Morgunblaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nær samfelldur hlýrveðurfarskafli,sem hófst síðla vetrar 2002 og stóð til loka síðasta vetrar, virðist greinilega vera á enda samkvæmt upplýsingum frá Einari Sveinbjörns- syni, veðurfræðingi á Veð- urstofu Íslands. Var febr- úar 2002 undir meðallagi en frá mars 2002 til apríl 2005 hafa allir mánuðir verið um og yfir meðallagi þegar litið er á hitastig- stölur fyrir þetta tímabil, að undanskildum október 2004 sem mældist lítillega undir með- allagi. Þannig var hitinn yfir með- allagi samfellt í 31 mánuð í Reykjavík. Maímánuður á þessu ári mæld- ist marktækt undir meðallagi í Reykjavík og hefur sú þróun að einhverju leyti haldið áfram síð- astliðna mánuði. Voru júní og júlí yfir meðallagi en ágúst var um meðallag í Reykjavík og um hálfri gráðu undir meðallagi á Akureyri. September var heilli gráðu undir meðallagi í Reykjavík og einni og hálfri á Akureyri. Október var einni og hálfri gráðu undir með- allagi í Reykjavík og svo kalt hefur ekki verið síðan í október 1998. Á Akureyri mældist meðalhiti tveimur gráðum undir meðallagi og þarf að fara allt aftur til 1981 til að finna kaldari október. Þetta hlýindatímabil er eitt það hlýjasta sem Veðurstofan hefur mælt frá upphafi og var árið 2003 sérstaklega gott í heild sinni, þannig var það ár það hlýjasta í Reykjavík frá upphafi mælinga. Þarf að fara aftur til fjórða áratug- ar síðustu aldar til að finna eitt- hvað sambærilegt. Segir Einar að almennt hafi ríkt hlýindi á árunum 1930–1945 en inn í það hafi komið styttri skeið með hita undir með- allagi. Í dag er spurningin hvort það sama geti verið að eiga sér stað eða hvort við munum sjá áframhaldandi kalda veðráttu næstu mánuði. Hafís hafði einhver áhrif Segir Einar að hafísinn sem barst inn á norðurmiðin í mars á þessu ári hafi eitthvað með þetta kólnandi veðurlag að gera. Hafís í þessum mæli hafi ekki sést lengi og þó svo að hafísinn hafi ekki orð- ið landfastur eins og gerðist gjarn- an áður fyrr náði hann að kæla nið- ur yfirborðssjóinn fyrir norðan og austan land í sumar. Á þessum ár- um sem var hvað hlýjast var við- varandi mjög hlýr sjór fyrir norð- an landið. Segir Einar hafísinn klárlega hafa haft áhrif á veður- lagið hér hjá okkur en hann skýri samt ekki fullkomlega þennan kulda sem mældist í maí og í haust, hann geti einnig verið til- kominn vegna aukinnar tíðni norð- anáttar. Það þarf hins vegar að kanna betur. Vegna hafíssins er norðanáttin kaldari en áður. Sum- arið 1993 var kalt og leiðinlegt, sérstaklega norðanlands en þá var ekki um að ræða hafís heldur var það viðloðandi norðanátt sem olli kuldanum. Veðurfræðingar í Bretlandi hafa spáð köldum vetri þar og hvað það varðar segir Einar að erfitt sé fyrir Veðurstofuna að draga ályktanir af þeirri spá því verið sé að horfa á hafsvæði langt suður af landinu, eða Atlantshafið á milli Norður-Ameríku og Portú- gals. Spá Breta byggist á því að talið er að sjávarhiti á vori hafi áhrif á veðurfar á Bretlandseyjum veturinn eftir. Margir hér hafa þó bent á, m.a. Páll Bergþórsson veð- urfræðingur, að sjávarhiti fyrir norðan land hefur mikið að segja fyrir hitastigið á landinu næstu mánuði á eftir. En Einar segir að erfitt sé að spá nokkra mánuði fram í tímann, margir ólíkir þættir ráði veðurfarinu á endanum. Hins vegar sé þróunin í fræðunum hröð og forvitnilegt sé að fylgjast með í löndunum í kringum okkur. „Ef þessi spá í Bretlandi gengur eftir eru menn komnir allmiklu lengra í því að spá fyrir um veðurfar næstu mánuði,“ segir Einar að lokum. Minnkandi hafís Þór Jakobsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir hafís við Grænland nú í meðallagi og ekki sé hægt að segja til um hvort hann komi inn á íslensk mið eða upp að ströndum Íslands seinna í vetur. Allt eins séu líkur á að hann komi því við séum staðsett mjög nálægt Grænlandi. Ef hafísinn er mikill við Grænland og það verða vestlægar og suðvestlægar vind- áttir