Morgunblaðið - 11.07.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.07.2005, Qupperneq 31
óhefðbundnar leiðir, en allt er gert til þess að íbúðirnar njóti útsýnisins sem best. Í öllum íbúðum verða sval- ir með glerlokum og hægt að opna þær þegar hentar, en svalarými verða óupphituð. Yfirbyggðar svalir margfalda notkunar- og útsýnis- möguleikana, en svalir eru stórar eða 7–9 ferm. og fleygaðar en ekki kassa- laga eins og tíðkast í svo mörgum öðrum fjölbýlishúsum. „Við hönnun hússins er fyrst og fremst tekið mið af landslaginu og af sólaráttinni,“ segir Björn.. „Allar íbúðirnar njóta mikils út- sýnis og íbúðir á efstu hæðunum njóta framúrskarandi útsýnis, en íbúðunum er komið þannig fyrir, að þær njóta allar útsýnis og sólar. Það er auðvitað mjög sérstakt og ég geri ekki ráð fyrir, að það sé mikið af slík- um íbúðum á höfuðborgarsvæðinu.“ „Við hönnun hússins var það jafn- framt haft að leiðarljósi að hafa sem allra minnst af föstum inniveggjum,“ heldur Björn áfram. „Markmiðið var að gefa öllum sól og útsýni og síðan getur fólk gert það inni hjá sér sem það vill. Inniveggir eru því yfirleitt léttir veggir en ekki burðarveggir.“ Mikil reynsla af nýbyggingum ÞG verktakar eru meðal stærstu verktakafyrirtækja landsins og hafa að baki áralanga reynslu í fram- kvæmdum fyrir opinbera aðila, stór- fyrirtæki og einstaklinga ásamt því að byggja atvinnu- og íbúðarhúsnæði á eigin vegum. Fyrirtækið hefur m. a. byggt Prentsmiðju Morgunblaðsins við Hádegismóa, höfuðstöðvar Orku- veitu Reykjavíkur, stærstu bygging- arvöruverslun landsins fyrir Húsa- smiðjuna og stækkun Nesjavallavirkjunar, svo að eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á undanförnum árum og á þessu ári er velta þess áætluð um fjórir milljarð- ar kr. Hjá fyrirtækinu starfa að jafn- aði vel á annað hundrað manns í út- boðsverkum og eigin framkvæmdum og á þessu ári lýkur fyrirtækið við smíði á um eitt hundrað nýjum íbúð- um. Við afhendingu nýrra íbúða er gerð sameiginleg úttekt með nýjum íbúðareigendum. Framkvæmdir við fjölbýlishúsið Hörðukór 1 hafa gengið vel, en þær hófust fyrir þremur mánuðum og íbúðirnar á að afhenda í apríl-maí á næsta ári. Að sögn þeirra Þorleifs Guðmundssonar hjá Eignamiðlun- inni og Magnúsar Geirs Pálssonar hjá Borgum, en íbúðirnar eru til sölu hjá þessum tveimur fasteignasölum, eru söluhorfur góðar. „Þeir sem sækjast eftir þessum íbúðum, er fólk sem vill útsýni og set- ur það ekki fyrir sig, þó að þetta hús standi hátt og það blási í kringum það,“ segja þeir Þorleifur og Magnús Geir. „Þetta fjölbýlishús stendur þannig gagnvart útsýni, að það ger- ist ekki betra hér á landi. Þar að auki er húsið í grennd við stór útivistar- svæði og sjálfa náttúruna við Elliða- vatn og í Rjúpnahæð.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Framkvæmdir við fjölbýlishúsið við Hörðukór 1 hafa gengið vel, en þær hófust fyrir þremur mánuðum. Íbúðirnar á að af- henda í apríl-maí á næsta ári. Eins og sést á myndinni, skiptist húsið í tvær álmur í austur og vestur, sem er gert til þess að allar íbúðirnar njóti suðurútsýnis og sólar. Það er eitt aðaleinkenni þessa húss. Það er líflegt um að litast þessa dagana, þegar ekið er um Kórahverfi. Hvar- vetna blasir við mikil uppbygging. Alls staðar má sjá krana og önnur stórvirk tæki að verki, en þessu hverfi er ætlað mikið hlutverk í framtíðinni. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 F 31 ÞJÓNUSTUSÍMI EFTIR LOKUN 664 50 60 Hamraborg 5, 200 Kópavogi husin@husin.is 53 50 600 Fax 53 50 601 Sveinn Ó. Sigurðsson lögg. fasteignasali VANTAR ALLAR EIGNIR Á SKRÁ HRINGDU NÚNA! Valgeir Kristinsson Lögg. fasteignasali Edgardo Solar Sölumaður Kjartan Sverrisson Sölumaður Vigfús Hilmarsson Sölumaður Kristján Grétarsson Sölumaður Sigurður I.B. Guðmundsson Sölumaður RJÚPNASALIR Vorum að fá í einkasölu glæsilega 130,2 fm 4ra herb. útsýnis- íbúð í viðhaldslitlu lyftuhúsi. Komið er inn í flísalagt hol með marmarakorki á gólfi og góðum skápum, þaðan í sjónvarps- hol með parketi, þrjú herbergi með skápum, parketlögð, flísa- lagt baðherbergi með nuddbaðkari, stofa með parketi, gengið út á yfirbyggðar flísalagðar svalir úr stofu, opið inn í eldhús með borðkrók og mahóníinnréttingum, einnig eru skápar og hurðir úr sama við. Þvottahús er inn af eldhúsi, sérgeymsla og hjólageymsla í kjallara. Verð 28,5 millj. (4436) EFSTIHJALLI - 4RA HERB. Góð 100 fm 4ra herbergja íbúð í