Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 2

Fréttablaðið - 10.01.2005, Side 2
SPURNING DAGSINS Nei, ekki á Toppnum á Eskifirði. Þórarinn Hávarðsson opnaði nýlega veitinga- og skemmtistaðinn Toppinn á Eskifirði. Húskaup og framkvæmdir kostuðu rúmar 27 milljónir króna. Er ekki kalt á toppnum, Tóti? 2 10. janúar 2004 MÁNUDAGUR Alþýðusambandið: Samningar í uppnámi KJARASAMNINGAR Í umræðum um málefni ítalska verktakafyrirtæk- isins Impregilo hafa forystumenn Alþýðusambandsins minnt félags- málaráðherra á að kjarasamning- ar verða endurskoðaðir 1. nóvember. Með því vilja þeir benda ráðherranum á að fram- ganga hans og stofnana félags- málaráðuneytisins kunni að hafa áhrif á forsendur samninga. Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ, segir engar hótanir á ferðinni, aðeins ábendingar um að uppsagnafor- sendur séu til staðar, þróist mál þannig. „Það eru raunar allar lík- ur á að slíkar forsendur skapist miðað við það sem þegar hefur gerst. Hins vegar hefur engin ákvörðun verið tekin enda tekur Alþýðusambandið sem slíkt ekki slíkar ákvarðanir heldur aðildar- félögin og að auki verður það þá ekki gert fyrr en þegar kemur að endurskoðuninni.“ Þrátt fyrir að málið hafi ekki verið skoðað formlega hafa heyrst raddir innan ASÍ þess efn- is að forsendur kjarasamninga séu þegar brostnar. - bþs Slys í Bandaríkjunum vekur ótta í Kópavogi Ekki er vitað hve mikið klórgas er á svæði Mjallar-Friggjar í Kópavogi. Fyrirtækið fær að klára að vinna birgðir sem það flutti með sér úr Reykjavík þó að starfsleyfi vanti. Íbúar eru áhyggjufullir. Bæjarráð tekur ákvörðun um miðjan mánuðinn. KLÓRGAS Níu létust í Suður-Kar- ólínu í Bandaríkjunum þegar fragtlest sem flutti klór rakst á aðra kyrrstæða á fimmtudag og klórgas komst í andrúmsloftið. Um 250 manns þurftu læknisað- stoð og 5,400 íbúum var gert að rýma hús sín í flýti í tæplega tveggja kílómetra radíus. Þeir fá ekki að snúa heim fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudag. Enn er reynt að stöðva lekann, samkvæmt fréttum Associated Press, AP. Íbúar í Kópavogi hafa hringt og lýst áhyggjum sínum við Frétta- blaðið af veru klórgasverksmiðju Mjallar-Friggjar í Vesturvör í Kópavogi. Ekkert er vitað um framleiðslu fyrirtækisins en vitað er að þegar fyrirtækið flutti frá Fosshálsi í Reykjavík fylgdu þrýstihylki með klórgasi og hófst vinnsla án tilskilinna leyfa. Sótt var um leyfi til klórframleiðslu. Því var hafnað af Heilbrigðiseftir- liti Hafnarfjarðar og Kópavogs. Bæjarráð hefur málið til skoðunar og ætlar að álykta um það 13. jan- úar. Guðmundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseft- irlits Hafnarfjarðar og Kópavogs, segir fyrirtækið fá að klára þær birgðir sem það flutti með sér. Heilbrigðiseftirlitið viti ekki hve miklar þær séu né hvort þær séu geymdar á öruggan hátt. Það sé í verkahring slökkviliðsins en litlar líkur séu á slysi. Bjarni Kjartansson, yfirmaður eldvarnareftirlits slökkviliðsins, segir bráðabirgðaúrbætur hafa verið gerðar á eldvörnum hússins. Þær séu vel ásættanlegar. Í mesta lagi séu sex tonn af klóri í vinnslu og sex tonn í gámi á svæðinu: „Við höfum skyldu samkvæmt lögum að bregðast við ef slys verð- ur með hættuleg efni. Við höfum hins vegar ekkert að segja um um- búnað og varnir gegn því, það er í umsjón vinnueftirlits og heilbrigð- iseftirlits, nema hvað varðar brunaþáttinn. Það segir sig sjálft að eldsvoði í húsi sem hefur að geyma umtalsvert magn af hættu- legum efnum getur orðið að um- hverfisslysi.