Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ EDITH PIAF Í kvöld fim. 22/9 nokkur sæti laus , fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fim. 29/9 nokkur sæti laus, fös. 30/9örfá sæti laus, lau. 1/10 nokkur sæti laus, fös. 7/10, lau. 8/10. Sýningum lýkur í október. Stóra Sviðið kl. 20.00 KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR Sun. 25/9 kl.14:00 nokkur sæti laus, sun. 2/10 kl.14:0, sun. 9/10 kl.14:00 Stóra Sviðið kl. 14.00 KODDAMAÐURINN Fös. 23/9 örfá sæti laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fös. 30/9 nokkur sæti laus, sun.. 2/10, fim. 6/10, fös. 7/10, lau. 8/10. Takmarkaður sýningafjöldi. litla Sviðið kl. 20.00 kOrtaSalaN StENDUr YFir til 30. SEPtEMBEr! MIÐASALA Á NETINU ALLAN SÓLARHRINGINN - WWW.LEIKHUSID.IS AFGREIÐSLA ER OPIN FRÁ KL. 12:30-18:00 MÁN.-ÞRI. AÐRA DAGA KL. 12:30-20:00. MIÐASÖLUSÍMI: 551 1200. SÍMAPANTANIR FRÁ KL. 10:00 VIRKA DAGA. BELGÍSKA KONGÓ - Örfáar aukasýningar í haust Su 16/10 kl. 20 Su 23/10 kl. 20 Su 30/10 kl. 20 Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Nýja svið KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Su 25/9 kl. 14 Lau 1/10 kl. 14 Su 2/10 kl. 14 Su 9/10 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 22/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 23/9 kl. 20 - UPPSELT Lau 24/9 kl. 20 - UPPSELT Má 26/9 kl. 20 - UPPSELT Fim 29/9 kl. 20- UPPSELT Fö 30/9 kl. 20- UPPSELT MANNTAFL Su 25/9 kl. 20 Su 2/10 kl. 20 Fö 7/10 kl. 20 WOYZECK: Í samstarfi við Vesturport. – 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER Frumsýnt í London 12. október og á Íslandi 28. október Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000 Fö 23/9 kl. 20 Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT Fö 30/9 kl. 20 Lau 1/10 kl. 20 (Sýning á ensku) HÍBÝLI VINDANNA - Örfáar aukasýningar í haust Lau 24/9 kl. 20 Su 2/10 kl. 20 Fö 7/10 kl. 20 Lau 8/10 kl. 20 LÍFSINS TRÉ Fö 21/10 kl. 20 - FRUMSÝNING - UPPSELT Lau 22/10 kl. 20 Fö 28/10 kl. 20 Lau 29/10 kl. 20 Fö 4/11 kl. 20 Lau 5/11 kl. 20 Lau 1/10 kl. 16 - Aukasýning Lau 1/10 kl. 20 - UPPSELT Fi 6/10 kl. 20 - UPPSELT Lau 8/10 kl. 16 - Aukasýning Su 9/10 kl. 20 Tvennu tilboð Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur Pakkið á móti fös. 23. sept. 12. kortasýning kl. 20 - Síðasta sýning Belgíska Kongó - gestasýning fös. 30. sept. 1. kortasýning kl. 20 - Örfá sæti laus lau. 1. okt. 2. kortasýning kl. 20 - Örfá sæti laus Áskriftar- kortasala stendur yfir 3. SÝN FÖS 23. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 4. SÝN LAU 24. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS 5. SÝN FÖS 30. kl. 20.00 6. SÝN LAU 1. OKT kl. 20.00 7. SÝN FÖS 7. OKT kl. 20.00 16. sýn. sun. 2/10 kl. 14 Annie; Sólveig 17. sýn. sun. 16/10 kl. 14 Annie; Thelma Lind 18. sýn. lau. 22/10 kl. 15 Annie; Sólveig -DV-- - Kabarett í Íslensku óperunni Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON “Söngur Þórunnar er í einu orði sagt stórfenglegur...” SH, Mbl. föstudaginn 23. september kl. 20 föstudaginn 30. september kl. 20 laugardaginn 1. október kl. 20 laugardaginn 8. október kl. 20 Næstu sýningar UPPSELT SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Diddú býður til veislu græn tónleikaröð í háskólabíói Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30 FÖSTUDAGINN 23. SEPTEMBER KL. 19.30 Perlur og skrautaríur eftir Thomas Arne, Vincenzo Bellini, Dvorák, Mozart, Offenbach, Bernstein og Verdi Hljómsveitarstjóri ::: Kurt Kopecky Einsöngvari ::: Sigrún Hjálmtýsdóttir Í kvöld eru fyrstu tónleikar starfsársins í grænu röðinni. Þá mun okkar ástsæla söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú – flytja margar af sínum uppáhalds perlum. Tryggðu þér miða í síma 545 2500 eða á www.sinfonia.is. SÝNING