Tíminn - 01.10.1970, Qupperneq 9
FTMMTUDAGUR 1. októbcr 1970
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas
KarJsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Glslason. Rltstjórnar-
skriístofur 1 Edduhúsinu, sirrtar 16300 —18306. Skrifstofur
Bankastræti 7 — Afgreiðsiusími 12323. Attglýsingasimi 19523.
Aðrar sQcrifstofur simi 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuði,
tnnanilands — í lausasölu tor. 10,00 eint. Prentsm. Edda hf.
Samvinna við Sjálf-
stæðisflokkinn
Sðan bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum lauk á
síðastliðnu vori, hefur það verið eitt aðaláróðursefni mál-
gagna Alþýðubandalagsins og Hannibalista, að Framsókn-
arflokkurinn ætli að ganga til samstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn eftir næstu þingkosningar. Þetta hefur m.a. ver-
ið rökstutt með því, að samvinna hefur tekizt milli Fram-
sóknarmanna og Sjálfstæðismanna í nokkrum bæjar-
stjómum. Blaðamenn Þjóðviljans og Frjálsrar þjóðar hafa
látið eins og þeir hefðu ekki nógu sterk orð til að for-
dæma hugsanlegt samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Það kom hins vegar ljóst fram í fróðlegum sjónvarps-
þætti, sem Ólafur Ragnar Grímsson stjórnaði síðastl.
þriðjudagskvöld, að foringjar umræddra flokka hugsa á
aðra leið en greinahöfundar Þjóðviljans og Frjálsrar
þjóðar. Hvorki Björn Jónsson eða Lúðvík Jósefsson vildu
útiloka samvinnu flokka sinna við Sjálfstæðisflokkinn
eftir næstu þingkosningar. Báðir gáfu ótvírætt í. skyn,
að málavextir gætu verið þannig, að kosningum loknum,
að samvinna við Sjálfstæðisflokkinn gæti hæglega komið
til greina.
Alveg sérstaklega mátti skilja Björn Jónsson á þessa
leið, þótt það kæmi að vísu óbeint fram. Björn gaf til
kynna. að „samtök frjálslyndra og vinstri manna“ væru
eiginlega ekki hugsuð sem framtíðarflokkur, heldur gætu
þau vel hugsað sér að sameinast öðrum í sosialdemo-
kratiskum flokki áður en langt liði. Þetta styrkir þá skoð-
un, að markmið Björns og Hannibals sé að sameinast Al-
þýðuflokknum eftir næstu þingkosningar og tryggja
þannig áframhald núverandi stjórnarsamvinnu, ef
stjórnarflokkarnir missa meirihlutann, en Hannibalistar
fá þingmenn kosna.
Lúðvík Jósefsson taldi meiri tormerki en Björn á sam-
vinnu við Sjálfstæðisflokkinn. en forðaðist þó að afneita
henni.
Þrálátur áróður málgagna Alþýðubandalagsins og
Hannibalista um, að Framsóknarflokkunnn hyggi á sam-
vinnu við Sjálfstæðisflokkinn, er þannig bersýnilega ekki
sprottinn af því, að þessir flokkar séu andvígir samvinnu
við Sjálfstæðisflokkinn, heldur miklu frekar af ótta við,
að aðrir verði þeim þar hlutskarpari!
Um afstöðu Framsóknarflokksins er þaS hins
vegar að segja, að hann tekur fyrirfram þá einu af-
stöðu til hugsanlegrar stjórnarsamvinnu, að málefn-
in ráði. Fyrir honum vakir það fyrst og fremst að
koma fram sem mestu af stefnumálum sínum og
samkvæmt þvi mun hann vinna.
Skozka óperan
Það er sögulegur menningarviðburður, að skozka óper-
an flytur næstu kvöld á sviði Þjóðleikhússins tvær óperur
eftir brezka tónskáldið Benjamin Britten, sem er heims-
frægur maður fyrir óperuverk sín. Skozka óperan, sem
hefur aðsetur í Edinborg, mun vera yngsta óperan í
Evrópu, stofnuð 1962, en hefur á þessum fáu árum
náð þeim árangri. að hún er komin i allra fremstu röð.
íslendingar og Skotar eru nágrannar en þó eru menn-
ingarleg skipti þeirra minni en skyldi Það er ekki sízt
af beirri ástæðu sem ánægjulegt er að bjóða skozku
óperuna velkomna. Vonandi koma fleiri skozkir lista-
menn hingað í kjölfar hennar og íslenzkir listamenn
endurgjaldi síðan hsimsóknir þeirra eftir því sem kost-
ur er. Þ.Þ.
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Þriðji nóvember veröur mikill
kosningadapr í Bandaríkjunum
Líklegt að demókratar haldi þingmeirihlutanum.
Adlai E. Stevenson þriðji ræðir við væntanlegan kjósanda.
ÁRIÐ 1970 verður tnikið
kosningaár í Bandaríkjunum.
Hinn 3. nóv. næstkomandi fara
fram kosnmgar til fulltrúa-
dcildar Bandaríkjaþings og til
þriðjungs öldungadeildarinnar.
Jafnframt fer fram ríkisstjóra-
kjor í 35 ríkjum. Samhiiða rík
isstjórakjörinu fer fram kosn-
ing til viðkomandi fylkisþinga.
Kosningum þessum er veitt
mikil athygli sökum þess, að
þær verða nokkur mælikvarði
á vinsældir Nixons forseta.
Venjan er sú, að flokkur for-
setaos tapar heldur í kosning-
um, sem fara fram á miðju
kjörtúmabili hans. Það yrði því
ekki teljandi áfall fyrir Nixon,
þótt republikanar ynnu ekki á
í kosningunum. Hins vegar
yrði sigur þeirra mikill ávinn-
ingur fyrir hann.
