Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 29 Smáauglýsingar 569 1111 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Nutro - 30% afsláttur! Þurrfóður fyrir hunda og ketti í hæsta gæða- flokki. Full búð af nýjum vörum. 30% afsláttur af öllu. Opið mán-fös kl. 10-18, lau. 10-16 og sun. 12-16. Tokyo, Hjallahrauni 4, Hafnarfirði, sími 565 8444. Merktu gæludýrið. Hunda- og kattamerki kr. 990 m. áletrun t.d. nafn og sími. FANNAR verðlauna- gripir, Smiðjuvegi 6, (rauð gata), Kópavogi, s. 551 6488. www.fann- ar.is - fannar@fannar.is Geltustoppararnir komnir aftur. Pantanir óskast sóttar. www.dyralif.is Dvergshöfða 27, 110 Reykjavík Sími 567 7477. Heilsa Herbalife Frábærar heilsu- og megrunar- vörur. Aðstoð veitt ef óskað er. www.slim.is - www.slim.is Ásdís - 699 7383. Húsgögn Vel með farið rúm til sölu, 120x200. Verð 20.000kr. Upplýs- ingar í 699 3247/567 9294 Atvinnuhúsnæði Tangarhöfði - hagstæð leiga. Glæsilegt 200 fm skrifstofuhúsn. á 2. hæð til leigu á ca 600 kr. fm. Skiptist í rúmgott anddyri, 7 her- bergi með parketi, fundar- og eldhúsaðstöðu, geymslu og snyrtingu. Uppl. í vs. 562 6633, hs. 553 8616. Leirkeravinnustofa. 50-100 fm iðnaðar-/verslunarhúsnæði óskast í Rvík undir keramikvinnu- stofu. 3 fasa rafmagn þarf að vera til staðar. Símar 897 9096 (Inga) og 822 6433 (Sibba). Sumarhús Sumarhús — orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Bústaðasmiðjan Syðri Brú aug- lýsir til sölu vönduð heilsárs frí- stundahús, búin öllum helstu þægindum. Húsin eru til sýnis á staðnum, s. 862 0512 og 860 8066. Námskeið Upledger stofnunin auglýsir Námskeið í orkuvinnu og samþættingu orkuvinnu við önnur líkamsmeðferðarform verður haldið 21.-24. apríl nk. Upplýsing- ar og skráning í síma 466 3090 og á www.upledger.is/greinar Talnaspekinámskeið - Tarot- námskeið. Fjarnám - bréfaskóli. Skráning og uppl. um námskrá og verð er á www.tarot.is og í s. 553 5381. Ný námskeið byrja viku- lega. Skráðu þig strax í dag. ROPE YOGA námskeið hefst í Baðhúsinu frá 1. apríl 2005. LEIÐBEINANDI verður Katr- ín Sigurðardóttir ROPE YOGA kennari. Skráning og nánari upplýsingar í símum 821 1399 og 553 1064 og á ida@mmedia.is. ENERGY FIELD THERAPY ORKUSVIÐSMEÐFERÐ 8—10 apríl Vinnur vel á fælni, fíkn og kvíða. Kennari Einar Hjörleifsson, sálfræðingur. Uppl. og skráning 699 8064. gunng@hvippinn.is Dáleiðsla - sjálfstyrking Gegn angist, óvissu og óöryggi. Reykingastopp, afsláttur fyrir hjónafólk. Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu- fræðingur, sími 694 5494. Til sölu Töfrateppið/Markaðsþjónn Ný sending af persneskum mottum, glæsilegt úrval. Opið 13-18. Rang- ársel 4, neðri hæð. S. 534 2288. Kristalsljósakrónur. Mikið úrval. Gott verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. Skattframtöl Framtal 2005 Framtalsaðstoð. Er viðskiptafræðingur - vanur. Sæki um frest. Upplýsingar í síma 517 3977. Þjónusta Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslimælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270.