Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Soffía Sigur-björg Jóhanns- dóttir frá Syðra- Vatni í Efri-Byggð í Skagafirði fæddist í Keldnakoti í Sléttu- hlíð í Skagafirði 13. febrúar 1928. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akur- eyri föstudaginn langa, 25. mars síð- astliðinn. Foreldar hennar voru Jóhann Sigurðsson, f. 19.7. 1884 í Dæli í Svarf- aðardal, d. 27.7. 1936, síðast bóndi í Keldnakoti, og Þórunn Sigríður Jóhannesdóttir, f. 14.1. 1888 á Ósi í Hörgárdal, d. 10.3. 1982 á Akureyri. Þórunn Sig- ríður var áður gift Jóni Þorbergi Jónssyni, sjómanni, hann fórst með hvalfangaranum Maríönnu í maí 1922. Þau eignuðust átta börn, þrjú þeirra dóu í æsku úr barnaveiki. Albróðir Soffíu var Jón Kári Jó- hannsson, f. 20.12. 1923. Hann bjó lengi á Syðra-Vatni. Þau hálfsystk- ini Soffíu Sigurbjargar sem lifðu voru: Björg Lilja, f. 1908; Jóhann- 8. 1981. 2) Þórunn Sigríður, f. 3. 11. 1949, sjúkraliði á Akureyri. Dóttir hennar og Haka Guðmundar Jó- hannessonar er Embla Rún, f. 1.11. 1986. 3) Ingveldur, 1953, d. sama ár. 4) Inga Aðalheiður, f. 28.9. 1955, gift Valdimar Þórhallssyni, múrarameistara á Akureyri. Börn þeirra eru: a) Soffía Þórunn, f. 11.1. 1975, b) Hermann Árni, f. 25.9. 1980, c) Ólöf Rún, f. 11.2. 1982, d) Hjálmar Freyr, f. 22.7. 1986. 5) Jóhann Kári, bóndi á Syðra-Vatni, f. 24.1. 1959. Börn hans eru; Jón Kristján, Sigurður, Hjálmar Birgir, Helga Dóra og Halla Vigdís. 6) Ólöf Rún, f. 1956, lést af slysförum á Akureyri 1981. Soffía Sigurbjörg ólst upp í Skagafirði. Hún var tvo vetur á Blönduósi. Seinni veturinn, 1946– 1947, stundaði hún nám við Kvennaskólann sem þá var þar. Á Syðra-Vatni bjuggu Soffía Sigur- björg og Hjálmar Sveinsson þar til þau fluttu til Akureyrar árið 1979. Á Akureyri bjuggu þau lengst af í Gránufélagsgötu 29 en síðustu árin í Norðurgötu 60. Útför Soffíu Sigurbjargar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. es, f. 1911; Guðrún María, f. 1913; Sæunn, f. 1918; og Óskar, f. 1. júní 1921. Eftir lát Jóns Þorbergs flutti Þórunn úr Fljótum í Sléttuhlíð í Skagafirði ásamt ráðsmanni sín- um, Jóhanni Sigurðs- syni. Jóhann lést árið 1933. Þau eignuðust tvö börn: 1) Soffíu Sig- urbjörgu, f. 13. 2. 1928, og 2) Jón Kára, f. 20.12. 1923, d. haustið 2003. Hann var búsett- ur á Syðra-Vatni frá því um 1960. Árið 1947 flutti Soffía Sigur- björg í Syðra-Vatn í Efri-Byggð í Skagafirði og hóf búskap með Hjálmari Sveinssyni bónda þar, f. 14.1. 1913 á Giljum í Vesturdal í Skagafirði, d. 28.9. 2004 á Akur- eyri. Þau eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Sveinn, f. 10.3. 1948. tog- araskipstjóri á Akureyri. Kona hans er Guðrún Jónsdóttir, f. 8.9. 1953. Þau eiga þrjú börn. Þau eru: a) Auður Úa, f. 21.1. 1976, b) Þóra Ýr, f. 19.3. 1978, c) Hildur Ey, f. 5. Merk kona, Soffía Sigurbjörg Jóhannsdóttir, hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Þeir sem kynntust henni vita að það var henni ekki að skapi að mikið yrði skrifað um hana að henni genginni. Ber að virða það. Um afa Soffíu Sigurbjargar, Sig- urð Guðmundsson í Helgafelli í Svarfaðardal, er til merkur þáttur í bókinni Sterkir stofnar eftir Björn R. Árnason. Þar er mannkostum Sigurðar lýst, en með dugnaði, þrautseigju og nægjusemi tókst honum að brjótast úr fátækt í æsku. Hann breytti örreytiskoti í góða bújörð og kom stórum barna- hópi til manns. Hann var hrein- skiptinn í viðskiptum við alla sem í hlut áttu og sparaði ekki fyrirhöfn ef hann gat rétt öðrum hjálpar- hönd. Umhyggja hans fyrir mönn- um og skepnum var einstök. Það er þeim ljóst sem kynntust Soffíu Sig- urbjörgu að hún hefur sótt