Fréttablaðið - 11.04.2003, Qupperneq 34
52 ÁRA „Ég ætla í vinnuna eins og
venjulega og svo fer ég út að borða
með vinum mínum í hádeginu. Veit
ekki hvert, því þeir ákveða það.
Þetta verður óvissuferð,“ segir
Inga Sólnes, sem er 52 ára í dag.
Inga rekur ferðaþjónustuna Gesta-
móttökuna sem sér um fundi og
ráðstefnur fyrir hópa, jafnt inn-
lenda sem erlenda. „Eftir vinnu
býð ég svo vinum og fjölskyldu að
skoða ný húsakynni fyrirtækisins í
Bankastræti 10, þar sem ég er að
koma mér fyrir til frambúðar.“
Þegar Inga var ung stúlka norð-
ur á Akureyri vildi það brenna við
að afmælisdagurinn hennar
gleymdist. Bar hann oft upp á
páskum og vegna annríkis sem þá
vill verða gleymdist litla stúlkan:
„Það gerðist reyndar ekki nema
einu sinni en þá grét ég mikið. Síð-
an er það lenska í fjölskyldunni að
spyrja mig á afmælisdaginn hvort
ég sé búin að gráta mikið,“ segir
Inga, sem er dóttir Jóns heitins
Sólnes, bankastjóra og alþingis-
manns á Akureyri, og Ingu Sólnes.
Hún er gift Jóni Sigurjónssyni
bankamanni og saman eiga þau
þrjá drengi.
„Strákarnir mínir vekja mig
alltaf með söng á afmælisdaginn
og færa mér lútsterkt te í rúmið.
Svona te með mjólk eins og Bretar
drekka,“ segir Inga, sem vandist
tedrykkjunni þegar hún bjó í
Englandi um átta ára skeið og vann
meðal annars hjá Flugleiðum. Inga
ráðgerir að fara snemma að sofa í
kvöld því mikið annríki fylgir vor-
blænum í ferðaþjónustunni. ■
36 11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
Afmæli
■ Inga Sólnes, framkvæmdastjóri Gesta-
móttökunnar, er 52 ára í dag. Í æsku grét
hún stundum á afmælisdaginn vegna
þess að hann gleymdist í páskaönnun-
um. Í ár er ekki hætta á því.
Kynningarfundur í kvöld klukkan 20:00
í safnaðarheimili kirkjunnar við Laufásveg.
Alfa er öllum opið og er fyrir þá sem vilja leita svara
við spurningum um tilgang lífsins og vilja kynna sér
grundvallaratriði kristinnar truar.
Alfa er fyrir þá sem trúa, sem efast og síðan ekki síst
fyrir þá sem ekki trúa, eða eru leitandi á trúarsviðinu.
Komdu í kvöld og kynntu þér málið án allra skuldbindinga.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
Hreiðar Örn Zoega Stefánsson
Fríkirkjan í Reykjavík, sími 552-7270
Vefslóð: www.frikirkjan.is • Netfang: frikirkjan@frikirkjan.is
ALFA - námskeið
í Fríkirkjunni í Reykjavík
13.30 Guðlaug Huld Nielsen, Hátúni
12, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Hólmfríður Hólmgeirsdóttir,
Byggðavegi 136a, Akureyri, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
13.30 Jón Pétursson, Eyrarhrauni, Hafn-
arfirði, verður jarðsunginn frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði.
13.30 Vigdís Þjóðbjarnardóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
14.00 Albert Karl Sanders, Hraunsvegi
19, Njarðvík, verður jarðsunginn
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju.
14.00 Unnur Ingimundardóttir, dvalar-
heimilinu Höfða, Akranesi, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju.
15.00 Jóhann Þórðarson, Bugðulæk 6,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
15.00 Stefán Jónsson, Sléttuvegi 17,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
Jóhanna Guðjónsdóttir, dvalarheimilinu
Höfða, lést 8. apríl.
Lilja Jónsdóttir, Kálfsstöðum, Vestur-
Landeyjum, lést 8. apríl.
■ Jarðarfarir
■ Andlát
INGA SÓLNES
Fær te í rúmið og óvissuferð í hádeginu á
afmælisdaginn.
Afmælið gleymdist
vegna páskanna
VATNIÐ GÓÐA
Fyrsti innivatnspósturinn sem Orkuveita Reykjavíkur hefur látið hanna og smíða er kom-
inn í notkun á Barnaspítala Hringsins við Hringbraut. Vatnspósturinn er hannaður af iðn-
hönnuðunum Önnu Lísu Sigmarsdóttur og Matthew Rohrbach. Orkuveitan ætlar að gefa
fleiri slíka til leikskóla, íþróttahúsa, skóla og fleiri stofnana til að stuðla að betra aðgengi
að okkar tæra og rómaða vatni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M