Demokratar hafa nú traust-
an meirihluta í báðum þing-
deildum. Síðustu skoðanakann-
anir benda til, að þeir muni
halda honum örugglega í full-
trúadeildinni, en þar hafa þeir
nú 246 sæti, en republikanar
189. Hins vegar er ekki talið
útlokað, að republikanar vinni
heldur á í kosningunum til
öldungadeildarinnar. Þar verð-
ur kosið um 35 sæti. Af þeim
hafa demokratar nú 25, en
republikanar 10. Sum þessi
sæti unnu demokratar með
■naumindum síðast, og gera
republikanar sér því von um
að vinna þau nú. Athyglin mun
alveg sérstaklega beinast að
þeim ríkjutn, þar sem repu-
blikanarnir keppa að því að
vinna öldungardeildarsæti frá
demokrötum.
V
ÞAÐ mun ætlun þeirra Nix-(
ons og Agnews að taka mikinn
þátt í kosningabaráttunni. Eink
um mun þó Agnew teflt fram,
en hann hefur unnið sér mikla
hylli meðal hægri manna með
ræðum sínum á undanförnum
mánuðum. Agnew hyggst eink-
um beita sér gegn þeim
ölduugardeildarþingmönnum
demókrata, sem eru and-
vígir áframhaldandi styrjaldar-
þátttöku Bandaríkjanna í Viet-
nam. Sérstaklega mun Albert
Gore, öldungadeildarþingmað-
ur frá Tennessee verða skot-
mark hans. Óvíða fylgjast
blaðamenn liia betur með kosn
ingabaráttunni en þar.
Þrír frambjóðendur demo-
krata í öldungadeildarkosning-
unum, sem oft er rætt um
sem forsetaefní, þykja örugg-
ir um sigur. Það eru þeir Ed-
mund S. Muskie í Maine, Ed-
ward Kennedy í Massachusetts
og Hubert Humbhrey í Minne-
sota. Eins og sakir standa, þyk
ir Muskie hafa mesta mögu-
leika af þessum þremenning-
um til þess að verða frambjóð-
andi demokrata í forseiakosn-
ingunum 1972
ÞÖTT líklegt þyki, að repu-
blikanar vinni nokkur öldunga-
deildarsæti, er ekki talið ólik-
legt, að þeir tapi tveimur sæt-
um, öðru í Illinois 02 hinu í
Kaliforníu. í Illinois er Adlai
E. Stevenson þriðji frambjóð-
andi demokrata. Ef hann nær
kosningu, þykir ekki ólíklegt,
að hann eigi eftir að erfa það
hlutverk föður síns að verða
frambjóðandi detnókrata í for-
setakosningum. í Kaliforníu
þykir Gene Tuaney líklegur til
að fella kvikmyndaleikarann
George Murphey, sem reynzt
hefur lítill stjórnimálamaður,
en Tunney hefur sér það til
ágætis, auk þess að hafa reynzt
vel sem þingmaður í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings, að fað-
ir hans var einu sinni heims-
meistari í hnefaleikum og var
þá þekktur um allan heim. Þeir
Stevenson og Tunney eru báð-
ir tæplega fertugir.
EINS og áður segir, fer
fram ríkisstjórakjör í 35 ríkj-
um. f 24 þeirra er ríkisstjór-
inn nú úr hópi republikanna,
en f 11 þeirra úr hópi demo-
krata. Hér hafa demokratar
því öllu meiri möguleika til
vinnings en republikanar. í
Kaliforníu sæktir kvikmynda-
stjarnan Ronald Reagan um
endurkjör og er talinn sigur-
viss Hið sama gildir ekki um
Nelson A. Rockefeller, sem
keppir nú að því að ná kosn-
ingu sem ríkisstjóri í New
York-ríki : íjórða ánn. Hann
hefur fengið allskæðan keppi-
naut, þar sem er Gyðingurinn
Arthur Goldberg, en hann hef-
ur áður verið verkalýðsmála-
ráðherra, hæstaréttardómari
og aðalfulltrúi Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum og
er þvi velþekktur maður, sem
nýtur mikils álits. Hann nýtur
mikils stuðnings Gyðinga og
svertingja, sem eru fjölmennir
í New York. Það spillir hins
vegar fyrir honum, að hann er
frjálslyndur og munu því ýms-
ir hægri demokratar snúast
gegn honum. Til þess að vega
gegn fylgi Goldbergs meðal
Gyðinga og svertingja, leitar
Rockefeller nú einkum fylgis
meðal fólks af ítölskum, írsk-
um og pólskum ættum, en
það er einnig fjölmennt í New
York. Bróðir Nelson A.Rocbe-
fellers, Winthrop Rockefeller,
sækir um kjör í þriðja sinn
sem ríkisstjóri i Arkansas og
er talinr. í nokkurri hættu, þótt
gegn honum sæki lítt þekktur
maður ,sem vann sér það til
óvæntrar frægðar að fella
Faubus fyrrverandi ríkisstjóra
í prófkosningu. Faubus var um
langt skeið vinsælasti stjórn-
málamaðurinn í Arkansas, en
dró sig í hlé fyrir nokkrum ár-
um. en ætlaði nú að byrja að
nýju, enda nýgiftu1- ungri konu.
Ef hann hefði ekki tapað próf
kjörinu óvænt. var hann tal-
inn líklegur til að reynast
Rockefeller skæður keppinaut-
ur.
Síðar verður rætt un þau
mál, sem mest ber á góma í
sambandi við kosningarnar.
Þ.Þ.
utm
J