Fréttablaðið - 11.04.2003, Page 4
4 11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.52 -0,73%
Sterlingspund 121.26 -0,04%
Dönsk króna 11.26 -0,35%
Evra 83.67 -0,31%
Gengisvístala krónu 120,83 -0,18%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 328
Velta 6.721 milljónir
ICEX-15 1.420 -0,07%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 112.420.840
Ker hf. 111.536.339
Baugur Group hf. 53.226.511
Mesta hækkun
SÍF hf. 2,33%
Hampiðjan hf. 2,22%
Nýherji hf. 1,30%
Mesta lækkun
Fiskmarkaður Íslands hf. -7,89%
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. -4,00%
Landssími Íslands hf. -3,54%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8181,6 -0,2%
Nasdaq*: 1358,6,0 0,1%
FTSE: 3803,3,4 -1,5%
DAX: 2709,3 -0,9%
NIKKEI: 7980,1 1,0%
S&P*: 866,8 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Hver býður bestu
skattalækkunina?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú í ferðalag um páskana?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
41,9%
29,8%
Sjálfstæðisfl.
5,5%Vinstri grænir
Samfylkingin
6,8%Frjálslyndi flokkurinn
16%Framsóknarflokkurinn
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Veður
Umhverfisráðuneytið endurskoðar lög um verndun arnarstofnins:
Hæstiréttur breytir engu
UMHVERFISVERND Umhverfisráðu-
neytið telur að nýgenginn sýknu-
dómur Hæstaréttar um meinta
hindrun arnarvarps breyti engu um
að íslenski haförninn sé alfriðaður
samkvæmt villidýralögum.
Í dómnum var ekki talið ljóst
hvort sá staður sem örn kynni að
verpa á gæti fallið undir „lífsvæði
dýra“. Ekki væri nægilega skýrt
kveðið á um það í lögum.
Með hliðsjón af þessu telur um-
hverfisráðuneytið að mæla þurfi
fyrir um það afdráttarlaust í lögum
að óheimilt sé að hindra arnarvarp.
Til þess að styrkja verndun arnar-
stofnsins og tryggja friðun við
varpstaði arna hefur ráðuneytið
ákveðið að hefja þegar í stað endur-
skoðun og styrkingu ákvæða laga
um arnarstofninn.
Eftirlit með varpi, undirbúningi
þess og varpstöðum verður aukið
verulega til að koma í veg fyrir
truflun við varpstaði nú í vor og
tryggja sem bestan varpárangur.
Umhverfisráðherra hefur farið
þess á leit við Bændasamtök Ís-
lands að þau beiti áhrifum sínum til
þess að tryggja vernd arnarstofns-
ins. Munu samtökin óska eftir því
við umbjóðendur sína sem átt geta
hlut að máli, einkum æðarræktend-
ur, að þeir virði lög um friðun arnar-
ins og að umræddur dómur breyti í
engu umgengni við haförninn. ■
Vöxtur í ám er mikill í þessari rigningatíð:
Magnið margfalt á
við venjulega
VATNAVÖXTUR „Vatnavöxtur um allt
land er miklu meiri en gerist í
venjulegu ári,“ segir Kristinn Ein-
arsson, vatnafræðingur hjá Orku-
stofnun, um stöðu vatnsmagns í ám.
Kristinn segir vöxtinn vera
mestan í jökulánum frá Vatnajökli.
Til dæmis eru Jökulsá í Fljótsdal og
Skaftá tíu sinnum vatnsmeiri en
venjulegt er á þessum árstíma.
Skjálfandafljót er sexfalt vatns-
meira en það er yfirleitt. „Vatns-
magnið í Elliðaánum er fjórfalt á
við venjulegan aprílmánuð og svona
mikið magn á við margar ár hér á
Suðvesturlandi,“ segir Kristinn.
„Minni vöxtur er í ám á Norður-
og Vesturlandi. Þó er vöxtur tölu-
verður í Norðurá í Borgarfirði, þar
sem hann er þrefaldur. Hins vegar
er vatnsmagn Blöndu tvöfalt og ár í
Húnavatnssýslu eru ekki mikið yfir
meðallagi,“ segir Kristinn.
Kristinn segir ástæður fyrir
þessum mikla vexti vera bæði rign-
ingu og hlýindi sem bræða snjó og
ís. Hann segir þessa aukningu hafa
verið mesta síðustu daga eða frá
sjötta apríl. Hann telur ekki ástæð-
ur til að gera neinar varúðarráðstaf-
anir vegna þessa þar sem vöxturinn
er hægur og rólegur og engir stórir
flóðtappar. ■
Tíu milljónir til
Hrafns í bætur
Hrafn Gunnlaugsson fær tíu milljónir króna fyrir að hætta við vinnu-
skála á lóð sinni. Gefið verður út leyfi fyrir öllum óleyfisframkvæmdum
hans á lóðinni. Almenningsstígur verður lagður í fjöruborðinu.