litlu fjölbýli á rólegum stað í botnlanga. Parket á stofu og svefnherbergi og flísar á holi. Góðar suðvestursvalir. Gervihnattadiskur. Ýmislegt endurnýj- að, s.s. hurðir, dúkur á baði, gluggar og parket á svefnherb. Stór geymsla í kjallara. Skemmtileg eign í vel staðstettu fjöl- býli. Húsið er nýlega málað að utan. Verð 20 millj. (H1005) BIRKIÁS - GARÐABÆ Glæsilegt 180,4 fm 5-6 herbergja raðhús með 31,7 fm bílskúr, samtals 212,1 fm, við Birkiás í Garðabæ. Raðhúsið er á tveim- ur hæðum og er neðri hæðin séríbúð í útleigu. Efri hæðin skiptist í forstofu, þvottaherbergi, eldhús, stofu, gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Neðri hæðin skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi/geymslu, stórt svefnher- bergi og sérinngang. Tilboð óskast (1047) TÆKIFÆRI Í FERÐAÞJÓNUSTU Tækifæri til að byggja upp eigin atvinnurekstur á sælustað á landsbyggðinni. Verslun, veitingahús og eldsneytissala ásamt 117 fm íbúðarhúsi að Skriðulandi í Saurbæjarhreppi. Er í alfaraleið til Vestfjarða umkringt fallegri náttúru u.þ.b 200 km frá Reykjavík. Möguleiki er á að innrétta gott gistirými í hús- næðinu. Áhugavert tækifæri á vaxandi ferðamannasvæði. Fjölbreytilegir möguleikar á ferðaþjónustu og útivistar. Stutt á vinsæla ferðamannastaði á Ströndum og Barðaströnd. ÝMIS SKIPTI KOMA TIL GREINA. TILBOÐ ÓSKAST (1000) NÝBÝLAVEGUR Mjög opin og skemmtileg 4ra herbergja 112 fm efri sérhæð með tvennum svölum, í suður og norður. Á hægri hönd er svefnherbergi og geymsla. Af ganginum er gengið inn í stóra og bjarta stofu. Baðherbergið er allt nýtt. Eldhúsið er nýtt og er opið með eldunareyju. Nýtt parket er á stofu, eldhúsi og gangi og flísar á gólfi í hjónaherbergi. 40 fm suðursólpallur. Verð 21,7 millj. (1015) 2ja herbergja ASPARFELL - RVK Falleg 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í lyftuhúsi. Góðar innréttingar og gólfefni. Rúmgóðir skápar í svefn- herbergi og upprunaleg innrétting á baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Eldhúsið er vel tækj- um búið með ágætri innréttingu. Gervihnattasjón- varp í öllu húsinu. Seljandi er tilbúinn að leggja nýtt parket á íbúðina fyrir réttan kaupanda. Verð 11,4 millj. (H1009) www.husin.is 3ja herbergja KRISTNIBRAUT Góð og björt 85,8 fm íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi við Kristnibraut í Reykjavík með sérinngangi af svöl- um. Rúmgóð og fallega flísalögð forstofa með fata- hengi. Bæði svefnherbergin eru með rúmgóðum fataskápum og fallegu parketi á gólfum. Baðher- bergið er mjög rúmgott með baðkari og flísalagt með fallegum flísum. Rúmgóð stofa og eldhús sem er vel tækjum búið með nýjum ofni og nýrri eldavél. Bæði eldhúsið og stofan eru parketlögð. Frá stof- unni er gengið út á verönd sem tengist mjög stórri sameiginlegri lóð. Íbúðinni fylgir stæði í opnu bíl- skýli á jarðhæð. Verð 21,9 millj. LAUFRIMI - GRV Útsýnisíbúð á þriðju hæð á besta stað í Grafarvogi. Flísar eru á forstofu og baðherbergi. Stórt svefn- herbergi og annað minna á ganginum ásamt geymslu og rúmgóðu baðherbergi með sturtu í bað- kari og aðstöðu fyrir þvottavél. Dúkur er á gólfi á baðherberginu, en flísar á veggjum og á baðkari. Stofan er stór og opin inn í eldhús, sem er rúmgott og með upprunalegri innréttingu. Hægt er að ganga út á norðvestursvalir úr stofunni sem vísa að garði með leiktækjum. Verð 17,5 millj. (739) Atvinnuhúsnæði HVALEYRARBRAUT Húseign á hafnarsvæðinu í Hafnarfirði. Uppsteypt húseign sem að hluta til hefur verið breytt í íbúðar- rými til útleigu. Tvö góð iðnaðarbil með stórum inn- keyrsludyrum. Eign sem býður upp á fjölbreytta möguleika. Verð 48,5 millj. (H1048) SÍÐUMÚLI - GÓÐIR LEIGU- SAMNINGAR Mjög gott 192,4 fm skrifstofuhúsnæði í mjög mikið endurnýjuðu húsi við Síðumúla í Reykjavík. Húsnæð- ið er í dag nýtt fyrir 10 skrifstofuherbergi sem flest eru í útleigu, sameiginlegt fundarherbergi, kaffi- aðstöðu, snyrtingu og rúmgott miðrými. Mjög auð- velt er að breyta húsnæðinu eftir þörfum hvers og eins. Góðir leigusamningar fylgja. Tilboð óskast. Fyrirtæki SÖLUTURN Góður grillstaður í Austurbæ Reykjavíkur til sölu. Um er að ræða rekstur með öllu. Spilakassar, grill og lottó. Miklir tekjumöguleikar. Tilboð óskast. (885) Áhersla er lögð á létta inniveggi og nútímalegt yfirbragð inni í íbúðunum. Mynd- in sýnir glöggt hve stórir útsýnisgluggarnir eru og hve vel rýmið nýtist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.