sína eðlisþætti til afa síns, Sigurðar í Helgafelli. Og ævir þeirra voru ekki svo frábrugðnar þegar allt kemur til alls. Fáum árum eftir að þau Soffía Sigurbjörg og Hjálmar fluttu til Akureyrar keyptu þau lítið hús sem stendur á stórri lóð við Gránu- félagsgötu 29 á Oddeyri. Fyrri eig- andi hafði hafið endurbætur á húsi og lóð en því verki hélt Soffía áfram. Og þegar þau fluttu þaðan fyrir fáeinum árum var eftir því tekið hvað garðurinn var ræktar- legur og fallegur, með miklum trjá- gróðri og blómabeðum og húsið og garðurinn nú til prýði í umhverf- inu. Þeir voru margir sem leituðu á fund Soffíu með erindi sín. Oft fólk sem ekki síst þurfti á andlegum stuðningi að halda. Meðfæddar sál- argáfur hennar ásamt þolinmæði, meðfæddri glaðværð, umhyggju fyrir minni máttar og trausti á Himnasmiðinn gerðu hana að græðara í bestu merkingu orðsins. Munu margir minnast hennar með þakklæti. Það kom jafnvel fyrir að lærðustu læknar undruðust innsæi hennar á mannanna mein. Þakkaði hún reynslunni fyrir þekkingu sína en fleira mun hafa komið til. Hún hafði þær sálargáfur að geta séð hluti sem öðrum voru huldir þótt hún flíkaði því lítt. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir einstakan stuðning, vináttu og hjálpsemi í veikindum og við andlát Ágústu Magnúsdóttur á sínum tíma. Karl Smári Hreinsson. SOFFÍA SIGURBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér samúð og vináttu við andlát og útför systur minnar, SIGRÍÐAR STEINUNNAR ODDSDÓTTUR, Álfhólsvegi 12, Kópavogi. Áslaug Oddsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, GUÐRÚNAR KR. INGVARSDÓTTUR, Foldahrauni 40, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Vestmannaeyja. Fyrir hönd aðstandenda, börn hinnar látnu. Útför okkar ástkæru eiginkonu, systur, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSLAUGAR GUÐLAUGSDÓTTUR, Einimel 5, Reykjavík, fer fram frá Neskirkju föstudaginn 15. apríl kl. 13.00. Aðalsteinn Júlíusson, Margrét Kröyer, Júlíus Aðalsteinsson, Helga Hallgrímsdóttir, Björn Aðalsteinsson, Björk Hreinsdóttir og barnabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar og ömmu, FRIÐGERÐAR RANNVEIGAR KJÆRNESTED FINNBJÖRNSDÓTTUR, Garðvangi, Garði, áður til heimilis á Birkiteigi 13, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Garðvangi fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Guð blessi ykkur öll. Auðunn Páll Gestsson, Steinunn Sigríður Gestsdóttir og barnabörn. Föðursystir mín, GUÐLAUG STEFÁNSDÓTTIR frá Syðri-Bakka, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 12. apríl. Sigrún Höskuldsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN SVEINSDÓTTIR frá Varmá, Hveragerði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, mánudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju laugar- daginn 16. apríl kl. 14.00. Valborg Guðmundsdóttir, Ragna Rósberg Hauksdóttir, Stefán Óskarsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Sveinn B. Sigurjónsson Guðrún Friðriksdóttir, Sigríður Sigurjónsdóttir, Pálína Sigurjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hinn 24. mars síð- astliðinn lést í Huldu- hlíð á Eskifirði móð- ursystir mín, Sigur- borg Rakel Sigurðardóttir, eftir erfið og löng veikindi. Hún var næstelst systkina sinna. Sigurborg fór ung að heiman og réð sig í vist á Ísafirði. Hún stundaði nám við Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði í eitt ár og vann svo fyrir sér þar til að foreldrar hennar fluttu frá Hesteyri til Keflavíkur um 1946. Þau keyptu sér hús við Kirkjuveg 45 og flutti hún til þeirra þar sem móðir hennar var með tvær yngstu dætur sínar