Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 20
Halldóru Bragadóttur arkitekt þykir arkitektúrinn á Háskólabíói mjög nýstárlegur miðað við byggingartímann.
4 27. júní 2005 MÁNUDAGUR
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
S á k ið f i k di bö
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Sumarnámskeið
Keramik fyrir alla
Ennþá laust á vinsælu
barna ámskeiðin.
Ein vika, allt innifalið kr. 8900.-
Bókið núna.
Fossaleyni 8 · 112 Reykjavík
Sími 577 2050 · www.formaco.is
Gluggar
10 ára ábyrgð
Halldóra Bragadóttir arkitekt
segist eiga sér mörg eftirlæt-
ishús en það eitt þeirra standi
upp úr.
„Ég verð að nefna Háskólabíó við
Hagatorg, en ég geng þar um á
hverjum degi,“ segir Halldóra
Bragadóttir arkitekt spurð um
eftirlætishúsið sitt. „Annars er
þetta mjög erfið spurning og mörg
hús koma upp í hugann. Mér detta
einnig í hug Kjarvalsstaðir og Nor-
ræna húsið og fullt af fínum
funkis-húsum. Parhýsið við Há-
vallagötu, flest íbúðarhús Sigvalda
Thordarsonar og þó fussað sé
mikið yfir húsinu milli Hótel Borg-
ar og Reykjavíkur Apóteks finnst
mér það skemmtilegt í götumynd-
inni. Að ónefndum eigin arki-
tektúr,“ segir Halldóra og hlær.
Háskólabíó er samt sem áður
bygging sem hún segir vera í
mestu uppháhaldi enda sé arki-
tektúrinn á húsinu mjög nýstárleg-
ur þrátt fyrir að húsið sé hannað í
kringum 1956.
„Mér þykir voða skemmtilegt
formið sem minnir mig á gamla
myndavél og mér hefur alltaf þótt
frísklegur arkitektúr á bygging-
unni,“ segir Halldóra. Henni þykir
sú seinni tíma viðbygging sem
hefur verið bætt við húsið vera fín
þó að sumar innanhússbreytingar
hafi kannski ekki verið til bóta. Og
henni þykir kominn tími á að laga
eitt og annað á gömlu byggingunni.
„Öll ásýnd hússins einkennist af
vissum borgarbrag og það eru
smápunktar á bláa fletinum þar
sem kemur lýsing og gefur stór-
borgarbrag í myrkri. Það mætti
bara huga betur að því að hafa all-
ar perurnar í gangi,“ segir Hall-
dóra.
„Torgið í kringum Háskólabíó
er skemmtilegt, þetta er skemmti-
leg hverfismiðja sem maður getur
séð fyrir sér í nýjum verkefnum
frekar en að setja skólana út í móa.
Líflegt og skemmtilegt er þarna á
morgnana þegar skólinn stendur
yfir og svo við bíóið á kvöldin,“
segir Halldóra og bætir því við að
afar fallegt sé að sjá Háskólabíó
blasa við endann á Birkimelnum
en verst þykir henni skilti á bens-
ínstöð sem skyggir á útsýnið.
„Húsið er mjög glæsilegt og leiðin-
legt að skiltið skyggi svona á það,“
segir Halldóra
„Þetta er ekta bíó sem gaman er
að hafa í miðju hverfi og stemning
sem maður vildi endurvekja,“
segir Halldóra.
kristineva@frettabladid.is
Skjól er fólki mikilvægt í görðum
sínum enda spretta girðingar og
skjólveggir jafn hratt upp og fíflar
um allan bæ. Girðingar veita ekki
bara skjól undan veðrum og vindum
heldur einnig forvitnum nágrönn-
um og óboðnum
gestum og veita
næði.
Tvær leiðir
eru mögulegar
þegar setja á upp
girðingu eða
skjólvegg, byggja
frá grunni eða
kaupa tilbúið efni.
Best er að byggja
grindverkið frá
grunni þar sem
hægt er að sér-
sníða það eftir
þörfum og þá er
hægt að láta hug-
myndaflugið ráða
ferðinni. Auðveldast á hinn bóginn
er að kaupa tilbúna skjólveggi eða
grindverk, þó fólk sé þá bundið
stöðluðum stærðum en úrval-
ið er þó mikið og grindverkin til af
öllum stærðum og gerðum.
Yfirleitt er gegnvarin fura notuð
í grindverk og er hún grænleit á lit
en einfalt er að mála hana í öllum
regnbogans litum. Áður en grind-
verk er málað
er gott að ráð-
færa sig við
sérfræðinga
því nauðsyn-
legt er að með-
höndla viðinn á
réttan máta svo
hann endist sem
lengst.
Verslanirnar
Húsasmiðjan og
Byko hafa báðar
gefið út bæk-
linga sem leið-
beina fólki um
u p p s e t n i n g u
skjólveggja og
smíðar grindverka. Bæklingarna er
jafnframt hægt að skoða á vefsíðum
verslananna og þaðan er hægt að
prenta efnið út.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
Stórborgarbragur og
gamaldags bíóstemning
Girt upp fyrir sig
Grindverk og veggir veita skjól og næði í íslenskum görðum.
Tilbúnir skjólveggir og grindverk í Húsa-
smiðjunni.
Hár skjólveggur lokar garðinn vel af og
ekki auðvelt fyrir óboðna gesti að komast
þar inn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
/G
ET
TY
Tilbúnir skjólveggir og grindverk í Byko
(hér að ofan og neðan).