Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 29.04.2005, Blaðsíða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 63,52 63,82 120,88 121,46 81,97 82,43 11,006 11,07 10,058 10,118 8,968 9,02 0,5997 0,6033 96,02 96,6 GENGI GJALDMIÐLA 28.04.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 113,327% -0,04% 4 29. apríl 2005 FÖSTUDAGUR Bretland: Tony Blair birtir Íraksskjöl BRETLAND, AP Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, heimilaði í gær að skjöl sem innihalda trúnaðarálit lögfræðilegs ráð- gjafa ríkisstjórnarinnar um lög- mæti innrásarinnar í Írak, sem samið var áður en hún hófst, yrðu birt. Áður hafði Blair stað- fastlega neitað að láta birta álit- ið, en innihald þess lak nýlega til fjölmiðla. „Þið hafið þetta sennilega allt hvort eð er. Ég sé enga ástæðu til að birta þetta ekki,“ sagði Blair við fréttamenn í gær. Blair hafði vonast til að geta látið umræðuna í kosningabaráttunni snúast um efnahags-, mennta- og heilbrigð- ismál, en þess í stað hafa deilurn- ar um það hvernig ákvörðunin var tekin um innrásina í Írak snú- ið athyglinni að trúverðugleika forsætisráðherrans. Deilurnar hafa nú knúið Blair til að reyna að snúa vörn í sókn með því að birta gögnin. „Aðalatriðið er að ríkislög- maðurinn komst að þeirri niður- stöðu að það samræmdist lögum að láta til skarar skríða,“ sagði Blair. „Hvað sem ég segi mun mér aldrei takast að sannfæra suma sem voru andsnúnir þessu stríði. Ég get ekki beðist afsökun- ar á þessari ákvörðun vegna þess að ég tel heiminn betur settan með Saddam Hussein bak við lás og slá en á valdastóli.“ Gögnin sýna að Goldsmith lá- varður, aðallögfræðiráðgjafi for- sætisráðherrans, sagði þann 7. mars 2003 að æskilegra væri að fyrir lægi önnur samþykkt ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem ótvírætt væri veitt heimild fyrir því að hervaldi yrði beitt gegn Írak. Í öðru lögfræði- áliti Goldsmiths sem Blair lagði fyrir þingið þann 17. mars voru þessir fyrirvarar ekki nefndir, aðeins að innrás væri lögform- lega heimil án nýrrar öryggis- ráðssamþykktar. ■ Fólskuleg líkams- árás á Akureyri Fimm menn gengu í skrokk á 17 ára pilti á Akureyri, rifu af honum fötin og drógu hann nánast nakinn eftir malarlögðu plani. Árásarmennirnir hafa allir komið við sögu fíkniefnamála en líkamsárásin tengist ekki fíkniefnum. LÍKAMSÁRÁS Fólskuleg líkamsárás átti sér stað á Akureyri föstudags- kvöldið 11. mars, þegar fimm menn gengu í skrokk á 17 ára pilti, afklæddu hann og drógu eft- ir malarlögðu plani. Lögð var fram kæra sama kvöld. Pilturinn, sem er nemandi við Verkmenntaskólann á Akureyri, hefur aldrei komið við sögu lög- reglunnar þar. Daníel Snorrason lögreglufulltrúi segir einu sök piltsins vera þá að hann bauð syst- ur eins árásarmannsins upp í bif- reið og hafa árásarmennirnir staðfest að það hafi verið ástæða árásarinnar. Samkvæmt frásögn piltsins kannaðist hann lítillega við árás- armennina sem töldu hann á að stíga inn í bifreið sem þeir voru í en síðar var honum skipað að fara ofan í farangursgeymslu bifreið- arinnar. Ekið var með piltinn inn fyrir Akureyrarflugvöll en þar var bifreiðin stöðvuð, honum ógn- að með kúbeini og hann sleginn í andlitið af tveimur mannanna þar sem hann lá í farangursgeymsl- unni. Að því búnu var ekið með piltinn í iðnaðarhverfi nærri Odd- eyrarskála og hann tekinn harka- lega úr farangursgeymslunni, sparkað í andlit hans og höfuð, föt og skór rifin utan af honum og hann dreginn á nærbuxum einum klæða á bakinu eftir malarlögðu plani. Árásarmennirnir höfðu sig loks á brott en tóku áður af piltin- um síma, peninga og fötin og skildu hann eftir á planinu nánast nakinn í fimm stiga frosti og myrkri. Pilturinn þurfti að leita læknis- aðstoðar en Daníel segir hann hafa verið með ljótt