Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 45 DAGBÓK Er löggiltur fasteignasali a› selja eignina flína? sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17 Hjá Heimili fasteignasölu starfa fjórir löggiltir fasteignasalar sem hafa áralanga reynslu af fasteigna- vi›skiptum. fia› er flví löggiltur fasteignasali sem heldur utan um allt ferli›, allt frá flví eignin er sko›u› og flar til afsal er undirrita›. Metna›ur okkar á Heimili er a› vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu- brög› sem tryggja flér besta ver›i› og ábyrga fljónustu í samræmi vi› flau lög og reglur sem gilda um fasteignavi›skipti. Finbogi Hilmarsson lögg. Fasteignasali Einar Gu›mundsson lögg. Fasteignasali Anney Bæringsdóttir lögg. Fasteignasali Bogi Pétursson lögg. Fasteignasali Hafdís Björnsdóttir Ritari FSS er félag STK stúdenta en STK er ís-lensk útgáfa ensku skammstöfunar-innar LGBT, sem stendur fyrir sam-kynhneigða, tvíkynhneigða og kynskiptinga. Guðlaugur Kristmundsson er alþjóðafulltrúi fé- lagsins: „Þetta er hópur fólks á aldrinum 18 til 30 ára og annarra sem eru í námi. Í félaginu er STK fólk og velunnarar málstaðarins.“ Á vegum FSS er fjölbreytt starfsemi: „Við höldum alls kyns viðburði þar sem fólk getur fengið að kynnast innbyrðis og styrkjum þannig félagsnetið. Einnig sinnum við ýmissi fræðslu- starfsemi, þrýstum á yfirvöld þegar þörf er á og minnum námsráðgjafa og skólayfirvöld á okkur og okkar málstað. Einnig eigum við í samstarfi við önnur samtök, störfum t.d. með Samtökunum 78, reynum að koma kvikmyndahátíð á koppinn og tökum þátt í að gera Gay Pride að veruleika. Einnig er í burðarliðnum að gefa út lítið fréttarit en þessa dagana einbeitum við okkur að því að undirbúa kynningarstarf fyrir nýnema hausts- ins.“ Þá er ónefnd alþjóðleg starfsemi FSS sem er ekki lítil: „Við erum að fara á ráðstefnu, lítill hóp- ur, þar sem saman koma 13 systurfélög FSS í Evrópu.“ Um er að ræða verkefni sem fyrst hóf göngu sína með ráðstefnu í Bratislava árið 1999 en síðast var ráðstefna félagahópsins haldin í Reykjavík í fyrra. Dagskráin verður haldin í þremur borgum. Í nóvember voru lagðar línurnar fyrir umræðuefni ráðstefnunnar og verður fyrsta umræðuefnið skólakerfið, annan dag munu ráðstefnugestir ræða ýmiss konar fælni: „Við fjöllum bæði um fóbíur innan okkar samfélags, s.s. milli lesbía og homma, gagnvart tvíkynhneigðum og kynskipt- ingum. Einnig ræðum við um fóbíur í samfélaginu almennt gegn hópum sem skera sig úr, hvort heldur það eru fatlaðir, aldraðir eða aðrir, og hvernig takast má á við slíkt.“ Þá fjallar ráðstefnan um sjálfsmorð: „Þar ætl- um við aðallega að ræða um hvað er gert í hverju landi til að koma í veg fyrir sjálfsmorð. Síðasta efni á dagskrá er heilsa. Verður bæði fjallað um kynlíf og kynheilsu homma og lesbía og hvernig þessi hópur getur hugsað betur um sína heilsu, bæði andlega og líkamlega. Að endingu verður af- rakstur ráðstefnunnar kynntur fjölmiðlafólki og haldin nk. uppskeruhátíð.“ Guðlaugur segir aðsókn í FSS ágæta: „Það er alltaf að koma nýtt fólk. Við fluttum nýverið í nýtt húsnæði í Hinu Húsinu við Pósthússtræti. Það virðist hafa haft góð áhrif að vera miðsvæðis og mikið af fólki sem lítur inn. Við erum með fasta skrifstofutíma á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum milli 4 og 6 og er þá alltaf einhver við sem veitt getur upplýsingar um starfsemi og hópa félagsins.“ Ráðstefnur | FSS tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um málefni sam- og tvíkynhneigðra Hagur og heilsa STK ungmenna  Guðlaugur Krist- mundsson er fæddur 14. september 1981. Hann lauk stúdents- prófi frá Versl- unarskóla Íslands og stundar nám við Há- skóla Íslands. Hann hefur starfað við FSS um árabil, áður sem formaður og gjald- keri. 60 ÁRA afmæli. Frú GuðjónaÓlafsdóttir, Lómasölum 2, Kópavogi, er sextug í dag, fimmtudag- inn 28. júlí. Guðjóna verður með heitt á könnunni í Hellinum við Ægissíðu eftir kl. 17 föstudaginn 29. júlí. