Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það veldur vonbrigðum að karlmaður,sem gegnir ákveðinni stöðu, fáiþessi viðbrögð, þegar hann ætlar ífæðingarorlof,“ segir Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, og vísar til þess að Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, hafi sagt starfi sínu lausu til að geta tekið fæðing- arorlof. Hún segir að þetta mál hafi komið af stað mikilli umræðu í þjóðfélaginu um jafnrétt- ismál. Nokkuð hafi verið hringt á skrifstofu Jafnréttisstofu vegna þess. Hún segir enn- fremur að umrætt dæmi sýni að karlar séu að nálgast þann veruleika sem konur hafi bú- ið við, þ.e. þann að barneignir hafi áhrif á starfsframa. Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður Jafnrétt- isstofu, segir að í evrópskri könnun sem hann vinni að um þessar mundir komi fram að atvinnurekendur séu frekar jákvæðir gagnvart nýju fæðingarorlofslögunum, en skv. þeim hafa karlar og konur sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs. Hann segir að í könn- uninni komi m.a. fram það viðhorf atvinnu- rekenda að fæðingarorlofið sé réttur sem þeir vilji sjá til að fólk geti nýtt sér. „Það er ekki mikil neikvæðni í gangi enda væru ekki 85% karla að nýta sér fæðingarorlofið ef svo væri,“ segir hann. Stjórnin ekki á einu máli Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, fulltrúi í stjórn KEA, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem kom fram að hún tæki ekki undir þau orð Benedikts Sigurðarsonar, stjórnarformanns KEA, „að lög um fæðingar- og foreldraorlof eigi ekki að gilda um stjórnendur á háum launum sem gegni lykilstöðum í sínu fyr- irtæki“. Úlfhildur segir í yfirlýsingu sinni að for- eldrar eigi ótvíræðan rétt til fæðingarorlofs, óháð stöðu eða launum. Þá skoðun hafi hún látið bóka á fundi stjórnar KEA vegna starfsloka Andra. Varamaður í stjórn KEA, Þórhallur Hermannsson, hafi tekið undir þá bókun sína. Í lok yfirlýsingar sinnar þakkar hún Andra Teitssyni vel unnin störf í þágu KEA og óskar honum og fjölskyldu hans alls velfarnaðar í framtíðinni. Afsögn Andra Teitssonar vegna fæðingarorlofs og afstaða stjórnar KEA vekur hörð viðbrögð Hefur komið af stað mikilli umræðu um jafnrétti Morgunblaðið/Jim Smart Karlar og konur eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs skv. fæðingarorlofslögunum. Afsögn Andra Teitssonar sem framkvæmdastjóri KEA til að geta tekið fæð- ingarorlof hefur víða vakið hörð viðbrögð. Stjórn KEA þótti óheppilegt að Andri færi í níu mánaða orlof. FÉLAG ábyrgra feðra fagnar ákvörðun Andra Teitssonar um að taka sér langt fæð- ingarorlof en harmar í yfirlýsingu að Andri skuli hafa verið knúinn til að segja upp starfi sínu. Brýnt að samfélagið viðurkenni jafna ábyrgð beggja foreldra Fram kom í Morgunblaðinu um helgina að Andri hefði sagt starfi sínu lausu sem for- stjóri KEA vegna þess að stjórn KEA hefði þótt óheppilegt að hann tæki fæðingarorlof í níu mánuði. Í yfirlýsingu Félags ábyrgra feðra segir m.a.: „Í tilkynningu frá stjórn KEA segir: „Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA, segir stjórn fyrirtækisins þeirrar skoð- unar að lög um fæðingarorlof eigi ekki að gilda um stjórnendur á háum launum sem gegni lykilstöðum í sínu fyrirtæki.