Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.08.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 29 MINNINGAR ✝ Geir JóhannGeirsson fædd- ist á Siglufirði 31. október 1917. Hann lést á heimili sínu 2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Geir Hróbjartsson sjómaður, f. 10. maí 1888, týndist í hafi 1917, og Helga Sig- urðardóttir, f. 10. nóvember 1893, d. 8. desember 1984. Stjúpfaðir Geirs var Jón Guðjónsson loft- skeytamaður, f. 23. desember 1898, d. 1. júlí 1984. Hálfsystkini Geirs eru Pálína Jónsdóttir, Guð- jón Jónsson, Kristjana Jónsdóttir og Jóhanna Edwald. Eftirlifandi eiginkona Geirs er Eybjörg Sigurðardóttir, f. 10. apríl 1926. Foreldrar hennar voru Sig- Guðjón Reyr Þorsteinsson, b) Ey- björg Geirsdóttir, sambýlismaður Tómas Haukur Ríkharðsson, son- ur þeirra er Alexander Aron, c) Nína Björk Geirsdóttir, sambýlis- maður Pétur Óskar Sigurðsson, og d) Geir Jóhann Geirsson. 4) Lovísa leikskólakennari, f. 21. janúar 1956. Börn hennar eru Ísak Sig- urðsson og Aldís Gróa Sigurðar- dóttir. 5) Valgerður skrifstofu- maður, f. 16. maí 1962, maki Viktor Arnar Ingólfsson. Dætur þeirra eru Emilía Björt Gísladóttir og Margrét Arna Viktorsdóttir. Geir Jóhann Geirsson ólst upp í Fljótum og á Hesteyri. Hann lauk vélstjóraprófi frá Vélskóla Íslands, var vélstjóri á fiskiskipum til 1942 og eftir það á Dettifossi og var á skipinu þegar það var skotið í kaf 1944. Hann var síðan vélstjóri á ýmsum skipum Eimskipafélagsins til 1982 en fór þá í land 65 ára að aldri. Árin 1982 til 1986 starfaði hann á lager hjá Nóa- Siríus. Útför Geirs fer fram frá Nes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. urður Bjargmundar- son og Valgerður Guðmundsdóttir en fósturforeldrar Lovísa Bjargmundar- dóttir og Þorvaldur Egilsson. Dóttir Geirs er 1) Nína inn- anhússarkitekt, f. 1. maí 1946. Synir hennar eru a) Thomas Markersen, sambýliskona Pia Brabrand, sonur þeirra er Viktor. b) Kristjan Markersen, sambýliskona Bodil Tholstrup. Börn Geirs og Eybjargar eru 2) Þorvaldur tæknimaður hjá Still- ingu, f. 13. október 1952. Ungur skjólstæðingur hans er Kochkorn Min (Sáda). 3) Geir Helgi vélstjóri, f. 18. desember 1953, maki Helga Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru a) Geir tengdafaðir minn varð bráð- kvaddur á heimili sínu 4. ágúst sl. Það er erfitt að sætta sig við dauð- ann og aldrei er maður tilbúinn að taka slíkum tíðindum. Geir kynntist ég fyrir 25 árum, þegar við Geir Helgi hófum sam- búð. Tengdapabbi var mikill og góður verkmaður og ófá eru hand- tökin sem hann lagði til við húsið okkar í Leirutanganum. Hann var ekki bara handlaginn við húsasmíð- ar, heldur var Geir líka mikill út- skurðarmaður. Prjónastokkurinn og kökudiskurinn sem hann skar svo listilega út og gaf mér eru með fallegri hlutum sem ég á. Í dag leita margar minningar á hugann. Stundirnar á Hagamelnum og á Laugarvatni á sumrin eru okkur óendanlega dýrmætar. Myndin af tengdaforeldrum mínum kemur sterkt fram, sitjandi í holinu með bollana sína. Með þessa mynd í hugskotinu þakka ég þér tengda- pabbi fyrir allt. Elsku Eybí, þér og öllum í fjöl- skyldunni sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Helga Guðjónsdóttir. Tengdafaðir minn Geir Jóhann Geirsson vélstjóri fæddist á Siglu- firði fyrir tæpum 88 árum síðan. Dvölin á Siglufirði varð ekki löng því faðir Geirs fórst á sjó áður