Fréttablaðið - 11.04.2003, Qupperneq 13
15FÖSTUDAGUR 11. apríl 2003
FRÁ LANDSFUNDI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
„Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði greinilega
ekki að láta skattleysismörkin fylgja lækk-
un tekjuskattsins um 4% eins og lofað
var á landsfundinum,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir.
Öllum almenningi í landinuverður með degi hverjumljósari sá fjandskapur sem
einkennir allar gerðir núverandi
stjórnvalda í garð þeirra sem
minnstar hafa
tekjurnar og
réttindin. Í flest-
öllum gjörðum
sínum hygla þau
hátekjufólki og
peningamöngur-
um en þyngja
byrðar hinna
sem mest þau
mega, sérstak-
lega þeirra lægst launuðu. Ekkert
er sparað til þess að skattleggja
hvern eyri sem kemur í hlut fólks,
sem hefur tekjur innan við það
sem kalla má lífvænleg laun.
Frekjan og tillitsleysið ganga
jafnvel svo langt að vextir af or-
lofsfé launafólks, sem geymt er
tímabundið inni á bankabókum,
eru skattlagðir. Þar að auki á sér
stað tvísköttun á félagsgjöldum
launafólks. Þetta finnst núverandi
stjórnvöldum ekki nóg heldur
hafa þau skipað nefnd til þess að
koma með tillögur um ennþá
meiri tvísköttun en nú er.
Tvísköttun
Það er eftirtektarvert hvar í
þjóðfélaginu tvísköttun stjórn-
valda á sér aðallega stað. Það er
ekki verið að tvískatta hálauna-
fólkið, sem hefur mestu burðina
til að greiða skatta, heldur er ráð-
ist á lægra launaða fólkið. Fyrst
eru gjöld þess til stéttarfélaga
skattlögð og síðan aftur ef það
fær einhverja styrki úr sjóðum
félaganna. Sem dæmi má nefna
að greiðslur úr verkfallssjóðum
eru skattlagðar. Þarna er um ský-
lausa tvísköttun að ræða.
„Greiðslur úr verkfallssjóðum
eru styrkir til þeirra sem þær
þiggja og því kemur ekki annað
til greina en að skattleggja þær
sem slíkar,“ sagði Geir Haarde
fjármálaráðherra á Alþingi 28.
nóvember 2001.
Síaukin skattbyrði
Það er sagt að tvísköttun lífeyris
sé ekki lengur við lýði. Þetta er
rangt. Í kjarasamningum Starfs-
greinasambands Íslands við sveitar-
félögin í landinu eru aukin framlög
launafólks í sameignarsjóði viðkom-
andi lífeyrissjóða skattlögð. Þetta
finnst núverandi ráðherrum eðlilegt
vegna þess að þarna er verið að
skattleggja láglaunafólk en ekki
þeirra eigin iðgjaldagreiðslur. Ríkis-
stjórnir Davíðs Oddssonar hafa sí-
fellt verið að auka skattbyrðina á
láglaunafólki en létta þær á þeim
sem hæst hafa launin. Orð núverandi
fjármálaráðherra þegar frítöku-
mörk hátekjuskatts voru hækkuð
fyrir nokkru síðan segja allt sem
segja þarf. Þá spurði fréttamaður
hann hvort ekki hefði verið nær að
hækka almenn skattleysismörk í
stað þess að hækka frítekjumörk há-
tekjuskatts. Svar ráðherrans lýsir
afstöðu hans og núverandi ríkis-
stjórnar í garð láglaunafólks ein-
staklega vel þegar hann sagði: „Þeir
duglegu eiga að fá að njóta þess.“
Eins og fyrr segir er það stað-
reynd að skattbyrði á láglaunafólki
hérlendis hefur aukist undanfarin ár
og mun aukast ennþá meira nema
núverandi stjórnarflokkum verði
vikið frá. Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur, sem farið hafa með völd í
landinu í tvö kjörtímabil, hafa fengið
fjölda tækifæra til þess að létta
skattbyrðinni af tekjulága fólkinu og
bæta réttarstöðu þess. Þetta hafa
þeir ekki gert heldur hið gagnstæða
og þess vegna á almenningur í land-
inu að hafna þessum afturhalds-
flokkum og kjósa aðra til forustu í al-
þingiskosningunum í vor. ■
„Það er
sagt að tví-
sköttun lífeyr-
is sé ekki
lengur við
lýði. Þetta er
rangt.