svöðusár á baki, auk annarra eymsla, og var hann frá skóla í 10 daga. Daníel segir rannsókn málsins hafa tekið langan tíma þar sem fimmmenn- ingarnir viðurkenndu ekki árás- ina í fyrstu heldur komu sér sam- an um rangan framburð. Árásarmennirnir hafa allir komið við sögu fíkniefnamála og tengjast tveir þeirra málum þar sem ofbeldi hefur verið hótað. Málið telst að mestu upplýst og ganga árásarmennirnir lausir en ekki er um að ræða sömu menn og skutu annan 17 ára pilt á Akureyri 11 skotum með loftskammbyssu fyrir hálfum mánuði. Þolandinn í því máli reyndist þó vera bílstjór- inn í þessu máli. kk@frettabladid.is Berlusconi: Fær blessun þingsins RÓM, AP Efri deild ítalska þingsins studdi í atkvæðagreiðslu nýja rík- isstjórn Silvio Berlusconi forsæt- isráðherra í gær en deginum áður hafði neðri deildin lagt blessun sína yfir hana. Þar með ætti leiðin að vera greið fyrir Berlusconi til að stýra land- inu að minnsta kosti fram að næstu kosning- um, sumarið 2006. Í samtali við blaðamenn lét Berlusconi einnig að því liggja að hann teldi skýringar Bandaríkja- manna um tildrög skotárásarinn- ar á ítalska leyniþjónustumanninn Nicola Calipari í Írak í síðasta mánuði ekki fullnægjandi. ■ Óprúttnir þjófar: Ópið ef til vill eyðilagt NOREGUR Norska dagblaðið Dagbla- det birti í gær frétt þar sem því var haldið fram að málverkin dýr- mætu eftir Ed- vard Munch, Ópið og Madonna, hefðu verið brennd. Verkunum var stolið í fyrra- haust og er talið að sömu menn hafi verið að verki og stóðu á bak við Stavangursránið. Blaðið segist hafa heimildir frá lögreglunni fyrir því að þjófarnir hafi brennt verkin til þess að ekki væri hægt að sanna á þá þjófnaðinn. Yfirmaður rannsóknarinnar á stuldinum sagðist hins vegar í samtali við norska ríkisútvarpið ekkert vita um málið og benti á að lögreglan fengi Dagbladet sjaldan til að birta fréttir. ■ Morð í Afríku: Varpað fyrir ljón HÖFÐABORG, AP Hvítur suður-afrísk- ur bóndi og undirmaður hans voru í gær fundnir sekir um að hafa myrt þeldökkan vinnumann. Morðingjarnir skáru fyrst fórnarlamb sitt með sveðjum, bundu það og kefluðu og óku með það á dýraverndarsvæði. Þar fleygðu þeir manninum ofan í ljónagryfju þar sem hann var ét- inn upp til agna, aðeins fundust nokkur bein af honum. Vitnaleiðslur í málinu snerust að mestu leyti um hvort bóndinn hefði tekið þátt í ódæðinu og hvort fórnarlambið hefði verið lifandi þegar því var varpað fyrir ljónin. Dómarinn taldi að svo hefði verið. Dómur verður kveðinn upp eftir nokkra daga. ■ Hryllilegt og fyndið! REYKSKEMMDIR Í HAFNARFIRÐI Eldur kviknaði út frá hellu í Álf- holti í Hafnarfirði um eittleytið í gærdag. Mikill reykur hlaust af og urðu nokkrar sótskemmdir á íbúðinni sem var mannlaus. Slökkvilið þurfti að brjótast inn í íbúðina og náði fljótlega að slökkva eldinn. Enginn skaði varð á fólki en lögregla rýmdi blokkina meðan á slökkvistarfi stóð. FÍKNIEFNI Í FÆREYSKUM TOGARA Um fimm grömm af maríjúana fundust í gærmorgun við leit toll- gæslunnar og lögreglunnar í Hafnarfirði í færeyskum togara sem lá í Hafnarfjarðarhöfn. Auk þess fundust heimatilbúin áhöld til neyslu fíkniefnanna. Þrír voru færðir til yfirheyrslu og gengust við brotinu. Þeir voru látnir laus- ir en þurfa að greiða sekt. ÓPIÐ Skyldi verkið vera að eilífu glatað? LÖGFRÆÐIÁLIT BIRT Tony Blair ávarpar fjölmiðla í gær. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR IÐNAÐARSVÆÐI Á AKUREYRI Í þessu porti var sparkað í andlit og höfuð piltsins, föt og skór rifin og tætt utan af honum og hann dreginn á nærbuxum einum klæða. GÖMLU BRÝRNAR Ekið var með piltinn í farangursgeymslunni að vinsælu útivistar- svæði á Akureyri innan við flugvöllinn. MEÐ KROSS- LAGÐAR HENDUR Berlusconi mæddist í mörgu í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.