en sonurinn fæddist og unga móðirin, Helga Sigurðardóttir, réði sig í vist í Fljótum. Hún giftist síðar Jóni Guðjónssyni og þau fluttu til Hest- eyrar þar sem Geir ólst upp með fjórum yngri hálfsystkinum. Um miðjan júlí sl. vorum við hjónin ásamt dætrum okkar í or- lofshúsi í Skagafirði og þangað heimsóttu okkur Geir og Eybjörg kona hans, ásamt Lovísu dóttur þeirra og Aldísi dótturdóttur. Þetta var einskonar framlenging á ár- legri dvöl þeirra hjóna í orlofshúsi vélstjóra á Laugarvatni þar sem barnabörnin voru alltaf tíðir gestir. Við fórum í langan bíltúr í Skaga- firði, heimsóttum Glaumbæ og Hóla í Hjaltadal. Svo óskaði Geir sérstaklega eftir að fá að sjá Vest- urfarasafnið á Hofsósi. Loks ókum við á Siglufjörð en aftur var dvölin ekki löng. Kaffisopi var drukkinn og síðan snúið við. Það má segja að þar með hafi hringnum verið lokað í lífi Geirs. Þessi eftirminnilegi dagur fékk svo sérstaka merkingu í hugum okkar allra þegar Geir lést þriðjudaginn 2. ágúst og við átt- uðum okkur á því að þetta hefðu verið síðustu samverustundir okkar með honum. Geir tengdafaðir minn var orðinn nokkuð fullorðinn þegar við Vala hófum okkar hjúskap. Hann hafði átt langa og viðburðaríka ævi í far- mennsku á skipum Eimskipafélags- ins en var sestur í helgan stein. Þannig kynntist ég honum og það var lítið ónæði af þeim félagsskap. Það var aðeins að ég gat nokkrum sinnum aðstoðað hann við að stækka upp frummyndir að grip- unum sem hann skar svo listilega út í tré. Þeir prýða nú víða heimilin í fjölskyldunni. Okkur Geir þótti heldur ekkert óþægilegt að þegja saman en það er ekki öllum gefið. Nú er hornsteinninn í fjölskyld- unni farinn á aðra vakt og okkar hinna að taka við hlutverkinu. Við Vala, Emilía Björt og Margrét Arna kveðjum góðan föður og afa. Viktor Arnar Ingólfsson. Elsku afi. Þá er komið að hinstu kveðjustund. Við munum alltaf minnast þín sem afa Geirs eða afa Ding eins og Geir Jóhann var van- ur að kalla þig í höfuðið á klukk- unni ykkar ömmu sem dinglaði svo hátt og snjallt inni í stofu. Það var alltaf svo gaman að koma í heim- sókn til þín á Hagamelinn, sér- staklega þegar við vorum lítil og fengum að klifra á þér þar sem þú sast í stólnum þínum góða og þú hossaðir okkur til og frá. Við mun- um aldrei gleyma ferðunum á Laugarvatn sem sköpuðu svo ótal skemmtilegar minningar. Þú varst svo duglegur að vinna í bústaðnum, alltaf fyrstur á fætur til að flagga og undirbúa daginn. Í hverri viku gerðir þú þér ferð í Kolaportið til þess að kaupa harðfisk handa Geir Jóhanni, enda hlakkaði hann alltaf til að koma í heimsókn. Afi var duglegur maður og margt til lista lagt. Öll eigum við fallegar klukkur sem hann bjó til handa okkur sem munu ávallt minna okkur á afa Geir og gera okkur stolt af honum. Við eigum eftir að sakna þess að koma niður á Hagamel í heimsókn til ömmu og sjá ekki afa sitja í stólnum sínum að leysa útlenskar krossgátur eða lesa blaðið sitt. Megir þú hvíla í friði, elsku afi. Þín barnabörn, Guðjón Reyr, Eybjörg, Nína Björk og Geir Jóhann. Ég sé afa alltaf fyrir mér í há- sætinu sínu inni í stofu að ráða úr krossgátum en þar var maður alltaf velkominn og tekið á móti manni með hlýju. Á vinnustaðnum hans inni í litla herbergi þar sem hann stundaði tréútskurð sinn var alltaf spennandi að vera, það var alltaf svo flott hvernig listaverkin urðu til. Ég man eftir því þegar ég var lítill að afi átti það til að stríða mér svolítið og þótti mér það alltaf mjög gaman og hláturinn kom oft upp. Ég man eftir því þegar ég fór með afa á Laugarvatn og við kveiktum varðeldinn og fórum í göngutúra. Ég kveð nú afa minn og ég mun alltaf muna eftir honum með stolti og virðingu. Ísak. Hann afi var mjög handlaginn og bjó hann til fyrir mig spegil og hillu. