Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 4
Texti:
Gestur Jónsson
Myndir:
Róbert Ágústsson
Bollapörin tekin út.
BRÚÐKAUPSFERÐIN
VAR STUTTr
,,Við trúðum þessu
alls ekki fyrst i stað,
héldum að stelpan væri
bara að striða okkur”,
sögðu brúðhjón
mánaðarins um þann at-
burð, þegar systir brúð
gumans kom inn til
þeirra árla morguns og
tilkynnti þeim um þenn-
an titil þeirra. ,,Við
höfðum það oft tekið
þátt i happdrættum, að
við vorum löngu búin að
tapa trúnni á, að nokkru
sinni væri hægt að vinna
i slikum fyrirbærum.
Það hafði verið hringt
Þorbjörg f eldhúsin
neðan af Tima til að láta
okkur vita af þessum
heiðri, en þar sem hvor-
ugt okkar var heima, tók
stelpan við skilaboðun-
um, og þar eð við kom-
um ekki heim fyrr en
talsvert var orðið áliðið,
fengum við ekki frétt-
irnar fyrr en næsta
morgun. Þegar við loks
gerðum okkur grein fyr-
ir, að hún var að segja
satt, þóttumst við hafa
himin höndum tekið, þvi
það er alveg öruggt, að
það veitir ekki af þeim
peningum, sem unnt er
að ná i, svona rétt i byrj-
un hjúskapar”.
Þetta voru orð Þorbjargar
Oddgeirsdóttur og Hans M. Haf-
steinssonar, brúðhjóna april-
mánaðar, þegar blaöamaður
Timans ræddi við þau að heimili
þeirra að Efstasundi 100. Þau
voru fjórðu brúðhjónin, sem
dregin hafa verið út á vegum
Timans, og gafst kostur á að
verzla fyrir 25 þúsund krónur á
kostnað blaðsins. Eftir langa
umhugsun og mikla yfirvegun
tóku þau það ráð að kaupa sjálf-
virka þvottavél hjá Raftorg h/f i
Kirkjustræti 8b. Þetta er æðimik-
ill gripur af IGNIS gerð og ekki
færri en tólf stillingar, sem hægt
er að velja á milli i hvert sinn,
sem þvegið er. Enda mátti lesa
það úr svip sölumannsins hjá
Raftorg. Höskuldar Stefánssonar,
þegar hann var að lýsa kostum
vélarinnar, að hér var engin
venjuleg vél á ferðinni, heldur
þvottamaskina, sem mundi sóma
sér vel i kóngsins ranni, og á
þessa skoðun hans virðast ungu
hjónin hafa fallizt.
Við byrjuðum á þvi að spyrja,
hvernig þau hafi farið að með
Systir hans, Guðriður, sem situr hér við hlið bróður sins, flutti þeim skilaboðin um úrslitin I vali brúð-
hjóna mánaðarins.