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 e5 4. Rf3 Rbd7 5. Bc4 Be7 6. 0-0 0-0 7. He1 c6 8. a4 b6 9. Bg5 Rg4 10. Bd2 Rgf6 11. h3 Bb7 12. Bg5 Dc7 13. dxe5 Rxe5 14. Ba2 Rxf3+ 15. Dxf3 Had8 16. Had1 a6 17. Bf4 Rd7 18. Re2 Re5 19. De3 Hfe8 20. Bh2 Bf8 21. Rd4 b5 22. axb5 axb5 23. Dc3 Db6 24. Rf5 Dc7 25. Bf4 Kh8 26. Dg3 Bc8 27. Bg5 Hd7 28. h4 Da5 29. Bb3 Hb7 30. Bd2 Dc7 31. h5 Be6 32. h6 g6 33. f4 Bxb3 34. fxe5 Bxc2 35. exd6 Db6+ 36. Be3 Dd8 37. Bd4+ Kg8 38. Hd2 c5 39. Bg7 Bxe4 40. Bxf8 Kxf8 Staðan kom upp á Evrópumeistara- móti einstaklinga sem lauk fyrir nokkru í Varsjá í Póllandi. Sergei Movsesjan (2.628) hafði hvítt gegn Merab Gag- unashvili (2.547). 41. Dc3! f6 42. Re7 Hbxe7 42. – Kf7 gekk að sjálfsögðu ekki upp vegna 43. Hxe4. 43. dxe7+ Dxe7 44. Hxe4! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 44. – Dxe4 45. Dxf6+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Bæn GUÐ gefi okkur öllum góðan dag. Lesandi. Sóðaskapur við Laugar ÉG ætla að kvarta yfir sóðaskapn- um við innganginn að Laugum í Laugardalnum. Þar hafa með ærn- um kostnaði verið sett upp tré og blóm báðum megin við innganginn sem er afskaplega fallegt, en í þrjá daga hefur verið sturtað úr rusla- dalli fullum af öskubökkum og slíku öðrum megin og dreift um allt svo að skömm er að sjá þetta. Þarna koma rútur með útlendinga. Ég bið forráðamenn sundlaug- arinnar að gera svo vel að ganga þarna um og horfa á hvernig er umhorfs við innganginn. Guðný Jóhannsdóttir. Slæmt strætókerfi ÞAÐ á auðvitað eftir að koma reynsla á þetta en fyrir utan það líst mér alls ekki á þetta. Ég er búin að heyra bæði í farþegum og bílstjórum og það er ekki góður tónn í fólki. Ég hvet fólk til að láta heyra í sér svo þetta verði gert manneskjuvænna. Ég heyrði til dæmis að bílstjórar ættu að fara að keyra níu tíma vaktir og ég vil ekki sitja í bíl með dauðþreyttum bílstjóra sem ber mikla ábyrgð með fullan bíl af fólki. Þeir eru ekki ánægðir með þetta og ég alls ekki. Ég þarf að labba miklu lengra á biðstöðina. Það er út af fyrir sig í lagi á sumrin en ég dauðkvíði vetrinum. Mér finnst kerfið vera mjög mislukkað og er búin að lesa leiðabókina og fara í strætó. Ég hvet þá til að laga kerf- ið og hvet fólk til að láta heyra í sér. Sigrún. Barnaregnkápa fannst Í BARNADEILD Máls og menn- ingar á Laugavegi 18 er í óskilum falleg barnaregnkápa. Einnig gleymdist í síðustu viku taska með litabókum og tölvuleikjum. Vitja má hlutanna í ritfanga- og barna- deild. Dagbjört, starfsmaður í barnadeild. Yndislega ketti vantar heimili strax! KETTINA okkar, Mysing og Möndlu, vantar fóstur ekki síðar en 31. júlí vegna búferlaflutninga. Þeir eru báðir úti- kettir, aðallega þó Mysingur. Hann er rólegur, sérlund- aður og hugsar vel um svæðið sitt. Mandla er meiri inniköttur en gerir þarfir sínar úti. Hún er prakkari en mjög kelin. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Arnar í síma 822- 7170 eða Móheiði í síma 822-1703. Við höfum líka tölvupóst:arnaregg- ert@gmail.com eða moheid- ur@gmail.com. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Fréttir á SMS Í BORGARLEIKHÚSINU í kvöld verður lokasýning á söngleiknum Örlagaeggjunum. Leikritið er byggt á smásögu eftir rússneska rithöfundinn Mikail Búlgakov, þann sama og skrifaði Meistarann og Margarítu og Hunds- hjarta. Söngleikurinn er í leikgerð Höskuldar Ólafssonar sem jafn- framt samdi tónlist við verkið í sam- starfi við Pétur Þór Benediktsson. Segir sagan frá vísindamanni sem finnur upp einskonar geisla sem síð- an er bæði misskilinn og misnotaður með hörmulegum afleiðingum, eins og sagt er í tilkynningu. Í aðalhlutverkum eru þau Ilmur Kristjánsdóttir, Stefán Hallur Stef- ánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólaf- ur Steinn Ingunnarson, Esther Talía Casey, Sólveig Guðmundsdóttir, Að- albjörg Þóra Árnadóttir, Hallgrímur Ólafsson og Magnús Guðmundsson. Lokasýning á Örlagaeggjunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.