Fréttablaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 26. apríl 2003 Sumar vörur eru fyrir sumarbörn og sumar fyrir fullor›na debenhams S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 09 55 04 /2 00 3 Sumarhappdrætti fyrir viðskiptavini barnadeildar Debenhams 1. vinningur Rollerblade stækkanlegir barnalínuskautar og hlífar frá Útilífi að verðmæti 12.980 kr. og barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 20.000 kr. 2. vinningur Hlaupahjól frá Útilífi að verðmæti 5.990 kr. og barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 15.000 kr. 3. vinningur Barnafatnaður frá Debenhams að verðmæti 10.000 kr. gildir til sunnudagsins 27. apríl. Fatnaður á alla sumarkrakka frá 0 - 14 ára. Smáralind - Glæsibæ Sjóðheit sumartilboð í öllum deildum. Gleðilegt sumar Aðeins einn flokkur á Alþingivar fylgjandi því að þjóðin starfrækti ríkisbanka. Sá flokkur heitir Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Þetta vildum við gera til að stuðla að festu og öryggi á fjár- málamarkaði auk þess sem okkur var það ekki kappsmál nema síður sé að losa ríkið við banka, sem aldrei höfðu ver- ið ríkissjóði nokkur baggi, þvert á móti skilað eigendum sínum ómældum arði. Þar á ofan höfðu þeir verið landsbyggðinni mikil lyftistöng í áranna rás. Allir aðrir flokkar en VG töluðu fyrir því að með m a r k a ð s v æ ð - ingu ríkisbank- anna hæfust nýir tímar. Sam- fylkingin studdi Framsókn og S j á l f s t æ ð i s - flokkinn og lagði meira að segja lykkju á leið sína til að lofa og prísa þessa flokka fyrir að selja frá okkur gullkýrnar. Við minntum hins vegar á að alltaf þegar bankakerfi einstakra ríkja lenti í hremmingum væri það hlutverk hins opinbera að koma til hjálpar en í því sambandi má minna á bankahrunið í Kanada, Noregi og Svíþjóð. Í öllum tilvik- um var pumpað inn milljörðum af opinberu skattfé. Í þessum lönd- um spurðu menn sig eftir á hvort sá sem bæri ábyrgðina þegar til kastanna kæmi ætti ekki einnig að hafa einhver áhrif. Það sem gerir Ísland sérstakt er þó smæð efna- hagskerfisins. Sú hætta er mjög raunveruleg að í okkar smáa hag- kerfi færist á sömu fáu hendurnar gríðarleg völd í atvinnu- og fjár- málalífinu. Þetta er nú að gerast. Siðferðið í fyrirheitna land- inu Þegar hafist var handa við að einkavæða fannst mörgum óþægilegt í meira lagi að hinir nýju eigendur gátu keypt þjóð- bankana fyrir þann arð sem þeir gáfu af sér. En umræðan um stórtæku jólasveinana í Stjórn- arráðinu er að baki í bili en nú blasir við enn ein hliðin á mál- inu. Heita má að við séum komin heim ef svo má að orði komast. Við erum alla vega að nálgast fyrirheitna land þeirra Valgerð- ar Sverrisdóttur bankamálaráð- herra og Geirs H. Haarde fjár- málaráðherra. Ég held að þau hljóti að vera ánægð með árang- urinn. Einkavæðingin er vissu- lega byrjuð að blómstra og „heil- brigð“ viðskiptalögmál farin að svínvirka. Landsbankinn keypti í vikunni starfsmenn samkeppn- isaðilans. Gefum Sóloni R. Sig- urðssyni, bankastjóra Búnaðar- bankans, orðið um brottkeypta starfsmenn: „Þau eru öll með sterk viðskiptasambönd við okk- ar viðskiptavini og því afar óheppilegt og jafnframt óeðli- legt að þau fari að starfa beint hjá samkeppnisaðila. Það hefur ekki tíðkast hér á landi.