Ýmislegt Töfrateppið/Markaðsþjónn Ný sending af persneskum mottum, glæsilegt úrval. Opið 13-18. Rang- ársel 4, neðri hæð. S. 534 2288. Ofsa flottur, ber vel í CD skálum kr. 1.995, buxur í stíl kr. 995. Misty, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. er lífsstíll Fallegir litir, ótrúlega léttir, stærðir 36-41 kr. 2.500,- Misty-skór, Laugavegi 178, s. 551 2070. Fagleg ráðgjöf - góð þjónusta Bílar Subaru Legacy. Til sölu Subaru Legacy 1,8 árg. '90. Ný dekk. Verð kr. 70.000. Uppl. í síma 566 8801 eða 896 1603. Nissan Patrol Elegance 3.0, árg. 2000, ekinn 106 þús. 35" breyttur, mikið af aukabúnaði. Mjög gott eintak. Upplýsingar í síma 896 3098. MMC Lancer árg. '97 til sölu. Til sölu MMC Lancer árg. '97, ekinn 146 þús., nýkominn úr alþrifi og mössun. Verðhugmynd 480 þús. eða skipti á dýrari. Uppl. í síma 693 3235. MERCEDES BENZ, ÁRG. '97, E 50 AMG AVANTGARDE 374 hö. Bíll með öllum aukabúnaði. Verð 3,2 millj. eða 2.700 þús. stgr. 900 þús. kr. bílalán getur fylgt. Upplýsingar í síma 691 9610. Húsbíll Fíat Dethlef T.D. til sölu. Óvenju gott eintak. Með öllum þægindum. Verð kr. 1.950 þús. Uppl. í síma 898 8577. Bilarusa.com. BilarUSA getur aðstoðað þig við að flytja inn bíl- inn þinn eða við leitum að draumabílnum og komum honum heim. Íslenskir starfsmenn á staðnum. Sendið fyrirspurnir á info@bilarusa.com Jeppar Ford Explorer Sport Track árg. '02. Hlaðinn aukabúnaði. 4x4. Vél 4L. AC, hraðastillir, sjálfsk. Rafm. í speglum/rúðum o.fl. Ekinn 36 þ. m. Listaverð 2,7 m. Tilboð staðgr 2,4 m. Uppl. í s. 897 9227. Hjólbarðar 16" álfelgur og dekk til sölu 6 gata, passa undir MMC Pajero árg. 2000 og nýrri. Til valið sem aukagangur.Verð 24.000 kr. Uppl. í síma 820 6030 Ökukennsla Ökukennsla Ökukennsla, endurhæfing, akstursmat og vistakstur. Upplýsingar í símum 892 1422 og 557 6722, Guðbrandur Bogason. Varahlutir Jeppapartasala Þórðar, Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia Sportage '02, Pajero V6 92', Terrano II '99, Cherokee '93, Nissan P/up '93, Vitara '89-'97, Patrol '95, Impreza '97, Legacy '90-'94, Isuzu pickup '91 o.fl. Þjónustuauglýsingar 569 1111 FJARLÆGJUM STÍFLUR VALUR HELGASON ehf. Sími 896 1100 - 568 8806 Röramyndavél til að skoða og staðsetja skemmdir í frárennslislögnum DÆLUBÍLL úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum, niðurföllum, þak- og drenlögnum EINS og landanum er kunnugt slapp Bobby Fischer úr innflytjendabúðum í Japan í síðustu viku í kjölfar þess að Al- þingi Íslendinga hafði veitt honum rík- isborgararétt. Hann fór rakleiðis frá Japan og hélt áleiðis til síns nýja lands með viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar náði fréttamaður ríkis- sjónvarpsins viðtali við hann en fullyrt hefur verið að það hafi fengist fyrir tilstilli íslenskra stjórnvalda. Frá hinni gömlu höfuðborg Íslend- inga var heimsmeistarinn fyrrverandi selfluttur til staðar í Suður- Svíþjóð þar sem beið hans átta sæta einka- þota. Útrásarfyrirtækið Baugur Group kostaði för þotunnar og þegar nýi Íslendingurinn steig út úr henni á Reykjavíkurflugvelli kom fréttamaður Stöðvar 2 askvaðandi að honum og stýrði honum rakleiðis að glæsi- legri jeppabifreið. Á leiðinni þangað spurði fréttamaðurinn nokkurra spurninga og rétt áður en Bobby kom sér fyrir í tryllitækinu náði Guðmundur G. Þórarinsson naumlega að kasta á hann kveðju. Þegar jeppinn hafði verið fjarri flugvellinum í nokkrar mínútur sneri hann þangað aftur og var þá nánast enginn þar nema fréttamaðurinn sem hafði svo vasklega fylgt honum í öku- tækið. Bobby heimilaði einnar mínútu við- tal og við svo búið fór hann á Hótel Loft- leiðir þar sem hann hvíldi lúin bein. Aðgerðir starfsmanna fréttastofu Stöðvar 2 á Reykjavíkurflugvelli voru töluvert til umfjöllunar