Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 23
23FÖSTUDAGUR 7. febrúar 2003 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 4 og 6 8 MILE kl. 8 og 10.15 THE LORD OF THE RINGS b.i. 12 5.30 og 9 JUWANNA MANN kl. 4 GULL PLÁNETTAN m/ísl. tali kl. 4 JACKASS b.i.14.ára kl. 6, 8 og 10 HARRY POTTER kl. 6 Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.20 b.i.10.ára Sýnd kl. 10 TRANSPORTER b.i. 14 kl. 6, 8 og 10 BANGER SISTERS kl. 6 og 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 bi 12 TÓNLIST Mörg ykkar eiga eflaust erfittmeð að trúa þessu en það er margt gott á þessari plötu. Hvern- ig getur hvítur uppavælukjói í Jackson-leik mögulega gert eitt- hvað gott? Einfalt, hann er ekki stjarna plötunnar. Hann er áhættulaus söngvari með hreina og fína rödd en hefur engan karakter. Hann er vælukjói og virkar oft tilgerðalegur. Ein- hver hér vissi þó hvað hann var að gera því smáskífurnar eru hreint út sagt stórkostlegar. Veltið þessu aðeins fyrir ykkur, lagið „Like I Love You“, er líklega fyrsti útvarpsslagarinn í langan tíma þar sem viðlagið kemur ekki fyrr en eftir 2:34. Það er minimal- ísk útsetning lagsins, kassagítar og taktur undir grípandi sönglínu, sem gerir það svona dáleiðandi. Mennirnir þar á bak við eru The Neptunes, sem nýlega gerðu af- bragðs skífu undir nafninu N*E*R*D. Merkilegast er þó hvernig út- setjarinn Timbaland leikur sér í kringum stefið úr „Höll Dofrakon- ungs“ eftir norska tónskáldið Grieg í laginu „Cry Me A River“. Stefinu er breytt örlítið og það lát- ið hljóma á svipaðan hátt og það gerði í gamla „Tetris“-leiknum á C64 leikjatölvuna. Snilld. Lög 1-6 eru í þessum gæða- flokki. Svo þynnist platan út í til- gerðarlegt vælukjóapopp, því mið- ur. Birgir Örn Steinarsson JUSTIN TIMBERLAKE: Justified Vælukjóinn kemur á óvart TÓNLIST Það hlýtur að teljast undar- legasta fréttin úr tónlistarheimin- um síðan Michael Jackson varð hvítur að rappfrömuðurinn Dr. Dre og sveiflukóngurinn Burt Bacharach hafi ákveðið að sameina krafta sína. Sá síðarnefndi, sem er 74 ára gamall, vinnur nú hörðum höndum við að útbúa lagabúta fyrir hiphop-söngleik Dr. Dre. Fyrir þá sem ekki vita er Bacharach þekktastur fyrir lög sem hann samdi á sjöunda áratugn- um og söngkonurnar Dionne Warwick, Cilla Black og Sandie Shaw gerðu vinsæl. Tónlist hans hefur einnig spilað stórt hlutverk í gamanmyndunum um Austin Powers og kom hann einmitt fram í einni þeirra. „Hann lét mig hafa trommu- takta og sagði að ég mætti gera ná- kvæmlega það sem ég vildi ofan á þá,“ sagði Bacharach um sam- starfsmann sinn Dr. Dre. „Þetta verða ekki hefðbundin lög. Þetta er líkara klassískum tónsmíðum, sem mér finnst afar athyglisvert.“ ■ Dr. Dre og Burt Bacharach: Sameina krafta sína DR. DRE Ætli hann þekki leiðina til San Jose? BURT BACHARACH Ætli framtíðarlög hans fjalli þá um tíkur, víkódín og kannabisreykingar? FÓLK Breska dagblaðinu Evening Standard hefur verið gert að greiða John Cleese rúm 13 þús- und pund í skaðabætur eftir að blaðið birti grein um búferla- flutninga leikarans til Bandaríkj- anna. Jonathan Caplan, lögfræðingur Cleese, sagði fyrir dómnum að blaðið „hefði vegið að lífstíðar- starfi leikarans á viðbjóðslegan og hatramman hátt“. Í greininni er meðal annars fjallað um mann- réttindabaráttu í Bandaríkjunum og Cleese gagnrýndur fyrir að flytjast þangað. Cleese, sem er hvað þekktast- ur fyrir myndir Monty Python- hópsins, var afar ánægður með dómsúrskurðinn. Blaðið hafði boðið honum tíu þúsund pund í skaðabætur en hann neitaði. „Málið var dæmt Cleese í hag. Dómarinn taldi greinina bera vott um ósiðlega blaðamennsku,“ sagði lögfræðingur leikarans. ■ John Cleese ánægður: Tvær milljónir í skaðabætur JOHN CLEESE Var ánægður með niðurstöður dómarans, sem taldi að blaðið hefði beitt ósiðlegri blaðamennsku.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.