hrekst hafísinn inn á strand- strauma við landið. Kyrrstöðuhæð eða fyrirstöðu- hæð yfir Norður-Atlantshafi olli því að ísinn var óvenjumikill ná- lægt landinu í mars, þá voru vind- arnir að vestan og þá hrekst haf- ísinn austur á bóginn til Íslands. Var hafísinn sem barst til landsins sá mesti sem sést hefur síðan vorið 1979 en þá var hann mun meiri við landið. Segir Þór að almennt hafi hafís farið minnkandi frá árinu 2001, það sýna veðurtunglamyndir og mælingar, líkt og jöklarnir hopi. Er þá litið til þess hafíss sem er tveggja ára og eldri. Hins vegar getur nýr hafís myndast yfir vet- urinn sem er jafnmikill og venju- lega en svo hverfur hann yfir sum- artímann. Fréttaskýring | Meðalhiti mælist undir meðallagi nokkra mánuði í röð Hlýjum veður- farskafla lokið? Hafís við landið í vetur hafði áhrif á hversu kalt sumarið var Borgarísjaki við Blönduós síðastliðinn vetur. Borgarísjakar og hafís ólík fyrirbæri  Stórir borgarísjakar hafa sést við landið síðastliðin ár. Koma þeir úr skriðjöklum Austur- Grænlands sem ná niður í sjó og hafa þeir þá brotnað frá jökl- unum og rekið áleiðis hingað. Venjulegur hafís myndast á haf- inu, hann er flatur og getur orðið mjög víðáttumikill. Þegar ísinn bráðnar við strendur Íslands get- ur hann haft áhrif á hitastig sjáv- ar sem síðan getur haft áhrif á hitastig og veðurfar á Íslandi. Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur sigurhanna@mbl.is MERKJA skal ketti með var- anlegu örmerki og hálsól sam- kvæmt nýrri samþykkt um katta- hald í Reykjavík. Örmerki er lítill kubbur sem dýralæknir kemur fyr- ir undir húð í herðakambi kattar og geymir 15 stafa númer. Einnig skal gelda fressketti eldri en sex mánaða sem ganga lausir utan- dyra. Á heimasíðu Umhverfis- heilbrigðisstofu Reykjavík- urborgar segir að markmiðið með endurskoðun eldri samþykktar sé að fækka óskilaköttum í borginni og skapa meiri sátt um kattahaldið. Samkvæmt samþykktinni skal halda ketti þannig að það ekki valdi hávaða, ónæði, óþrifnaði eða óhollustu. Til að lágmarka tjón sem kettir geta valdið fuglalífi í borg- inni ber eigendum að hengja bjöllu á ketti á varptíma fugla eða tak- marka eftir atvikum útiveru katta. Á hverju ári berast rúmlega 500 óskilakettir í Kattholt og er ein- göngu um fjórðungur þeirra sóttur af eigendum sínum. Svæfa þarf um fjórðung en um helmingi er komið til nýrra eigenda. Til að draga úr fjölda óskilakatta er eigendum katta nú skylt að merkja þá var- anlega með örmerki. Sigríður Heiðberg í Kattholti fagnar samþykktinni Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélags Íslands, starfar í Kattholti og fagnar hún nýju sam- þykktinni en segir að hún hefði viljað sjá strangari reglur. Segir hún þó betra að hafa örmerkingu en enga merkingu en hitt sé annað mál að eyrnamerking skili betri ár- angri því allir geti lesið á hana en örmerkinguna er ekki hægt að lesa nema með skanna. Slíkan skanna á Kattholt og fer enginn köttur frá þeim ómerktur, kettlingar eru ör- merktir og kettir sem teknir hafa verið úr sambandi eru eyrnamerkt- ir. Segir Sigríður að skráðir eig- endur beri oft ekki ábyrgð því þeir hafi oft gefið köttinn frá sér og þeir viti ekki hver nýi eigandinn er og eignaskipti hafi aldrei farið fram. Þannig fellur ábyrgðin oft á Kattavinafélagið. Aðspurð hvort óskilaköttum eigi eftir að fækka með tilkomu nýju samþykktarinnar segist Sigríður ekki viss um að svo verði og bætir við að kattahald á Íslandi sé í óskaplegum ólestri og í dag sé hún með 120 óskilaketti í húsinu. Vefskráning á örmerkjum katta hefst á morgun á heimasíðu Um- hverfissviðs Reykjavíkurborgar, www.umhverfisstofa.is. Morgunblaðið/RAX Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélags Íslands, með eina af fjölmörgum óskilakisum sem dvelja í Kattholti um þessar mundir. Hún er kettlingafull og ekki langt í að kettlingarnir muni koma í heiminn. Kettir í borginni fá 15 stafa númer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.