“ Félag ábyrgra feðra telur mjög brýnt að íslenskt samfélag viðurkenni jafna ábyrgð beggja foreldra á börnum sínum. Mjög mik- ilvægt skref í átt að slíkri viðurkenningu eru lög um fæðingarorlof frá 2000. Á síðasta ári var þessum lögum breytt þannig að réttur fólks með miklar tekjur til að taka fæðing- arorlof var skertur, eða öllu heldur rétturinn til svipaðra launa og áður. Lagðist Félag ábyrgra feðra eindregið gegn slíkri breytingu, ekki síst á þeim for- sendum að breytingin fæli í sér skertan rétt feðra og að með breytingunni væri komið í veg fyrir að ábyrgðarmiklir stjórnendur gætu verið lægra settum starfsmönnum fyr- irmynd í jafnréttismálum. Taldi félagið að jafn réttur allra til fæðingarorlofs myndi stuðla „að jafnri ábyrgð feðra og mæðra á umönnum barna sinna og að jafnri þátttöku kvenna og karla á vinnumarkaði“. Enn- fremur taldi og telur félagið að jafnrétti til fæðingarorlofs auki möguleika kvenna til jafnréttis á vinnumarkaðnum,“ segir m.a. í yfirlýsingu félagsins. Uppsögnin lögbrot Þar segir einnig að Félag ábyrgra feðra telji stjórn KEA hafa gengið þvert gegn lögum um fæðingarorlof og að uppsögn Andra Teitssonar sé lögbrot, „jafnvel þótt og ekki síst vegna þess að hún sé þvinguð fram með afarkostum. Félag ábyrgra feðra telur feður óþægilega oft vera þvingaða til samninga varðandi börn sín, jafnvel að frumkvæði ís- lenskra stjórnvalda. Harmar félagið og mót- mælir harðlega þessum þvingaða samningi sem forstjóri KEA hefur verið neyddur til. Minnir félagið einnig á að feðrum hefur í vaxandi mæli verið sagt upp störfum und- anfarin misseri vegna óska um fæðingarorlof og hefur a.m.k. einn faðir tekið mál sitt fyrir kærunefnd sem lagði blessun sína yfir upp- sögnina vegna þess að um skipulagsbreyt- ingar væri að ræða. Harmar félagið einnig slík vinnubrögð. Hvetur Félag ábyrgra feðra alla feður til að taka sér fullt fæðingarorlof og hlusta ekki á blygðunarlausan málflutning Benedikts Sigurðssonar, stjórnarformanns KEA, um að fæðingarorlof sé bara fyrir venjulega feður. Allir feður eru venjulegir feður. Réttur til fæðingarorlofs er lögvarinn.“ Fagna ákvörðun Andra Teitssonar FEMÍNISTAFÉLAG Íslands lýsir furðu sinni á ákvörðun KEA og gagnrýnir um- mæli stjórnarformanns félagsins, í tengslum við ákvörðun Andra Teitssonar framkvæmdastjóra að segja upp störfum þegar stjórn fyrirtækisins samþykkti ekki að hann fengi lögbundið fæðingarorlof. Í yfirlýsingu frá Femínistafélaginu er vísað til ummæla Benedikts Sigurð- arsonar, formanns stjórnar KEA, um að stjórn fyrirtækisins sé þeirrar skoðunar að lög um fæðingarorlof eigi ekki að gilda um stjórnendur á háum launum sem gegni lykilstöðum í sínu fyrirtæki. „ Ummæli Benedikts féllu í kjölfar þess að fjögurra barna faðir, Andri Teitsson framkvæmdastjóri KEA, neyddist til að segja upp störfum þegar stjórn fyrirtæk- isins samþykkti ekki að hann fengi lög- bundið fæðingarorlof. Femínistafélag Ís- lands furðar sig á ákvörðun KEA og þessum ummælum Benedikts en af þeim má dæma að stjórn KEA sé þeirrar skoð- unar að fólk á barneignaaldri eigi ekki að taka að sér lykilstöður nema ljóst sé að makinn taki allt barnauppeldi að sér. Þetta viðhorf er þvert á allar jafnrétt- ishugsjónir, sérstaklega í ljósi þess hversu fáar konur gegna lykilhlutverkum innan íslenskra fyrirtækja. Eru þessi ummæli Benedikts því ekki til fyrirmyndar og ekki í samræmi við samþykktir KEA en þar segir m.a. að tilgangur fyrirtækisins sé: „að vinna að hagsmunum félagsmanna og efla búsetu á félagssvæði sínu.