Fréttablaðið - 11.04.2003, Qupperneq 23
SÝNINGAR
15.00 Í Listasafni Íslands stend-
ur yfir yfirlitssýning á verkum Georgs
Guðna. Einnig er í safninu sýning á
landslagsmálverkum Ásgríms Jóns-
sonar og vídeóinnsetning eftir Steinu
Vasulka.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann
sýnir þar eingöngu ný málverk.
Á Kjarvalsstöðum er Ilmur Stefáns-
dóttir með sýningu er hún nefnir
Mobiler. Þar sýnir hún umbreytt farar-
tæki, vídeómyndir og örsögur.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovéskum
veggspjöldum úr eigu safnsins, sem
hafa ekki komið áður fyrir almennings-
sjónir. Heilbrigði, hamingja og friður er
yfirskrift sýningarinnar.
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðulistir
og frásagnarhefðir Indlands stendur
yfir í Listasafninu á Akureyri. Þetta er í
fyrsta sinn sem indversk myndlist er
kynnt með jafn víðfeðmum hætti hér á
landi.
Jónas Ingólfur heldur málverkasýn-
ingu í K-byggingu Landspítala – Há-
skólasjúkrahúss, sem lýkur í dag. Jónas
Ingólfur er tvítugur að aldri og hefur ver-
ið í endurhæfingu fyrir krabbameins-
sjúka á göngudeild LSH í Kópavogi.
Himinn og jörð nefnist sýning Þor-
gerðar Sigurðardóttur í Listasafni ASÍ,
sem er til húsa í Ásmundarsal við
Freyjugötu. Þorgerður hefur undanfarin
ár aðallega sótt myndefni sitt til kirkju-
listasögu og táknmáls trúarbragðanna.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2003
✓
24
Ég get mæltmeð sýningu
vinkonu minnar
Þorgerðar Sig-
urðardóttur í Ás-
mundarsal,“ seg-
ir Anna S.
Björnsdóttir um sýninguna Himin
og jörð þar sem Þorgerður sækir
myndefni sitt aðallega til kirkju-
listasögu og táknmáls trúarbragð-
anna. „Þetta er fáguð og falleg
sýning. Ég hef heyrt einhverja
tala um að hún sé dapurleg en ég
get nú ekki séð það. Hún er fyrst
og fremst afskaplega falleg.“
Mittmat
Þrír ungir tónlistarkennararstofnuðu fyrir rúmlega ári
orgeltríó sem þeir nefndu B3. Í
kvöld gefst færi á að heyra í þeim
í Caffé Kúlture við Hverfisgötu.
Fljótlega eftir páska kemur svo út
fyrsta platan þeirra.
„Það var sameiginlegur áhugi
á orgeltónlist, svona djassfönki,
sem varð til þess að við stofnuð-
um bandið. Annars spilum við
mjög fjölbreytta tónlist og höfum
verið að spila víða undanfarið,“
segir Ásgeir Ásgeirsson gítarleik-
ari. Með honum spila þeir Agnar
Már Magnússon orgelleikari og
Erik Qvick trommuleikari.
„Við erum allir að kenna í FÍH
og erum allir frekar nýkomnir úr
námi. Við Agnar lærðum báðir í
Amsterdam.“
Agnar lærði þar hjá orgelleik-
aranum Larry Goldings og Ásgeir
hjá gítarleikaranum Peter Bern-
stein. Þeir Goldings og Bernstein
eru ásamt trommuleikaranum
Bill Stewart með tríó, sem hefur
sömu hljóðfæraskipan og B3 og
spilar svipaða tónlist.
„Við höfum einmitt haft þá að
fyrirmynd og spilað eitthvað af
tónlistinni þeirra. Það eru mjög
fáir sem spila svona djass. Þetta
er aðeins öðruvísi orgeldjass en
þessi hefðbundni.“
Síðasta haust kom B3 fram á
djasshátíð Reykjavíkur. Næsta
haust er svo stefnan tekin á Sví-
þjóð.
„Erik er sænskur en hann hef-
ur búið hér í þrjú ár. En hann var
hér skiptinemi árið 1996 og þá
kynntist ég honum.“
Platan var tekin upp á einum
degi síðastliðið sumar. Tónlistin á
henni er öll eftir þá Agnar og
Ásgeir.
„Við lágum aðeins á upptökun-
um en ákváðum svo eftir áramót-
in að kýla á það og gefa þetta bara
út sjálfir.“ ■
ORGELTRÍÓIÐ B3
Spilar skemmtilega djassfönktónlist í
Caffé Kúlture frá klukkan 11 í kvöld og
eitthvað fram eftir nóttu.
Sjóðheitur orgeldjass
■ TÓNLIST
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
XLISTINN
VIKA 15. 2003
System of a Down
I-E-A-I-A-I-O
Limp Bizkit
DROP DEAD
Beastie Boys
IN A WORLD GONE MAD
Guano Apes
YOU CAN’T STOP ME
Oasis
SONGBIRD
Hell Is for Heroes
I CAN CLIMB MOUNTAINS
Botnleðja
EUROVISA
Marilyn Manson
MOBSCENE
Ozzy Osbourne
MAMA I’M COMING HOME
Queens of the Stone Age
GO WITH THE FLOW
Johnny Cash
HURT
Transplants
DJ DJ
Placebo
THE BITTER END
Zack de la Rocha
MARCH OF DEATH
Blur
OUT OF TIME
The White Stripes
SEVEN NATION ARMY
Linkin Park
SOMEWHERE I BELONG
The Datsuns
HARMONIC GENERATOR
Foo Fighters
TIMES LIKE THESE
Ensími
TITO
Vinsælustulögin á Xinu
SYSTEM OF A DOWN
Íslenskir rokkunnendur kunna greinilega
að meta hrátt, ferskt og hápólitískt rokk.
Fös. 11/4 kl. 21 Nokkur sæti
Fim. 17/4 kl. 21 SJALLINN AKUREYRI
Lau. 19/4 kl. 21 SJALLINN AKUREYRI
Forsala á miðum í Sjallanum fer
fram í Pennanum/Eymundssyni
Glerártorgi