Morgunblaðið - 20.11.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.11.2005, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu litlu fjölbýlishúsi á frábærum stað í Hafnarfirði. Aðeins fimm íbúðir eru í húsinu. Öll umgengni og aðkoma til fyrirmyndar. Nýlegt parket á gangi, eldhúsi og stofu. Stutt í alla þjónustu t.a.m. er skóli hinu megin við götuna, 10-11 í göngufæri o.m.fl. Þorsteinn tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 17-18. TRAÐARBERG 1 - HAFNARFIRÐI OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-18 564 6464 Síðumúla 24 • 108 Reykjavík hof@hofid.is • www.hofid.is Guðm. Björn Steinþórsson, lögg. fasteignasali, Jón Guðmundsson, sölustjóri.fasteignasala Til sölu er einkahlutafélag í sjávarútvegi Helsta eign félagsins er Sómi 860, árg. 1998, krókaaflahlutdeild og krókaaflamark. M.v. núverandi úthlutun gefur aflahlutdeildin 39.132 kg. í þorski, 39.059 kg. í ýsu og 396 kg. í karfa, löngu, keilu og steinbít. Aflamarkið er óveitt. Báturinn er með 360 hestafla Volvo Penta vél, 5 DNG rúllum og útbúnaði til línuveiða. Upplýsingar veitir Guðmundur í síma 899 9600 Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, hdl. og lögg. fasteignasali Opið hús í dag kl. 14:00 – 15:00 Stýrimannastígur 3 - risíbúð Algerlega endurnýjuð 70,6 fm íbúð í risi, í fallegu 5 íbúða steinhúsi á góðum stað í hjarta Reykjavíkur. Nýtt gler í gluggum, nýtt rafmagn og vatnslagnir. Þak nýlega endurnýjað og húsið málað að utan. Eldhús er opið við rúm- góða og bjarta stofu, mikil lofthæð. Stórar svalir í suður. Fallegt útsýni. Nýtt parket úr hlyn er á gólfi og náttúrusteinn á baðherbergi. Verð 18,5 millj. Hamraborg 20A, 200 Kópavogur, www.husalind.is, sími 554 4000, fax 554 4018, email: gugga@husalind.is, sveina@husalind.is Op ið hú s Til leigu við Einholt/Þverholt vöruhús tilbúið til notkunar Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Um er að ræða 7000-8000 fm. Mögulegt er að leigja eignina í minni einingum. Stór og góður gámahleðslupallur ásamt afgreiðslu fyrir flutningabíla. Mjög góð staðsetning, góð aðkoma fyrir gámabíla. Húsnæðið hentar t.d. mjög vel fyrir heildsölur, lager og innflutningsfyrirtæki. Laust til leigu til skamms tíma Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030 Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar. ☎ 564 1500 25 ára EIGNABORG FASTEIGNASALA Hraunteigur 13 Reykjavík Opið hús frá kl. 15 - 17 Glæsileg 4ra herberbergja risíbúð. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting, rúmgóð stofa með suðursvölum, parket á gólfum, flísalagt baðherbergi. Eigendur taka á móti ykkur í dag frá kl. 15-17. Síðumúla 27 108 Reykjavík sími 534 4040, fax 534 4044 Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali og verðbréfamiðlari Virkilega góð tæplega 100 fm 4ra herbergja íbúð á efri hæð í litlu fjöleignarhúsi neðst í dalnum. Inngangur er sameiginlegur með fjórum íbúðum um teppalagðan snyrtilegan stigagang. Íbúðin skiptist í hol, gang, þrjú herbergi, baðherbergi, stofu og borðstofu, eldhús, þvottaherbergi og geymslu. Parket og dúkur á gólfum. Skápar í öllum herbergjum, skápur á baði og hillur í þvottaherbergi og geymslu. Sérbílastæði fyrir framan húsið. OPIÐ HÚS Í DAG kl. 13:30-15:30 Lindasmári 7, Kópav. Verð kr. 22.900.000 Sigþrúður tekur á móti ykkur í dag á milli kl. 13:30 og 15:30. ÉG HORFÐI á Skuggabörn og varð döpur. Ég vil ekki velta mér upp úr þessum ljóta heimi eiturlyfja held- ur hugsa í lausnum. Hvað getum við gert til að forða ungu fólki frá heimi vímunnar? Skuggabörn bentu á að fræðsla hefur ekkert að segja. Ef þig langar til að prófa eiturlyf þá hlust- arðu ekki á fræðslu, ekki einu sinni frá frægum manni. Það fæðist barn Börn fæðast for- eldrum til mikillar gleði. Sumir foreldrar hafa ekki krafta til að örva börnin sín, þau eru sett fyrir framan sjónvarp og horfa. Myndefnið verður jafnvel svæsnara þegar fram líða stundir, því eftirlit foreldra minnkar. Börnin horfa á allt mögulegt og spila svo ljóta tölvuleiki. Lífs- gleði minnkar. Rannsóknir hafa sýnt að ljótt myndefni getur ýtt undir veruleikafirringu hjá barni. Nammidagar Svo koma laugardagar sem tann- læknar ráðlögðu sem nammidaga og margir taka mjög hátíðlega. Þá fá all- ir bland í poka. Nokkrum tímum síð- ar eru börnin óð af sykrinum. Erum við að búa til sykurfíkla? Sumir vilja kalla sælgæti krakkadóp. Tannlæknar