Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 www.1928.is ✃ Gæludýrarúm og -körfur í miklu úrvali Verð frá kr. 700 Taska kr. 3.500 Basttaska kr. 2.500 Hundasófar frá kr. 2.900 Hundabastsófi kr. 950 Hundahús með hanka frá kr. 1.500 Breytingar og þróunsem orðið hefur íflugrekstrarmál- um hérlendis og erlendis kalla á endurskipulag ým- issa þátta í flugþjónustu. Alþjóða flugmálastofnunin, ICAO, og Evrópusam- bandið hafa sett fram kröf- ur um aðskilnað á eftirliti og þjónustu í flugmálum. Samkeppni er víða að hefj- ast á sviði flugumferðar- þjónustu í millilandaflugi og íslenskir flugrekendur hafa haslað sér völl í er- lendum verkefnum í mjög auknum mæli. Útlit er fyrir að sú þróun haldi áfram. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra skipaði í árslok 2003 stýrihóp til að fara yfir framtíðar- skipan flugmála og hefur hún nú lokið störfum. Fram hefur komið að nefndin leggur til að stofnað verði hlutafélag um flugumferðar- þjónustu, flugvalla- og flugleið- söguþjónustu en að Flugmála- stjórn Íslands sinni áfram stjórnsýslu og flugöryggissviði. Formaður hópsins var Hilmar B. Baldursson, viðskiptafræðingur og yfirflugstjóri Icelandair og aðrir fulltrúar voru Bjarni Benediktsson alþingismaður, Ómar Benedikts- son forstjóri, Kristinn Árnason sendiherra og Svafa Grönfeld ráð- gjafi en Gunnar Jóhannesson ráð- gjafi tók sæti hennar um mitt síð- asta ár. Með hópnum störfuðu Jóhann Guðmundsson skrifstofu- stjóri, Þorgeir Pálsson flugmála- stjóri og Sigurbergur Björnsson skrifstofustjóri sem var ritari hópsins. Aukin skilvirkni Í samantekt stýrihópsins kemur fram að nauðsynlegt sé orðið að breyta nokkuð skipulagi er varðar eftirlit og þjónustu Flugmála- stjórnar. Hluti af eftirliti stofnun- arinnar er að hafa eftirlit með þjón- ustuþáttum hennar og til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra verði ekki hjá því komist að skilja að fag- lega yfirstjórn þessara málaflokka. Þá kemur fram að íslensk flug- málayfirvöld megi í engu slaka á flugöryggiskröfum og að þær séu í samræmi við önnur ríki í Evrópu og styðja við útrás íslenskra flug- rekenda með skilvirkri og sveigj- anlegri stjórnsýslu. Nýjasta skrefið í breytingum í flugmálaþjónustu er sú samkeppni í flugumferðarþjónustu sem er ver- ið að taka upp í nágrannalöndum og segir stýrihópurinn brýnt að bregðast við þessari þróun. Flug- málayfirvöld og flugrekendur þrýsta á að fækkað verði flug- stjórnarsvæðum í Evrópu, komið á samevrópsku loftrými, og hafa breytingar á skipulagi flugmála í löndum Evrópusambandsins mið- ast að því að ná þessu markmiði og um leið að auka samkeppnishæfni í flugumferðarþjónustu. Stýrihópurinn segir að skapa verði íslenskri flugumferðarþjón- ustu skilyrði til að eflast enn frekar og takast á við aukna samkeppni. Annars sé hætt við að sú alþjóðlega flugumferðarþjónusta, sem hér hefur verið veitt um áratugaskeið, hverfi úr landinu. Meðal breytinga er taldar eru nauðsynlegar eru þær er snerta gjaldskrár sem nú eru meira og minna bundnar í lög. Gjaldskrár- breytingar eru því háðar samþykki Alþingis sem þýðir að starfsemin verður ekki eins sveigjanleg. Bent er á að með meiri sveigjanleika í þeim efnum geti flugrekendur e.t.v. hagrætt starfsemi sinni og þeim verið umbunað með lægri gjaldtöku. Þá er talið mjög mikilvægt að eftirlitsstarfsemi Flugmálastjórn- ar verði færð undir B-hluta fjár- laga. Með því er einnig skapaður meiri sveigjanleiki til að sinna auknum verkefnum sem fylgir út- rás íslenskra flugrekenda. A-hluta- stofnun sé bundin fjárlögum en B- hlutastofnun sé með sjálfstæðan fjárhag og geti myndað eigið fé og tekið lán. Aukin umsvif íslenskra flugrekenda kalli á eftirlit og skráningu út um allan heim og því geti verið erfitt að sjá slík útgjöld fyrir með þeim fyrirvara sem fjár- lagagerðin krefst. Talsverður kostnaðarauki Talið er að rekstrarkostnaður sem fylgir því að skilja að eftirlit og þjónustu muni aukast um 110 millj- ónir króna á ári. Hópurinn gerir ráð fyrir að samkeppnishæfari þjónusta og aukinn sveigjanleiki gefi færi á auknum tekjum og að staða Íslands á sviði flugþjónustu yfir Norður-Atlantshafið verði áfram öflug og gefi sóknarfæri. Telja má að meiri hvati til þróunar verði með breytingu þjónustunnar í hlutafélag og að samstarf við er- lenda og innlenda aðila muni aukast. Hópurinn bendir á starf Flugfjarskipta sem dæmi um slíka breytingu en þau veita í dag þjón- ustu á sviði flugleiðsögu og eru í eigu Flugmálastjórnar. Að öðru leyti gerir stýrihópurinn ráð fyrir að mæta megi kostnaðaraukningu með fjármagni frá