Fréttablaðið - 11.04.2003, Qupperneq 27
Bandaríski gamanleikarinn Rod-ney Dangerfield þurfti að
gangast undir afar við-
kvæman heilaupp-
skurð á dögunum
til þess að undir-
búa ígræðslu á
nýrri hjarta-
loku. Dan-
gerfield,
sem er 81
árs gam-
all, fékk
vægt
hjarta-
áfall fyr-
ir tveimur
árum. Aðgerð-
in var gerð til
þess að auka
blóðflæði í lík-
ama hans. Rod-
ney er þekktast-
ur fyrir myndirn-
ar „Back to School“ og „Caddys-
hack“.
Leikkonan Susan Sarandon segirfréttaflutning í landi sínu frá
stríðinu í Írak vera litaðan af
heimssýn George W. Bush Banda-
ríkjaforseta. Hún segist hafa átt-
að sig almennilega á þessu þegar
hún ferðaðist til Kanada og fylgd-
ist með fréttaflutningi þar. Hún
segist hafa komist að því að
fréttaflutningur bandarísku
fréttastofanna endurspegli aðeins
sjónarmið landsins, ekki heims-
ins.
Fréttiraf fólki
Umfjöllunkvikmynd
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2003 29
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15CHARLOTTE GRAYkl. 5.45, 8 og 10.30
THUNDERPANTS kl. 4 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 3.45
CRUSH kl. 3.45, 5.50 og 8
ABOUT SCHMIDT kl. 5.30
ABRAFAX OG SJÓRÆNINGJARNIR kl. 4 FINAL DESTINATION kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára Sýnd kl. 10.10
THE HOURS b.i. 12 kl. 8
CHICAGO b.i. 12 8 og 10.20
Sýnd kl. 10 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.50 og 10 b.i. 12 ára
Það er auðvitað út í hött að verameð einhverjar raunveruleika-
kröfur þegar maður fer á fokdýrar
stórslysamyndir enda er þeim bara
ætlað að vera tveggja stunda gam-
an sem er keyrt áfram af spennu og
mögnuðum tæknibrellum.
Hollywood hefur á síðustu árum
sent hugrakka Bandaríkjamenn út í
geim til að sprengja smástirni sem
stefndi á Jörðina og smita tölvu-
kerfi innrásarhers utan úr geimn-
um með tölvuveiru. Þetta var full
kjánalegur vísindaskáldskapur en
stóð þokkalega undir væntingum
áhorfenda. Það hlaut þó að koma að
því að skorturinn á nýjum ógnum
yrði til þess að dellan yrði yfir-
gengileg.
The Core markar þessi tímamót.
Jarðskjálftahernaðarbrölt Banda-
ríkjamanna hefur þær afleiðingar
að kjarni jarðarinnar hættir að snú-
ast og allt stefnir í að brenglað raf-
segulsvið valdi heimsendi á einu
ári. Yfirstjórn heimsbyggðarinnar
í Bandaríkjunum ákveður því að
bora gat í Jörðina og senda vaskar
hetjur að kjarnanum til að gefa
honum start með 200 megatonna
kjarnorkusprengju.
„Geimferðin“ ofan í iður Jarðar
er langdregin og myndin nær
aldrei upp nógu mikilli spennu til
þess að maður gleymi fáránleika
sögunnar og tæknibrellurnar eru
svo „flottar“ að þær verða fárán-
legar og maður stendur sig allt of
oft að því að láta hugann reika og
velta því fyrir sér hvort Jules
Verne hefði ekki gert þetta miklu
betur.
Þórarinn Þórarinsson
THE CORE
Leikstjóri: Jon Amiel
Aðalhlutverk: Aaron Eckhart, Hilary
Swank, Stanley Tucci
Kjarninn er della
Umfjölluntónlist
Breska rokksveitin Clearlake erekki ein þeirra sveita sem heila
upp úr skónum við fyrstu hlustun.
Hún er þó nokkuð forvitnileg. Liðs-
menn virðast ekki vera í þeim hug-
leiðingum að semja slagara, eru
allt of alvarlegir til þess, og virðast
frekar vilja koma sér í hóp til-
raunakenndari rokksveita á borð
við Kaliforníusveitina Grandaddy.
Textar einkennast kannski full
mikið af sjálfsvorkunn, engum lík-
ar við vælukjóa.
Hér er allt lifandi og notkun
tölva er líklegast stranglega bönn-
uð.
Ég veit ekki hvort það er bara
sterkur breskur hreimur söngvar-
ans Jason Pegg en honum svipar
mjög til Damon Albarn. Lagasmíð-
ar minna líka örlítið á fyrstu plötu
Blur.
Það er nú varla hægt að segja
þessa sveit frumlega en það virðist
vera heilmikil geta í þeim. Það skín
til dæmis í gegn í hinum mögnuðu
lögum „Keep Smiling“ og „Treat
Yourself with Kindness“. Það er þó
eins og sveitina vanti örlítið að
leggja línurnar betur varðandi
hvaða stefnu eigi að taka. Næst
verða þeir líka að vanda sig meira í
hljóðupptökum.
Þessi plata á ekki eftir að skjóta
Clearlake lengra upp á yfirborðið.
Það rennur þó að mér sá grunur að
sveitin hafi alla burði í framtíðar
stórvirki. Vonandi hafa þeir bara
næga orku til þess að synda móti
straumi svona eina til tvær plötur
til viðbótar.
Birgir Örn Steinarsson
CLEARLAKE: Cedars
Koma svo,
strákar!
Rokkarinn Tommy Lee mætti íréttarsalinn og bar vitni í afar
viðkvæmu dómsmáli. Lee var
kærður af foreldrum fjögurra ára
drengs sem drukknaði í sundlaug-
inni heima hjá honum í afmælis-
veislu sonar hans. Foreldarnir
vilja halda því fram að öðruvísi
hefði farið ef Lee hefði haft starfs-
mann til þess að fylgjast með laug-
inni á meðan á veislunni stóð.
Framleiðendur „South Park“-teiknimyndanna hafa ákveðið að
tileinka einn þátt stríðinu í Írak. Í
þættinum taka þeir Stan, Butters,
Kyle og Cartman þátt í mótmælum
gegn stríði og skrópa því í skólan-
um. Kennarinn þeirra Mr. Garri-
son verður brjálaður og setur
þeim það verkefni að skrifa rit-
gerð um stofnendur þjóðarinnar.
Cartman ferðast aftur í tímann til
ársins 1776 til þess að forða stór-
slysi við undirritun sjálfstæðisyf-
irlýsingar Bandaríkjamanna.
Þriðja myndin í „AmericanPie“-röðinni verður frumsýnd
á árinu. Myndin fjallar um það
þegar bökuriðillinn Jim ákveður
að biðja flautuleikarann Michelle
um að giftast sér. Myndin kem-
ur til með að heita „American
Wedding“ og verður frumsýnd í
ágúst.
COMEDIAN kl. 6
RABBIT PROOF FENCE kl. 6
ELSKER DIG FOR EVIGT kl. 6
GAMLE MÆND I NYE BILER kl. 8
EL CRIMEN DEL PADRE AMARO kl. 8
PINOCCHIO kl. 10.20
KVIKMYNDAHÁTIÐ 101