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að mér þótti svo vænt um hann afa. Hann kom alltaf fram sem herramaður og leit ég alltaf mikið upp til hans. Hann var alltaf skemmtilegur við okkur og þótti mér gaman þegar hann stríddi okkur stundum. Ég man eftir pípunum hans inni í skáp, þær fannst mér alltaf spennandi. Ég man eftir fjallgöng- unum á Laugarvatni með afa. Ég kveð nú afa, hann var afi minn. Aldís. Það var fyrir 50 árum sem vin- irnir og samstarfsfélagar á Reykja- fossi, Bjarni og Geir, sóttu um lóð á Hagamel. Þegar við fengum út- hlutað númer 30 á Hagamel voru það gleðifréttir. Þeir félagar tóku sér frí frá sjómennskunni og byggðu sjálfir fjögurra íbúða hús af harðfylgi. Dregið var um hvor fengi tvær efri hæðirnar eða fyrstu hæð og kjallara, allt í sátt og sam- lyndi. Þessi sátt og þetta einlæga samlyndi átti eftir að endast þeim vinum til dauðadags og einkenndi það einnig samskipti á milli allra í fjölskyldum okkar. Samskiptin á milli íbúa hæðanna voru mikil og gengu krakkarnir á milli hæða, sníktu kex eða annað góðgæti en af því var alltaf nóg hjá Eybí og Geir. Það er sérstök gæfa að búa í sambýli þar sem aldrei slær í brýnu né styggðaryrði falla. Geir var vélstjóri hjá Eimskip allan sinn starfsaldur, þegar hann lét af störfum nutum við ennfrekar góðs af dugnaði hans og hjálpsemi. Garðurinn var alltaf nýsleginn og fínn, ef eitthvað fór úrskeiðis eða eitthvað þurfti að lagfæri var alltaf leitað til hans og alltaf var hann boðinn og búinn. Geir var margt til lista lagt og ber útskurður hans þess merki en eftir hann liggja margir dýrgripir. Geir var við góða heilsu og kom fráfall hans okkur á óvart. Þrátt fyrir háan aldur héld- um við að við myndum fá að njóta greiðvikni hans enn lengur. Ég og fjölskylda mín kveðjum Geir með þakklæti og virðingu og sendum Eybí og öllum afkomend- um þeirra samúðarkveðjur. Áslaug Stefánsdóttir. Geir J. Geirsson leit fyrst ljós þessa heims á Siglufirði og því fæddur Norðlendingur þótt okkur skipsfélögum hans hafi lengst af fundist að hann væri að vestan. All- ir í vélaliðinu á Ms. Goðafossi vissu líka að hann hafði lært vélsmíði í Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðs- sonar á Þingeyri og að þeir sem þar höfðu numið voru úrvals fag- menn. Það sannaðist líka á Geir Geirssyni. Hann var að allra dómi sem til þekktu mikill hagleiksmað- ur og glöggur og góður vélamaður og vélstjóri. Geir kom um borð í Ms. Goða- foss sem þriðji vélstjóri en hækkaði fljótt í röðinni og varð annar vél- stjóri nokkrum mánuðum síðar. Hann var einn þessara rótgrónu Eimskipafélagsmanna sem helguðu því fyrirtæki starfskrafta sína um árabil, allt þar til reglur sögðu til um að menn skyldu hætta störfum. Það er gömul saga og ný að hvergi kynnast menn betur en til sjós. Þar kemur líka til að þeir sem eiga skap saman á sjónum halda gjarn- an félagsskap utan vinnunnar og skemmta sér saman í landi þegar svo ber undir. Geir hafði stundað barnaskóla- nám á Hesteyri við