ríkissjóði, að þjónustufyrirtækið greiði fyrir eft- irlit með flugvöllum og flugumferð- arþjónustu og í þriðja lagi að Flug- málastjórn hækki gjaldskrá en þó ekki svo að kostnaður flugrekenda verði hærri en í löndum sem Ísland ber sig saman við. Fréttaskýring | Hugmyndir um að skilja að stjórnsýslu og þjónustu í flugmálum Aukin sam- keppni líkleg Stefnt að því að koma í veg fyrir hags- munaárekstra með nýskipan flugmála Útrás flugfélaganna kallar á sveigjanleika. Hefja þarf undirbúning breytinganna í haust  Stýrihópur um framtíðar- skipan flugmála leggur til að strax verði ráðist í að hrinda til- lögum hópsins í framkvæmd. Fyrsta skrefið er undirbúningur lagabreytinga sem þyrfti að leggja fram á haustþingi 2005. Einnig þarf að huga að breyt- ingum á reglugerðum í samræmi við skipulagsbreytingarnar og síðan stofnun hins nýja hluta- félags eins og tillögurnar gera ráð fyrir. Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is gjaldflokka yrðu sett, það yrðu allt- af einhverjir sem lentu rétt fyrir of- an þau. En hvernig stendur þá á því að fólksbílar með tengivagna, sem samtals eru talsvert meira en 6 metra langir, eru í lægsta gjald- flokki? „Það var gert að beiðni Umferð- arstofu að rukka ekki fyrir eft- irvagna sem ekki eru skráning- arskyldir. Það var talið æskilegt að draga úr því að verið væri að draga þessa vagna fyrir Hvalfjörð í mis- jöfnum veðrum. Ef bílar eru með skráningarskylda eftirvagna, yfir 750 kg, færast þeir upp um gjald- flokk,“ sagði Marinó. Eftir lækkun gjaldskrárinnar hefur orðið vart aukningar á sölu áskrifta og leigu veglykla að sögn Marinós. Einnig hafa margir flutt sig úr 40 ferða áskrift í 100 ferða til að njóta lægsta veggjalds. Hægt er að tengja fleiri en einn veglykil við hvern áskriftarreikning. VEGFARENDUR eru almennt ánægðir með lækkun veggjalds í Hvalfjarðargöngum, að sögn Sig- rúnar Karlsdóttur, sem var á vakt í gjaldskýlinu í gær. „Það eru helst þeir sem kaupa stakar ferðir, á 1.000 krónur, sem nefna að það gjald hefði einnig mátt lækka,“ sagði Sigrún. Verð á stökum ferðum stóð í stað þegar verð á áskrift og afslátt- arkortum var lækkað 1. apríl síð- astliðinn. Í gjaldflokki fólksbíla er lægst veggjald hjá þeim sem kaupa 100 ferðir í áskrift, 290 krónur. Í 40 ferða áskrift er gjaldið 390 krónur. Einnig er hægt að kaupa 10 miða afsláttarkort í gjaldskýlinu á 6.000 krónur, eða 600 krónur ferðina. Sigrún taldi að lækkun veggja- ldsins yrði til þess að fólk notaði göngin meira. Gunnar Sigurjónsson var einnig á vakt í skýlinu, en vaktmenn eru alls átta og vinna á átta stunda vöktum allan ársins hring. Hann sagðist hafa orðið var við að öku- menn bíla, sem eru meira en 6 metra langir eins og stærri amer- ískir pallbílar, séu sumir óánægðir með að þurfa að greiða 3.000 krón- ur fyrir hverja ferð. Vaktmenn hafa aðgang að bifreiðaskrá og geta flett þar upp lengd ökutækis sé ökumaður í vafa um lengd þess. Aukning í sölu áskrifta Marinó Tryggvason, afgreiðslu- stjóri Spalar, leit við í gjaldskýlinu meðan blaðamenn voru þar í heim- sókn. Aðspurður sagði hann það ekki vera til umræðu að lækka veggjald á bíla sem eru yfir 6 metra langir, eða að taka upp nýjan gjald- flokk fyrir amerísku pallbílana. „Þetta eru vörubílar, með 0–13% vörugjald meðan fólksbíll er með 45%, og þarf aukin ökuréttindi til að aka þeim,“ sagði Marinó. Hann taldi að það væri sama hvar mörk Ánægja með lægra gjald í Hvalfjarðargöngin Morgunblaðið/RAX Sigrún Karlsdóttir, Marinó Tryggvason og Gunnar Sigurjónsson við gjaldskýli Hvalfjarðarganga. ÆFINGIN Hvalfjarðargöng 2005 verður á laugardaginn kemur, 16. apríl, til að samhæfa viðbrögð vegna hópslyss. Göng- in verða lokuð af því tilefni kl. 8– 15. Ætlunin er að sviðsetja árekstur þar sem koma við sögu rúta og tveir fólksbílar neðst í göngunum. Tugir manna slasast og kviknar í einum bílanna. Ætla má að allt að 200 manns taki þátt í æfingunni, sem er sú fyrsta sinnar tegundar í veg- göngum hérlendis. Markmið almannavarnaæf- ingarinnar er að láta reyna á viðbragðsáætlun Hvalfjarðar- ganga sem tók gildi í maí 2004. Þátttakendur í æfingunni eru meðal annars Neyðarlínan, slökkvilið og lögregla beggja vegna Hvalfjarðar, embætti rík- islögreglustjóra, Sjúkrahús og heilsugæslustöðin Akranesi, Landspítalinn – háskólasjúkra- hús, Landhelgisgæslan, björg- unarsveitir, Rauði krossinn og Spölur. Að auki koma tugir manna af Akranesi og úr Reykjavík að æfingunni sem leikarar í hlutverkum slasaðra. Hvalfjarðar- göng lokuð vegna al- mannavarna- æfingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.