Fréttablaðið - 11.04.2003, Page 16
NEW YORK, AP Pulitzer-verðlaunin í
blaðamennsku árið 2003 voru af-
hent í New York á dögunum. Aðal-
verðlaunin féllu í skaut The
Boston Globe fyrir víðtæka og
djarfa umfjöllun um kynferðis-
lega misnotkun kaþólsks prests
sem blaðið átti þátt í að fletta ofan
af. Dagblöðin Washington Post og
Los Angeles Times sópuðu þó til
sín bróðurpartinum af verðlaun-
unum en New York Times, sem
átti miklu happi að fagna á síðustu
verðlaunaafhendingu, hlaut að-
eins ein verðlaun að þessu sinni.
Pulitzer-verðlaunin fyrir ljós-
myndun komu í hlut Don Bart-
letti, ljósmyndara hjá Los Angeles
Times fyrir áhrifaríka framsetn-
ingu á áhættusömu og viðburða-
ríku ferðalagi utangarðsung-
menna frá Mið-Ameríku til
Bandaríkjanna.
Verðlaunin, sem afhent hafa
verið árlega síðan 1917, eru afar
eftirsótt enda einhver helsta við-
urkenning sem veitt er í blaða-
mennsku í Bandaríkjunum. ■
18 11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
G
Ú
S
T
A
HVERFISGÖTU 21 • SÍMI 552 8755 • FAX 562 3188 • www.fbm.is • fbm@fbm.is
Sumir KOMAST ekki á aðalfund
– EN HVAÐ MEÐ ÞIG?
Aðalfundur FBM verður haldinn laugardaginn
12. apríl nk. á Grand Hótel v/Sigtún, kl. 10.
Morgunkaffi er milli 9 og 10 og einnig verður
boðinn matur í fundarhléi.
o Aðalfundarmál og önnur mál.
Nefndir sem fjallað hafa um aðild FBM að ASÍ
og um nýtt nafn á FBM skila áliti.
Reikningar, fundargerðir, tillögur um laga-
breytingar og aðrar framkomnar tillögur liggja
frammi á skrifstofu FBM frá og með 3. apríl 2003.
Fyrir fundinum liggja lagabreytingar.
Pulitzer-verðlaunin í blaðamennsku:
Áhættusamt ferðalag
utangarðsungmenna
BÖRN OG HRÆGAMMAR
Börn leita verðmæta í kapp við hrægammana á ruslahaugum í Tegucigalpa í Hondúras. Hinn fimmtán ára gamli Juan Antonio Flores er
að myrkranna á milli í leit að mat eða munum sem hann getur selt til þess að framfleyta fjölskyldu sinni. Til þess að forðast óþefinn og
flugurnar vefur Antonio gamalli skyrtu fyrir vit sín.
M
YN
D
/A
P-
D
O
N
B
AT
LE
TT
I
ÓTTALAUS
Hinn tólf ára gamli Denis Evan Contrarez frá Hondúras stekkur óhræddur á milli vagna á
vöruflutningalest í bænum Mapastepic í Mexíkó. Denis bjó hjá eldri systur sinni í San
Pedro Sula í Hondúras en ákvað að stinga af að heiman og freista þess að finna móður
sína í San Diego.
M
YN
D
/A
P-
D
O
N
B
AT
LE
TT
I
FRJÁLS OG ÁHYGGJULAUS
Ungur piltur og stúlka brosa til ókunnra
ungmenna sem sitja á þaki lestarvagns á
leið í gegnum í gróðursæl sveitahéruð
Mexíkó. Utangarðsungmenni frá Mið-Am-
eríku velja sér oftast þann ferðamáta að
laumast um borð í vöruflutningalestir í von
um að með því móti komist þau yfir
landamærin til Bandaríkjanna.
M
YN
D
/A
P-
D
O
N
B
AT
LE
TT
I
Nýbý laveg i 14 , Kópavog i . S ím i 554 4443 . Fax 554 4102 .
Lausnin á góðum merkingum
ptouch 3600
smávara lager bókasafn
einstök prentgæði • sterkir borðar • borðar í mörgum litum og breiddum
fjölbreytt letur og tákn • prentar strikamerki • 360 dpi prentun
usb tengi • prentflötur allt að 27 mm
13
90
.3
5
SJÁLFSMYND
Don Bartletti, ljósmyndari hjá Los Angeles Times, situr íhugull um borð í lestarvagni á leið í gegnum Oaxaca-hérað í Mexíkó. Í þrjá mán-
uði ferðaðist Bartletti fram og til baka á milli Guatemala og Texas til þess að festa á filmu áhættusamt ferðalag flökkubarna frá Mið-Am-
eríku til fyrirheitna landsins í norðri, Bandaríkjanna.