“ Ekki fékkst samband við Hinrik Morthens, eiganda eignarhaldsfé- lags Filtertækni og Mjallar-Friggj- ar. Hann kjósi að svara ekki fjölmiðlum. gag@frettabladid.is DAVÍÐ ODDSSON Með svipaðar hugmyndir um uppbyggingu Landspítalans og Samfylkingin. Landspítalinn: Fagnar hug- mynd Davíðs STJÓRNMÁL Kristján Möller, þing- maður Samfylkingarinnar, fagnar hugmynd Davíðs Oddssonar utan- ríkisráðherra um að fjármagn sem ríkið fengi fyrir sölu Símans verði notað til stórs verkefnis, til dæmis að byggja nýtt sjúkrahús fyrir Landspítalann. Fyrir ári síðan lagði Kristján og fleiri þingmenn Samfylkingar fram þingsályktunartillögu þar sem þetta var lagt til. „Ég fagna stuðningi Davíðs við þessa hug- mynd,“ segir Kristján. Hann segir Landspítalann eiga miklar eignir sem hægt væri að selja ef nýtt sjúkrahús yrði byggt. Þá vantaði fimmtán til tuttugu milljarða króna til að brúa bilið og það mætti gera með hagnaði af sölu Símans sem gæti orðið allt að fjörutíu milljarðar króna. - ghg ■ LÖGREGLUFRÉTTIR KVEIKT Í GÁMUM Tvisvar var kveikt í ruslagámum í Hafnar- firði á sunnudag og var slökkvilið kallað út til að slökkva eldinn. Í fyrra skiptið var um að ræða gám við Lækjarskóla og í seinna kviknaði í gámi við Túnhvamm. SÖGULEGIR SAMNINGAR Stuðningsmaður súdönsku frelsishreyfing- arinnar fagnar undirritun sögulegra friðar- samninga í Súdan. Friðarsamningar í Súdan: Borgara- stríði lokið SÚDAN, AP Súdönsk stjórnvöld hafa undirritað friðarsamninga við leið- toga uppreisnarmanna í Suður-Súd- an. Samningarnir binda enda á lengsta borgarastríð sem staðið hefur yfir í Afríku. Hann var undir- ritaður í höfuðborginni Nairóbí í gær. Um 1,5 milljónir manna hafa lát- ist í stríðinu sem staðið hefur í tutt- ugu ár á milli múslima úr norðri og kristinna annars vegar og múslima og andatrúarmanna úr suðri. Friðarsamningurinn nær ekki til Darfur-héraðs. ■ 14 stöðvar ÚTIVIST Landsmenn flykktust á skíðasvæðin um helgina þar sem fínasta veður var og gott færi. Á laugardaginn voru það Bláfjöll sem drógu fjöldann til sín því lokað var í Skálafelli vegna hvassviðris. Á sunnudeg- inum snerist dæmið við þar sem mikill vindur var í Bláfjöllum og stólalyftur lokaðar fyrripart dagsins. Fjöldinn fór því í Skála- fell á sunnudaginn þar sem sól og blíða réðu ríkjum. „Það var næstum því örtröð í Skálafelli í gær, slíkur var mannfjöldinn,“ sagði Logi Sig- urfinnsson, framkvæmdastjóri Skíðasvæða höfuðborgarsvæð- isins. „Svæðið annaði ekki fjöldan- um og á sunnudagsmorguninn komst fólk hvorki lönd né strönd vegna bílafjölda. Það voru raðir í miðasölu, leigur og lyftur og starfsmenn reyndu eins og þeir gátu að anna fjöld- anum. Það er nú samt alltaf ánægjulegt þegar svona mikið er að gera og það sem skiptir mestu máli er að dagurinn gangi slysalaust fyrir sig.“ Logi þorði ekki að slumpa á fjöldann en sagði þó að ekki kæmi sér á óvart að um þrjú þúsund manns hefðu heimsótt Skálafell á sunnudaginn. Sunnudagurinn bauð Akur- eyringum einnig upp á heim- sókn á skíðasvæðin þar sem sólríkt og fallegt veður var í Hlíðarfjalli. - bg Skíðasvæðin fjölmenn: Örtröð var í Skálafelli og fjöl- menni á öðrum skíðasvæðum HLÍÐARFJALL Á AKUREYRI Gott veður var á Akureyri á sunnudaginn og margir gripu þann væna kost að skella sér í Hlíðarfjall. Þessir krakkar voru ánægð- ir með daginn. SVÆÐIÐ SEM GÆTI MENGAST VIÐ SLYS Aðvara þyrfti fólk í allt að 2,7 kílómetra fjarlægð slyppi klórgas út í andrúmsloftið. Mörg þúsund manna byggð er í kringum fyrirtækið Mjöll-Frigg. Bæði sjúkrahús höf- uðborgarinnar eru innan svæðisins. KLÓRGAS LEYST ÚR LÆÐINGI Í BANDARÍKJUNUM Fljótandi klór var farmur fragtlestar sem lenti á annarri kyrrstæðri í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum á fimmtudag. Rýma þurfti byggð í tveggja kílómetra radíus. Fólkið fær ekki að snúa heim fyrr en á þriðjudag. Níu létust. Enn er unnið að stöðvun lekans. FRÁ KÁRAHNJÚKUM Framganga Impregilo og yfirvalda vinnumála kunna að setja kjarasamninga í uppnám. M YN D A P M YN D A P Bílvelta: Fimm í skoð- un á spítala LÖGREGLUMÁL Fimm manna fjöl- skylda virðist hafa sloppið vel þeg- ar jeppi sem hún var í valt. Atvikið varð á Vesturlandsvegi sunnan við afleggjarann á Bröttubrekku um kvöldmatarleytið í gær. Ekki sáust áverkar á þeim en læknir sem kom á staðinn ákvað að senda þau til skoðunar á Landsspít- ala – háskólasjúkrahús. Fjölskyldan var á suðurleið. Mikil hálka og ísing var á vegum en fjölskyldan komst út úr bílnum og fékk aðstoð vegfar- enda. Lögreglan í Borgarnesi segir mesta mildi að ekki skyldi fara verr. - gag

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.