Kosningar
maí 2003
SIGURÐUR T.
SIGURÐSSON
■ starfsmaður
verkalýðsfélagsins
Hlífar skrifar um
tvísköttun.
Tvöfaldur skattur
Spádómabókin eftir Símon Jón Jóhannsson er ný
og aðgengileg uppflettibók um það hvernig hægt
er að skyggnast inn í framtíðina með hjálp
margvíslegra spádómsaðferða frá ýmsum
heimshornum. Þetta er ómissandi rit fyrir alla þá
sem vilja sjá fyrir óorðna hluti. Bókin, sem er
ríkulega myndskreytt, er í senn fræðandi og
skemmtileg og höfðar jafnt til yngri sem eldri
Íslendinga.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
ED
D
2
08
50
04
/2
00
3 Ómissandi bók
„Fjölbreyttar aðferðir“
Spáðu í
framtíðina
Spádómabókin gerir þér kleift að spá í framtíðina með ótrúlega
fjölbreyttum aðferðum frá ólíkum menningarheimum:
Tarotspil
Spilaspá
Lófaspá
Bollaspá
Stjörnuspeki
Kínversk stjörnuspeki
I Ching
Talnaspár
Rúnaspár
Höfuðlagsfræði
Útlitsfræði
Pendúlsspá
Spegilspá
Garnaspá
Völuspá
Kristalkúluspá
Eldspýtnaspá
Eplaspá
Kakóspá
Að láta svara sér í sumartunglið
Hnappaspá
Eggjaspá
Að spá í kertavax og blý
Fuglar og önnur dýr
Blóm og jurtir
Útlit og hegðun
Matur
Föt
Dauðinn
Veðurspár ...
www.edda.is
barnafjölskyldna, námsmanna og
einkum fólks með lágar- og með-
altekjur. ■
nauðsynlegt að semja sérstaklega
um landbúnað við aðildina að
ESB. Gekk eftir. Fjórða megin-
atriðið var krafan um undanþágur
frá frelsi einstaklinga utan Möltu
til að kaupa fasteignir á eynni.
Þetta gekk eftir. Hér fékk Malta
varanlega undanþágu: „Malta
fékk varanlega undanþágu frá
reglunni um kaup erlendra ríkis-
borgara á landi þrátt fyrir inn-
göngu í ESB,“ segir dómsmálaráð-
herra Möltu.
Hægt að semja um flest
Íslendingar eiga ef til vill að fá
lánaða samningamenn Möltu til að
ná í svo sem brot af fjölda undan-
þága eyjarskeggja. Þó ekki væri
nema fyrir atriði sem hafa tilvís-
un í mikla þjóðarhagsmuni líkt og
við Íslendingar getum vísað til, til
dæmis varðandi sjávarútveg.
Reynsla Maltverja sýnir að
hægt er að semja um flest atriði í
samningaviðræðum við Evrópu-
sambandið. Látum því ekki úr-
töluraddir draga úr okkur kjark
og höfum þor í okkur til að ganga
til samninga við vinaþjóðir okkar
í Evrópu. Við Íslendingar eigum
að vera með í Evrópuhraðlestinni
á fyrsta farrými en ekki sitja eft-
ir á einhverri útkjálkastöð. Látum
ekki tækifærið úr höndum okkar
sleppa og reynum ekki að fresta
framtíðinni. ■
EVRÓPUSAMBANDSFÁNI
“Reynsla Maltverja sýnir að hægt er að
semja um flest atriði í samningaviðræðum
við Evrópusambandið. Látum því ekki úr-
töluraddir draga úr okkur kjark og höfum
þor í okkur til að ganga til samninga við
vinaþjóðir okkar í Evrópu,” segir Andrés
Pétursson.