“ Barn- eignir teljast vel til þess fallnar að efla búsetu en kannski líta KEA-menn svo á að það eigi að vera einkamál kvenna að sjá um börnin og feðurnir – allra síst þeir sem eru í stöðu framkvæmdastjóra – eigi ekki að vera að láta barnalán sitt hafa áhrif á starfsframann. Femínistafélag Íslands vonar að önnur fyrirtæki hér á landi reki virka fjöl- skyldu- og jafnréttisstefnu og að þau átti sig á mikilvægi þess að þeir starfsmenn sem hafa tækifæri til að sameina starf og fjölskyldulíf eru, þegar á reynir, verð- mætustu starfsmennirnir. Það að eiga barn er gleðilegur atburður. Fjarveru vegna barnsfæðingar er hægt að und- irbúa með góðum fyrirvara og er slíkt til marks um góða stjórnun,“ segir í frétta- tilkynningu félagsins. Femínistafélag Íslands gagnrýnir KEA Fornlegt viðhorf hjá fornfrægu fyrirtæki ÞEIR sem hyggjast keyra um landið með laust pláss í bílnum eða vantar far á milli staða geta nú nýtt sér nýj- an vef, Samferða (http://sam- ferda.net), til að auglýsa eftir sam- ferðamönnum til þess að deila með sér ferðinni og kostnaðinum. Margir leita að einhverjum sem er á leið til borgarinnar Ísfirðingurinn Birgir Þór Har- aldsson, einn af stofnendum Sam- ferða, segir að hugmyndin hafi kom- ið frá Anitu Hübner, þýskri konu sem bjó á Ísafirði, en er nú flutt ásamt manni sínum, Halldóri Hlöð- verssyni, til Egilsstaða, og þau þrjú hafi ákveðið að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. Hann segir a.m.k. þrjá vefi sem bjóða upp á samskonar þjónustu starfrækta í Þýskalandi og séu þeir mikið notaðir. Birgir segir mikið um það að bæjarbúar á Ísa- firði leiti að einhverjum sem er á leið til höfuðborgarinnar, og því líklegt að fólk víðar á landinu geti nýtt sér síðu á borð við þessa, hvert á land sem farið er. „Ég fann alveg fyrir því að fólk vantaði svona síðu, það var alltaf verið að spyrja hvort einhver væri að fara suður um einhverja helgi og þá er langbest að hafa svona síðu þar sem fólk getur leitað að ein- hverjum sem er á leiðinni […] í stað þess að hringja kannski 20 símtöl til að reyna að finna einhvern sem er að fara suður,“ segir Birgir. Deila eldsneytiskostnaði Vefurinn var tekinn í notkun vik- una fyrir verslunarmannahelgi, og hefur ekki farið hátt, enda var hann fyrst vistaður á bloggsíðu Birgis. „Vefurinn virkar þannig að fólk fer inn, skráir brottfararstað, áfanga- stað, hvenær á að fara, og hvort sé verið að leita að farþegum eða plássi hjá öðrum. Þegar auglýsingin er komin inn getur fólk á sömu leið sent tölvupóst eða hringt, og viðkomandi ræða hvort þeir séu tilbúnir að ferðast saman.“ Birgir segir hægt að spara tals- vert á því að fá aukafarþega með í bílinn sem borgi hluta af eldsneyt- iskostnaði og því ætti þetta að verða góður kostur fyrir þá sem eru á bíl, ekki síður en þá sem eru að leita að fari. Skipuleggja puttaferðalög á Netinu Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Birgir Þór Hafsteinsson segir hægt að spara mikið með því að nýta betur plássið í bílnum þegar lagt er í langferðir. Spara talsvert á því að fá aukafarþega með í bílinn sem borgi hluta af eldsneytiskostnaði  Meira á mbl.is/itarefni Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.