úr einkasafni Þorvalds Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á verkum Kjar- vals stendur nú yfir í Listasafni Kópavogs í tilefni af 120 ára afmæli hans. Í sýningarskrá ritaðri af Guð- björgu Kristjánsdóttur, forstöðu- manni Gerðarsafns, kemur fram að Gerðarsafni hafi verið falin varsla einkasafnsins tímabundið, Elísa B. Þorsteinsdóttir listfræðingur hafi undanfarin þrjú ár unnið að tölvu- skráningu þess og Kristín Guðnadóttir, listfræð- ingur og sérfræðingur í verkum Kjarvals, hafi verið til ráðuneytis varðandi myndefnisgreiningu og tímasetningu verka. Það hlýtur að vera ánægjulegt að áhersla hafi verið á skráningu og rannsókn þessa safns, sérstaklega þar sem lesa má á milli línanna að framtíð þess sé óráðin enda og eðlilega í einkaeign erfingja þeirra Þorvalds og Ingibjargar. Á sýningunni má sjá verk sem spanna allan feril listamannsins og sem „endurspegla hinar fjölmörgu hliðar á list meistarans“. Mest fer fyrir landslagsmálverkunum sem hefð er fyrir að líta á sem mik- ilvægasta framlag Kjarvals til ís- lenskrar málaralistar með hinni einstæðu nærsýn hans á landið, formalísku uppbroti og samþætt- ingu þess við hina ljóðrænu og æv- intýralegu sagnahefð Íslendinga. Lífshlaup Kjarvals er þó það verk sem hæst ber vegna sérstöðu sinn- ar, vinnustofa listamannsins sem heildstætt verk eða taugamiðstöð sem vísar til fjölmargra annarra verka hans, minni og stærri. Þá eru á sýningunni fjölda teikninga og smáverka sem ekki aðeins fylla upp í heildarmynd heldur gefa hug- boð um að þar sé kjarni listar hans og málverkin séu frekar rannsókn útfærslna ákveðinna hugmynda, og sum ekki alveg óháð við vænt- ingum hins íslenska tíðaranda. Í sýningarskránni eru rakin þau verk sem á sýningunni eru og áhorfandanum gert auðvelt að fylgja eftir textanum í samhengi við verkin. Með Lífshlaupinu er sýnt gamalt viðtal sem blaðamaður tók við Kjarval inni í verkinu, á vinnustofunni áður en hún varð að afmörkuðu listaverki og kemur þar fram hve afstæð velgengni ís- lenskra myndlistarmanna var og jafnvel er. Á safninu er til sýnis og sölu vegleg bók sem var gefin út um aldamótin 2000 í tilefni af sýn- ingu Gerðarsafns á verkum úr heildarsafni þeirra hjóna sem inni- heldur verk margra listamanna. Texta bókarinnar ritar Guðbergur Bergsson sem óhætt er að segja að éti ekki upp staðlaða orðræðu um verk gömlu meistaranna heldur setur fram eigin skoðanir og gagn- rýni á eðli og umhverfi íslenskrar myndlistar á fyrri hluta aldarinnar. Jafnvel þótt maður væri ósammála hverju einasta orði hans þá er svo mikil tilbreyting að skoða söguna frá öðru sjónarhorni en því við- tekna og grátklökka að það virkar sem nokkurs konar aflausn. Slík nálgun sem virðist óvægin á köflum dregur skýrar fram hið sérstæða og áhugaverða samspil myndlist- arinnar við bókmenntahefð okkar, þjóðarímynd og menningar- umhverfi. Þetta minnir á að virðing fyrir starfi listamanna felst í því að gera list þeirra merkingarbæra í átökum sögunnar en ekki mæra þá í þágu falskrar sjálfsmyndar og þjóðernisupphafningar. Sýningin í Gerðarsafni er vel gerð og dregur fram ágæta sýn að- standenda hennar á verk Kjarvals ásamt því að bjóða upp skil- merkilega sýningarskrá og fyrr- greinda bók með aðra nálgun við viðfangsefnið í stærra samhengi. Lífshlaup Kjarvals í blíðu og stríðu MYNDLIST Listasafn Kópavogs Gerðarsafn Sýningin stendur til 2. okt. Opið kl. 11–17 alla daga nema mánu- daga. Meistari Kjarval 120 ára. Afmælissýning Morgunblaðið/Ásdís „Lífshlaup Kjarvals er þó það verk sem hæst ber vegna sérstöðu sinnar, vinnustofa listamannsins sem heildstætt verk eða taugamiðstöð sem vísar til fjölmargra annarra verka hans, minni og stærri.“ Þóra Þórisdóttir mbl.is ókeypis smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.