Fréttablaðið - 11.04.2003, Qupperneq 26
11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR28
ABRAFAX 400 KR. kl. 4 og 6 m/ísl. taliMAID IN MANHATTAN kl. 8 og 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
TWO WEEKS NOTICE kl. 6 og 8
THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50, 8, 10.10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 bi 14
Sýnd í lúxus kl. 6.30 og 9.30
Sýnd kl. 9 og 11.15
kl. 8NÓI ALBINÓI
kl. 5.508 FEMMES
kl. 8THE CORE
kl. 5.50ADAPTATION
kl. 6NOWHERE IN AFRICA
Sýnd kl. 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10.10 og 11
Sýnd í lúxus kl. 4, 6, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
THUNDERPANTS kl. 4
25th HOUR kl. 10.10
4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 11
NATIONAL SECURITY bi 12 4, 6, 8, 10
Tónlistin úr leikritinu „Engla-börn“, sem Hafnarfjarðarleik-
húsið sýndi á síðasta ári, vakti
mikla athygli á sínum tíma og var
meðal annars kölluð ein fegursta
tónlist sem heyrst hefði í íslensku
leikhúsi. Höfundur hennar, Jóhann
Jóhannsson, kemur víða við sögu í
íslenskri tónlistarmenningu. Setur
til dæmis annað slagið upp kokka-
húfuna fyrir Tilraunaeldhúsið og
er einn af fimm (ath. ekki fjórum)
sérvitringum sem móta Orgel-
kvartettinn Apparat.
Á morgun gefst
áhugasömum loks-
ins færi á að hlusta
á tónlistina úr
Englabörnum á
síðbúnum útgáfu-
tónleikum í Borg-
arleikhúsinu í
flutningi strengjakvartettsins
Eþos, slagverksleikarans Matthí-
asar Hemstock og höfundarins, Jó-
hanns Jóhannssonar.
„Hafnarfjarðarleikhúsið gaf
fyrst út disk með tónlistinni nánast
eins og hún hljómaði í leiksýning-
unni,“ útskýrir Jóhann. „Svo vann
ég þessa tónlist eiginlega upp á
nýtt þegar Touch-útgáfan vildi
gefa hana út í Bretlandi. Ég endur-
raðaði tónlistinni, bætti við lögum
og bætti við elektrónískum áhrif-
um, samt svo litlum að maður tek-
ur varla eftir þeim. Það er svona
einhver elektrónísk slæða yfir tón-
listinni, sem verður
misjafnlega áber-
andi. Það verður
ný músík á tón-
leikunum líka.
Ég breyti út-
setningunum og fer svolítið lengra
með þetta. Tónlistin verður
dýnamískari og meiri öfgar í henni
kannski.“
Nú eftir helgina hefjast upptök-
ur á nýju verki eftir Jóhann sem
hann vinnur með Eþos. Uppistaðan
þar er upptökur af tónlist sem var
forrituð á fyrstu tölvuna sem kom
til landsins. Svo vill til að faðir Jó-
hanns var forritari á þessa tölvu,
sem var af gerðinni IBM og rak
hingað á fjörur á miðjum sjöunda
áratugnum. „Faðir minn dundaði
sér við það í frístundum að forrita
tónlist á þessa tölvu með félögum
sínum. Þessa tónlist tóku þeir svo
upp áður en tölvan var tekin úr
notkun. Það má segja að þetta sé
útfarartónlist fyrir tölvu, þeir
voru að kveðja tölvuna. Ég heyrði
svo þessar upptökur hjá pabba og
ákvað að gera eitthvað með þær.
Bæði dansverkið og tónlistin eru
byggð á þessari útfararserimoníu
fyrir fyrstu IBM-tölvuna á Ís-
landi.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ TÓNLIST
Englabörn og út-
farartónlist fyrir tölvu
Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannson hefur rokkað feitt með Ham, poppað með
Marc Almond, svamlað í rafeindum með Tilraunaeldhúsinu og látið orgelið væla
með Apparat. Á morgun fer tónlistin úr „Englabörnum“ á svið Borgarleikhússins.
