Morgunblaðið - 20.11.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.11.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 47 MINNINGAR okkur út á flugvöll. Hann sendi okkur alltaf helgarmoggann út til Danmerkur meðan við bjuggum þar. Þannig var hann alltaf vakinn og sofinn yfir velferð okkar alla tíð. Sem afi barna minna var hann ómetanlegur. Þau fundu alltaf fyrir því hversu velkomin þau voru og alltaf átti hann til nammi handa þeim. Hreinn hafði áhuga á mörgu, bæði mönnum og málefnum. Hann fylgdist vel með, ekki síst þjóðmál- um og borgarmálum. Nú er Hreinn allur og eftir stendur hlý og góð minning sem mun aldrei slokkna. Ég vil að lokum fyrir hönd fjöl- skyldu Hreins þakka Kristínu Bergmann, fararstjóra hjá Úrvali- Útsýn, og fjölskyldu hennar þá ómetanlegu og óeigingjörnu hjálp sem hún veitti okkur öllum. Guð blessi okkur öll. Jakob Jóhannsson. Það var eins og tíminn stæði í stað þegar við fengum þær fréttir að afi hefði veikst alvarlega á Spáni. Amma, afi og Bogga frænka höfðu verið þar í fríi og voru að koma heim. Laugardaginn fyrir at- burðinn fór hann aleinn um Beni- dorm og keypti dýrar og vandaðar gjafir handa okkur. Okkar minningar um afa eru allt- af af honum sem ástkærum, hress- um og farsælum afa. Afa sem elsk- aði og þótti vænt um öll sín börn og barnabörn. Hann var alltaf með nammi í nammiskápnum og tilbú- inn að fylla hina frægu nammiskál þegar við komum í heimsókn. Sem tveir smástrákar í Kaup- mannahöfn munum við alltaf eftir því hvað var gaman að koma í Ysta- bæinn og dvelja hjá afa og ömmu í fríum okkar. Sérstaklega munum við þó eftir öllum þeim ferðum og göngutúrum sem við fórum með afa sem allar voru líkastar ævintýri. Þar má nefna veiðiferðina miklu, Tívolíferðina í Hveragerði að ógleymdri ferð í Húsdýragarðinn. Afi gaf sér mikinn tíma með okkur barnabörnunum til að fara bæði í sund og gönguferðir. Allar veislur og öll boð í Ysta- bænum eru ógleymanlegar minn- ingar. Í garðveislu síðastliðið sum- ar tjaldaði hann uppáhaldstjaldinu sínu fyrir okkur til að borða í. Þar sátum við frændsystkinin allt kvöldið. Afi mun alltaf eiga stóran sess í hjarta okkar og mun aldrei gleym- ast. Ein af síðustu orðum hans voru: „Hafið ekki áhyggjur af mér.“ Við viljum enda þetta með sálmi eftir Hallgrím Pétursson: Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. Hlynur Örn, Daníel og Sólveig. Elsku besti afi minn, mér þykir erfitt og sárt að þurfa að kveðja þig á þessari stundu, ég vonaði svo heitt og innilega að þú myndir ná þér á strik eftir áfallið. En það er eins og guð hafi áætlaðan tíma fyrir mann og ekkert þessu líkt gerir boð á undan sér. Þú hefur bara allt- af verið svo hress og kátur. En ég veit og trúi því að þér líði vel núna. Mig langar örlítið að rifja upp ynd- islega tíma sem við áttum saman. Ég var ekki nema um sjö ára þegar þið amma tókuð svona yndislega vel á móti okkur systrunum, ég á varla nógu góð orð yfir því, hvað þið hafið alltaf verið svo yndisleg, og tókuð okkur sem ykkar eigin. Ég gleymi því aldrei þegar ég var u.þ.b. átta ára og ég labbaði til þín og spurði: „Hreinn! má ég kalla þig afa?“og svarið var: „Auðvitað máttu það, Berglind mín.“ Sömu spurningu fékk amma og fékk ég sama svarið. Ég var líka þetta al- sæl. Það hefur alltaf verið gott að koma til ykkar í Ystabæinn, staður sem alltaf er gaman að heimsækja og spjalla við ykkur um heima og geima. Maður var alltaf svo vel- kominn. Ég vildi bara óska að við fjölskyldan hefðum náð að kíkja til ykkar í kringum afmælið þitt, rétt áður en þið fóruð út, og líka að þakka fyrir afmælisgjöfina frá ykk- ur. Ég mun svo sannarlega passa vel upp á í hvað hún fer, en þetta var það besta sem þið gátuð gefið mér, kærar þakkir, afi. Natalía Ýr er búin að kúra og knúsa litlu dúkkuna sem þú keyptir handa henni, alveg síðan hún fékk hana, lúllar með hana á hverju kvöldi. Við varðveitum hana vel. Núna taka við öðruvísi tímar. Megi guð styðja og styrkja ömmu í gegnum þennan tíma og þessa sorg. Ég veit þú lifir í kringum okkur og fylgist vel með. Elsku afi, ég mun sakna þín mik- ið og þykir óendanlega vænt um þig. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér og okkur fjöl- skyldunni, og fyrir að vera alveg frábær afi og langafi. Berglind. Elsku afi. Við söknum þín alveg rosalega mikið. Við erum svo hepp- in að hafa kynnst þér og að eiga svona margar góðar minningar um þig. Við munum bæði mest eftir því þegar þú kenndir okkur ýmis spil og þegar þú labbaðir með okkur niður í skóg eða sýndir okkur litla húsið í garðinum. