Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 21
21FÖSTUDAGUR 7. febrúar 2003 Fyrsta blaðið á hálfvirði 100 síðna bók ókeypis - ef þú svarar innan 10 daga Þú greiÐir aÐeins 345 kr EINSTAKT TILBOÐ 1 2 3 4 Fyrsta blaðið á hálfvirði - þú borgar aðeins 345 kr. fyrir utan sendingarkostnað. Ef þú svarar innan 10 daga færðu 100 síðna bók um stelpurnar að gjöf. Mánaðarlega færðu n tt blað, með hverju blaði fylgir einhver skemmtileg gjöf og borgar aðeins 690 kr. fyrir utan sendingarkostnað. Blöðin eru eingöngu fáanleg í áskrift og eru ekki í boði á almennum markaði. S k r á ð u þ i g á h t t p : / / d i s n e y . k l u b b a r . i s Loksins EINSTAKT TILBOÐ Finndu EIGIN MÁTT! Hringdu núna í síma 522 2020 Láttu töfrast af heimi galdrastelpnanna! Í hverjum mánuði fylgist þú með spennandi sögu um stelpurnar fimm frá Heatherfield. Þú getur líka lesið um leyndarmálin á bak við stjörnumerkið þitt og lært smá galdrabrögð til að næla í „hann, þú veist“. Í hverju blaði er galdrapróf sem hjálpar þér að finna máttinn sem b r innra með þér! G A L DR AST ELPUR N A R sagan um © Disney bandarískum fangelsum á tíunda ára- tugnum. Hinstu máltíðir nefnist sýning Barböru Caveng í Listasafni Akureyrar. Viðfangs- efni sýningarinnar eru síðustu máltíðir fanga sem teknir hafa verið af lífi í Bandaríkjunum. Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýning ungra íslenskra og breskra listamanna. Sýningin ber heitið „then ...hluti 4 - minni forma“. Sýningin stendur til 2. mars. Tumi Magnússon sýnir vídeóverk í Kúl- unni í Ásmundarsafni við Sigtún í Reykjavík. Safnið er opið alla daga frá kl. 13 til 16. Sýningin stendur til 16. febrú- ar. Friðrik Tryggvason ljósmyndari sýnir sex ljósmyndir á Mokka kaffi. Sýninguna kallar hann Blátt og rautt. Hún stendur til 15. febrúar og er opin á opnunartíma kaffihússins. Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, sýna þau Finnur Arnar Arnarsson, Hlynur Hallsson og Jessica Jackson Hutchins verk sín. Í Ketilshúsinu á Akureyri stendur yfir sýningin Veiðimenning í Útnorðri. Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi stendur nú yfir sýning á 124 ljósmynd- um frá árunum 1921-81. Ljósmyndar- arnir eru 41 talsins, allir þýskir og að- hylltust allir Bauhaus-stefnuna, sem fólst í því að myndlist og iðnhönnun ættu að sameinast í byggingarlistinni. Sýningin BókList stendur yfir í anddyri Norræna hússins. Þar sýnir finnska listakonan Senja Vellonen 22 handunn- ar bækur. Sýningin stendur til 9. febrúar og er opin frá kl. 9-17 alla daga nema sunnudaga frá kl. 12-17. Hallgrímur Helgason sýnir í austursal Gerðarsafns í Kópavogi nokkur málverk af Grim, teiknimyndapersónunni með tennurnar stóru. Myndirnar eru unnar með nýjustu tölvutækni. Safnið er opið 11-17 alla daga nema mánudaga. FLYING/DYING er heiti sýningar Bjargeyjar Ólafsdóttur sýnir í vestursal Gerðarsafns í Kópavogi. Á sýningunni eru ljósmyndir og vídeóverk, sem meðal annars fjalla um bílslys sem listakonan lenti sjálf í og komst nálægt því að deyja. Safnið er opið 11-17 alla daga nema mánudaga. Húbert Nói sýnir á neðri hæð Gerðar- safns í Kópavogi. Sýningin, sem nefnist HÉR OG HÉR / 37 m.y.s., er sérstaklega unnin fyrir salinn og er innsetning á ol- íumálverkum sem sýna annars vegar hluta af salnum og hins vegar málverk sem hanga þar á veggjum. Safnið er opið 11-17 alla daga nema mánudaga. Rakel Kristinsdóttir sýnir í Kaffi Sólon, Bankastræti 7a. Anna Guðrún Torfadóttir myndlistar- maður sýnir verk unnin með blandaðri tækni í Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn- inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms- kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall- grímskirkju og stendur til loka febrúar- mánaðar. Íslandsmynd í mótun - áfangar í kortagerð er yfirskrift sýningar í Þjóð- menningarhúsinu. Sýnd eru þau kort sem markað hafa helstu áfanga í leitinni að réttri mynd landsins. Sýningin stend- ur þangað til í ágúst. Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð- menningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá klukkan 11 til 17. Í Ásmundarsafni við Sigtún stendur yfir sýningin Listin meðal fólksins, þar sem listferill Ásmundar Sveinssonar er sett- ur í samhengi við veruleika þess samfé- lags sem hann bjó og starfaði í. Sýning- in er opin alla daga klukkan 13-16. Hún stendur til 20. maí. Fræðsla um náttúruna hjá KFUM og KFUK: Fuglar himinsins og liljur vallarins SKÖPUNARVERKIÐ Bjarni Guðleifs- son náttúrufræðingur verður með þrjú fræðsluerindi um fyrirbæri náttúrunnar hjá KFUM og KFUK nú um helg- ina. Í lok hvers erindis verður hann svo með stutta hugleið- ingu á trúarlegum nótum út frá efninu hverju sinni. „Þetta eru þrjár samkomur. Á föstudagskvöldið ætla ég að fjalla um sóleyna. Á laugardag- inn verður samkoma með ung- lingum, og þá ætla ég að fjalla um snjótittling. Á sunnudaginn tek ég svo fyrir stórt fyrir- bæri, sem eru fjöllin,“ segir Bjarni. „Það er gaman að skoða sköpunarverkið á þennan hátt og sjá hve margt stórkostlegt er þarna á ferðinni. Þessi fyrir- bæri vitna öll um skaparann, hvort sem þau eru smá eða stór.“ Bjarni hefur starfað lengi sem náttúrufræðingur hjá Rannsóknarstofnun landbúnað- arins á Möðruvöllum. Hann er meðal annars einn helsti sér- fræðingur landsins á kali í tún- um. Hann segist sannfærður um að alþýðufræðsla um fyrirbæri nátt- úrunnar sé mjög mikilvæg. „Hún kennir okkur að umgangast nátt- úruna af nærfærni og bera virð- ingu fyrir henni.“ Bjarni segist hafa haldið í kristna trú allt frá barnsaldri. „Ég er alinn upp í KFUM hérna í Reykjavík. Þar kynntist ég trúnni og kristindóminum, sem er mér mikið hjartans mál.“ ■ BJARNI GUÐLEIFSSON Nálgast trúna frá óvenjulegu sjónar- horni.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.