ungar. Fríða var þá á sjötta ári og Guðný á öðru ári. Þar aðstoðaði hún foreldra sína eins og hún gat. Muna þær Fríða og Guðný eftir hlýju og skemmtilegum tíma með Boggu. Hún stundaði ýmsa vinnu í Keflavík. Um árið 1960 ræður hún sig í kaupavinnu í Grænuhlíð í Reyðarfirði. Þar var bóndi Jóhann K. Björgvinsson, þá nýlega orðinn ekkjumaður. Felldu þau hugi saman og gengu í hjóna- band 22. júlí 1961. Var Bogga hús- móðir í Grænuhlíð upp frá því. Þeim hjónum varð ekki barna auð- SIGURBORG SIGURÐARDÓTTIR ✝ Sigurborg RakelSigurðardóttir fæddist í Hælavík á Hornströndum 29. ágúst 1919. Hún lést á Hulduhlíð, dvalar- heimili aldraðra á Eskifirði, 24. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Reyðarfjarðar- kirkju 7. apríl. ið, en tóku að sér bróðurson Boggu, Arnór Baldvinsson, sem var fæddur 8.12. 1961. Hann var þeim mikil gleði og stoð og stytta við búskapinn. Arnór hefur búið í Bandaríkjunum und- anfarin ár en alltaf komið öðru hvoru. Þar á hann konu og litla dóttur sem ber nafn ömmu sinnar Laila Sigurborg. Þegar Jóhann lést 2003 var Arnór rétt farinn úr landi. Sneri hann því strax aftur og fylgdi honum til grafar. Fyrstu ár Boggu í Grænu- hlíð voru fyrir austan sumarlangt. Systkini mín, þau Kjartan, Lilja, Guðmundur og Sigrún, voru öll mjög ánægð þegar þau komu heim á haustin. Oft dvöldu þau Jóhann og Bogga með Arnór hjá foreldrum mínum í Löngubrekku 47 í Kópa- vogi ef þau þurftu af einhverjum ástæðum að vera í bænum. Þá var oft mjög gaman og glatt á hjalla. Ég dvaldi hjá Sigurborgu og Jó- hanni veturinn 1972–1973 og var það góður tími. Rafmagn kom seint í Grænuhlíð svo ekki var alltaf gott að vera húsmóðir þar, en Boggu tókst hið ótrúlega, að halda heim- ilinu hreinu og fallegu. Hún var mikil og góð húsmóðir, var dugleg að baka í olíueldavélinni en mikið þótti okkur skrýtið að koma þang- að í gamla tímann. Tvær gamlar sögur eru mér minnisstæðar. Sú fyrri er Lilja systir ætlaði að gefa Boggu ráð um barnauppeldi en hún hélt því fram að hún hefði alið upp öll sín systk- ini og líka Kjartan bróður sem var þó einu og hálfu ári eldri en hún, en svona var bara Lilja, hún kunni þetta allt betur en aðrir. Svo er sagan af „dauða“ Guðmundar bróð- ur en hann hafði „tekið að láni“ klofstígvél Jóhanns sem að sjálf- sögðu voru allt of stór á hann, og þegar hann ætlaði að vaða Stuðla- ána þá flaut hann upp og fóru þá systkini hans og sögðu Boggu að Guðmundur væri dauður. Þetta fannst Boggu ekkert fyndið. Það var blautur og beygður Guðmund- ur sem sneri aftur heim í Grænu- hlíð. Svo liðu árin, og heilsan tók að bila hjá þeim báðum og fluttu þau þá í Hjúkrunarheimilið Hulduhlíð á Eskifirði, og þar leið þeim vel og dvöldu þar bæði til æviloka. Jó- hann lést 2003, en heilsa Boggu versnaði ár frá ári. Á Reyðarfirði bjuggu tveir bræður Arnórs, þeir Baldvin og Stefán, og trúi ég að þeir hafi litið til með frænku sinni. Síðasta skipti sem ég sá hana var þegar hún dvaldi hér á FSA vegna lærbrots, sem hún náði sér þó aldrei af. Ég vil að lokum þakka yndislegri frænku fyrir allt, færi Arnóri og hans fjölskyldu mínar innilegustu samúðarkveðjur, systrum hennar sem eftir lifa og öllum sem kynnt- ust henni í gegnum tíðina. Elsku Bogga, nú hefur þú loks- ins fengið hvíldina og vonandi hafa Jóhann og allir þeir sem hafa farið á undan þér tekið vel á móti þér. Því miður átti ég ekki kost á að fylgja þér síðasta spölinn en ég vil þakka allar stundirnar sem við átt- um saman í gegnum tíðina. Ég bið þér guðs blessunar á nýjum stað í eilífðinni. Þín systurdóttir, Gunnhildur Hjartardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.