki nóg að setja upp skilti þess efnis að fjaran sé hættuleg, því litlu stubbarnir eru í fyrsta lagi ekkert að kíkja eftir skilt- unum og í öðru lagi, ef þau sjá skiltin, þá kunna þau kannski ekki að lesa.“ Ellefu ára stúlka hætt komin í fjörunni við Vesturvör „Sökk í kviksynd- ið upp að bringu“ Morgunblaðið/ÞÖK Kristján Jóhannesson ásamt dóttur sinni, Tinnu Ösp, sem hætt var komin um helgina þegar hún sökk niður í pytt er líktist kviksyndi þar sem hún var að leik í fjörunni við Vesturvör 14 í nýja Bryggjuhverfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.