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn og vilj- um við þakka fyrir allt gotteríið sem þú áttir alltaf til handa okkur. Og innilegar þakkir fyrir gjafirnar sem þú keyptir handa okkur úti. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar og við munum aldrei gleyma þér. Sunna Dögg og Atli Már. Alltaf var gaman að koma til afa og ömmu um helgar, þar sem afi gaukaði að mér einhverju góðgæti. Aldrei þreyttist hann á að sýna mér þá fjársjóði sem geymdir voru í vinnuherberginu. Sumarið sem leið var sérstaklega eftirminnilegt og á ég eftir að minnast um ókomna tíð góðu stundanna á pallinum. Ég vil þakka afa allar þær ynd- islegu stundir sem við áttum sam- an. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Ég heyri’ í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stef.) Kveðja. Aþena Íris. Elsku afi, það er sorglegt að þú sért dáinn. Það var samt gaman þegar ég kom í heimsókn í Ystabæ með bróður mínum og þú komst til okkar og spurðir okkur hvort við ættum að fara og athuga hvort það væri eitthvert nammi til í skápnum. Skemmtilegast fannst mér þegar við fórum saman í göngutúr við El- liðavatn og þú sýndir mér náttúr- una og fuglana sem þú hafðir svo mikið dálæti á og passaðir að gefa þeim reglulega. En nú ert þú farinn til guðs og ég mun gæta ömmu rosalega vel og vera dugleg að fara í heimsókn. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Kveðja. Rakel Lillý og Elvar Smári. Elsku amma, nú ertu farin yfir móðuna miklu, en þegar ég heyrði að þú værir dáin brá mér. Ég fór að hugsa um þá tíma sem ég kom oft til þín, fékk kaffi hjá þér, við sátum stundum marga tíma og töluðum um allt milli himins og jarðar. Ég man líka þegar ég sá þig fyrst. Þá var ég krakki og mamma mín kom með mig til þín. Hvað þú varst góð við mig. Ég sakna þess. Stundum óskaði ég þess að þú værir mamma mín á þessum tíma, en mamma mín skildi mig eftir hjá þér og systk- inum mínum. Svo eignaðist ég lítinn strák sem ég ætlaði að sýna þér en ég segi honum frá þér því ég veit að þú ert á betri stað núna, amma mín. Við Dóra Rebekka og Sigurður Berg- mann biðjum Guð að blessa þig og alla fjölskylduna. Heiðar Örn Heimisson. Hjartans þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MARÍU ÞORSTEINSDÓTTUR frá Eyri í Skötufirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 2. hæð Sólvangs fyrir góða umönnun. Guð veri með ykkur öllum. Sigurður Á. Jónsson, Árný Vismin Jónsson, Jóna Jónsdóttir, María E. Jónsdóttir, Atli Már Kristjánsson, Hólmfríður R. Jónsdóttir, Halldór Valgeirsson, Þóra B. Jónsdóttir, Steindór Ingimundarson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR ARNDAL, Vitastíg 12, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Sigríður H. Arndal, Ægir Benediktsson, Jónína H. Arndal, Þorsteinn Hjaltason, Guðrún H. Arndal, Guðmundur Gunnarsson, Magnús H. Arndal, Ingibjörg Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRHALLUR ÁSGEIRSSON fv. ráðuneytisstjóri, Einimel 6, andaðist laugardaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 23. nóvember kl. 15.00. Lilly Ásgeirsson, Sverrir Þórhallsson, Inga Helgadóttir, Dóra Þórhallsdóttir, Magnús B. Einarson, Ragna Þórhallsdóttir, Flosi Kristjánsson, Sólveig Þórhallsdóttir, Gunnar Jóakimsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BÁRU HÓLM, Hátúni 11, Eskifirði, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. nóv- ember kl. 15. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Kristinn G. Karlsson, Einar Hólm, Lilja Berglind Jónsdóttir, Súsanna Kristinsdóttir, Halldór Árnason, Þórunn Kristinsdóttir, Skúli Jónsson, Pétur Karl Kristinsson, Gunnhildur Ósk Sæbjörnsdóttir, Guðrún Björg Kristinsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNÞÓRA G. MAGNÚSDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavík, sem lést föstudaginn 11. nóvember, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. nóv- ember kl. 13.00. Sigurður K. Guðjónsson, Katrín Guðjónsdóttir, Jónas Ragnarsson, Helgi Már Guðjónsson, Ingveldur Kristófersdóttir, Þóra Þ. Guðjónsdóttir, Sturla Erlendsson, Arna Guðjónsdóttir, Sigurður Jónsson, barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR, Hlíðargötu 4, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar FSA fyrir einstaka alúð, hjúkrun og umönnun. Guðmundur Haraldsson, Íris Karlsdóttir, Gunnar Haraldsson, Halldóra Haraldsdóttir, Ólafur Haraldsson, Inga Lára Bachmann, barnabörn og barnabarnabörn. Helluhrauni 10, 220 Hf., sími 565 2566, www.englasteinar.is Englasteinar Fallegir legsteinar á góðu verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.