í ljósvakamiðlum föstudaginn langa og sættu þær gagnrýni af sumum meðlima RFJ-nefndarinnar. Af þessu til- efni gaf yfirmaður fréttastofunnar út fréttatilkynningu þar sem fram kom í meg- inatriðum að ekki hefði verið staðið óeðli- lega að málum að teknu tilliti til þess að fréttastofan væri í samkeppni. Sigur Stöðvar 2 í samkeppninni hafði í för með sér að fulltrúar margvíslegra er- lendra fréttastöðva sátu eftir með sárt ennið. Þeir létu þetta reiðarslag þó ekki á sig fá heldur örkuðu í húsakynni Tafl- félagsins Hellis í Álfabakka 14a í Mjódd og fylgdust þar með stigamóti félagsins. Þar voru viðtöl tekin og myndir teknar en fjöl- miðlar á borð við AP-fréttastofuna og The Guardian fundu með þessu óvænt og snjallt svar við harðsnúnum aðgerðum ís- lenskra sjónvarpsfréttastöðva. Keppendur á mótinu reyndu að halda ró sinni enda óvanir athygli heimspressunnar. Sigurður Daði Sigfússon (2.309) lét hvorki það né þátttöku þriggja alþjóðlegra meistara trufla sig heldur tefldi djarft til vinnings í hverri skák sem skilaði sér í öruggum sigri í A-flokki mótsins. Lokastaðan þar varð þessi: 1. Sigurður Daði Sigfússon 5 vinninga af 6 mögulegum 2. Davíð Kjartansson (2.290) 4½ v. 3.–6. Guðmundur Kjartansson (2.199), Sigurbjörn J. Björnsson (2.328), Jón Viktor Gunnarsson (2.380) og Snorri G. Bergsson (2275) 4 v. 7.–11. Jóhann Ingvarsson (2.058), Hrannar Baldursson (2.164), Ólafur Kjart- ansson (2.059), Lenka Ptácníková (2.280) og Sævar Bjarnason (2.288) 3 v. 12.–14. Jóhann Helgi Sigurðsson (2.061), Stefán Kristjánsson (2.438) og Sverrir Þor- geirsson (1.950) 2½ v. 15.–16. Atli Freyr Kristjánsson (1.910) og Sverrir Sigurðsson (2.010) 2 v. 17.–18. Hjörvar Steinn Grétarsson (1.680) og Daði Ómarsson (1.645) 1 v. Einnig var teflt í B-flokki og varð loka- staðan þar þessi: 1.–2. Matthías Pétursson (1.505) og Svanberg Már Pálsson (1.505) 5½ vinning af 6 mögulegum. 3. Helgi Brynjarsson (1.515) 4 v. 4.–6. Vilhjálmur Pálmason (1.495), Þorsteinn Leifsson (1.590) og Hall- gerður Helga Þorsteinsdóttir (1.350) 3 v. 7. Elsa María Þorfinnsdóttir (1.330) 2½ v. 8. Kristján Heiðar Pálsson (1.295) 2 v. 9. Hörður Aron Hauksson (1.435) 1½ v. 10. Mikael Luis Gunnlaugsson 0 v. Hér kemur ein stutt og snörp sókn- arskák hjá sigurvegaranum en andstæð- ingur hans lagði m.a. tvo alþjóðlega meist- ara á mótinu, þá Jón Viktor Gunnarsson og Sævar Bjarnason. Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon (2.309) Svart: Jóhann Helgi Sigurðsson (2.061) 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. Rf3 Rf6 5. Dc2 0–0 6. Bg5 h6 7. Bf4 Hefðbundnara er að leika 7. Bxf6 eða 7. Bh4. 7. … a6 8. g4?! dxc4 9. Hg1 Rc6 10. 0– 0–0 b5? Hér hefði 10. … Rb4 tryggt svörtum betra tafl. 11. g5! hxg5 12. Rxg5 b4? 13. Be5! g6? Nauðsynlegt var að reyna 13. … b3 þó að hvítur stæði þá vel að vígi. 14. Rxf7! Tætir svörtu kóngsstöðuna og tryggir að mátið verði ekki langt undan. 14. … Hxf7 15. Dxg6+ Kf8 16. Re4 c3 17. Rg5 17. Dh6+ Ke8 18. Rxf6+ hefði verið hlutlægt séð betra en sjálfsagt hefur Daði viljað máta sem fyrst. 17. … cxb2+? 17. … Hg7 hefði verið betra. 18. Kxb2 De8 19. Dh6+ Hg7 20. Rh7+ og svartur gafst upp enda óverjandi mát. Heimspressan fylgdist með stigamóti Hellis SKÁK Mjódd Stigamót Hellis 2005 22. mars – 26. mars daggi@internet.is Helgi Áss Grétarsson Sigurður Daði Sigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.