Fréttiraf fólki
Indversku Bollywood-leikkon-unni Aishwarya Rai hefur verið
boðið hlutverk í næstu James
Bond-mynd. Stúlkan
var eitt sinn valin
„Ungfrú heimur“
og fetaði sig svo út
á leiklistarbraut-
ina með góðum
árangri í
heimaland-
inu. Rai hef-
ur ekki enn
tekið til-
boðinu en
á að vera
að velta
því fyrir
sér.
Samn-
ingsvið-
ræðum
var þó
frestað á dögunum
eftir að stúlkan meiddist á fæti.
Kannski verður hún þá fyrsta
haltrandi Bond stúlkan?
Bono og Pavarotti eru á meðalnokkurra listamanna sem
ætla að koma fram á góðgerðar-
tónleikum til þess að safna fé
fyrir uppbyggingu í Írak að
loknu stríði. Tónleikarnir verða
haldnir í heimabæ Pavarotti, í
Modena á Ítalíu, 27. maí. Þetta er
tíunda árið í röð sem Pavarotti
býður félögum sínum til þess að
syngja með sér á tónleikum í
bænum. Bono og Pavarotti hafa
áður sungið saman, þá fyrir
stríðshrjáða Sarajevo-borg á U2-
hliðarverkefninu „The Pass-
engers“.
Laugavegi 32 561 0075
Limp Bizkit:
Vilja japanskan gítarleikara
Bandaríska rokkhljómsveitinLimp Bizkit er á höttunum eftir
japönskum gítarleikara til þess að
leika með sveitinni á væntanlegri
tónleikaferð um heiminn. Eftir að
gítarleikarinn Wes Borland yfirgaf
sveitina óttast margir aðdáendur að
mikið tómarúm hafi myndast. Fyrir
stuttu tilkynnti Fred Durst söngvari
að gítarleikarinn Mike Smith, sem
var áður í Snot, væri gengin til liðs
við sveitina. Það er greinilega ekki
nóg og auglýsa slöppu kexkökurnar
nú eftir gítarleikara frá Japan.
Durst setti upp auglýsingu á
heimasíðu sveitarinnar limp-
bizkit.jp þar sem hann sagði; „Við
erum að leita að gítarleikara. Ef þér
finnst þú vera góður með prjónana
þá þurfum við á þér að halda. Það
yrði sérstaklega flott ef gítarleikar-
inn kæmi frá Japan.“
Engin frekari útskýring var gef-
in á því af hverju japanskir gítar-
leikarar ættu betri möguleika en
aðrir.
Durst virðist hafa mjög gaman
af því að rugla blaðamenn í ríminu
hvað varðar nafn á væntanlegri
breiðskífu. Aðspurður svarar hann
alltaf mismunandi nöfnum. Meðal
þeirra sem hann hefur nefnt eru
„Lessismore“, „Bipolar“ og „The Se-
arch For Teddy Swoes“. Platan kem-
ur fyrst út í Japan 28. maí, en
nokkrum vikum síðar hér á landi. ■
JÓHANN JÓHANNSSON
OG MATTHÍAS HEMSTOCK
„Ég hef engan áhuga á að stimpla mig
inn sem alvarlegt tónskáld með þess-
ari plötu,“ segir Jóhann. „Ég hef miklu
meiri áhuga á því að brjóta niður
múra á milli geira. Bakgrunnur minn
er í rokkinu. Ég byrjaði í rokkhljóm-
sveitum og er í rokkhljómsveit. Þetta
er bara ein hlið á því sem ég geri.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FRED DURST
Vill fá japanskan aðdáanda til liðs við sveitina.
■ TÓNLIST
kl. 6 og 10THE PIANIST
charl
20%afsláttur
af vörum frá
KOSTA BODA,
ITTALA, ORREFORS
Sérverslun með vandaðar
heimilis- & gjafavörur
Kringlunni