ættu frekar að hvetja til grænmetis- og ávaxtaáts á laug- ardögum. Þeir virðast hafa gífurleg áhrif og ættu að nýta sér það. Sum heimili eru með sér barna- matseðil sem er mun óhollari en mat- ur fullorðna fólksins. Hvers vegna fá börn næringarsnautt sérfæði? Óhollt mataræði eykur hættuna á þunglyndi og skapsveiflum. Það tengist einnig kvíða. Mikil neysla á mat sem inni- heldur aukefni, rotvarnarefni og hvítan sykur getur valdið ofvirkni, einbeitingarskorti og árásargirni. Það vantar króm í sætan og aukefna- ríkan mat en króm er nauðsynlegt til að stýra blóðsykrinum og þegar hann er óeðlilegur geta afleiðingarnar orð- ið hegðunarvandamál af þessum toga. Hvað er að? Þegar barn á í hegðunarvandræð- um er vert að skoða hvað það er að borða dags daglega. Er mikil syk- urneysla? Er mikið sjónvarpsgláp? Hvað með tölvuleiki? Ég hef rekist á þunglynda og lífsleiða drengi, þeir vildu helst bara vera í tölvuleikjum, nógu svæsnum. Tölvugeð- fötlun nefnist ný teg- und af geðveiki. Hvað með svefn? Mörg börn, sérstaklega unglingar, þjást af svefnleysi. Þetta þekkja margir kennarar sem kenna syfjuðum nemendum á morgnana. Nemendur á skólaaldri þurfa alla vega 8–9 klukkustunda svefn, sumir lengur og auðvitað stað- góðan morgunverð áður en farið er að heiman. Það er ómögulegt að kenna svöngum og syfjuðum nemendum í skólanum. Það er fleira sem getur bætt líðan barnsins. Hefurðu prófað að biðja fyrir barninu þínu? Ein móðir sem átti barn sem svaf illa á hverri nóttu prófaði að biðja um vernd yfir barnið sitt. Hún sagði að bænin virkaði. Það gefur börnum mikið að alast upp í trú á æðri mátt. Jesús er besti vinur barnanna! Hrós og hvatning Hvatning og hrós, hlustun og at- hygli er nauðsyn. Börn elska að fá að vera með foreldrum, sitja saman, tala saman, gera eitthvað saman. Börn sakna samverustunda með for- eldrum. Þegar laus tími er í fjölskyld- unni, þá vilja margir gleðja börnin sín með því að fara í verslunarferð og kaupa eitthvað, kannski til að hafa minningargrip frá samverunni? Gjaf- ir geta verið innihaldslausar. Ég held að flestum börnum finnist sam- verustundin sjálf mun mikilvægari. Þekkja börnin okkar betur versl- anamiðstöðvar en sjálfa náttúruna eða frændfólkið sitt? Ný kjarkmikil kynslóð Unglingar segja að þeir drekki áfengi því það sé svo gaman að detta í það. Þá þora þeir að gera allt mögu- legt. Fullorðnum finnst líka gaman að detta í það og þeir eru jú fyrirmyndir barna. Þegar ég hugsa í lausnum fyrir börnin okkar þá dettur mér í hug að skólarnir þurfi líka að taka sig á. Grunnskólar hafa aðgengi að öllum börnum og unglingum í landinu. Þar hefst forvörnin, í hverri kennslustofu. Skólar eru margir mjög uppteknir af því að hafa aðgengi nemenda að tölvum sem allra best. Tölvunotkun er mikilvæg fyrir framtíðina. Það gleymist þó stundum í allri þessari umræðu að bjóða fleiri tækifæri í námsgreinum sem efla sjálfstraust, þjálfa framkomu, ákvæð samskipti, munnlega tjáningu og skapandi hugs- un. Lífsleikni er frábær námsgrein sem kennd er í skólum en hún er ein- mitt hugsuð til þess að efla nem- endur, styrkja þá og fræða t.d. um af- leiðingar vímuefnaneyslu. En betur má ef duga skal gegn vímuefnavá. Það eru til fleiri námsgreinar sem efla einstaklinginn. Allir skólar ættu að bjóða upp á leiklist. Leiklist er námsgrein sem veitir andlega og líkamlega útrás, styrkir jákvæða sjálfsmynd, örvar skapandi hugsun og gefur nemendum kost á að fá tilfinningalega útrás sem lífið rúmar ekki. Í gegnum margra ára leiklistarkennslu veit ég að ein- staklingar blómstra þegar þeir fara í leiklist. Sálin vex, umburðarlyndi og tillitssemi gagnvart náunganum vex líka. Börn eru englar í mannsmynd Við þurfum væntanlega að endur- skoða okkar gang ef við ætlum að bregðast rétt við þessum heimild- arþætti um Skuggabörn. Biðjum fyr- ir öllum skuggabörnum. Snúum okk- ur svo að öllum þeim sem eru ennþá í lagi og hjálpum þeim að fara bjartari leið í lífinu. Sterkir einstaklingar þekkja vel muninn á réttu og röngu, þeir þora að stíga fram og standa með sjálfum sér. Þessir einstaklingar standa gegn vímuefnaneyslu. Englar í mannsmynd Marta Eiríksdóttir fjallar um börn og uppeldi þeirra ’Þegar barn á í hegð-unarvandræðum er vert að skoða hvað það borð- ar dags daglega. ‘ Marta Eiríksdóttir Höfundur er leiklistarkennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.