Ingólfsfjörð. Síðan tóku við námsárin í Vél- smiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri og þaðan lá leiðin í Vél- stjóraskólann í Reykjavík. Geir tók vélstjórapróf árið 1944 og var vélstjóri á nokkrum skipum þar til hann réðst til Eimskipa- félags Íslands þar sem hann starf- aði á Fossum félagsins til starfs- loka. Um leið og ég þakka Geir áralanga tryggð og vinskap, send- um við María Eybjörgu og börnum okkar dýpstu samúð. Sveinn Sæmundsson. GEIR JÓHANN GEIRSSON Þegar minningar- greinar um Sigur- björgu birtust í blaðinu 3. ágúst sl. urðu þau leiðu mistök að grein um Sigurbjörgu Þorvarðardóttur fór óvart með. Við biðjum alla hlutaðeigandi velvirðingar á þessum mistökum. Nú er langri og strangri baráttu lokið og Sigurbjörg vinkona mín farin. Hún var einstaklega dugleg og viljasterk kona sem aldrei kvartaði þrátt fyrir erfið veikindi. Alltaf hélt hún áfram og lét engan bilbug á sér finna. Við Sigurbjörg byrjuðum báðar ungar að starfa í Landsbankanum. Vissum að vísu af hvor annarri fyrr, en kynntumst þegar við hitt- umst þar. Fyrir tæpum þremur ár- um kom hún til starfa í Þjón- SIGURBJÖRG ÁMUNDADÓTTIR ✝ SigurbjörgÁmundadóttir fæddist í Reykjavík 22. mars 1950. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 25. júlí síðastliðinn og var jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 2. ágúst. ustuver bankans þar sem ég var fyrir. Hún var mjög góður starfsmaður, alltaf jákvæð og hress. Þjónustulundin var einstök enda sannað- ist það best á því að viðskiptavinirnir héldu mikilli tryggð við hana. Hún var einstakur samstarfs- maður og vel liðin af öllum sem til hennar þekktu, dugmikil, ósérhlífin, jákvæð og alltaf til í glens og gaman. Mér er svo minnisstætt í fyrsta sinn sem hún var með okkur á svo kölluðum vinnudegi sem haldinn er árlega hjá okkur í þjónustuverinu. Þá höfðu hún og Stefanía und- irbúið mikla gleði. Farið var með rútu í Selvík, mættu þær uppá- klæddar í síðum kjólum og með silkiborða eins og fegurðardrottn- ingar og búnar að semja texta við lag um Samson-systur. Þetta vakti mikla kátínu hjá okkur hinum og verður haft lengi í minnum. Það fyllir engin í skarðið hennar og við komum til með að sakna hennar mikið. En það var ekki bara starfið sem leiddi okkur Sigurbjörgu sam- an, því að árið 1970 eignuðumst við báðar yndislega drengi sem eru hálfbræður. Við komum okkur saman um að við skyldum ávallt láta þá umgangast og það tengdi okkur órjúfanlegum böndum. Þeir urðu heimagangar hjá hvor öðrum og eru bestu vinir. Þeir áttu líka mjög góðar stund- ir saman hjá afa og ömmu í Breiðagerði. Einnig voru þeir í sama bekk í Seljaskóla og Mennta- skólanum í Reykjavík. Nú eru þeir Ingi Þór og Kjartan orðnir feður, við ömmur, og barnabörnin okkar farin að umgangast. Það er ljúft að eiga góðar minningar, en alltaf sárt að kveðja um sinn, góða vin- konu. Mig langar að þakka þér, Sigurbjörg mín, fyrir yndislega samfylgd, okkur tókst það ætlun- arverk okkar að synir okkar tengdust vináttuböndum. Okkur þykir leitt að hafa ekki getað fylgt þér, þar sem við erum stödd erlendis. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Ég og fjölskylda mín vottum ykkur Gunnari, Inga Þór, Þor- steini, Einari og öðrum ástvinum innilega samúð. Megi minning hennar ylja ykkur um ókomin ár. Anna Kjartansdóttir og fjölskylda. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.