“ Í Fréttablaðinu í gær segir for- maður bankaráðs Búnaðarbank- ans að þessi mál veki upp spurn- ingar um siðferði. Rýtingur í stað samvinnu Undir þetta vil ég taka heils- hugar. Staðreyndin er sú að þeg- ar Búnaðarbankanum var komið á fót á sínum tíma við hlið Landsbankans var það gert á grundvelli samstarfs og sam- vinnu. Mönnum bregður í brún þegar þeir átta sig á því að sú hugsun er horfin, alla vega hef- ur það verið markmið ríkis- stjórnarflokkanna að koma þeirri hugsun fyrir kattarnef. Í hennar draumalandi koma menn ekki til fundar öðru vísi en með rýting uppi í erminni – samvinna er hinum nýju herrum framandi hugsun. Mikið held ég að það hljóti að vera ömurleg tilfinning fyrir starfsfólk Landsbanka og Búnaðarbanka að verða vitni að þeirri niðurlægingu sem þröngvað er upp á þessar gamal- grónu stofnanir; að ekki sé á það minnst að þurfa að hlusta á nýorpna fjármálamenn og óábyrga spekinga úr íslensku álitsgjafastéttinni tala um störf þessa fólks með lítilsvirðingu. Þetta voru staðnaðar stofnanir segja þeir – nú er eitthvað farið að gerast. Staðreyndin er hins vegar sú að við höfum átt á und- anförnum árum og eigum mjög gott og faglegt bankakerfi – ís- lenskir bankar hafa í mörgu ver- ið á undan erlendum bönkum og undirstaða þess hefur verið gott og hæft starfsfólk. Að mörgu má finna – það er t.a.m. mikilvægt að ná niður vöxtum á yfirvegað- an hátt. En að mönnum finnist það vera framfarir að afhenda fjármálamönnum þessar gamal- grónu stofnanir til að kreista úr þeim arð í eigin vasa og láta þá fara svona með starfsfólkið er sárt að verða vitni að. Vilja menn framhald á þessum at- gangi á næsta kjörtímabili? Um það verður kosið 10. maí. ■ Er fyrirheitna landið fundið í einkavædd- um ríkisbönkum? Kosningar maí 2003 ÖGMUNDUR JÓNASSON ■ þingmaður VG skrifar um afleiðingar einkavæðingar bank- anna. „Það sem gerir Ísland sérstakt er þó smæð efna- hagskerfisins. Sú hætta er mjög raun- veruleg að í okkar smáa hagkerfi fær- ist á sömu fáu hendurn- ar gríðarleg völd í at- vinnu- og fjármálalífinu. Þetta er nú að gerast. að ríkisvaldið hefur fært mikla fjármuni frá lífeyrisþegum og lágtekjufólki til efnafólks og stór- fyrirtækja. Það hefur verið gert með því að skerða lífeyri og bæt- ur og auka skattbyrði fólks með lágar og meðaltekjur. Ofan á þetta sjáum við birtingarform aukinnar græðgi í ofurkjörum, kaupaukum og starfslokasamningum stjórn- enda. Blekkingar stjórnarflokk- anna Það er ömurlegt að hlusta á hvernig stjórnarflokkarnir reyna að telja fólki trú um að lífskjör lágtekjufólks hafi verið í for- gangi. Staðreyndin er sú að hækk- un skatta, aukin kostnaðarþátt- taka í heilbrigðiskerfinu, þreföld- un á húsnæðiskostnaði og rofin tengsl lífeyris við launavísitölu hafa stækkað verulega hópa fá- tækra og dregið niður lífskjörin í þjóðfélaginu. Þannig hefur kaupmáttur at- vinnulausra og lífeyrisþega ein- ungis hækkað um 9-11% en k a u p m á t t u r fólks með með- allaun um 24% frá árinu 1995. Öllum má ljóst vera að það er ávísun á betri lífskjör að koma þessari ríkis- stjórn frá í kosn- ingunum 10. maí. Það verður best gert með því að leiða Samfylking- una til sigurs, þannig að hún verði forystuafl í nýrri landsstjórn að loknum kosningum. ■ „Ofan á þetta sjáum við birtingar- form aukinn- ar græðgi í ofurkjörum, kaupaukum og starfs- lokasamning um.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.