STJÓRNSÝSLA Hrafn Gunnlaugsson
má halda öllum óleyfisfram-
kvæmdum á lóð sinni.
Hrafn fær tíu milljónir króna
fyrir að falla frá kröfu um bygg-
ingu vinnuskála. „Ég er að gefa eft-
ir réttindi á byggingarreit á besta
stað í borginni,“ segir hann.
Reykjavíkurborg ætlar að veita
Hrafni undanþágu fyrir marghátt-
uðum óleyfisframkvæmdum hans
ef byggingaryfirvöld samþykkja
þær ekki fyrir sitt leyti. Þær fram-
kvæmdir sem standa beinlínis út
fyrir byggingarreitinn á lóðinni fá
að standa að
minnsta kosti svo
lengi sem Hrafn á
húsið á Laugar-
nestanga 65.
Borgin áskilur
sér rétt til að fjar-
lægja „jarð-
vegsskúlptúra“
sem Hrafn hefur
látið gera ofan og
utan lóðar sinnar.
Ef borgin nýtir sér
þann rétt verður
Hrafn ekki krafinn
greiðslu kostnaðar
við það.
Lóð Hrafns nær
fram að fjörunni á
Laugarnesi. Borgin
hyggst nú leggja göngustíg á lóðar-
mörkunum eins og deiliskipulag
gerir ráð fyrir:
„Ég er mjög feginn að fá stíginn.
Fólk hefur aldrei farið í taugarnar á
mér. Hér hafa komið í skoðunar-
ferðir starfsmannahópar, útivistar-
hópar og félag eldri borgara. Það
eru allir velkomnir,“ segir Hrafn.
Deilt hafði verið um hvort borg-
in hafi veitt Hrafni formlegt leyfi
fyrir vinnuskálanum. Í nýjasta
deiliskipulagi Laugarness var ekki
gert ráð fyrir skálanum. Úrskurð-
arnefnd skipulags- og byggingar-
mála úrskurðaði þá að skipulagið
skyldi fellt úr gildi varðandi lóð
Hrafns. Hann hafi haft fyrirheit
um að mega byggja skálann.
„Meginatriði samningsins er að
njóli og hvönn fái að vaxa hér í
friði,“ segir Hrafn, sem er sáttur
við niðurstöðuna.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
borgarráðs, segir að innan borg-
arstjórnar hafi verið samstaða um
þessa lausn málsins. „Báðir aðilar
eru sáttir við þessa niðurstöðu.
Það er ekkert meira um það að
segja,“ segir Alfreð.
„Við viljum ekki að meira verði
byggt í Laugarnesi en orðið er. Við
erum að kaupa okkur frá því,“
segir Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar.
Hrafn fær 1,5 milljónir króna
frá borginni til að greiða lög-
mannskostnað sinn vegna máls-
ins.
gar@frettabladid.is
Veðurstofa Íslands:
Milt og
vætusamt
VEÐUR „Næstu daga verða áfram-
haldandi hlýindi og úrkoma með
köflum eins og
verið hefur,“
segir Haraldur
Eiríksson, veður-
fræðingur á Veð-
urstofu Íslands.
Þessa dagana er
einna hlýjast á
Norðausturlandi
þar sem hiti get-
ur farið yfir tíu
stig. Annar staðar á landinu er hiti á
bilinu fimm til tíu stig. Verðrið hef-
ur verið milt og vætusamt og kem-
ur til með að breytast lítið fram í
næstu viku. „Of snemmt er að segja
hvort apríl skeri sig úr veðurfars-
lega en ekki er hægt að neita því að
hann hefur verið nokkuð blautur,“
segir Haraldur. ■
HRYÐJUVERKAMAÐUR FRAM-
SELDUR Þýsk stjórnvöld hafa
framselt meðlim í Írska lýðveld-
ishernum til Bretlands. Hann er
grunaður um að hafa tekið þátt í
sprengjuárás á breska herstöð
árið 1996. Hann var handtekinn í
Prag í Tékklandi í desember á
síðasta ári.
ELDSVOÐI Á HEIMAVIST 28 börn
létust og 17 slösuðust alvarlega
þegar eldur braust út á heimavist
skóla fyrir heyrnarlaus börn í
suðurhluta Rússlands. Eldurinn
braust út meðan börnin sváfu.
Slökkviliðsmenn björguðu 138
manns úr brennandi bygging-
unni. Eldri börn hjálpuðu yngri
börnum út.
ÓK Á BJARG Bifreið var seint í
fyrrinótt ekið á bjarg sem fallið
hafði niður á veginn um Sjötúna-
hlíð í austanverðum Álftafirði,
gegnt Súðavík. Tilkynning barst
um óhappið gegnum neyðarlínu um
klukkan fimm og var fyrst talið að
ökumaðurinn, sem var einn í bíln-
um, væri slasaður. Svo reyndist
ekki vera en hann kenndi eymsla
undan öryggisbelti. Bíllinn var hins
vegar stórskemmdur. Vegagerðin
kom með öflugt tæki til að fjar-
lægja bjargið af veginum.
FÉKK HURÐARHÚN Í HANDLEGG
Níu ára drengur varð fyrir því
óhappi að hurðarhúnn stakkst
djúpt í framhandlegg hans þegar
hann hljóp í gegnum opnar dyr í
fyrradag. Saga þurfti húninn af
hurðinni og flytja drenginn með
húninn í handleggnum á slysadeild.
Ekki er talið að handleggurinn hafi
skaddast verulega.
HANDTEKIN MEÐ FÍKNIEFNI Þrjú
ungmenni voru handtekin í fyrra-
kvöld eftir að pakki sem innihélt
ætluð fíkniefni fannst í bíl. Lög-
reglan í Búðardal stöðvaði þau eft-
ir að ábending barst frá lögregl-
unni á Patreksfirði. Fólkinu var
sleppt eftir skýrslutöku.
Bókasafnsfræðingar:
Vara við
njósnum
BANDARÍKIN Sífellt algengara verður
að notendur tölva í bókasöfnum í
Bandaríkjunum rekist á miða þar
sem greint er frá því að yfirvöld
kunni að vera að fylgjast með lestri
þeirra, að því er fram kemur í
Washington Post. Merkingarnar eru
hluti af baráttu nokkurra tuga sam-
taka bókasafnsfræðinga gegn lög-
um sem gera stjórnvöldum kleift að
fylgjast með því hvaða bækur fólk
er að lesa og hvaða efni það nálgast
á Netinu. Löggæslumenn þurfa
heimild dómara til að nálgast upp-
lýsingarnar. Þeir sem verið er að
rannsaka fá hins vegar ekki að vita
að þeir séu til rannsóknar. ■
■ Evrópa
■ Lögreglufréttir
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Umhverfisráðherra hefur farið þess á leit
við Bændasamtök Íslands að þau beiti
áhrifum sínum til þess að tryggja vernd
arnarstofnsins.
VATNAVÖXTUR MIKILL UM LANDIÐ
Elliðaárnar eru fjórum sinnum vatnsmeiri
en gengur og gerist á þessum árstíma.
RIGNING
Gert er ráð fyrir að
úrkoma verði áfram
næstu daga.
Dollý orðin safngripur:
Framhaldslíf
á safni
LONDON, AP Klónaða kindin Dollý
er orðin safngripur á Konung-
lega safninu í Edinborg. Dollý,
sem fæddist árið 1996, öðlaðist
heimsfrægð sem fyrsta spen-
dýrið sem var klónað úr full-
orðnum einstaklingi.
Dollý var svæfð 14. febrúar
síðastliðinn eftir að hún greind-
ist með banvænan lungnasjúk-
dóm. Skömmu síðar voru jarð-
neskar leifar kindarinnar gefn-
ar Þjóðminjasafni Skotlands
sem lét meðhöndla húðina og
strekkja hana yfir trefjaglers-
afsteypu af líkama hennar. ■
VINNUSKÁLINN SEM ALDREI VERÐUR
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri átti tilbúna þessa teikningu af fyrirhugðum
vinnuskála á lóð sinni. Skálinn verður ekki byggður. Hrafn fær tíu milljónir fyrir vikið.
Einnig hefur borgarráð einróma samþykkt að lofa Hrafni því að allar ósamþykktar fram-
kvæmdir Hrafns á lóðinni í Laugarnesi verði heimilaðar – sama hvað byggingaryfirvöld
borgarinnar segi.
HRAFN GUNN-
LAUGSSON
Leggja á almenn-
ingsstíg neðan
við hús kvik-
myndaleikstjórans
í Laugarnesi .“Ég
er mjög feginn að
fá stíginn. Það
eru allir velkomn-
ir,“ segir Hrafn
Gunnlaugsson.